Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2009, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2009, Blaðsíða 6
þriðjudagur 23. júní 20096 Fréttir HÓTAÐI TÍU ÁRA DÓTTUR Hornfirðingurinn Bjarki Kárason fékk sex mánaða fangelsisdóm þegar hann var fundinn sekur um hót- anir gegn fjölskylduföður og tíu ára dóttur hans. Bjarki og félagi hans höfðu áður misþyrmt manninum. Fjölskyldufaðirinn segist feginn að þetta mál sé búið, það hafi verið langt og erfitt. Hornfirðingurinn Bjarki Kára- son var í gær dæmdur fyrir hótan- ir gegn fjölskylduföður og tíu ára dóttur hans, í kjölfar þess að faðir- inn kærði hann fyrir alvarlega lík- amsárás nokkrum mánuðum fyrr. Bjarki gekk í skrokk á fjölskylduföð- urnum ásamt félaga sínum, Björg- vini Þór Kristjánssyni, í fjóra tíma, auk þess sem hann niðurlægði hann með því að láta hann hlaupa nakinn í kringum snókerborð á meðan hann var í losti og dauð- hræddur allan tímann. Ofbeldi í fjóra tíma Fjölskyldufaðirinn, sem er á fimm- tugsaldri, hafði spilað snóker að næturlagi með mönnunum tveim- ur þegar hann spurði félaga Bjarka hvort hann hefði tekið dósir úr hús- næðinu. Við svo búið sneri Bjarki sér að honum, tók af honum gler- augun, og ofbeldið hófst. Björgvin Þór sagði fyrir dómi að atburðurinn hefði gerst um tvöleytið þegar hann og fjölskyldufaðirinn höfðu spilað póker um stund. Hann segir að fjöl- skyldufaðirinn hafi ásakað hann um þjófnað og hafi þá Bjarki og Björgvin ráðist á hann. Slegið hann nokkrum sinnum í hausinn svo hann rotaðist. Þeir hafi komið honum í hliðarlegu svo hann kafnaði ekki. Þegar hann raknaði úr rotinu hafi þeir slegið hann aftur. Hann segir að Bjarki hafi beðið hann að klæða sig úr fötunum og hlaupa í kringum billiardborðið og herma eftir hænu. Þeir hafi rif- ið eyrnalokk úr eyra hans og sveigt þrjá fingur, einn í einu, þannig að brakað hafi í þeim. Hótuðu að henda honum í höfnina Fjölskyldufaðirinn sagði fyrir dómi að Bjarki hafi spurt Björgvin hvort ekki væri réttast að klára þetta bara, höfnin væri þarna rétt hjá. Hann hafi tekið billiardkúlu og spurt hvort hann vildi fá hana í enn- ið. Björgvin hafi dregið úr Bjarka og sagt að það vissu svo margir að þeir hafi verið þarna þrír saman og ef fjölskyldufaðirinn myndi hverfa og finnast í höfninni myndi grun- ur beinast að þeim. Bjarki hafi tek- ið það gilt og skipað fjölskylduföð- urnum að klæða sig. Hótuðu að „taka hann aftur“ Í dómi Héraðsdóms Austurlands segir að fórnarlambið hafi hlotið mar, bólgur, eymsli og blæðingar víðs vegar um andlit, djúpan fjög- urra sentímetra langan skurð á hægri augabrún, kúlu á höfði, sár á hægri eyrnasnepli, mar víðs veg- ar á hálsi, hnakka, öxlum, framan- verðum brjóstkassa, vinstri upp- handlegg og vinstra hné, og bólgur á löngutöng og baugfingri hægri handar. Fjölskyldufaðirinn sagði fyr- ir dómi að á meðan árásunum hafi staðið hafi mennirnir byrjað að hóta honum. Ef þeir svo mikið sem fréttu úti í bæ að hann hefði látið vita af árásinni myndu þeir „taka hann aftur“. Bjarki átti eft- ir að ganga enn lengra í hótunum sínum þegar dóttir fjölskylduföð- urins svaraði í símann heima hjá sér seint að kvöldi nokkrum mán- uðum síðar. Viltu sjá pabba þinn alblóðugan aftur? Að kvöldi til í desembermánuði sama ár var hringt í heimasíma fjölskylduföðurins. Dóttir hans, þá tíu ára gömul, svaraði símanum. Í dómnum sem féll í gær kemur fram að þá hafi Bjarki verið í símanum og spurt hana hvað hún væri gömul og í hvaða bekk hún væri. Hann hafi beðið um að fá að tala við pabba hennar og hún sagði hann vera sof- andi. Hún sagði þá fyrir dómi að Bjarki hafi spurt hana hvort hún myndi eftir því hvernig pabbi henn- ar hefði litið út þegar hann hafi komið alblóðugur heim einu sinni. Hún skyldi fara og vekja pabba sinn ef hún vildi ekki sjá hann svoleið- is aftur. Hún sagði einnig að ef hún myndi ekki segja pabba sínum að taka kæruna til baka ætlaði hann að ráðast á hann aftur og aftur og að þeim yrði ekki líft á Höfn ef hann myndi ekki gera það. Svo hafi hann sagt henni hver hann væri. Dóttir- in sagðist hafa verið hrædd á með- an á símtölunum stóð og pínulít- inn tíma eftir það. Hún kvaðst hafa verið hrædd við að ákærði myndi koma og ráðast á þau. Henni var bannað að svara símanúmeri sem var skrifað á símaskrána heima hjá þeim. Hún gat ekki talað við móður sína vegna gráts, ekka og geðshrær- ingar eftir símtalið. „Veistu hver þetta er?