Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2009, Blaðsíða 3
þriðjudagur 23. júní 2009 3Fréttir
FLYTUR SNEKKJUNA ÚR LANDI
Steingrímur var ásamt Karli Wern-
erssyni, bróður sínum atkvæðamikill
í íslensku útrásinni í gegnum félag
sitt Milestone. Bræðurnir högnuðust
gífurlega og mat Markaðurinn eign-
ir hans á 42 milljarða króna í júlí á
síðasta ári. Ljóst er að verulega hef-
ur hallað undan fæti hjá Steingrími
undanfarna mánuði.
Selur eignirnar
Snekkjan Almira er að öllum líkind-
um skráð erlendis, en þegar leitað var
í skipaskrá Siglingastofnunar, fannst
enginn bátur með nafninu Almira á
skrá. Meðal þeirra sem komu að því
þegar snekkjunni var siglt úr Snar-
farahöfn og yfir í Sundahöfn á föstu-
daginn var Stefán Bragi Bjarnason,
lögfræðingur Steingríms, sem sjálf-
ur er búsettur erlendis. Ekki er vitað
hvers vegna flytja á bát Steingríms úr
landi, en hann hefur verið að selja
persónulegar eignir sínar undan-
farna mánuði. Þeirra á meðal er Toy-
ota Landcruiser 200 jeppi, árgerð
2008 sem Steingrímur seldi í apr-
íl. Kaupandinn af bílnum var Stefán
Bragi, lögfræðingur hans, og er al-
gengt söluverð á slíkum bílum um 12
milljónir króna. Skömmu áður hafði
Steingrímur reyndar veðsett bílinn
vegna 160 milljóna króna láns sem
Ingunn Gyða Wernerssdóttir, syst-
ir hans, veitti honum í mars á þessu
ári.
Auk jeppans hefur hann ný-
lega selt sex hjóla torfæruhjól sitt af
gerðinni Polaris Sportsman og hjól-
hýsi af gerðinni Tabbert Davinci.
Kaupandinn að því var eiginkona
Tómasar Ottó Hanssonar, sem hef-
ur verið framkvæmdastjóri fjárfest-
ingafélags Björgólfs Thors Björgólfs-
sonar, Novator. Öll farartækin sem
Steingrímur seldi voru veðsett í mars
vegna lánsins sem systir hans veitti
honum. Við söluna á þeim voru þau
hins vegar öll veðbandalaus, sam-
kvæmt upplýsingum frá Umferðar-
stofu.
Málari í skuldamál
Málarafyrirtækið Milli mála, sem
sá um málningarvinnu á nýju tæp-
lega 600 fermetra einbýlishúsi
Steingríms í Árlandi 1 í Fossvogi,
er komið í skuldamál við Stein-
grím vegna vangoldinna greiðslna
upp á rúmar tvær milljónir króna.
Málaraverktakinn hóf að vinna við
húsið í janúar árið 2008, að mála
það bæði að utan og innan. Hann
segir að Steingrímur hafi flutt inn
í húsið áður en vinnu var lokið,
en ekki borgað fyrir þá vinnu sem
verktakinn innti af hendi. Hann
segir að fulltrúi Steingríms hafi gert
honum tilboð um greiðslu sem var
talsvert lægri en 2 milljónir. Hann
segist hins vegar ekki hafa tekið
það í mál og hafnað tilboðinu.
Karl Georg Sigurbjörnsson,
lögmaður verktakans, staðfestir
að skuldin sé komin í innheimtu-
meðferð og málið sé á frumstigi.
Ágreiningur er um umfang verks-
ins. Lögmaðurinn hefur sent
Steingrími innheimtubréf og búast
má við að næstu skref séu að dóm-
kveða matsmenn sem munu taka
verkið út til að skera úr um ágrein-
inginn.
Kemur ykkur ekki við
„Ég sé ekki að það komi ykkur á
nokkurn hátt við,“ svaraði Stefán
Bragi Bjarnason, spurður um áform
Steingríms með Almiru. Hann segist
aðeins vera að flytja bátinn úr landi
fyrir Steingrím, þar sem hann er bú-
settur erlendis. Hann segist ekki vita
hvort selja eigi bátinn. Stefán Bragi
vildi ekki kannast við að málaraverk-
takinn væri kominn í skuldamál við
Steingrím og sagði að síðast þegar
hann vissi hefði hann verið hættur
við að stefna Steingrími, enda hefði
hann ekki ástæðu til.
DV náði ekki tali af Steingrími
Wernerssyni við vinnslu fréttarinnar.
Hífð upp almira var
hífð upp í Sundahöfn.
Bjarni Ingimarsson, fyrrverandi slökkviliðsmaður hjá Bruna-
vörnum Árnessýslu, hefur kvartað undan slökkviliðsstjóran-
um þar, Kristjáni Einarssyni, til Landssambands slökkviliðs-
og sjúkraflutningamanna, vegna harðorðs símtals hans við
nýjan yfirmann Bjarna. Kristján vill ekkert tjá sig um málið.
