Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2009, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2009, Síða 15
þriðjudagur 23. júní 2009 15Umræða Hver er maðurinn? „Heimir guðjónsson knattspyrnu- þjálfari.“ Hvað drífur þig áfram? „drífur mig áfram að reyna að gera betur en síðast.“ Hvar ólstu upp? „Ég ólst upp í Vesturbænum.“ Uppáhaldsmatur? „BBQ-kjúklingabringur sem ég elda sjálfur og er færgur fyrir í Kópavogin- um og lambalærið hennar mömmu.“ Skemmtilegasta heimilisverkið? „það er svo margt. En ætli það sé ekki að hrensa eldhúsið. það er alltaf ákveðin stemning með músíkina í botni og eitt rauðvínsglas.“ Er jafnskemmtilegt að þjálfa fótbolta og að spila hann? „Hvort tveggja er mjög skemmtilegt, sérstaklega þegar það gengur vel. þetta er svipað skemmtilegt.“ Eruð þið búnir að vinna titillinn? „nei, langt í frá. Við höfum ekkert ekkert unnið ennþá oghöfum ekkert til að stæra okkur af annað en að hafa unnið nokkra leiki. Við verðum að vera með fæturna á jörðinni og halda áfram að vinna okkar vinnu.“ Hvað er persónulegt met þitt að vinna marga leiki í röð sem þjálfari? „Ætli það sé ekki þessi leikjaruna núna. Sjö leikir í röð.“ En sem leikmaður? „Ætli það hafi ekki verið með FH árið 2005, 15 leikir í röð.“ Langar þig aldrei að taka fram skóna? „jú, ég neita því ekki. þegar æfingar byrja á grasinu og maður er að fylgjast með fyrir utan, kitlar það mann alltaf að komast inn á. Ég er búinn að átta mig á því að ég hef ekkert að gera inn á hjá FH.Bæði út af því að ég myndi vera langlélegastur og það myndi enginn nenna að gefa á mig.“ Bjóstu við toppbaráttan yrði harðari framan af? „Toppbaráttan er enn hörð. Stjarnan á að spila í kvöld (í gær) ef þeir vinna eru þeir bara tveim stigum á eftir okkur. Ég held að toppbaráttan eigi eftir að vera hörð.“ Á Gunnar BirGisson að hætta afskiptum af stjórnmÁlum? „nei. Ég held að hann hafi gert mikla og góða hluti fyrir Kópavog.“ Linda MicHELSEn 59 ára „já. Einstaklingurinn má ekki vera stærri en flokkurinn.“ RúnaR Jón ÁRnaSon 56 ára VEiTingamaður „að sjálfsögðu. Eftir því sem maður heyrir ætti hann að vera hættur fyrir löngu.“ ViktoR StURLaUgSSon 68 ára BiFVÉlaVirKi „já. mér finnst hann vera brotlegur.“ RannVEig gUnnLaUgSdóttiR 56 ára STarFSmaður á HraFniSTu Dómstóll götunnar HEiMiR gUðJónSSon, þjálfari FH í úrvalsdeild, segir baráttuna fram undan vera harða þrátt fyrir að FH-ingar séu búnir að vinna sjö leiki í röð það sem af er tímabilinu. Kitlar stundum að Komast inn á „Ég sé engan annan möguleika.“ HöRðUR SMÁRi HÁkonaRSon 71 árS EllilíFEyriSþEgi maður Dagsins Lýðræði grundvallast á þrískiptingu valds. Alþingi er hugsað sem laga- smiðja og lögin síðan send til ráð- herra sem sjá um að lögin komist í framkvæmd. Kastist í kekki höf- um við svo dómsvald sem á að vera óháð alþingi og ráðherrum, það er löggjafarvaldi og framkvæmdavaldi. Á Íslandi er þessi þrískipting valds í molum. Ráðherrar, það er fram- kvæmdavaldið, haga sér eins og ein- ræðisherrar og senda alþingi sam- þykktir og lagafrumvörp sem þeir kappkosta að verði að lögum. Sömu menn hunsa álit umsagnaraðila um hæfi manna til dómarasætis og velja fólk eftir eigin hentisemi. Þannig er ráðherravaldið orðið að miðpunkti og alþingi og dómsvald afleggjarar þess. Annar