Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2009, Blaðsíða 2
Ég sé stóra möguleika fyrir Ísland
í framtíðinni. Hlutirnir eru erfiðir
núna, en vonandi finnum við fljót-
lega góða lausn á málunum. Ef við
reynum að líta aðeins á stöðuna, þá
sé ég t.d. þessa kosti og möguleika
fyrir Ísland:
n Staðsetning Íslands er athyglis-
verð. Það hefði á margan hátt verið
náttúrulegt að setja upp mjög
stóran flugvöll á Íslandi. Ég
flýg sjálfur oft til Banda-
ríkjanna og þarf þá oft
að fljúga fyrst suður og
seinna yfir Noreg og Ís-
land á leiðinni til Banda-
ríkjanna. Það fer mikill
tími til spillis við þetta og
er ekki gott fyrir náttúr-
una.
n Náttúra Íslands er
auðvitað einn-
ig okkar
styrk-
ur. Við
höfum
fallega og hreina náttúru. Við höfum
einnig mikið af hreinni orku, hreinu
vatni og hreinu lofti. Hér liggja stórir
möguleikar. Það sama gildir um fisk-
inn og aðra íslenska matvöru, sem
er gæðavara.
n Hugviti höfum við líka mikið af.
Íslendingar eru vel menntaðir og
þrjóskir. Það er mikilvægt að nýta
hugarorkuna. Það þýðir líka að
það er mikilvægt að reyna
ekki að stjórna öllu að ofan.
Það verður að nýta orku og
hugvit allra landsmanna.
n Eins og ég hef sagt
áður, finnst mér erfitt
að koma með ráð að
utan. Lausnin liggur
í hugviti, menningu og
þrjósku allra lands-
manna.
Umræðan um vanda Íslands og
bankahrunið hefur legið þungt á
flestum Íslendingum undanfarna
mánuði. Fáir hafa farið varhluta af
þrengingum í efnahagslegu tilliti. Þó
er undantekningin líklega íslenskir
sjómenn sem aftur eru orðnir hetj-
ur hafsins. Íslenskir bankamenn
skyggðu á þá þar til íslenska efna-
hagsundrið fór að hökta um haustið
2007 og hrundi loks í október 2008.
Frá efnahagshruninu í október
hefur kaupmáttur launa lækkað
um 10 prósent og er nú jafn mikill
og í mars árið 2003. Vísitala neyslu-
verðs hefur hækkað um 18 prósent.
16.300 eru atvinnulausir samkvæmt
nýjustu tölum Vinnumálastofnun-
ar. Húsnæði hefur fallið að raunvirði
um 20 prósent og fjölmargir búa við
átthagafjötra vegna hækkandi lána.
Fjörutíu þúsund manns tóku mynt-
körfulán en algengt er að slík lán
hafi hækkað um 70 prósent á einu
ári. Hagfræðisvið Landsbankans
sagði frá því í síðustu viku að Ísland
ætti heimsmetið yfir hrun raun-
gengis frá ársbyrjun 2008 til loka
maí 2009. Féll raungengi krónunnar
um 38 prósent á því tímabili.
Ísland átti fyrir efnahagshrunið
heimsmet í viðskiptahalla. Það hef-
ur að undanförnu breyst til hins já-
kvæða. Sem dæmi voru vöruskipti
jákvæð um 8,7 milljarða króna í júní
samkvæmt bráðabirgðatölum Hag-
stofunnar.
Sumir hafa upp á síðkastið kvart-
að undan svartri mynd sem fjöl-
miðlar gefa af atvinnuleysi og fjár-
hagslegri eymd Íslendinga sem ekki
sýnir nein teikn um breytingu. Lík-
lega má telja þá á fingrum annarr-
ar handar sem ekki hafa fengið nóg
af umræðunni um Icesave-klúð-
ur Landsbankans. DV fannst því
við hæfi að leita til helstu sérfræð-
inga Íslands sem bæði eru búsett-
ir hérlendis og erlendis til að koma
með tillögur að lausnum sem gætu
leitt Ísland út úr efnahagsvandan-
um. Margar góðar tillögur komu
fram. Má þar nefna að gera Ísland
að fyrsta rafbílavædda landi heims,
útgáfu grænna skuldabréfa, nýta
betur hugarorkuna, heilsutengda
ferðaþjónustu, netþjónabú, lækk-
un flugvallargjalda til að laða að er-
lend lággjaldaflugfélög og svo mætti
lengi telja.
Eftirfarandi
spurningar voru
til grundvallar
1. Hvernig er hægt að nýta það mannafl
sem nú er atvinnulaust til að auka
hagkvæmni íslenska þjóðarbúsins?
2. Hvernig er hægt að nýta innlenda
framleiðslu til að auka útflutningsverð-
mæti og minnka innflutning?
3. Hvernig getur ríkið beitt valdi sínu
til að auka almennt hagkvæmni Íslands
sem fjárhagseiningar?
4. Hvaða gjaldmiðil á Ísland að nota, og
ef annan en krónuna, hvernig á að taka
hann upp?
