Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2009, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2009, Blaðsíða 16
þriðjudagur 23. júní 200916 Ættfræði Björg Juhlin kennari og fyrrv. deildarstjóri við MH Björg fæddist í Asker í Noregi og ólst þar upp. Hún lauk prófi í fjölmiðla- fræði og félagsfræði í Freie Univers- itet í Vestur-Berlín og lauk kennara- prófi og BA-prófi í þýsku og norsku við HÍ. Björg hafði umsjón með kennslu í norsku hér á landi, bæði í grunn- skóla og menntaskóla frá 1987-2005. Hún var stundakennari við norsku- deild HÍ um árabil, var kennari við MH 1989-2005 og deildarstjóri þar lengst af. Björg hefur tekið þátt í félags- störfum í kennarasamtökum, m.a. verið formaður félags norsku- og sænskukennara, og tekið virkan þátt í störfum STÍL, samtökum tungu- málakennara á Íslandi. Hún hef- ur farið fjölda ferða til Noregs með nemendahópa í skólabúðir og tekið þátt í að skipuleggja slíkt starf hér á landi. Þá starfaði hún um skeið í for- eldraráði Íþróttafélagsins Gróttu á Seltjarnarnesi og hefur lengi verið virkur félagi í Nordmannslaget, Fé- lagi Norðmanna á Íslandi. Auk þess hefur hún lengi verið félagi í Ferða- félagi Íslands, er mikil áhugamann- eskja um fjallgöngur og óbyggða- ferðir og hefur gengið á fjöll og um íslensk öræfi um langt árabil. Fjölskylda Björg giftist 1.12. 1964 Friðleifi Stef- ánssyni, f. 23. júlí 1933, tannlækni í Reykjavík. Foreldrar hans voru Stef- án Jón Friðleifsson, f. 26.2. 1905, d. 22.9. 1965, verkamaður á Siglufirði, frá Dalvík, og k.h., Sigurbjörg Hjálm- arsdóttir, f. 8.5. 1912, d. 1.1. 1981, húsmóðir, af Hraunkotsætt. Björg og Friðleifur skildu 1991. Börn Bjargar og Friðleifs eru Björg Siv Juhlin Friðleifsdóttir, f. 10.8. 1962, fyrrv. umhverfisráðherra og heilbrigðisráðherra en maður henn- ar er Þorsteinn Húnbogason við- skiptafræðingur og eru synir þeirra Húnbogi, nemi í læknisfræði og Há- kon, grunnskólanemi; Ingunn Mai Friðleifsdóttir, f. 31.5. 1964, tann- læknir í Reykjavík en maður henn- ar er Sigurgeir Ómar Sigmundsson, rannsóknarlögreglumaður hjá ríkis- lögreglustjóra en sonur þeirra er Sig- mundur Árni, grunnskólanemi; Árni Friðleifsson, f. 25.5. 1968, lögreglu- varðstjóri í umferðardeild lögregl- unnar í Reykjavík en unnusta hans er Hjördís Johnson deildarstjóri og eru börn hans Lena María grunnskóla- nemi og Emil Örn grunnskólanemi; Friðleifur Kristinn Friðleifsson, f. 30.3. 1970, deildarstjóri hjá Íslensk- um sjávarafurðum hf. í Reykjavík en kona hans er Ólafía Kvaran hjúkr- unarfræðingur og eru synir þeirra Bjarki Þór grunnskólanemi, Fannar Óli grunnskólanemi og Friðleifur Kristinn grunnskólanemi.. Systur Bjargar: Inger Johanna Kristiansen, f. 1942, kennari í Moss í Noregi; Karin Elísabeth Winther, f. 1945, d. 2008, leikskólakennari í Hur- um í Noregi. Foreldrar Bjargar voru Arne Ju- hlin, f. 7.3. 1911, d. 1.10. 1982, verk- taki í Asker og Nordstrand við Ósló, og k.h., Inger Marie Juhlin, f. 16.5. 1914, d. 10.3. 1980, húsmóðir. Ætt Föðurætt Bjargar er frá Elsborgslen í Svíþjóð. Móðurætt Bjargar er frá Aal í Hall- ingdal í Noregi. Tryggvi fæddist á Akureyri og ólst þar upp. Hann var í Síðuskóla, stundaði nám við VMA og lauk það- an stúdentsprófi 2001 og stundar nú nám í ensku við HÍ. Tryggvi var öryggis- vörður hjá Securitas á Akureyri í nokkur ár og var umsjónarmaður skólabóka við Pennann – Bókval á Akureyri 2005-2007. Hann stundar nú þýð- ingar, m.a. fyrir Náttúran.is. Fjölskylda Kona Tryggva Heiðdís Björk Gunnarsdóttir, f. 25.6. 