Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2009, Síða 10
föstudagur 13. mars 200910 Fréttir
Fólk beggja vegna Atlantsála er furðu
lostið vegna voðaverka sem annars
vegar voru framin í Alabama í Banda-
ríkjunum og hins vegar í smábæn-
um Winnenden, skammt frá borginni
Stuttgart í Þýskalandi.
Að kvöldi þriðjudags, að staðar-
tíma, rann morðæði á mann í bæjun-
um Kinston og Samson Alabama, með
þeim afleiðingum að ellefu manns
lágu í valnum, þeirra á meðal ódæð-
ismaðurinn. Á meðal fórnarlamba
mannsins var fjölskylda hans.
Á fimmtudaginn gekk sautján ára
unglingur í þýska bænum Winnenden
berserksgang, réðist inn í Albertville-
framhaldsskólann og myrti þar tólf
manns; níu nemendur og þrjá kenn-
ara, úr skólanum flýði hann til geð-
læknastofu þar sem hann hafði verið
í meðferð. Þar myrti hann garðyrkju-
mann áður en hann rændi bifreið
og hélt áfram flóttanum. Síðar myrti
hann tvær manneskjur að auki áður
en hann beindi byssunni að sjálfum
sér eftir að hafa lent í skotbardaga við
lögregluna.
Þurrkaði út fjölskyldu sína
Yfirvöld í Alabama hafa reynt að
henda reiður á hvað olli því að Mi-
chael McLendon varð tíu manns
að bana í einum blóðugasta glæp
sem framin hefur verið í sögu fylk-
isins. Harmleikurinn hófst síðdeg-
is á þriðjudag í bænum Kinson þegar
McLendon myrti móður sína á sam-
eiginlegu heimili þeirra, sem hann
síðan bar eld að. Ekki liggur ljóst fyr-
ir hvort McLendon skaut móður sína
og kveikti síðan í heimilinu eða hvort
móðir hans lést í eldsvoðanum.
Frá Kinson lá leiðin til nágranna-
bæjarins Samson. Þangað kominn
hóf hann skothríð að verönd heimil-
is frænda síns, þar sem samankom-
in voru frændi hans og fleiri ættingjar
ásamt nágrönnum.
Átján mánaða fórnarlamb
Svo vildi til að nágrannarnir voru fjöl-
skylda aðstoðarlögreglustjóra Gen-
eva-sýslu, Josh Myers, sem síðar tók
þátt í eltingaleiknum við McLendon,
óafvitandi að eiginkona sín og átján
mánaða dóttir voru á meðal fórnar-
lambanna. Fjögurra mánaða dóttir
Myers særðist alvarlega og nágrann-
ar fundu síðar fjögurra ára son hans í
felum á heimili Myers-fjölskyldunnar.
Sennilega varð það fjögurra ára dóttur
Myers til lífs að nágrannakona heyrði
grát hennar og kom henni í skjól í
þann mund sem McLendon ók upp
götuna skjótandi af byssu sinni.
Auk eiginkonu og dóttur Myers féllu
fimm manns fyrir skothríð McLend-
ons að veröndinni. En McLendon lét
ekki þar við sitja og snéri sér heimili
ömmu sinnar sem var ekki langt frá og
myrti hana líka.
Michael McLendon framdi sjálfs-
víg eftir að hafa lent í skotbardaga við
lögregluna, þeirra á meðal Josh Myers
sem enn vissi ekki um afdrif eiginkonu
sinnar og barna. En áður en McLend-
on beindi byssu að sjálfum sér hafði
hann myrt þrjá til viðbótar; tvo vegfar-
endur og bílstjóra pallbíls sem var svo
ólánssamur að verða á vegi hans.
Hélt skrá yfir óvildarmenn
Líkt og ávallt í kjölfar harmleikja á
borð við þann sem átti sér stað í Ala-
bama stendur fólk agndofa og á vörum
þess brenna ótal spurningar og gjarna
er fátt um svör. Michael KcLendon,
sem var tuttugu og átta ára, var ekki á
sakaskrá og var, að sögn Roberts Prea-
cher dánardómstjóra í Coffee-sýslu,
hinn vænsti drengur. „Hann var við-
kunnalegur, rólegur drengur, engin
vandræði. Hann var ávallt kurteis og
almennilegur,“ sagði Preacher, sem
þekkti McLendon, sem og flest fórn-
arlambanna.
Robert McLendon hafði reynt við
lögregluskólann og reyndar unnið
sem lögreglumaður í einhvern tíma.
Þegar lögreglan hóf að kanna hverjar
gætu verið ástæður þess að McLend-
on breyttist úr hæglætismanni í
fjöldamorðingja fann hún þrjá lista
í svefnherbergi hans á sameiginlegu
heimili hans og móður hans. Á listun-
um var að finna nöfn þeirra sem höfðu
„gert á hlut“ hans. Nöfn fórnarlamba
hans var þó ekki að finna á listanum,
en hann þykir engu að síður bera þess
vitni að grunnt hafi verið á gremju í
huga McLendons.
