Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2009, Page 48
n Í Háskóla Íslands verður ansi for-
vitnilegt málþing á laugardaginn
sem ber heitið „Frá fyrsta málfræð-
ingnum til Ragnars Bragason-
ar“. Boðið er upp á fjóra fyrirlestra
um íslenskt mál að fornu og nýju
og heitir sá síðasti „Eigum við að
ræða það eitthvað?“ sem vísar í eina
frægustu setningu Ólafs Ragnars úr
Næturvaktinni. Katrín Axelsdótt-
ir aðjunkt heldur þann fyrirlest-
ur og í honum verður litið á ýmis
málfarsleg atriði í sjónvarpsþáttun-
um Næturvaktinni, eins
og málsnið, nafngiftir
og framburð. Þá verður
bent á mismunandi
orðnotkun persónanna
Georgs Bjarn-
freðarsonar og
Ólafs Ragn-
ars en þeir eru
ansi ólíkir eins
og alþjóð ætti
að vera kunn-
ugt um.
Árni fékk líka ýmislegt
með móðurmjólkinni!
Fréttaskot 512 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður
aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt
að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar.
Kettlingurinn Smári sem sat fastur á
þaki Smáralindarinnar í viku er nú að
ná sér á sjúkrahúsi eftir að hafa verið
frekar slappur síðustu daga en sam-
kvæmt Sigríði Heiðberg er hann allur
að hressast. Að auki hefur hann fengið
nýja eigendur eða réttara sagt eiganda.
Eigandinn heitir Emanuel Morthens
og er nýorðinn tíu ára en Emanu-
el fékk Smára í afmælisgjöf. Mamma
Emanuels, Hulda R. Hansen, segir son
sinn einungis hafa viljað fá Smára eft-
ir að sá stutti sá mynd af honum í DV.
Hún bjóst samt ekki við því að sonur-
inn myndi fá heila gjafakörfu með kisa
en það var starfsfólk Smáralindar sem
kom þeim á óvart.
„Það var yndislegt, við áttum ekki
von á þessu. Það kostar helling að
dekra svona við köttinn þannig að það
er frábært að fá þetta,“ segir Hulda, en
á meðal þeirra sem afhentu gjafakörf-
una fyrir hönd Smáralindar voru Ólaf-
ur Jóhannesson og Jón Þorbergur Jak-
obsson en þeir eru þjónustufulltrúar
Smáralindar og bjargvættir Smára.
Meðal þess sem Smári og Emanu-
el fengu frá verslunarmiðstöðinni var
svefnkarfa, leikbolti, svört ól, matar-
dallar og matur.
„Þetta var glæsileg gjöf.“
Þingað um
Ólaf RagnaR Kettlingurinn Smári er á sjúkrahúsi en búinn að fá nýja eigendur:
kettlinguRinn fÉkk gJafakÖRfu
n Ragnheiður Elín Árnadóttir al-
þingismaður þeytist þessa dagana
um Suðurkjördæmi í því skyni að
ná 1. sæti á lista sjálfstæðismanna.
Ragnheiður Elín þarf að hafa fyrir
oddvitasætinu sem hún keppir um
við Árna Johnsen alþingismann.
Hún lætur þó hvergi deigan síga
og ferðast um víðfeðmt kjördæm-
ið með 5 mánaða son sinn, Helga
Matthías Guðjónsson. Milli þess
að hún töfrar kjósendur
gefur hún drengnum
brjóst. Það skýrist svo
á laugardaginn hvort
hefur betur, nýbura-
móðirin eða
gamli jaxl-
inn.
nýbuRamÓðiR
gegn ÁRna
n „Auðunn þakkar gaurnum sem
á víst að vera með „svipaða“ rödd
og ég fyrir að gera klámmyndband
og henda því á netið ... skemmti-
leg fréttamennska,“ segir Auðunn
Blöndal sjónvarpsmaður á Face-
book-síðu sinni eftir að háværar
raddir fóru af stað um
að hann hefði tek-
ið þátt í gerð klám-
myndbands sem farið
hefur eins og sinueld-
ur um netið undan-
farið. Auðunn svarar
fyrir sig í nýjasta hefti
Séð og heyrt en
þar sver hann
við líf sitt og fjöl-
skyldu að hafa
aldrei tekið þátt í
slíkum gjörning.
Góðvinur Audda,
Gillzenegger,
gerir létt grín að
félaga sínum á síð-
unni og spyr hve-
nær sjálf myndin
komi út.
auddi hafnaR
klÁmmynd
Komu á óvart starfsfólk smáralindar
kom nýjum eigendum smára á óvart og
gaf þeim meðal annars matardalla og ól.