Bjarni Ingimarsson var einn þeirra
slökkviliðsmanna sem hætti störf-
um hjá Brunavörnum Árnes-
sýslu fyrir stuttu vegna ósættis við
slökkviliðsstjórann Kristján Ein-
arsson. Bjarni hefur nú ráðið sig í
slökkvilið Þorlákshafnar en ósætt-
inu er ekki lokið.
Samkvæmt heimildum DV
hringdi Kristján í slökkviliðsstjóra
Þorlákshafnar, Guðna Þór Ágústs-
son, og tjáði óánægju sína með að
Bjarni hefði verið ráðinn í vinnu.
Þá krafðist Kristján þess að Guðni
myndi leysa Bjarna frá störfum.
Heimildarmenn DV segja símtalið
hafa verið ansi harðort og á Kristján
að hafa hótað því að hringja í Mjólk-
urbú Flóamanna þar sem Bjarni
vinnur sitt aðalstarf og stefna fram-
tíð hans hjá fyrirtækinu í hættu. Í
lok símtalsins ku Kristján hafa ráð-
ist persónulega á unnustu og fjöl-
skyldu Bjarna, þá sérstaklega föður
hans sem er góðvinur Guðna.
Í farvegi í stjórnsýslunni
Heimildir DV herma að Bjarni hafi
kært Kristján fyrir athæfið til Lands-
sambands slökkviliðs- og sjúkra-
flutningamanna og að málið sé til
umfjöllunar hjá sambandinu núna.
Bjarni vill ekkert tjá sig um málið á
þessu stigi þar sem það er „í ákveðn-
um farvegi í stjórnsýslunni“.
DV hafði samband við Guðna
Þór, slökkviliðsstjóra í Þorlákshöfn,
og hann treystir sér ekki til að tjá sig
um málið á þessari stundu.
„Ég ætla ekki að gefa neitt út á
þetta að svo stöddu. Þetta er mjög
viðkvæmt mál.“
Heimildarmenn DV sem þekkja
til Brunavarna Árnessýslu telja ljóst
að Kristján leggi Bjarna beinlínis í
einelti.
Mikið ósætti
DV skrifaði fyrst um ósætti inn-
an Brunavarna Árnessýslu í janúar
þegar 25 af 63 slökkviliðsmönnum
stefndu Brunavörnum. Snerist mál-
ið um síma sem slökkviliðsmenn-
irnir fengu svo hægt væri að kalla
þá út á öllum tímum sólar-
hringsins.
Símamálið var korn-
ið sem fyllti mælinn í sam-
skiptum slökkviliðsmanna
við Kristján Einarsson
slökkviliðsstjóra en deilur
þeirra í milli ná mörg á aftur
í tímann. Í samtali við DV í
janúar sagðist Kristján ekki kannast
við ósætti innan Brunavarna Árnes-
sýslu. Hann kenndi kreppunni um
pirring vegna vangoldinna síma-
greiðslna.
DV hafði samband
við Kristján vegna símtalsins við
Guðna. Hann vildi ekkert tjá sig um
málið þar sem hann hefði brennt sig
áður á ummælum sem höfð voru
eftir honum í fjölmiðlum.
ENN KVARTAÐ UNDAN
SLÖKKVILIÐSSTJÓRA
Tjáir sig ekki
Kristján vill
ekkert tjá sig
við fjölmiðla
um símtalið við
guðna.
Ólga í Árnessýslu Margir lykilmenn Bruna-
varna Árnessýslu létu af störfum fyrir stuttu
vegna ósættis við slökkviliðsstjórann.
MYND GuðMuNDur VIGfúSSoN
„Það er búin að vera bullandi sátta-
vinna í þessu máli. Strákarnir vilja
fá greitt fyrir að fá símana og bera
þá þrjú ár aftur í tímann samkvæmt
kjarasamningi. Túlkun á því frá
Sambandi íslenskra sveitarfélaga er
að það verði að gera. Þó svo við hefð-
um látið þá fá góða síma og komið til
móts við allskyns kröfur mega sveit-
arfélög gera vel við sína menn en það
kemur kjarasamningum ekki við,“
segir Kristján Einarsson, slökkviliðs-
stjóri Brunavarna Árnessýslu.
25 af 63 slökkviliðsmönnum hafa
stefnt Brunavörnum Árnessýslu og
var málið þingfest í fyrradag. Símana
fengu slökkviliðsmennirnir svo hægt
sé að ná í þá á hvaða tíma sólar-
hrings sem er ef eldur kviknar. Sam-
kvæmt kjarasamningum eiga þeir
að fá greiddar nítján þúsund krón-
ur hver á ári. Sú greiðsla hefur aldrei
verið reidd af hendi og krefjast þeir
nú greiðslu þrjú ár aftur í tímann fyr-
ir að hafa gsm-síma frá slökkviliðinu
á sér allan sólarhringinn eins og seg-
ir til um í kjarasamningum. Er upp-
hæðin sem deilt er um komin upp
í um 1,8 milljónir án vaxta og lög-
fræðikostnaðar.
