Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2009, Qupperneq 16
föstudagur 13. mars 200916 Fréttir
Við bankahrunið í haust var Lands-
bankinn við það að láta klára fyrir
sig mjög dýra Icesave-sjónvarpsaug-
lýsingu sem nota átti til að mark-
aðssetja Icesave-reikningana í Hol-
landi, og í kjölfarið líklega víða um
lönd. Auglýsingin var tekin upp víða
í náttúru Íslands snemma síðastlið-
ið sumar, meðal annars á Reykja-
nesi, að sögn Ralphs de Haan hjá
hollenska framleiðslufyrirtækinu
Hazazah sem vann við auglýsinguna
sem undirverktaki hollensku auglýs-
ingastofunnar N=5. Íslenska fram-
leiðslufyrirtækið Pegasus kom einn-
ig að framleiðslu auglýsingarinnar,
að sögn Snorra Þórissonar, fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins.
Alþjóðleg Icesave-auglýsing
De Haan segir að fyrst um sinn hafi
einungis átt að nota Icesave-auglýs-
inguna til að markaðssetja Icesave-
reikningana í Hollandi en að svo hafi
átt að nota hana víðar um lönd; aðrar
heimildir DV staðfesta þetta. „Aug-
lýsingin var hluti af markaðsherferð
Icesave í Hollandi,“ segir de Haan en
Landsbankinn byrjaði að bjóða upp
á Icesave í landinu í maí árið 2008.
Við það tilefni sagði Sigurjón Árna-
son, bankastjóri Landsbankans: „Við
erum sannfærð um að Icesave, sem
býður upp á samkeppnishæf kjör og
margs konar sparnaðarleiðir, laði að
skynsama sparifjáreigendur í Hol-
landi, rétt eins og gerst hefur í Bret-
landi,“ en viðskiptavinir Icesave í
Bretlandi voru 220.000 talsins um
þetta leyti.
Sigurjón, sem kalla mætti guð-
föður Icesave, hafði yfirumsjón með
gerð Icesave-auglýsingarinnar fyr-
ir hönd Landsbankans, samkvæmt
heimildum DV. „Sigurjón var stjórn-
andi sem var alltaf með puttann á
öllum þráðum í bankanum,“ seg-
ir heimildarmaður DV en nokkr-
ir starfsmenn Landsbankans lásu
handritið að auglýsingunni yfir og
gerðu athugasemdir við það, sam-
kvæmt heimildum.
Frekari landvinningar Icesave
Landsbankinn bauð aðeins upp á
Icesave-reikningana í Bretlandi og
Hollandi en fyrir fall íslensku bank-
anna unnu starfsmenn Landsbank-
ans að því að kanna grundvöllinn
fyrir því að bjóða upp á Icesave í ná-
grannalöndum okkar, meðal annars
í Noregi, líkt og starfsmaður mark-
aðsdeildar bankans, Þórlindur Kjart-
ansson, greindi frá í DV á miðviku-
daginn. Bankinn gaf það út í maí á
síðasta ári að opnun Icesave í Hol-
landi hefði aðeins verið fyrsta skref-
ið í sókn Landsbankans með Icesave
inn á markaði á meginlandi Evrópu.
Auglýsingin átti líklega að vera hluti
af þessari útrás. De Haan segir hins
vegar að stuttu eftir bankahrunið
hafi fyrirtækinu verið sagt að aug-
lýsingin yrði ekki kláruð og því ekki
sýnd opinberlega.
Samkvæmt heimildum DV var
auk þess ekki mikill þrýstingur frá
Landsbankanum á að auglýsingin
yrði kláruð þar sem Icesave-reikn-
ingarnir gengu vonum framar í
Hollandi, en um 125 þúsund ein-
staklingar þar í landi opnuðu Icesa-
ve-reikninga á þeim mánuðum sem
boðið var upp á þá í landinu fram að
efnahagshruninu í haust.