hornsteinn lýðræðis eru kosningar. Þær eiga að tryggja eðli- legt gegnumstreymi þingmanna og endurnýjun. Flokkarnir geta lítið breytt bókstafamerkingum almenn- ings á sjálfan kosningadaginn og nýta því aðrar leiðir til að minnka áhrif fólksins. Það er gert með því að hindra eðlilegt frammistöðumat á verkum þingmanna. Í stað þess að hafa það í höndum almennra flokksmanna er þess vandlega gætt að innsti kjarninn ráði þar mestu. Uppstilling er ákveðin af innmúr- aðri flokksklíku en prófkjör skipu- lögð þannig að fyrirsætir þingmenn haldi töglum og högldum. Enda telst til tíðinda komist nýtt fólk inn á lista. Flokksræðið kom berlega í ljós eftir ömurlegan viðskilnað síðustu ríkisstjórnar, ótrúlega margir skol- uðust aftur inn í Alþingishúsið og sitja áfram eins og ekkert hafi í skor- ist. Áfram studdir af litlum flokks- kjörnum en almenna skírskotun hafa þeir enga. Mörg umliðin ár hafa stjórnar- hættir sem þessir tíðkast á Íslandi. Í góðærinu lét fólk sér þetta lynda en nú er annað uppi á teningnum. Virð- ing alþingis er svipur hjá sjón, traust á sömu stofnun þverrandi og þolin- mæðin þrotin. Tregða gömlu flokk- anna til endurnýjunar, ekki bara á mannskap heldur líka á vinnulagi, er að ganga af lýðræðinu dauðu. Málsvarar breytinga virtust missa allt flug bara við það að fara inn í Alþingishúsið og gömlu gammarnir éta upp hræin. Lausnin er að færa alþingi aftur á Þingvöll. Á þessum fegursta þing- stað í heimi er sagan öll og nú þarf einmitt að hnýta við, búa til meira. Lýðveldinu var fagnað á Þingvöllum 1944, þar voru afar okkar og ömm- ur í grenjandi rigningu og tóku við fjöregginu sem nú er orðið fúlt af okkar völdum. Skundum því á Þing- völl, verpum nýju eggi og skilum al- mennilega af okkur. En fyrst þarf að moka út. Skundum á Þingvöll kjallari 1 Hrafn ók á ljósastaur Séð og heyrt greinir frá því að kvikmyndaleikstjórinn Hrafn gunnlaugs- son hafi lent í óhappi í miðbæ reykjavíkur. 2 Sameinuð á ný eftir átján mánaða viðskilnað Hundurinn Bear hvarf sporlaust frá heimili sínu í louisiana 2007 og hélt hin 27 ára gamla amanda Wells að hann myndi ekki skila sér aftur heim. nú er hann fundinn, 537 kílómetra frá heimili sínu. 3 Hótaði börnum og gaggaði eins og kjúklingur lögreglan í Kingston í Pennsylvaníu hafði afskipti af karlmanni um helgina sem hótaði hópi ungmenna með byssu á meðan hann gaggaði eins og kjúklingur. 4 Ísland stefni í rusleinkunn íslendingar hafa miklar áhyggjur af því að lánshæfiseinkunn þjóðarinnar verði lækkuð niður í „rusl“ sem þýðir að allar líkur eru á að ísland geti ekki staðið í skilum við skuldir sínar. 5 dalasel brann til kaldra kola göngukofi í eigu Orkuveitu reykjavíkur eygðilagðist í eldsvoða 6 ökuníðingurinn yfirheyrður í dag Ökumaðurinn sem olli meiðslum og skemmdum var handtekinn og yfirheyrður. 7 Perez Hilton laminn Ofurbloggarinn Perez Hilton sakar Will. i.am úr Black Eyed Peas um að hafa ráðist á sig. mest lesið á dV.is mynDin Áhugasöm dúfa Hvort það var friðardúfan eða einhver allt önnur dúfa sem fylgdist með blaðamannafundi Hagsmunasamtaka heimilanna í gær skal ósagt látið en ljóst er að á þeim bænum er nú lagt á ráðin um herskárri aðgerðir en beitt hefur verið til þessa. Mynd HEiða HELgadóttiR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.