Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2009, Síða 13
föstudagur 13. mars 2009 13Fréttir
Eigum pústkerfi
í flestar gerðir bifreiða
Gott verð!
inu. Gísli Árni Eggertsson, skrif-
stofustjóri Íþrótta- og tómstunda-
„Við lítum svo á að börnin séu
að taka þátt í formlegu frístunda-
starfi á frístundaheimilunum en
þar fer fram margs konar starf-
semi sem er sniðin að aldri þeirra
og þörfum. Þá taka ekki öll börn
sem sækja frístundaheimilin þátt
í öðru frístundastarfi og þótti
ástæða til að gefa foreldrum þeirra
möguleika á að nýta kortið til að
greiða niður dægradvölina. Það
skal þó tekið fram að full vistun á
frístundaheimili kostar um 8.000
Smáauglýsingasíminn er
515 5550
smaar@dv.is
Til fermingagjafa
Komið í miðbæinn og
skoðið fermingatilboðin
okkar
FERÐTÖSKUR
ÍÞRÓTTATÖSKUR
BEAUTYBOX
BAKPOKAR
SEÐLAVESKI
TÖLVUTÖSKUR
Skólavörðustíg 7 l 101 Reykjavík l Sími 551 5814 l www.th.is
2007:
Baugur
kaupir Eik.
2007: Yfirtöku á moasic fashions
og Kepos lokið. auður Jóns Ásgeirs
metinn á 75 milljarða króna.
2007: Hluta-
fjáraukning
í fL group.
fjárfestingin
skilar gríðar-
legu tapi.
2008: fL
group
afskráð og
breytist í
stoðir.
2008 forseti Íslands
veitir Baugi útflutnings-
verðlaun ársins.
2008:
Krónan
byrjar að
falla.
2008: glitnir
yfirtekinn af
ríkinu. stoðir
í greiðslu-
stöðvun.
2008: Baugur
selur Haga
til gaums
og hættir
smásöluverslun
á Íslandi.
2008:
Baugsmenn
draga úr
fjölmiðla-
rekstri
sínum.
2009: Baug-
ur flytur úr
landi. skuldir
Baugs
gríðarlega
miklar og
erfiðlega
gengur að
semja við
lánardrottna.
2009:
Baugur
óskar eftir
greiðslu-
stöðvun.
2009:
gjaldþrot
blasir við
Baugi
group.
HRINGNUM LOKAÐ
annars Hamleys, Magasin du Nord,
Goldsmiths, Big Food Group, Mosaic
Fashions, Jane Norman, Whittard of
Chelsea, Iceland, Illum, All Saints og
fjölmörg önnur félög.
Á skilorði
28. ágúst árið 2002 dró til tíðinda.
Starfsmenn efnahagsbrotadeild-
ar Ríkislögreglustjóra gerðu húsleit
á skrifstofum Baugs í Skútuvogi og
upphófust þá sex ára málaferli fyr-
ir dómstólum sem leiddu til þess
að Jón Ásgeir var dæmdur í 90 daga
skilorðsbundið fangelsi og gat þess
vegna ekki stýrt Baugi lengur. 1. júlí
árið 2005 voru ákærur gegn sak-
borningum í Baugsmálinu birtar
í 40 liðum og sakborningarnir Jó-
hannes Jónsson, Jón Ásgeir Jóhann-
esson og Kristín Jóhannesdóttir.
Einnig var Tryggvi Jónsson ákærð-
ur og endurskoðendurnir Anna
Þórðardóttir og Stefán Hilmarsson.
Ákærurnar snéru að auðgunarbrot-
um, bókhaldsbrotum og brotum á
lögum um ársreikninga.
Fréttablaðið birti 12. ágúst sama
ár ákærurnar, daginn áður hafði
breska blaðið The Guardian birt
þær. Í þingfestingu fyrir héraðsdómi
nokkrum dögum síðar lýstu Baugs-
menn sig saklausa af öllum ákæru-
liðum. Í september fór það svo að
öllum ákærum í Baugsmálinu var
vísað frá dómi vegna formgalla.
