Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2009, Page 23
föstudagur 13. mars 2009 23Fókus
Ljósmyndasýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands er opnuð á morgun í Gerðarsafni:
mynd ársins valin
Sópransöngkonurnar Auður
Gunnarsdóttir, Elín Ósk Óskars-
dóttir, Hulda Björk Garðarsdótt-
ir og Þóra Einarsdóttir leiða sam-
an hesta sína í Íslensku óperunni
á laugardagskvöld. Tónleikarnir
bera yfirskriftina Prímadonnurnar
en þeir hefjast klukkan 20.00. All-
ar eru þær þekktar fyrir söng sinn
hér heima sem og úti en þetta er
í fyrsta skipti sem þær koma allar
fram saman.
Auk þessa glæsilega hóps af
færustu söngkonum landsins
verður Antonía Hevesi, fastráðinn
píanóleikari við Íslensku óperuna,
þeim til halds og trausts. Efnisskrá-
in verður ekki af verri endanum,
en þar má finna margar af helstu
perlum óperubókmenntanna, arí-
ur, dúetta og samsöngsatriði, eft-
ir Bellini, Mozart, Verdi, Wagner,
Puccini, Rossini og fleiri.
Galakjólar og hárgreiðslur í stíl
verða í fyrirrúmi hjá Prímadonn-
unum. Ekki nóg með það heldur
má segja að hálfgert ástarþema
sé um að ræða því þær aríur sem
söngkonurnar syngja tengjast all-
ar ástinni.
Miðaverð er 4.200 krónur en
hægt er að kaupa miða í Íslensku
óperunni og á opera.is.
asgeir@dv.is
Fremstu sópransöngkonur þjóðarinnar í Íslensku óperunni:
glæsilegar prímadonnur
m
æ
li
r
m
eð
...
Gran Torino
Clintarinn
tekur
menn í
karphús-
ið.
The inTernaTional
myndin
neglir
mann strax
og heldur
góðu hröðu
tempói.
DeaDly
CreaTures
frábær og
frumlegur
tölvuleikur.
sTreeT FiGhTer 4
Það er
ógeðslega
gaman að
spila street
fighter.
Marley & Me
Ljúfsárt
fjölskyldu-
drama.
Milk
Kvikmynd sem
fólk mun muna
eftir vegna
frammistöðu
leikaranna.
föstudagur
n Ólafur arnalds, Valgeir
sigurðsson og Mammút á Grand
rokk
grapevine og gogoyoko efna til
glæsilegra tónleika á grand rokk í
kvöld. fram koma Ólafur arnalds,
Valgeir sigurðsson og mammút
öllum til mikillar ánægju. tónleikarn-
ir hefjast klukkan 22.
n karíus & Baktus vs.
yamaho á Jacobsen
Það er föstudagurinn 13. og allt
getur gerst. Karíus & Baktus og dj
Yamaho munu berjast með plötun-
um einum. Á neðri hæð staðarins
eru það asLI & siggi Kalli sem halda
partíinu gangandi.
n FM Belfast á karamba
(gamla 22)
gleðin verður allsráðandi á Karamba,
gamla 22, í kvöld er fm Belfast stígur
á svið og gerir allt brjálað. retro
stefson og dj terrordisco munu
vera með dj-set. tónleikarnir hefjast
klukkan 22 og kostar ekkert inn.
n Papar á Players
Efnt verður til heljarinnar dansleiks á
Players í kvöld er hljómsveitin Papar
mun skemmta gestum fram eftir
öllu. dansleikurinn hefst klukkan
23.30 og kostar 1800 krónur inn.
n Trans kvintett og Dj Danni
Deluxxx á Prikinu
stuðið byrjar snemma á Prikinu í
kvöld. fyrst er það danskvintettinn
trans sem leikur fyrir gesti og á
miðnætti tekur dj danni deluxxx við
og skemmtir lýðnum eins og honum
einum er lagið.
laugardagur
n steed lord á Q-Bar
Hljómsveitin steed Lord kemur
fljúgandi beint frá París til að halda
tónleika á Q-Bar. Það kostar 800 í
forsölu og 1000 krónur við dyrnar.
Jungle fiction, sykur og danni
deluxxx munu sjá um upphitunina.