1974, MA- nemi í lýðheilsuvísind- um við HÍ. Systkini Tryggva eru Stefán Hrólfsson, f. 1973, málari á Akureyri; Lauf- ey Hrólfsdóttir, f. 1984, verslunarstjóri á Akur- eyri; Egill Örvar Hrólfs- son, f. 1986, starfar hjá Tölvulistanum á Akur- eyri; Hanna Margrét Hrólfsdóttir, f. 1992, nemi við MA. Foreldrar Tryggva eru Hrólf- ur Skúlason, f. 25.1. 1952, starfs- maður hjá Kjarnafæði á Akureyri, og Hallveig Stefánsdóttir, f. 24.6. 1954, starfsmaður hjá Grófargili á Akureyri. Ágúst fæddist í Reykjavík en ólst upp á Varmalandi í Borgarfirði og í Hafnar- firði. Hann var í Varma- landsskóla, Lækjarskóla og Víðstaðaskóla í Hafn- arfirði, stundaði nám við verkmenntaskólann Hell- erut í Osló og lauk það- an prófum, lauk síðan sveinsprófi í húsasmíði við Iðn- skólann í Reykjavík og stundar nú nám í byggingariðnfræði við HR. Ágúst starfaði við Hagkaup á unglingsárunum, vann á lager hjá húsgagnaversluninni Skeidal í Noregi, og hefur starfað hjá Glugg- um og garðhús í nokkur ár. Ágúst söng með Flens- borgarkórnum um skeið og keppir í kvartmílu á mótohjóli. Fjölskylda Unnusta Ágústar er Íris Marí Kristrúnardóttir, f. 16.12. 1986, nemi. Dóttir Ágústar er Val- dís Helga Ágústsdóttir, f. 6.11. 2004. Foreldrar Ágústs eru Símon Jó- hannsson, f. 19.3. 1957, íslensku- kennari við Flensborg, og Sigríður Ágústsdóttir, f. 12.11. 1957, þró- unarstjóri hjá Tækniskólanum í Reykjavík. Tryggvi Hrólfsson neMi við HÍ og þýðandi Í reykjanesbæ Ágúst Bjarmi Símonarson HúsasMiður og neMi Í Hafnarfirði 30 ára í gær 30 ára í gær 30 ára n Cindy Severino Almaden Suðurhvammi 5, Hafnarfirði n Guðmundur Einar Einarsson Kvíslartungu 60, Mosfellsbæ n Rakel Eva Gunnarsdóttir Drápuhlíð 15, Reykjavík n Guðbjörn Emilsson Efstalandi 18, Reykjavík n Jónas Tryggvi Jóhannsson Baldursgötu 15, Reykjavík n Guðrún Sif Friðriksdóttir Ásvegi 16, Akureyri n Eyrún Magnúsdóttir Bjarnarstíg 7, Reykjavík n Sigurdís Ólafsdóttir Túngötu 1, Álftanesi n Páll Þorbjörnsson Vesturhópi 26, Grindavík 40 ára n Cornelia Petronella Maria Vijn Lækjarbakka 5, Selfossi n Soi Onthai Blásölum 24, Kópavogi n Maren Finnsdóttir Nesbala 5, Seltjarnarnesi n Hrafnkell Reynisson Hæðarbyggð 14, Garðabæ n Linda Björk Björnsdóttir Fífuseli 19, Reykjavík n Björk Gísladóttir Arnarhöfða 5, Mosfellsbæ n Helga Rós Indriðadóttir Hlíðarhjalla 30, Kópavogi n Unnur Rannveig Stefánsdóttir Stekkjarhvammi 66, Hafnarfirði 50 ára n Raymond Sweeney Suðurvangi 2, Hafnarfirði n Halldór Þór Wium Kristinsson Suðurgötu 42, Reykjanesbæ n Þór Tulinius Karfavogi 50, Reykjavík n Þórir Björgvinsson Steinsstaðaflöt 19, Akranesi n Sólveig Sigurðardóttir Áshamri 61, Vestmanna- eyjum n Jón Rögnvaldsson Svangrund, Blönduósi n Jakobína St Guðmundsdóttir Tjarnarholti 10, Raufarhöfn n Sigrún Hrafnhildur Helgadóttir Laugalind 1, Kópavogi 60 ára n Líney Helgadóttir Bakkasíðu 10, Akureyri n María Helgadóttir Haukalind 15, Kópavogi n Svanhildur Árnadóttir Grenilundi 4, Garðabæ n Salóme Kristinsdóttir Hringbraut 86, Reykjanesbæ n Þórhallur Þorvaldsson Skjaldbreið, Hofsósi n Sigurður Bergsveinsson Brekkutúni 19, Kópavogi n Kristín Hildur Sætran Eiðismýri 22, Seltjarnarnesi n Eyjólfur