Lítill auglýsingakostnaður
einn af kostum Icesave
Þessar vinsældir Icesave voru til-
komnar að mestu leyti án auglýsinga
en einn af kostum Icesave var frá
byrjun talinn vera að reikningarn-
ir auglýstu sig að mestu leyti sjálf-
ir á internetinu auk þess sem mikil
umfjöllun var um þá í Bretlandi og
Hollandi. Um þennan kost Icesave
sagði Sigurjón Árnason í blaðaviðtali
við Markað Fréttablaðsins í ársbyrj-
un 2007. „Við duttum því niður á þá
hugmynd að búa til netreikning sem
ber hærri innlánsvexti en gengur og
gerist og auglýsir sig þannig sjálf-
ur því það er svo dýrt að auglýsa,“
sagði bankastjórinn en í viðtalinu
kallaði hann Icesave „tæra snilld“. Í
viðtalinu segir jafnframt: „„Það eina
sem ég þarf að gera er að kíkja í lok
dags hvað er kominn mikill peningur
inn,“ segir Sigurjón hlæjandi, tekur
upp símann og segir skömmu síðar:
„Það bættust við fimmtíu milljónir
punda bara á föstudaginn!““ Þar vís-
ar Sigurjón til Icesave í Bretlandi.
Auglýsing Icesave virðist hins
vegar benda til þess að Landsbank-
inn hafi fallið frá þeirri stefnu að láta
Icesave auglýsa sig sjálft eftir að byrj-
að var að bjóða upp á reikningana í
Hollandi og má líta á hana sem lið í
fyrirhugaðri útrás bankans til ann-
arra landa. Forsvarsmenn bankans
virðast hafa komist að því að ekki
væri bara nóg að kíkja í lok dags
hversu miklir peningar hefðu komið
inn á Icesave-reikningana þann dag-
inn því auglýsa þyrfti vöruna í aukn-
um mæli.
„Fallegt land; fallegur
bankareikningur“
De Haan segir að auglýsingin hafi
verið metnaðarfull og að markmið-
ið með henni hafi verið að sýna fólki
fram á hversu háa vexti Icesave byði
upp á og hversu einfaldir reikning-
arnir væru í notkun. „Í auglýsing-
unni var rætt um þá háu vexti sem
voru á Icesave-reikningunum. Hug-
myndinni í auglýsingunni má lýsa
sem svo: fallegt land; fallegur banka-
reikningur,“ segir de Haan sem segist
annars ekki geta greint nákvæmlega
frá efni auglýsingarinnar því hann
hafi verið beðinn um að gera það
ekki. Inntakið í auglýsingum Icesa-
ve erlendis var alltaf byggt upp á því
hversu háir vextirnir á reikningunum
voru auk þess hversu einfalt væri að
stofna reikningana og nota þá.
Upphaflega átti íslenskur leikari
að vera í aðalhlutverki í auglýsing-
unni en de Haan segir að fyrirtæk-
ið hafi fallið frá því og fundið leik-
ara í Bretlandi til að leika í henni. De
Haan getur hvorki gefið upp nafn ís-
lenska leikarans né þess breska.
Snorri Þórisson, hjá Pegasusi,
segir að hluti auglýsingarinnar hafi
Hollensk auglýsingastofa og framleiðslufyrirtæki unnu að mjög
dýrri Icesave-sjónvarpsauglýsingu fyrir Landsbankann fyrir
bankahrunið í haust. Auglýsinguna átti að nota til að mark-
aðssetja Icesave á alþjóðavettvangi og hafði Sigurjón Árnason,
bankastjóri Landsbankans, umsjón með henni. Í auglýsingunni
var rætt um háa vexti og einfaldleika Icesave og þessir eiginleik-
ar settir í samhengi við náttúru Íslands. Auglýsingin var ekki
kláruð út af bankahruninu og hefur hún ekki birst opinberlega.
IngI F. VILhjÁLmSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
ICESAVE ÁTTI AÐ SIGRA EVRÓPU
„Við erum sannfærð um
að Icesave, sem býður
upp á samkeppnishæf
kjör og margs konar
sparnaðarleiðir, laði
að skynsama sparifjár-
eigendur í Hollandi,
rétt eins og gerst hefur í
Bretlandi.“
guðfaðir Icesave Bankastjóri Landsbankans, sigurjón
Árnason, var með puttana í gerð Icesave-auglýsingar-
innar sem aldrei var kláruð vegna bankahrunsins. Hér
sést hann með Björgólfi guðmundssyni, stjórnarfor-
manni og einum helsta eiganda gamla Landsbankans.
mjög dýr Icesave-auglýsing auglýsingin fyrir
Icesave-innlánsreikningana var mjög dýr samkvæmt
heimildum dV. framleiðandi auglýsingarinnar segir hins
vegar að hún hafi verið frekar lágstemmd og að í henni
hafi verið rætt um háa vexti og einfaldleika Icesave.