Húsið opnað klukkan 21.00.
n Dj alfons X á kaffibarnum
Það verður eintómt partí á Kaffibarn-
um um helgina. Á laugardagskvöldið
er það alfons X sjálfur sem mun
halda uppi stuðinu. Það ætti ekki
að reynast honum erfitt, enda
þaulvanur í bransanum. fjörið hefst
á miðnætti.
n happy hour og addi intro
gleðin byrjar klukkan 21 með Happy
hour til miðnættis. reggae Kalli mun
„djamma“ með gestum Priksins
þangað til dj addi Intro úr forgotten
Lores tekur við.
n Magnús Þór sigmundsson og
Jón Ólafsson á Græna hattinum
af fingrum fram heldur áfram og að
þessu sinni er Jón Ólafsson staddur
á akureyri, nánar tiltekið á græna
hattinum. gestur hans að þessu
sinni er enginn annar en magnús Þór
sigmundsson. tónleikarnir hefjast
klukkan 20 og kostar 2500 krónur
inn.
n Geirmundur Valtýsson
á kringlukránni
skagfirski sveiflukóngurinn
geirmundur Valtýsson og hljómsveit
munu heldur betur skemmta fólki
þetta kvöldið á Kringlukránni. mætið
í góðum skóm. Nú verður dansað.
Hvað er að
GERAST?
en þetta er þriðja verkið sem hann
setur upp frá útskrift. „Í sumar leik-
stýrði ég öðrum áhugaleikhópi sem
heitir Sýnir. Svo setti ég upp einleik
í haust en þetta er í raun mitt fyrsta
stóra verk.“ Einleikurinn sem Snæ-
björn skrifaði og lék sjálfur í hét Upp-
ljómunin og var sýndur á Artfart-há-
tíðinni.
Snæbjörn stefndi alltaf á að starfa
við leikhús þó svo að leikstjórastóllinn
hafi ekki verið fyrstur á dagskrá. „Fyrst
og fremst stefndi ég að því að skrifa en
ég lærði alveg helling um leikstjórn í
náminu. Þannig að eitt leiðir bara af
öðru.“ Snæbjörn stefnir á enn frek-
ara nám en ekki um sinn. „Ég ætla að
skrifa og leikstýra hér heima í nánustu
framtíð en ég stefni svo á mastersnám
í útlöndum síðar meir. Ég er svona að
skoða hvaða möguleikar eru í boði
eins og er.“
Vantar nýsköpun
Snæbjörn segir að það eina sem gildi
fyrir nýútskrifað leikskáld sé að koma
sjálfum sér og verkum sínum á fram-
færi. „Það er lítil hefð fyrir því að fólk
lesi leikrit hérna og það er voðalega
lítið dreifikerfi. Það eru bara þrjú leik-
hús sem maður getur sent verkin á.
Það er að segja, Þjóðleikhúsið, Borg-
arleikhúsið og Leikfélag Akureyrar.
Annars er það bara að setja upp verk-
ið sjálfur. Sem er kannski bara frasæl-
asta lausnin.“
Snæbjörn segir nýsköpun vanta í
íslenskt leikhúslíf en á von á að úr því
rætist á næstu árum. „Það er alltof lít-
ið af íslenskum verkum í gangi. Mér
finnst það hálfgerður skandall að við
séum að setja upp Grease á tveggja ára
fresti. Ég vil núna ekki vera að setja út
á önnur leikskáld. Þau eru mörg mjög
fær. En þetta er bara mjög lítil stétt.
Það eru kannski sett upp tvö íslensk
verk að meðaltali á ári og ef annað
þeirra er lélegt þá eru 50 prósent allra
íslenskra verka léleg það árið.“
Snæbjörn hefur þó trú á því að
gróskan muni aukast á næstu árum.
„Við erum svo mörg sem höfum út-
skrifast undanfarið og ætlum okkur
stóra hluti. Þannig að ég held að þessi
þróun muni snúast við. Ég býst við
svona helmings aukningu. Það þýð-
ir samt ekkert að vera að væla. Mað-
ur verður bara að gera þetta sjálfur og
treysta á eigin verk og verðleika. “
Tvö verk í vinnslu
Það er óhætt að segja að Snæbjörn
sé afkastamikill en hann er með tvö
önnur verk í vinnslu eins og er. „Ég
er að skoða hvort ég ætti að reyna að
setja þau upp sjálfur eða setja þau í
hendur einhvers annars.“ Öðru verk-
anna svipar til Þöglu farþeganna en
bæði eru nútímaverk. „Annað þeirra
er svipað því. Það er svona draum-
sæis- eða óraunsæisverk,“ segir Snæ-
björn að lokum.
Hægt er að afla sér frekari upplýs-
inga um verkið, miðasölu og sýninga-
tíma á vefsíðunni thoglirfarthegar.
blogspot.com. asgeir@dv.is
Heimsendir
Heillandi
snæbjörn Brynjarsson Leikstýrir og skrifar handritið að verkinu Þöglir farþegar sem er frumsýnt á Eyjaslóð úti á granda á morgun.
Þöglir farþegar standa andspænis
heimsendi af manna völdum.
stórglæsilegar
galakjólar og -greiðslur
verða í fyrirrúmi ásamt
aríum um ástina.