Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2009, Blaðsíða 11
þriðjudagur 23. júní 2009 11Neytendur
„Meginreglan er sú að eigendur glata ekki rétti þótt þeir mótmæli
ekki heimildarlausum ráðstöfunum/framkvæmdum annarra
eigenda strax og þeir verða þeirra áskynja. Tryggilegast er hins
vegar að hafa uppi athugasemdir eða mótmæli við fyrsta tækifæri.
Frá þessari meginreglu eru mikilvægar undantekningar og geta
eigendur glatað rétti sínum...með athöfnum eða athafnaleysi.“
Sigurður Helgi guðjónSSon, formaður Húseigendafélagsins svarar fyrirspurnum lesenda.
Sendið fyrirspurnir á neytendur@dv.is
Borist hefur fyrirspurn frá eiganda
íbúðar í fjórbýlishúsi varðandi
töku ákvarðana um sameiginleg
málefni og starfsemi húsfélagsins.
Bendir hann á að ákvarðanataka
um sameiginleg mál fari ekki fram
á húsfundum. Fundarhöld séu fá-
tíð og samráð í skötulíki. Gjaldker-
inn fari að eins og einræðisherra
og ákveði og framkvæmi á eigin
spýtur án þess að spyrja kóng eða
prest. Hann skammti sér ríflega
þóknun fyrir störf sín án samráðs
við sameigendur sína. Yfirleitt
standi aðrir eigendur frammi fyrir
orðnum hlut. Þeir láta flest yfir sig
ganga og lúffi í stóru og smáu.
Fjöleignarhúsalögin
Augljóst er að ekki er farið í öllu
eftir fjöleignarhúsalögum í þessu
húsi. Það er svo sem ekki óalgengt
að slakað sé á formi og lagafyrir-
mælum þegar um lítil húsfélög er
að tefla og allt leikur í lyndi, sam-
skiptin eru góð og byggjast á gagn-
kvæmu trausti og jafnvel vináttu.
En þegar því er ekki að heilsa og
vantraust og tortryggni ríkir verða
eigendur óhjákvæmilega að feta
laganna veg og lúta boðum þeirra
og bókstaf.
Sameiginlegar ákvarðanir
Æðst vald í málefnum húsfélags er
í höndum húsfundar. Allir eigend-
ur í fjöleignarhúsum eiga óskor-
aðan rétt á að eiga og taka þátt í
öllum ákvörðunum, er varða sam-
eignina, bæði innan húss og utan,
og um öll sameiginleg málefni.
Það er grundvallarregla skv. lögum
um fjöleignarhús að áður en ráðist
er í framkvæmdir, viðgerðir, end-
urbætur og allt annað sem varðar
sameiginlega hagsmuni eigenda
skuli halda húsfund þar sem þeir
eiga kost á því að koma sjónarmið-
um sínum á framfæri og greiða at-
kvæði um málið og þær skuld-
bindingar sem um er að ræða.
Greiðsluskylda - lögleg
ákvörðun
Þegar ákvörðun hefur verið tekin
með réttum og lögmætum hætti
má framkvæma hana og er kostn-
aður vegna hennar sameiginlegur
kostnaður sem skiptist á eigendur
eftir fyrirmælum fjöleignarhúsa-
laga. Ef einstakir eigendur, stjórn
eða gjaldkeri, stofna til útláta sem
ekki er fundarsamþykkt fyrir þá
eru aðrir eigendur almennt ekki
greiðsluskyldir. Greiðsluskylda og
aðrar íþyngjandi skyldur stofnast
almennt ekki nema á grundvelli
samráðs samkvæmt fjöleignar-
húsalögum. Ráðist einstakir eig-
endur einhliða í framkvæmdir á
sameign hússins eða stofni ella
til „sameiginlegra“ skuldbind-
inga geta þeir ekki reiknað með
að sameigendur borgi með þeim
brúsann með bros á vör. Gildir þá
einu hvort framkvæmdirnar eða
málefnið komi sér vel fyrir húsið
og eigendur þess eða ekki. Það er
forsenda fyrir skyldu eigenda til
að taka þátt í kostnaði vegna sam-
eignarinnar að ákvörðun liggi fyr-
ir. Sé sú ekki raunin getur afskiptur
eigandi neitað að greiða og stöðv-
að framkvæmd ef því er að skipta.
