Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2009, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2009, Side 10
þriðjudagur 23. júní 200910 Neytendur GaGnrýna nær- inGarmerki Neytendasamtök víða í Evrópu eru mótfallin nýrri næringar- merkingu á matvælum, sem framleiðendur segja að sé til bóta fyrir neytendur. Merkið er kall- að GDA og byggist á ákveðinni skammtastærð sem framleið- endur ákveða sjálfir í stað þess að miða við 100 grömm eins og venja er. Mjög misjafnt er hins vegar hversu stóra skammta fólk borðar og gagnrýna neytenda- samtökin því að framleiðendur fái að ráða þessu, þar sem þessar tölur geta verið blekkjandi. n Lesandi fór í Hagkaup á Eiðistorgi hvar hann ætlaði að kaupa Uncle Bens tilbúin hrísgrjón í poka. Á hillumiða stóð að þau ættu að kosta 273 krónur. Við kassann kom hins vegar upphæðin 499 krónur fram. Lesandinn lét það fylgja að hann hefði áður séð misræmi í hillu- og kassaverði en þetta slægi öll met í þessum málum. n Nóatún í Grafarholti fær lofið. Þar er jafnan hægt að kaupa ágætan heitan mat í hádeginu á sanngjörnu verði, sem líkt og annars staðar er seldur eftir vigt og síðan er meðlætinu bætt við. Það er oft hægt að gera ágæt kaup í hádeginu í heita borðinu í Nóatúni, kaupa ódýra kjúklingabita eða ágæta rétti. SEndið LOF Eða LaST Á nEYTEndur@dV.iS Dísilolía algengt verð verð á lítra 192,3 kr. verð á lítra 179,6 kr. Skeifunni verð á lítra 178,6 kr. verð á lítra 178,2 kr. algengt verð verð á lítra 179,8 kr. verð á lítra 179,7 kr. bensín Hveragerði verð á lítra 176,2 kr. verð á lítra 176,1 kr. Selfossi verð á lítra 176,3 kr. verð á lítra 176,2 kr. algengt verð verð á lítra 179,8 kr. verð á lítra 179,6 kr. umSjón: VaLgEir örn ragnarSSOn, valgeir@dv.is / neytendur@dv.is el d sn ey t i Þegar notendur samþykkja skilmála Facebook er þeim fæstum kunn- ugt um að með því eru þeir að fall- ast á að leyfa hinu sístækkandi sam- skiptaneti að nálgast og safna miklu magni af persónulegum upplýs- ingum um þá. Facebook getur svo notað þessar upplýsingar í nánast hvaða tilgangi sem er. Þannig gang- ast notendur undir að vef-risinn geti selt allar persónuupplýsingar um þá til annarra fyrirtækja í auglýs- ingaskyni. Þá áskilur Facebook sér rétt, samkvæmt nýjum skilmálum, til þess að halda eftir persónulegum upplýsingum fólks til dæmis mynd- um og öðru sem það hefur hlaðið inn. Gildir þá einu hvort notendur hafa lokað reikningi sínum eða eytt út myndunum. Facebook hefur rétt á því að nota gögnin til eilífðar. Bent hefur verið á að Facebook eignist sjálfkrafa rétt á myndum um leið og þeim er hlaðið inn á vefinn. Óánægðir fésbókarar eftir á Nýlega gerði Forbrugerrådet í Dan- mörku könnun meðal notenda Facebook, sem Neytendablaðið sagði frá. Þar kemur fram að jafnvel þó fólk hafi samþykkt skilmála Face- book í flýti, er mikil andstaða við þá meðal notenda. Til dæmis töldu 80 prósent það alls ekki í lagi að Face- book gæti selt persónulegar upplýs- ingar notenda til annarra fyrirtækja. Enn meiri andstaða var við að Fac- ebook gæti geymt persónupplýsing- ar um notendur eftir að notendaað- Notendur ættu að hugsa um hvaða efni þeir deila með öðrum á Facebook. Jafnvel þó fólk eyði persónulegum upplýsingum og myndum, áskilur vefurinn sér rétt til þess að geyma og selja upplýsingarnar til þriðja aðila. Í notendaskilmálunum kemur einnig fram að Facebook muni hugsanlega afla upplýsinga um notendur utan vefsins. Smá- forrit og leikir eru notaðir svo fyrirtæki komist yfir persónuupplýsingar. PASSAÐU