Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2009, Qupperneq 19
föstudagur 13. mars 2009 19Umræða
Hver er maðurinn? „maðurinn
er guðmundur Ingvarsson og er
reykvíkingur.“
Hvað drífur þig áfram? „Áhuginn
fyrir lífinu.“
Hvar ertu uppalinn? „Í reykjavík.“
Hver er fyrsta minningin? „Ég á
eina mjög sterka minningu frá því að
ég var fimm ára gamall. Þá fór ég í
bíó í fyrsta skipti með pabba, það var
mikil upplifin og gleymist seint.“
Ef ekki Ísland, hvaða land þá?
„mér líður mjög vel á flórída og í
Noregi.“
Hvaða bók lastu síðast? „myrká
eftir arnald Indriðason.“
Hvert er uppáhaldshúsverkið?
„að borða. Ég er ekki mjög sterkur
í húsverkunum en ég er góður á
grillinu.“
Heldurðu að árangur Íslands
á Ólympíuleikunum komi þér
til góða í kjörinu? „Ég er viss um
það, já.“
Hvert verður markmið þitt ef
þér tekst að ná kjöri? „að efla enn
frekar góða íþrótt.“
Muntu reyna að uppræta
umtalaða spillingu í Alþjóðlega
handknattleikssambandinu?
„Ég vil auðvitað ekki fullyrða að það
sé spilling en það fer vont orð af
íþróttinni og það vil ég uppræta.“
Áttu þér draumaeftirmann? „Já,
en ég vil ekki greina frá því hver það
er.“
Hvað er fram undan? „Vonandi að
komast í sumarbústað um helgina
og svo að reyna að komast með
lansdliðinu til makedóníu.“
Hver er draumurinn? „að halda
góðri heilsu og eiga áfram farsælt líf
með mínum nánustu.“
Ertu mEð sumarvinnu?
„Það eru svona 80 prósent líkur á því
að starfið verði enn til í sumar. Það er
hjá sólvangi.“
Atli PÁll HElgAson
17 Ára NemI
„Nei, en ég get fengið sumarvinnu þar
sem ég vinn. Ég vinn á kassa í
matvörubúð.“
MonikA PiEkArskA
16 Ára NemI Í mh
„Nei, ég vinn kvöldstarf í Nóatúni en er
að leita mér að fullri vinnu í sumar en
er ekki kominn með neitt enn.“
BjArki jÓnsson
17 Ára NemI
„Nei, ekki alveg. Ég er að leita en ég er
með kvöldstarf.“
EinAr Pétur Pétursson
17 Ára NemI
Dómstóll götunnar
guðMundur ingvArsson,
formaður handknattleikssambands
Íslands, hefur ákveðið að bjóða sig fram
til forseta aþjóðlega handknattleiks-
sambandsins á ársþingi þess í sumar.
Góður á Grillinu
„Nei, ekki neitt fast. Ég mun samt
örugglega vinna á leikjanámskeiði eins
og undanfarin ár. Ég get fengið vinnu
þar.“
sAndrA BirnA rAgnArsdÓttir
17 Ára NemI Í mh
maður Dagsins
Móðir mín snýr heim frá Pakistan,
sólbrennd og skelfd. Hún er komin til
Noregs eftir þriggja vikna dvöl í heim-
sókn hjá karli föður mínum, meðan
ég var að passa börnin. Karlinn er nú
staddur í Lahore við landamæri Ind-
lands, sem eru örlítið, en þó ekki mik-
ið, friðsamari en landamærin hinum
megin við. Vesturlandamærin liggja
upp að Afganistan, og einhvers stað-
ar þar felur Bin Laden sig líklega í ein-
hverjum hellinum undan sprengjum
Bandaríkjamanna. Austan megin,
upp við Kasmír, er hins vegar fað-
ir minn staddur. Undanfarna áratugi
hefur hann búið víðsvegar um heim-
inn og starfað við að sprengja upp
náttúruperlur hér og þar, allt frá Kára-
hnjúkum til Kína. Í stað þeirra standa
nú stíflur.
Inni á milli flugdrekahlaupara sem
koma fram á þessum tíma árs og sýna
listir sínar, hlaupandi með snúrurn-
ar ofan á háum veggjum þar sem lífs-
hættulegt er að falla niður, býr hann á
hóteli umkringdur vopnuðum vörð-
um og hefur, eftir atburði undanfar-
inna daga, fengið einkalífvörð eins og
fyrrverandi forsætisráðherra Íslands.
Flugdrekahlauparar
og krikketlið
Þau bjuggu þó ekki ein á hótelinu,
gömlu hjónin, því einnig var þarna
statt krikketlið Sri Lanka í keppnis-
ferð. Krikket er þjóðaríþrótt Pakistana
eins og margra annarra landa sem eitt
sinn tilheyrðu breska heimsveldinu.