Minni fjöleignarhús – vald
stjórnar/gjaldkera
Í fjöleignarhúsum þar sem eignar-
hlutar eru 6 eða færri er ekki gert
ráð fyrir sérstakri stjórn og fara
þá eigendur saman með verkefni
stjórnar og eins er heimilt að fela
einum eiganda (forsvarsmanni,
gjaldkera) að gegna þeim. Þegar
svo stendur á koma til álita við-
víkjandi samráð og ákvarðanatöku
bæði reglur um húsfundi og stjórn.
Stjórn húsfélags (forsvarsmaður
eða gjaldkeri í minni húsum) hef-
ur þröngar heimildir til að ráðast
á eigin spýtur í framkvæmdir eða
stofna til sameiginlegs kostnað-
ar. Stjórn getur látið framkvæma
minniháttar viðgerðir og gert
bráðnauðsynlegar og brýnar ráð-
stafanir sem ekki þola bið. Sé hins
vegar um að ræða ráðstafanir og
framkvæmdir sem ganga lengra
ber að leggja þær fyrir húsfund. Á
það undantekningarlaust við um
framkvæmdir, sem eru verulegar
hvað varðar kostnað, umfang og
óþægindi. Gildir þá einu þótt um
æskilegar og jafnvel nauðsynlegar
ráðstafanir sé að ræða. Forsvars-
maður eða gjaldkeri í litlum fjöl-
eignahúsum hefur enn þrengri
heimild vegna þess að yfirleitt eru
hæg heimatökin með að boða til
fundar. Eigendur eru fáir og yfir-
leitt í húsinu eða nærlægir.
Ólaunuð störf að megin-
stefnu
Það er meginregla að gjaldkera-
og stjórnarstörf séu ólaunuð. Þau
eru nokkurs konar „þegnskylda“,
sem eigendum er skylt að taka að
sér eftir kosningu án þess að eiga
von á sérstakri þóknun fyrir það.
Víst getur verið sanngjarnt og eðli-
legt að umbun sé fyrir slík störf en
ákvörðun um það er húsfundar.
Stjórnarsamþykkt dugir ekki og
enn síður getur gjaldkeri skammt-
að sér þóknun með sjálftöku.
Mótbárur
Meginreglan er sú að eigendur
glata ekki rétti þó þeir mótmæli
ekki heimildarlausum ráðstöfun-
um/framkvæmdum annarra eig-
enda strax og þeir verða þeirra
áskynja. Tryggilegast er hins veg-
ar að hafa uppi athugasemdir
eða mótmæli við fyrsta tækifæri.
Frá þessari meginreglu eru mik-
ilvægar undantekningar og geta
eigendur glatað rétti sínum til
að stöðva framkvæmdir og neita
greiðslu með athöfnum eða at-
hafnaleysi. Þá hafa húsfélög innan
vissra marka heimild til að betr-
umbæta gallaða ákvörðun á öðr-
um lögmætum fundi, jafnvel eftir
að framkvæmdir eru hafnar.
Afleiðingar og úrræði
Þessu næst um afleiðingar þess ef
ráðist er í framkvæmdir án sam-
þykkis húsfundar og að úrræði
annarra eigenda þegar svo hátt-
ar. Áður er getið um greiðslu-
skylduna eða öllu heldur skort
á henni. Séu framkvæmdir um
garð gengnar geta aðrir eigendur
krafist þess að sameign sé komið
í fyrra horf. Stofni stjórnarmenn
eða forsvarmaður/gjaldkeri í
minni fjöleignarhúsum til skuld-
bindinga í heimildarleysi þá eru
þeir ábyrgir og bótaskyldir gagn-
vart húsfélaginu eða einstökum
eigendum.
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
www.nora.is Dalvegi 16a Kóp.
opið: má-fö. 11-18,
laugard. 11-16
Opið: má-fö. 12-18, lau.12-16
Dalvegi 16a,
Rauðu múrsteinshúsunum
Kóp. 201 - S: 517 7727
www.nora.is
Fyrir bústaðinn og heimilið
Deilt og
Drottnað
KOMDU Í ÁSKRIFT
:: hringdu í síma 515 5555 eða
:: sendu tölvupóst á askrift@birtingur.is
:: farðu inn á www.birtingur.is
og komdu í áskrift