Skóli vettvangur fjöldamorðs
Í Winnenden í Þýskalandi, í órafjar-
lægð frá blóðugri verönd í Samson
í Alabama, ákvað ungur maður að
launa skólafélögum sínum lambið
gráa. Að morgni miðvikudags klæddi
hinn sautján ára Tim Kretchmer í
Winnenden í Þýskalandi sig í fatnað
sem hæfði sérsveitarhermanni og fór
í Albertville-framhaldsskólann.
Nú hefur komið í ljós að kvöldið
áður hafði Kretchmer varað við því
á spjallrás á netinu að hann myndi
gera árás á skólann vegna þess að allir
„hlæja að mér“.
„Allir hlæja að mér. Enginn viður-
kennir að ég eigi möguleika. Ég hef
vopn, ég hef byssur, og í fyrramál-
ið mun ég fara í gamla skólann minn
minn og sýna þeim hvað ég er fær
um,“ sagði í orðsendingunni á spjall-
rásinni. Orðsendingin var undirrituð
„nafnleynd, Winnenden“.
Kvenfólk skotmörk
Í fyrstu hefur eflaust virst sem
Kretchmer hafi einfaldlega skotið
þá sem fyrir urðu, en nú hefur kom-
ið í ljós að engu líkara er en kvenfólk
hafi verið skotmörk hans. Í skólanum
myrti Kretchmer níu nemendur og
þrjá kennara. Kennararnir voru all-
ir kvenkyns og átta af nemendunum
voru stúlkur.
Að sögn lögreglunnar í Þýska-
landi voru öll fórnarlömb Kretchmers
í skólanum skotin beint í höfuðið og
komið hefur í ljós að kennararnir, í
það minnsta tveir þeirra, voru skotn-
ir þegar þeir reyndu að skýla krökkun-
um fyrir skotum hans.
Fyrsti viðkomustaður Kretchmers
í skólanum kennslustofa 10D-bekkj-
ar, bekkjarins sem hann hafði verið í
þegar hann hrökklaðist úr skóla. Þar
skaut hann hvað flestum skotum, fór
inn og út úr stofunni þrisvar sinnum
og spurði „Eru þið öll dauð?“
Uppgjör við verslunarmiðstöð
Tim Kretchmer virðist ekki hafa gengið
heill til skógar andlega því hann hafði
verið í meðferð á geðsjúkrastofnun
sem er gegnt skólanum og þegar hann
flýði af vettvangi myrti hann garð-
yrkjumann sem þar var að störfum.
Kretchmer tók bifreið traustataki og
neyddi bílstjórann til að aka sem leið
lá út úr bænum en sleppti bílstjóran-
um þegar komið var að hraðbrautinni
til Stuttgart. Reyndar komst Kretchmer
aldrei til Stuttgart því harmleiknum
lauk í Wendlingen þar sem lokaupp-
gjör hans og lögreglunnar fór fram. En
áður en til þess kom hafði hann myrt
tvær manneskjur í viðbót. Kretchmer
féll að lokum fyrir eigin hendi eftir að
hafa látið kúlunum rigna yfir lögreglu-
bifreið með þeim afleiðingum að tveir
lögreglumenn særðust alvarlega.
Engar einhlítar skýringar
Það er fastur liður þegar harmleikir
af þessum toga eiga sér stað í Banda-
ríkjunum að benda á almenna byss-
ueign landsmanna og frjálslynda
skotvopnalöggjöf þar í landi. Gagn-
rýnendur skotvopnalaganna hafa iðu-
lega vísað til fjöldamorða af þessu tagi
gagnrýni sinni til stuðnings. Stuðn-
ingsmenn skotvopnalaganna grípa
gjarna til fullyrðingar sem eitt sinn
var varpað fram; að það sé ekki byss-
an sem drepi heldur manneskjan sem
heldur á henni. Það hlýtur þó að teljast
deginum ljósara að enginn er fær um
að skjóta annan til bana með byssu ef
engin er byssan.
Hvað sem þessum vangaveltum
líður er ekki hægt að kenna almennri
skotvopnaeign eða frjálslyndum lög-
um í þeim efnum um harmleikinn
í Winnenden. Hvað Tim Kretchmer
varðar átti hann hægt um vik við að
verða sér út um skotvopn. Faðir hans
er meðlimur í byssuklúbbi og á sextán
byssur. Fimmtán þeirra voru í læstum
skáp, sextándu byssuna, 9 millimetra
Berettu, notaði Kretchmer við fjölda-
morðin.
Á innan við sólarhring féllu samtals tuttugu og fimm manns fyrir hendi fjöldamorðingja beggja vegna Atl-
antsála. Annars vegar í Alabama í Bandaríkjunum og hins vegar í Winnenden, þýskum smábæ. Í Alabama
átti í hlut hæglætismaður, en í Winnenden var um að ræða ungling sem taldi sig eiga eitthvað óuppgert við
fyrrverandi skólafélaga sína.
„Eru þið öll dauð?“
„Allir hlæja að mér. Enginn viðurkennir að ég eigi
möguleika. Ég hef vopn, ég hef byssur, og í fyrra-
málið mun ég fara í gamla skólann minn minn og
sýna þeim hvað ég er fær um.“
KolbEinn ÞorStEinSSon
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
lögreglan á vettvangi
Lík eins fórnarlamba
Kretchmers sveipað dúk á
vettvangi ódæðisins.