“ Fjölskyldufaðirin sagði fyrir dómi að dóttirin hafi vakið hann og rétt honum símann þar sem hann sagði halló. Þar hafi verið sagt: „Veistu hver þetta er?“ Fjölskyldu- faðirinn hafi svarað því neitandi og hafi þá viðkomandi kynnt sig sem Bjarki Kára. Svo hafi hann sagt: „Ef þú dregur ekki þessa ákæru til baka verður þér ekki líft á Íslandi.“ Símtalið slitnaði eftir örsutt spjall. Bjarki hringdi svo aftur. Hann hafi spurt hann hvers vegna hann væri að kæra þetta, þetta hafi verið svo lítið mál og hann væri bara að eyða peningum í lögfræðing og að þetta væri bara vitleysa. Fjölskyldufaðir- inn sagði fyrir dómi að hann hefði ekki persónulega verið hræddur heldur aðeins fyrir hönd fjölskyldu sinnar. Dóttir hans hafi verið skít- hrædd, náföl og skjálfandi. Hann segist ekki hafa gert neinar ráð- stafnir aðrar en þær að fjölskyld- an hafi gist hjá fjölskyldumeðlim þessa nótt. Lengi að jafna sig Fjölskyldufaðirinn fékk martrað- ir eftir hótanirnar og árásirnar. Þá segir í dómi að hann geti illa sofið. Hann hafi leitað sér áfallahjálpar hjá sálfræðingi fljótt eftir atburðinn og taldi sig á réttri leið. Í dómi um líkamsárásina segir: Líkamsárás sú og nauðung sem ákærðu eru hér dæmdir fyrir var fólskuleg, langvar- andi og niðurlægjandi fyrir brota- þola. Olli árásin brotaþola tölu- verðum áverkum og enda þótt ekki liggi fyrir vottorð læknis eða sál- fræðings um sálræn áhrif hennar á brotaþola telur dómurinn árásina hafa verið til þess fallna að valda honum andlegum þjáningum. „Hann gat hótað mér en...“ Fjölskyldufaðirinn sagði í sam- tali við DV í gær að hann vissi ekki hvernig honum væri innanbrjósts eftir að hafa lesið dóminn lauslega í gær. „Ég veit ekki hvort ég er sáttur, það er náttúrlega best að þetta sé búið. Ég vona að þetta verði enda- lokin, þetta er búið að vera langt mál og erfitt.“ Hann segir dótt- ur sinni líða ágætlega eftir atvikum og beri sig vel. Aðspurður hvernig honum hafi liðið eftir að Bjarki hafði hótað dótt- ur hans sagði hann: „Ég var reiður, hann gat hótað mér en eins og ég sagði við vitnaleiðslurnar tók ég því bara þannig að hann væri hrædd- ur. Það átti að fara dæma í árásinni og svo þegar hún sagði mér hvað hann hefði sagt, varð ég reiður.“ Hann segist reyna að bera höfuðið hátt. „Þetta er rosalega mikið áfall. Það er erfitt að jafna sig.“ Hann vill einnig beina til fólks sem verður fyrir slíkum hótunum að kæra þær og láta lögregluna vinna sitt verk. Hann býr enn á Höfn en baðst und- an því að koma fram undir nafni vegna dóttur sinnar. Fékk sex mánuði Bjarki Kárason var dæmdur í Héraðsdómi Austurlands í gær. Hann fékk sex mánaða fangelsi. Honum er einnig gert að greiða 280 þúsund krónur í sakarkostn- að og málsvarnarlaun verjanda síns 260 þúsund krónur. Óvíst er þó hvenær Bjarki hefur afplánun dóms síns, að því gefnu að hann annaðhvort áfrýi ekki dómn- um eða tapi áfrýjun. Fram kom í fréttum Ríkisútvarpsins um helg- ina að um 200 afbrotamenn bíða þess að vera kallaðir til afplán- unar, ekki nóg með það held- ur er biðtíminn langur eða að meðaltali um fimmtán mánuð- ir. Auk þeirra 200 afbrotamanna sem bíða þess að vera boðaðir í afplánun refsidóma bíða um sex- tán hundruð skuldarar þess að vera boðaðir að afplána vararefs- ingu vegna ógreiddra sekta. „Ég vona að þetta verði endalokin, þetta er búið að vera langt mál og erfitt.“ Grátur og ekki Stúlkan gat ekki talað við móður sína vegna gráts, ekka og geðshræringar eftir símtalið frá Bjarka. Myndin er sViðsett Höfn í Hornarfirði Árásin átti sér stað á Höfn í byrjun árs 2008. Hótunin kom í desember það ár. Við skýrslutöku sagði fjölskyldu- faðirinn að Bjarki hefði sagt í hótunarsímtali: „nú skaltu draga þessa kæru til baka.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.