Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2009, Blaðsíða 34
föstudagur 13. mars 200934 Helgarblað
HIN HLIÐIN
Langar að hella
Pétur Blöndal fullan
Nafn og aldur?
„Ómar Eyþórsson. 28 ára.“
Atvinna?
„Dagskrárgerðarmaður, smið-
ur, umboðsmaður og tón-
leikastjóri Sódómu Reykjavík-
ur sem er nýr tónleikastaður á
efri hæð gamla Gauksins.“
Hjúskaparstaða?
„Í sambúð með Báru Jóns-
dóttur.“
Fjöldi barna?
„Engin, hef að minnsta kosti
ekki fengið rukkun um með-
lag ennþá.“
Hefur þú átt gæludýr?
„Ég hef átt hesta og hunda og
hestar eru rokk.“
Hvaða tónleika fórst þú á
síðast?
„Fór á frábæra opnunartón-
leika á Sódómu Reykjavík um
seinustu helgi. Geggjað að fá
alvöru tónleikastað í miðbæ-
inn á ný.“
Hefur þú komist í kast við lögin?
„Á mínum yngri og villtari árum var ég með eigin
þjónustufulltrúa hjá lögreglunni á Hvolsvelli og sendi
vinum mínum á stöðinni jólakort. Svona stælar hafa
elst af mér.“
Hver er uppáhaldsflíkin þín og af hverju?
„Tony Soprano-baðsloppurinn minn og Svampur
Sveinsson-inniskórnir mínir.“
Hefur þú farið í megrun?
„Nei, hef ávallt verið köttaður frá náttúrunnar hendi.“
Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmælum?
„Nei.“
Trúir þú á framhaldslíf?
„Að sjálfsögðu, hef margoft verið lífgaður við. Kick-
start My Heart.“
Hvaða lag skammast þú þín mest fyrir að hafa haldið
upp á?
„Africa með Toto.“
Hvaða lag kveikir í þér?
„Kickstart My Heart með Mötley Crue kemur mér
alltaf í gírinn.“
Til hvers hlakkar þú núna?
„Frábærra tónleika Dr. Spock á Sódómu á föstudags-
kvöldið og svo hlakka ég til að sjá goðsögnina Bjart-
mar Guðlaugsson á laugardagskvöldið.“
Hvaða mynd getur þú horft á aftur og aftur?
„Fear And Loathing In Las Vegas. Þessi mynd lýsir
mörgum gleðistundum svipuðum þeim sem ég hef
upplifað – fyrir löngu.“
Afrek vikunnar?
„Að saga í sundur eldhúsinn-
réttinguna í nýju íbúðinni okkar
og að ná að endurraða henni
upp.“
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Já, með spilum. Fæ alltaf
spaðaásinn, hvað þýðir það?“
Spilar þú á hljóðfæri?
„Nei, á ógrynni af þeim en kann
ekki á neitt þeirra. Málið er ekki
hvað þú getur heldur hvað þú
gerir.“
Viltu að Ísland gangi í Evrópu-
sambandið?
„Mig skortir upplýsingar og mál-
efnalega umræðu í samfélaginu
til að gera upp hug minn. Ég er
með allt mitt í gulli.“
Hvað er mikilvægast í lífinu?
„Hamingjan. Það er bara
þannig, án hennar virkar ekkert
og enginn.“
Hvaða íslenska ráðamann mundir þú vilja hella fullan
og fara á trúnó með?
„Myndi ég? Been there, done that. En það væri gam-
an að hella Pétur Blöndal fullan og stinga svo af frá
reikningnum, þá myndi renna af mínum.“
Hvaða fræga einstakling myndir þú helst vilja hitta og
af hverju?
„Elvis og spyrja af hverju hann hafi ekki losað sig
við umboðsmanninn. Tom Parker eyðilagði ferilinn
hans.“
Hefur þú ort ljóð?
„Já, hef nú gert það. Nóbelsverðlaunastöff.“
Nýlegt prakkarastrik?
„Klippti niður þéttiborða fyrir glugga og setti með
lakkrís í poka. Priceless.“
Hvaða fræga einstaklingi líkist þú mest?
„Joe Strummer úr Clash.“
Ertu með einhverja leynda hæfileika?
„Ég er ofurfóstra. Það trúa því fáir.“
Á að leyfa önnur vímuefni en áfengi?
„Nei, fólk er fífl og myndi klúðra því.“
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn?
„Hvolsvöllur. Fallegasti staður á jarðríki.“
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að
sofa?
„Þykist vera að horfa á Friends.“
Hver er leið Íslands út úr kreppunni?
„Beygja til vinstri við Grænland.“
Ómar EyþÓrsson, Einna þEkktastur sEm Ómar Bonham, Er útvarpsmaður á
X-inu 977 samhliða því að vEra tÓnlEikastjÓri nýja tÓnlistarstaðarins
sÓdÓmu rEykjavíkur.
30 days
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla verðinu.
30 days
Losnið við hættulega kviðfitu og
komið maganum í lag með því
að nota náttúrulyfin Oxytarm og
30 days saman.
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
NICOLAI
Véla- og hjólastillingar
Tímareimar - Viðgerðir
BIFREIÐASTILLINGAR
Faxafeni 12 Sími 588-2455