Ingimundarson Klyfjaseli 11, Reykjavík n Pétur Gíslason Hrafnhólum 8, Reykjavík n Jóhanna Haraldsdóttir Víðihlíð 3, Sauðárkróki 70 ára n Eygló Björg Ólafsdóttir Stekkjargötu 83, Njarðvík n Jóna Gígja Eiðsdóttir Grundargerði 15, Reykjavík n Ragnhildur Haraldsdóttir Vesturbergi 78, Reykjavík n Pétur Runólfsson Vitastíg 9, Bolungarvík n Brynjar Baldvinsson Ægisgötu 15, Dalvík n Guðjón Ólafsson Kjalarlandi 10, Reykjavík n Gyða Pálsdóttir Gullsmára 11, Kópavogi 75 ára n Lúlla María Ólafsdóttir Sigtúni 19, Selfossi n Erlingur Loftsson Sandlæk 1, Selfossi n Úlfar Garðar Randversson Hörgsholti 3, Hafnarfirði n Metta Jónsdóttir Geirakoti, Snæfellsbæ 80 ára n Helga Guðmundsdóttir Hlíðarvegi 1, Kópavogi n Ástbjörg S Gunnarsdóttir Sæviðarsundi 60, Reykjavík n Einar Ósvald Lövdahl Flyðrugranda 2, Reykjavík n Inga Hrefna Lárusdóttir Boðaslóð 12, Vestmannaeyjum n Þuríður Ólafsdóttir Strikinu 4, Garðabæ 85 ára n Kristín Fjóla Þorbergsdóttir Gullsmára 9, Kópavogi n Elísabet Guðmundsdóttir Skipholti 14, Reykjavík n María Hákonardóttir Gullsmára 10, Kópavogi n Marteinn Friðriksson Naustahlein 26, Garðabæ 90 ára n Hrefna G Guðnadóttir Eiðismýri 30, Seltjarnarnesi n Halldór Nikulásson Álfheimum 54, Reykjavík n Ögn Guðmundsdóttir Grænahvammi, Hvammstanga Til hamingju með afmælið! 70 ára í dag Vígsteinn S. Gíslason MálaraMeistari á selfossi 70 ára í dag Vígsteinn fæddist á Haga í Sandvíkurhreppi en ólst upp frá þriggja ára aldri í Bitrufirði hjá frænku sinni Margréti Eysteinsdóttur og Ólafi Gunnars- syni. Vígsteinn flutti síðan á fermingaraldri til foreldra sinna á Selfoss og stundaði nám í mið- skólanum þar. Hann hóf nám í málaraiðn hjá Kaupfélagi Árnesinga 1966 og lauk því 1970 en meistararéttindi öðlaðist hann 1982. Vígsteinn hefur m.a. verið sjómaður, trésmið- ur, vörubílstjóri og línumaður hjá Pósti og síma og Orkubúi Vestfjarða. Hann var málari hjá Máln- ingarþjónustunni á Selfossi um skeið en rekur nú eigið fyrirtæki, VG Fagmálun, á Selfossi. Vígsteinn hefur verið í stjórn Félags bygging- ariðnaðarmanna í Árnessýslu. m.a. verið varafor- maður og ritari félagsins. Fjölskylda Kona Vígsteins er Fjóla Bachmann, f. 13.9. 1950, verslunarmaður hjá BYKO á Selfossi. Foreldr- ar Fjólu voru Halldór Bachmann járnsmiður og Anna María Bachmann verslunarmaður sem bæði eru látin. Fyrri kona Vígsteins er Marta Bergmann og eiga þau einn son, Viðar, f. 21.4. 1974, búsettur í Hollandi með móður sinni. Fjóla á þrjú börn. Þau eru Anna Dóra, f. 29.9. 1969, kennari í Borgarnesi en maður hennar er Jón Karl Jónsson; Ingi Þór, f. 3.3. 1972, hjúkrun- arfræðingur í Reykjavík en kona hans er Rósa- munda Baldursdóttir; Gylfi Már, f. 25.4. 1975, verslunarstjóri hjá Flugger á Selfossi en kona hans er Unnur Pálmarsdóttir. Systkini Vígsteins eru Haukur Arnar, f. 17.4. 1947, ljósmyndari á Selfossi; Gunnþór f. 8.5. 1948, húsvörður á Selfossi; Þorbjörg Svanfríð, f. 27.7. 1950, skrifstofumaður í Hafnarfirði; Einar Þór, f. 26.9. 1954, sölumaður hjá Volvo-umboðinu, búsettur í Reykjavík; Ragnar, f. 17.3. 1956, húsa- smiður á Selfossi. Foreldrar Vígsteins voru Gísli Guðnason, f. 28.8. 1925, d. 7.1. 1981, húsvörður Barnaskólans á Selfossi, og k.h., Jóna Vigfúsdóttir, f. 30.3. 1919, d. 19.9. 2003, lengst af starfsmaður Pósts og síma. á Mánudag

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.