Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2009, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2009, Qupperneq 22
þriðjudagur 23. júní 200922 Fólkið Björk Guðmundsdóttir skemmti sér vel á Boston á föstudags- kvöldið. Söngkonan mætti ásamt eiginmanni sínum Matth- ew Barney og fríðu föruneyti og komu þau sér vel fyrir í einu horninu þar sem þau sátu og drukku kampavín. Björk var klædd í stuttan pallíettukjól og dansaði eins og enginn væri morgundagurinn. Erlendir ferðamenn ráku upp stór augu er þeir sá söngkonuna í góðum gír á barnum. Og tóku nokkr- ir ferðamenn upp á því að taka myndir af henni dansandi með gemsanum sínum. Nokkurs konar minjagripur úr Íslands- ferðinni. „Ég skulda mikið, Ég tapaði öllu“ „Ég er bara ótrúlega klár í flestu. Ég er snillingur. Fyrirsæta, rappari, tæknimaður og allt bara,“ segir Ág- úst Bent Sigbertsson, betur þekkt- ur sem rapparinn Bent úr Rottweil- er hundum. Bent hefur í nægu að snúast þessa dagana þar sem hann tekur upp, klippir og sér um hljóð- ið í Monitor-þáttunum sem hefja göngu sína á Skjá einum innan skamms. „Þetta er rugl. Ég er nokkurn veginn í þessu tuttugu tíma á sól- arhring. Ég legg mig í hálftíma og sinni konunni minni í þrjá og hálf- an og fer svo aftur í vinnuna,“ seg- ir Bent. Bent segir þættina lofa góðu og að áhorfendur eigi eftir að skemmta sér konunglega enda fjalli þeir um allt það skemmtilega sem fólk er að gera. Rapparinn fjölhæfi útilok- ar heldur ekki frekari frama í sjón- varpsgeiranum. „Ég er alveg opinn fyrir því að vinna meira í sjónvarpi. Það má samt ekki gleyma því að ég var með sjónvarpsþátt á Sirkus fyrir nokkr- um árum þannig að ég er ekki að stíga mín fyrstu skref í bransan- um. Þátturinn hét Tívolí og er þátt- ur sem nokkurn veginn allir hafa gleymt.“ liljakatrin@dv.is FjölhæFur rappari RappaRinn Bent vinnuR þRiggja manna staRf í monitoR-þáttunum: BuBBi Morthens: Tónlistarhátíðin Bræðslan verð- ur haldin í fjórða sinn í lok júlí á Borgarfirði eystra. Tónlist- armenn hafa nú þegar verið bókaðir og er óhætt að segja að íslensk tónlist verði í fyrirrúmi þetta árið. Hinn íslenski þursa- flokkur kemur fram ásamt Páli Óskari og Monicu, B. Sig, Jónasi Sigurðssyni og Bróður svartúlfs. Þessi litla hátíð hefur notið mik- illa vinsælda undanfarin ár og margar stórstjörnurnar komið fram á henni eins og Emilíana Torrini, Belle & Sebastian og Damien Rice. Getur allt Bent var að útskrifast úr grafískri hönnun frá Listaháskól- anum og segir hann það hjálpa við vinnslu þáttanna. mynduð aF Ferða- mönnum m yn d V er a P á ls d ó tt ir Íslenskt Í Fyrirrúmi „Ég skulda mikið, ég tapaði öllu. Ég tapaði milljónum,“ sagði Bubbi Morthens í viðtali við fréttaskýr- ingaþáttinn 20/20 sem sýndur er á bandarísku sjónvarpsstöðinni ABC í síðustu viku. Innslagið hefur vakið mikla at- hygli á vef sjónvarpsstöðvarinnar og er á lista yfir vinsælustu myndskeið stöðvarinnar. Í þættinum koma einn- ig fram Birgitta Jónsdóttir, nýkjörin þingkona, og fyrrverandi forsætis- ráðherra Geir H. Haarde. Í samtali við DV vildi Bubbi litlu bæta við innslagið sem rúmar þrjár milljónir Bandaríkjamanna horfðu á í síðustu viku. „Ef ég er í þessu inn- slagi talar það örugglega bara fyrir sig sjálft.“ Hann viðurkennir þó að hafa ekki enn séð umrætt viðtal og að hann hafi ekki mikinn áhuga á að horfa á sjálfan sig. Í innslaginu einblínir fréttaskýr- ingaþátturinn á hrun íslenska hag- kerfisins, útrásarvíkingana og skuld- setta Íslendinga. Farið er lítillega yfir sögu landsins en einblínt á íslenskt viðskiptalíf og offar bankanna. Fréttamaðurinn spyr Bubba Morthens hvort hann hafi heyrt af sjómönnunum sem yfirgáfu bátana og hófu störf í fjárfestingageiranum. „Já, já, og keyptu verslunarmiðstöðv- ar,“ segir Bubbi í þættinum. Fréttaskýringaþátturinn 20/20 hóf göngu sína á áttunda áratugin- um og átti að vera svar sjónvarps- stöðvarinnar ABC við 60 minutes á CBS. Þátturinn hefur ávallt notið mikilla vinsælda vestanhafs og hafa ekki ómerkari stjónvarpsstjörnur en Barbara Walters og Diane Sawyer stjórnað þættinum. Bubbi segir það ekki hafa ver- ið erfitt að opna sig í erlendum fjöl- miðlum. „Mér hefur aldrei fundist það erfitt að vera hreinskilinn. Ég hef aldrei neitt að fela.“ Undir lok innslagsins lýsir Bubbi frá því hvað skipti hann mestu í dag. „Núið, að vera í núinu. Ég er með ný- fætt barn, ég á fallega konu, vini, fjöl- skyldu og ég á gítarinn minn. Það nægir mér. Lífið heldur áfram.“ Fréttamaðurinn spyr einn- ig Geir Haarde hvað skipti mestu máli og hvað Íslend- ingar hafi lært af góðær- inu. „Það er betra að vera stór fiskur í lítilli tjörn en lítill fiskur í stórri tjörn.“ Bubbi morthens opnar sig í fréttaskýringaþætt- inum 20/20 sem sýndur er á sjónvarpsstöðinni aBC. Bubbi morthens hefur ekkert að fela og talar hreinskilnislega í innslagi um hrun ís- lenska hagkerfisins. talið er að tæpar þrjár milljónir Bandaríkjamanna horfi á þáttinn vikulega. innslagið nýtur einnig mikilla vin- sælda á vef stöðvarinnar. Bubbi morthens Opnar sig í viðtali við bandarísku sjónvarpsstöðina aBC. lifir í núinu „Ég er með nýfætt barn, ég á fallega konu, vini, fjölskyldu og ég á gítarinn minn. það nægir mér. Lífið heldur áfram.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.