Vinsamlegast komdu með eina til
þrjár tillögur um skýr og áþreifanleg
verkefni til að auka hagkvæmni íslenska
þjóðarbúsins.
2 MiÐviKudagur 15. júlí 2009 fréttir
SVONA VERÐUR ÍSLANDI BJARGAÐ
annas sigmundsson
blaðamaður skrifar: as@dv.is
1. Til mjög skamms tíma er skyn-
samlegt að ríkið ráðist í verkleg-
ar framkvæmdir til þess að milda
sveifluna í hagkerfinu, sérstak-
lega hvað varðar atvinnu í bygg-
ingariðnaði. Í þessu sambandi á
ríkið að passa að ráðast einungis í
framkvæmdir sem það mun þurfa
að ráðast í hvort eð er. Þá er ríkið
í rauninni einungis að flýta fram-
kvæmdum og framkæma á tíma
þegar það er hagkvæmt þar sem
verð eru lág.
2. Lang-, langmikilvægasta verk-
efni stjórnvalda á þessu ári og
næsta er að koma fjármálakerf-
inu aftur í eðlilegt horf. Hagkerfið
getur ekki vaxið og dafnað nema
að það hafi öflugt fjármálakerfi.
Stjórnvöld eiga því að einblína á
að ljúka Icesave-málinu og ljúka
uppgjöri bankanna og samningum
við erlenda kröfuhafa. Þegar því er
lokið eiga þau að afnema gjaldeyr-
ishöftin sem fyrst. Og síðan takast
á við það risavaxna verkefni að
koma fyrirtækjum sem lent hafa í
eigu ríkisbankanna aftur í einka-
eigu. Og síðan að koma bönkun-
um sjálfum aftur í einkaeigu.
Best væri reyndar ef kröfuhafarn-
ir fengju greitt fyrir eignirnar sem
færðar eru yfir í nýju bankana í
formi hlutafjár í nýju bönkunum í
stað skuldabréfa gefinna út af nýju
bönkunum. Það myndi hjálpa til
við að tryggja að fagleg sjónarmið
en ekki stjórnmál réðu ferðinni við
ákvarðanatöku innan bankanna.
3. Þegar frá líður og búið er að
endurreisa fjármálakerfið eiga
stjórnvöld að einblína á að búa til
umgjörð sem skapar skilyrði fyrir
vexti einkageirans. Það er ekki rík-
isins að ákveða hvort við Íslend-
ingar eigum að fullvinna fisk eða
ekki, eða byggja netþjónabú eða
ekki. Það hefur reynst afleitlega
bæði hér og erlendis þegar stjórn-
völd hafa reynt að ákveða hvaða
atvinnugreinar eiga að skapa störf.
Ef stjórnvöld hafa hugrekki til þess
að treysta á sköpunarmátt þjóðar-
innar munum við ná okkur fljótt á
strik aftur eftir þessa kreppu.
Það er gríðarlega mikið verk að
vinna varðandi það að skapa góða
umgjörð fyrir atvinnulífið sem ýtir
undir verðmætasköpun og kemur
í veg fyrir óeðlilega og óheiðarlega
viðskiptahætti. Sú viðskiptalöggjöf
sem hefur verið í gildi á Íslandi
undanfarin ár er allt, allt of veik-
burða og þarf á gagngerri endur-
skoðun að halda.
Slök löggjöf átti stóran þátt í rugl-
inu sem var í gangi fyrir hrun.
Þar sem alls kyns óeðlilegir og
óheiðarlegir viðskiptahættir voru
bæði löglegir og mjög svo ábata-
samir fór viðskiptalífið að stórum
hluta inn á mjög slæma braut sem
leiddi á endanum til gríðarlegrar
eyðileggingar á verðmætum. Við
verðum að koma í veg fyrir það að
slíkt gerist aftur með því að bæta
löggjöfina.
4. Ég tel að við eigum að stefna inn
í ESB til þess að við getum tekið
upp evru.
Jón stEinsson starfar sem lektor
í hagfræði við Columbia University í
New York. Hann er með doktorsgráðu
frá Harvard. Jón starfaði sem ráðgjafi
forsætisráðherra Íslands í október 2008.
Jón stEinsson lektor Í Hagfræði Við ColUmbia UNiVersitY Í New York:
TREySTA á SköpUNARmáTTINN
Ísland ætti að róa að því öllum árum
að verða fyrsta landið í heiminum
sem myndi eingöngu nota umhverf-
isvæn samgöngutæki. Margt myndi
vinnast með því að nota rafmagn,
vetni og metan við að knýja áfram
bílaflota landsmanna. Í fyrsta lagi
þyrftum við ekki að flytja inn jarð-
efniseldsneyti heldur myndum við
nýta raforku sem framleidd er hér
heima í jarðhita- og vatnsaflsvirkj-
unum. Aðgerðin myndi því til lengri
tíma litið hafa afar jákvæð áhrif á
vöruskiptajöfnuð og spara gjald-
eyristekjur. Þá myndi Ísland verða
leiðandi í sjálfbærni og umhverfis-
málum á alþjóðavettvangi í kjölfarið
sem myndi auka ferðamannastraum
til landsins og skapa tækifæri fyrir
annan umhverfisvænan iðnað hér
á landi. Orðspor og ímynd Íslands á
alþjóðavettvangi yrði í kjölfarið sam-
tengt sjálfbærni, frumkvæði og um-
hverfisvitund en ekki fjármálakrepp-
um, gjaldþrotum og gengishruni.