Illa gengur þó að fá erlend lið í heim-
sókn til að keppa við, þar sem þau ótt-
ast mjög um líf sitt þegar til Pakistan
er komið. Krikketlið Ástralíu og Ind-
lands höfðu hætt við, en Sri Lanka-
menn ákváðu að láta á þetta reyna,
enda ýmsu vanir af heimaslóðum.
Móðir mín segir að hún hafi ekkert
skilið í því hversu mikill viðbúnaður
var í kringum þetta eina íþróttalið, en
lögreglumenn keyrðu bæði á undan
og eftir rútu þeirra. Beint á eftir rút-
unni var síðan sendiferðabíll merkt-
ur sama hóteli að keyra íslenska konu
út á flugvöll sem fannst þægilegt hvað
öll umferð var stöðvuð fyrir halalest-
ina.
Hart barist á gatnamótunum
Rútan og fylgdarlið hennar tóku
beygju og gamla fólkið hélt áfram út
á völl. Um tíu mínútum síðar, á hring-
torgi ekki langt frá, var rútan um-
kringd af hryðjuverkamönnum. Sex
lögreglumenn voru drepnir ásamt bíl-
stjóranum og níu íþróttamenn særð-
ir. Tilgangur árásarinnar virðist ekki
hafa verið annar en sá að sýna fram
á að pakistönsk yfirvöld stjórni ekki
landinu í reynd og geti ekki ábyrgst
öryggi neins. Hryðjuverkamönnun-
um virðist ekki aðeins hafa tekist það,
heldur líklega einnig að gera útaf við
þjóðaríþrótt Pakistana. Ólíklegt er að
önnur lið sæki landið heim í bráð.
Nokkrum dögum síðar, hálfum
heimi í burtu, eru Tamílar að mót-
mæla í Ósló og hafa myndað manna-
keðju meðfram allri Karl-Johan, frá
Stortinget til Oslo Sentralstasjon.
Hópurinn Norsk Tamilsk Forum
hvetur yfirvöld í Noregi til að skerast
í leikinn, enda eru Norðmenn þekktir
sem friðarstillar. Sumir bera fána með
mynd af tígrísdýri, tákni Tamíla, aðrir
skilti með skilaboðum eins og „Nor-
egur: Bregstu við áður en það er of
seint.“
tamílar í Ósló
Ég vissi ekki að það væru svona marg-
ir Tamílar búsettir Ósló, en hér eru
þeir samankomnir, enda illbúanlegt í
heimalandinu. Síðan um miðjan jan-
úar hefur staðið yfir stórsókn hers Sri
Lanka gegn Tamílum á Vanni-svæð-
inu. Ætlunin er að gera endanlega útaf
við uppreisn og hryðjuverkastarfsemi
Tamíla, en ólíklegt er að það gangi
betur en tilraunir Ísraela til að gera
hið sama á Gaza. Tamílar eru um 18%
af hinum 20 milljón íbúum Sri Lanka,
en á Indlandi búa um 60 milljónir
Tamíla. Þar hafa þeir fengið tungumál
sitt viðurkennt og una nokkuð sáttir
við sinn keip, en á Sri Lanka var ríkis-
borgararétturinn tekinn af þeim þeg-
ar landið lýsti yfir sjálfstæði. Þar hefur
geisað borgarastyrjöld í næstum 30 ár,
þó að ríkisborgararéttinum hafi verið
skilað. Sumir velta því fyrir sér hvort
Tamílar hafi borið ábyrgð á árásinni
á krikketlið Sri Lanka, en jafnvel her-
foringjum Sri Lanka-hers finnst það
ólíklegt.
Það er ekki líklegt að vandamál
Tamíla á Sri Lanka eða fólks almennt
í Pakistan verði leyst í bráð. Ekki er
heldur líklegt að Norðmenn sker-
ist í leikinn, þetta er allt svo óralangt
í burtu. Og samt verður að segjast
eins og er, að tilhugsunin um þjóð-
félag í upplausn stendur manni mun
nær núna en hún gerði fyrir nokkrum
mánuðum.
Á hinum enda heimsins
mynDin
sjóklár Hvalur steingrímur J. sigfússon sjávarútvegsráðherra staðfesti í febrúar ákvörðun forvera síns um að hvalveiðar verði óbreyttar í ár. Því kom það sigtryggi ara
Jóhannssyni ljósmyndara lítið á óvart þegar hann gekk fram á hvalveiðiskipið hval 8 þar sem það var gert sjóklárt í vikunni.
kjallari
vAlur gunnArsson
rithöfundur skrifar
„Sumir velta því fyrir
sér hvort Tamílar
hafi borið ábyrgð
á árásinni á
krikketlið Sri
Lanka.“