Þriggja ára vinna efnahagsbrota-
deildar þótti ekki tæk til efnislegrar
meðferðar.
Mánuði síðar voru allar ákær-
urnar birtar aftur, en Hæstiréttur
vísaði 32 af 40 ákæruliðum frá dómi.
Þann 15. mars árið 2006 komst Hér-
aðsdómur Reykjavíkur svo að fyrstu
niðurstöðu sinni í málinu með því
að sýkna alla sakborninga af ákæru-
liðunum.
Ríkissaksóknari sætti sig hins
vegar ekki við þessa snautlegu nið-
urstöðu og lagði fram nýjar ákærur
í nítján liðum á hendur Jóni Ásgeiri
Jóhannessyni og Tryggva Jónssyni
fyrir fjárdrátt, fjársvik og bókhalds-
brot.
Í maí 2007, eftir margra mánaða
vitnaleiðslur, kvað Héraðsdómur
Reykjavíkur upp dóm sinn. Jón Ás-
geir fékk þriggja mánaða skilorðs-
bundið fangelsi og Tryggvi Jónsson
fékk níu mánaða skilorðsbundið
fangelsi.
Pólitískar ofsóknir?
Jón Ásgeir og Jóhannes faðir hans
kvörtuðu sáran undan málaferl-
unum á hendur þeim, sögðu þau
sprottin undan rifjum yfirvalda og
hefur fjandskapur þeirra feðga við
Davíð Oddsson gjarnan verið nefnd-
ur sem undirrót málsins. Málaferl-
in hafi heft vöxt Baugs mikið og tor-
veldað þeim í viðskiptum í Bretlandi.
Engu að síður reis frægðarsól Baugs-
manna hátt á því tímabili sem Baugs-
málið stóð yfir. Fullyrt hefur verið að
til hafi staðið að handtaka Jón Ásgeir
við komuna til landsins í Leifsstöð
í ágúst 2002, en því hefur allt f ver-
ið neitað. Óvild milli þeirra feðga og
forystumanna Sjálfstæðisflokksins er
þó öllum ljós. Þannig birti Jóhannes
heilsíðuauglýsingar í flestum d g-
blöðum daginn fyrir alþingiskosn-
ingarnar árið 2007, þar sem hann
hvatti til þess að kjósendur strikuðu
út nafn Björns Bjarnasonar.
Jón Ásgeir segist sjálfur hafa
heimildir fyrir því að ákvörðun
Landsbankans um að hætta viðræð-
um við Baug hafi ekki verið tilviljun
því Davíð Oddsson hafi sett það sem
skilyrði fyrir því að hætta í Seðla-
bankanum að Baugur yrði felldur á
sama tíma. Þessu hafa ráðherrar og
forsvarsmenn Landsbankans neitað
alfarið.
Gjaldþrot
Gjaldþrot Baugs Group verður að
öllum líkindum stærsta gjaldþrot
Íslandssögunnar. Íslandsbanki og
Glitnir eru stærstu kröfuhafarn-
ir og skuldirnar eru 148 milljarðar
króna umfram eignirnar. DV hefur
rætt við fjölda málsmetandi manna
í viðskiptalífinu til þess að reyna að
leggja mat á fjárhagslega stöðu Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar, allir eru þeir
sammála um að það sé nærri ógjörn-
ingur, en líklega sé hann á hausnum,
þar til annað kemur í ljós.
Í gjaldþrotaskiptalög-
um eru ákvæði sem
heimila riftun við-
skiptasamninga allt að
24 mánuði aftur í tím-
ann frá því að félag ósk-
ar eftir því að vera tekið
til gjaldþrotaskipta.
Jóhannes Jónsson Baugur er búinn
að vera. Jóhannes segist þó hvergi af
baki dottinn. „Ég ætla að halda áfram og
vera aldrei grimmari en nú.“