Stjórnvöld geta liðkað fyrir þessum
umskiptum með skýrri stefnumót-
un og með því að skattleggja rafbíla
hóflega þegar þeir eru fluttir inn til
landsins og liðka fyrir útflutningi á
notuðum bílum. Einnig gæti hið op-
inbera sett markmið um að endur-
nýja bílaflotann smám saman með
bílum sem nýta betri orkukosti.
Tækifæri á sviði heilsutengdrar
ferðaþjónustu
Áætlað er að um það bil sex milljónir
Bandaríkjamanna muni sækja sér
læknisaðstoð út fyrir landsteinana á
næsta ári en undanfarin ár hefur það
færst í aukana að íbúar Vesturlanda
sæki í að fara í einfaldar skurðað-
gerðir og fegrunaraðgerðir til Austur-
Evrópu og Asíu. Í kjölfar veikingar
krónunnar hefur samkeppnishæfni
Íslands á þessu sviði aukist gríðar-
lega. Hægt væri að stórauka framboð
einfaldra skurðaðgerða á borð við
magahjáveituaðgerðir og mjaðma-
skiptaaðgerðir og fegrunaraðgerða á
borð við leiseraðgerðir á augum og
tannviðgerðir. Með þessu móti væri
hægt að skapa dýrmætar gjaldeyris-
tekjur auk þess sem tækifæri verða
til fyrir hámenntaða sérfræðinga og
sérmenntað starfsfólk á heilbrigðis-
sviði. Auk þess myndi verða til fjöldi
afleiddra starfa sem tengjast þessari
starfssemi.
auÐbJörg ólafsdóttir HagfræðiNgUr HJá greiNiNgardeild ÍslaNdsbaNka:
RAfBÍLALANDIÐ ÍSLAND
Jón s. von tEtzchnEr forstJóri opera software:
mENNING, hUGVIT OG þRJóSkA
1. „Því mannafli þarf að koma yfir
í atvinnugreinar sem nú eru orðn-
ar arðbærari vegna gengisfalls
krónunnar, svo sem ferðaþjón-
ustu, aukna vinnslu sjávar- og
landbúnaðarafurða og fram-
leiðslu vara sem nú eru fluttar
inn.“
2. „Einföldu og augljósu leiðirnar
eru yfirleitt bestar: Þeir sem nú
hafa misst vinnuna eða fyrirtækið
sitt ættu að skoða vandlega hvaða
vörur eða þjónusta eru fluttar
inn núna og athuga hvort ekki sé
hægt að útvega þetta innanlands
í staðinn.“
3. „Með því að aflétta gjaldeyr-
ishöftum sem allra fyrst. Meðan
við erum á fölsku gengi þá verð-
ur ekki nauðsynleg hagræðing.
Fyrst þarf þó að ganga frá sjálf-
sögðum varúðarráðstöfunum s.s.
að breyta skuldum við ríkisbank-
ana í krónur.“
4. „Við sitjum uppi með krónuna
næstu þrjú til fimm árin. Afnema
þarf gjaldeyrishöft, eftir það á að
heimila notkun evru jafnhliða
krónu. Tengja krónu við evru á
víðu bili eftir að nýtt jafnvægi er
fundið. Enda síðan með upptöku
evru, ef ekkert neikvætt kemur
upp.“
Við hjá MP Banka viljum standa
fyrir útlánaverkefnum til smárra
og meðalstórra fyrirtækja í sam-
starfi við alþjóðafjármálastofnun
eða íslenska ríkið. Slík verkefni
hafa reynst mjög vel eftir efna-
hagsáföll og við þekkjum þau er-
lendis frá.
Ferðaþjónusta fyrir útlendinga og
Íslendinga er eitt besta færið sem
við höfum. Menningarviðburð-
ir og samkomur styðja við hana,
eru ódýr verkefni og létta lundina,
sem ekki veitir af.
Minna og hagkvæmara banka-
kerfi. Ísland á að nýta sér hátt
tæknistig með því að bankaþjón-
usta framtíðar-
innar verði
sem mest á
netinu. Það
mun minnka
kostnað og
þar með mun
útláns- og
innlánsvaxta,
öllum til
góðs.
MargEir pétursson stJórNarformaðUr mp baNka:
NETVæÐA BANkAþJóNUSTU
Sumir hafa upp á síð-
kastið kvartað undan
svartri mynd sem fjöl-
miðlar gefa af atvinnu-
leysi og fjárhagslegri
eymd Íslendinga sem
ekki sýnir nein teikn
um breytingu.