Óánægja í slökkviliðinu
Guðni Á. Haraldsson, lögmaður
slökkviliðsmanna, segir sáttavið-
ræður standa og á hann ekki von á
því að málið fari mikið lengra.
„Brunavarnir tóku sér frest til að
skila greinargerð um málið en við
erum í viðræðum um hvort hægt sé
að semja um þetta og greiða þessa
upphæð. Við vonum að það tak-
ist sátt í málinu og ég á frekar von á
því.“
Samkvæmt heimildum DV hefur
verið mikil óánægja meðal slökkvi-
liðsmanna í Árnessýslu og skilja þeir
ekki af hverju málið hefur þurft að
ganga svona langt. Heimilidir DV
herma enn fremur að Kristján Ein-
arsson slökkviliðsstjóri hafi neitað
að borga þetta gjald og telja slökkvi-
liðsmenn að með því hafi hann vís-
vitandi verið að brjóta kjarasamn-
inga. Því hafi málið undið upp á sig
og slökkviliðsmenn séð sig knúna til
að leita til lögfræðings.
Kristján kannast ekki við ósætti
hjá Brunavörnum og botnar ekki í
því af hverju málið fór svona langt.
„Þetta mál fór miklu lengra en
allir aðilar ætluðu sér. Það hafa hin-
ir og þessir slökkviliðsmenn sem
standa í þessu komið til mín og þeir
ætluðust ekki til þess að þetta mál
færi svona. Það eru engir að skella
hurðum. Þetta eru fínir strákar sem
vilja þessu apparati vel. Vegna and-
rúmsloftsins í þjóðfélaginu eru sum-
ir hverjir með erfiðar skuldir og því
pirraðir inni í sér en það er ekkert
ósætti,“ segir Kristján.
Einn stór misskilningur
„Við höfum engar áhyggjur. Málið
verður ekki tekið fyrir fyrr en eftir
tvær til þrjár vikur og ég vona að við
verðum búnir að ná lendingu fyr-
ir það. Þetta er hundleiðinlegt mál,“
segir Kristján og telur það byggt á
einum stórum misskilningi.
„Við vorum í góðri trú að við vær-
um að gera gott og það ætti að ganga
frá þessum greiðslum í launaum-
ræðunni í desember. Þá hefði þetta
leiðrést gagnvart launanefnd sveit-
arfélaganna og Landssambandi
slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
manna. En síðan voru samningarn-
ir framlengdir og þetta atriði var ekki
með. Ég kenni samt engum um.“
Svipað mál kom upp hjá slökkvi-
liðinu í Þorlákshöfn en það gekk frá
málinu í fyrra og bað slökkviliðs-
menn sína afsökunar. Árnessýsla er
nú eina sveitarfélagið sem hefur ekki
borgað slökkviliðsmönnum þessar
greiðslur.
Margrét Katrín Erlingsdóttir, for-
maður Brunavarna Árnessýslu, ber
ábyrgð á málinu en hún vildi ekkert
tjá sig um það af hverju málið hefði
gengið svona langt.
„Ég er búin að vera að vinna í
þessu máli síðan það kom upp og
ég vil ekkert tjá mig um það. Þetta
er launamál starfsmanna sem ég vil
ekki ræða í fjölmiðlum. Það er búið
að stefna okkur fyrir dóm og þá þarf
ég að passa mig. Við erum búin að
vinna að lausn málsins á síðustu
mánuðum og ég vona að það leysist
sem fyrst.“
Kristján Einarsson
föstudagur 23. janúar 20098
Fréttir
„Vegna andrúmsloftsins í þjóðfélaginu eru
sumir hverjir með erfiðar skuldir og því pirraðir
inni í sér en það er ekkert ósætti.“
lilja Katrín gunnarsdÓttir
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
Óánægðir slökkviliðsmenn
samkvæmt heimildum dV eru
slökkviliðsmenn í Árnessýslu
ekki ánægðir með framgöngu
slökkviliðsstjóra í málinu.
mynd guðmundur Vigfússon
Á bakvakt allan sólarhringinn
slökkviliðsmönnum hafa ekki
verið greiddar nítján þúsund
krónur á mann síðustu þrjú árin.
mynd stEfÁn Karlsson
Ekkert ósætti
Kristján Einarsson harmar að
lögfræðinga hafi þurft til að útkljá
málið og segir ekkert ósætti vera
milli sín og slökkviliðsmanna.
SLÖKKVILIÐSMENN
STEFNA YFIRMANNI„Þetta er mjög
viðkvæmt mál.“
lIlja GuðMuNDSDÓTTIr
blaðamaður skrifar lilja@dv.is
Kornið sem fyllti mælinn
dV fjallaði um ósætti i nan
Brunavarna Árnessýslu fyrst í
janúar.