ÞIG Á FACEBOOK valGEIR ÖRN RaGNaRSSON blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is gangi hefði verið lokað. Alls voru 93 prósent svarenda á móti því. Svipuð andstaða var við skilmála Facebook um að sýna opinberlega og dreifa í hvaða tilgangi sem er öllum þeim persónupplýsingum sem settar hafa verið inn á Facebook. Allir sem tóku þátt í viðhorfskönnuninni til Face- book höfðu hins vegar sjálfir sam- þykkt skilmálana. Safna upplýsingum um þig Ýmiskonar gagnrýni hefur verið sett fram á notendaskilmála Facebook sem þykja troða á einkalífi fólks. Einnig hefur öryggi á síðunni oft verið talið ábótavant. Tveimur há- skólanemum í Bandaríkjunum tókst að stela ítarlegum persónulegum upplýsingum um 80 þúsund not- endur frá Facebook, en slík gögn eru verðmæt söluvara. Hörð gagnrýni hefur verið sett fram á hluta af skilmálunum, þar sem segir: „Hugsanlega notum við upplýsingar um þig sem við söfnum frá öðrum heimildum, þar með tal- ið en ekki takmarkað við dagblöð og netmiðla svo sem blogg, smáskila- boðaþjónustur, hönnuði í Facebook- kerfinu og aðra notendur Facebook til að bæta við yfirlitið þitt.“ Með því er Facebook að áskilja sér rétt til þess að leita uppi per- sónulegar upplýsingar um notend- ur, sem koma vefnum ekkert við, hugsanlega til þess að gera upplýs- ingarnar söluvænlegri. Þá hefur verið gagnrýnt að not- endur geta aldrei eytt reikningi sínum, aðeins gert hann óvirkan, upplýsingar og myndir eru áfram í vörslu fyrirtækisins. í febrúar ákvað fyrirtækið hins vegar að breyta regl- um sínum þannig að notendur geti óskað sérstaklega eftir því að reikn- ingi þeirra verði eytt, en ekki aðeins lokað. Passaðu hvað þú gerir Neytendasamtökin ráðleggja fólki sem kýs að nota Facebook að vernda persónulegar upplýsingar sínar með ýmsum ráðum. Notendum er ráð- lagt að skipta reglulega um lykilorð. Þá ætti fólk að forðast öll smáforrit- in, sem þrátt fyrir skemmtanagildið eru hönnuð af fyrirtækjum til þess að komast yfir persónupplýsingar Face- book-notenda. Til þess að nota for- ritin þurfa notendur að samþykkja skilmála, sem gefa hönnuði forritsins kleift að nálgast uppýsingarnar og þar með er tilganginum náð. Notendum er bent á að hugsa sig tvisvar um áður en þeir gefa upp símanúmer og heimilisfang á Face- book. Einnig er ágætt að skrá sig ekki undir fullu nafni heldur aðeins for- nafni, eða jafnvel gælunafni. Fólk ætti heldur ekki að setja myndir eða upplýsingar um annað fólk á Face- book nema það liggi ótvírætt leyfi fyr- ir. Með því er nefnilega verið að veita fyrirtækinu persónulegar upplýsing- ar um þriðja aðila, án þess að hann hafi hugmynd um það. „Hugsanlega notum við upplýsingar um þig sem við söfnum frá öðrum heimildum, þar með talið en ekki takmarkað við dagblöð og netmiðla svo sem blogg, smáskilaboðaþjónustur, hönnuði í Facebook-kerfinu og aðra notendur Facebook til að bæta við yfirlitið þitt.“ Hættur Smáleikir og forrit eru ágætis afþreying, en mörg þeirra eru gerð í þeim tilgangi að komast yfir persónulegar upplýsingar notenda. MyNd RÓbERt REyNISSON TalSmaður Skorinn niður Margt bendir til þess að emb- ætti talsmanns neytenda verði lagt niður á næstunni. Þetta er liður í niðurskurði og aðhaldi í ríkisfjármálum. Fréttavefurinn Pressan greindi frá því fyrir helgi að alvarlega væri nú íhugað að slá af nokkrar ríkisstofnanir, þar á meðal talsmann neytenda. Líklegt þykir að embætti ríkislög- reglustjóra verði einnig lagt niður í núverandi mynd.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.