Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2009, Blaðsíða 16
mínútur og fjörutíu sekúndur. Það
voru arkitektar sem þróuðu þetta
form í viðleitni sinni til þess að draga
úr orðagjálfrinu.“ En það varð á end-
anum ekki Bjargey sjálf sem flutti sitt
eigið pecha kucha.
Varð írskur karl
„Það lá alltaf fyrir að ég gæti ekki ver-
ið þarna sjálf. Því þróaðist þessi hug-
mynd um að fá einhvern gaur til þess
að gera þetta í mínu nafni. Karlmann,
ekki síst vegna þess að fyrir marga
sem ekki þekkja til, er nafnið Bjarg-
ey hvorki bundið við konu né karl.“
Þetta hafi meðal annars gert það að
verkum að póstur til hennar sé oft á
tíðum stílaður á sir Bjargey.
Úr varð að skipuleggjendurn-
ir fengu írskan leikara til þess að
sjá um flutninginn. Honum var svo
komið í samband við Bjargeyju í
gegnum samskiptaforrit og þannig
hafa þau skipulagt flutninginn og
þróað verkið. „Viðfangsefnið var gef-
ið frjálst, að öðru leyti en því að við
áttum ekki að tala beinlínis um okk-
ar eigin verk.“
símamyndir urðu ofan á
Bjargey valdi að notast við tuttugu
ljósmyndir sem allar voru teknar á
iPhone-farsímann. „Myndasafnið
mitt er ansi stórt og er geymt á hörð-
um diskum og filmusöfnum sem ég
hafði pakkað niður áður en ég fór
til New York, þannig að það lá bein-
ast við að nota myndir sem ég hafði
hlaðið beint inn í tölvuna af farsím-
anum. Símann hef ég notað til þess
að skrásetja ýmislegt á förnum vegi,
án þess endilega að ætla mér að nota
myndirnar á sýningu, enda eru gæð-
in vel undir meðallagi,“ heldur hún
áfram.
Þannig urðu myndirnar tuttugu
að nokkurs konar óformlegri ser-
íu sem greinir frá sumum af atburð-
um síðustu mánaða á Íslandi, ásamt
myndum af upplifunum og vinum og
ættingjum Bjargeyjar.
„Einn kosturinn við að nota sím-
ann sem myndavél er sá að fólk er
mun afslappaðra en þegar maður
heldur stórri Hasselblad-myndavél
á lofti,“ segir Bjargey. „Þannig eru
sumar myndirnar alveg óformlegar
og skýrast svo betur eftir tuttugu sek-
úndna umfjöllun.“
Ógeðslegur ísbjörn
„Ein myndin er til dæmis af henni
Rósu Björk vinkonu minni. Hún er
að bíta í súkkulaðimola á myndinni
og við hliðina er bók eftir bresku mat-
argyðjuna Nigellu. Þær eru áberandi
líkar. Önnur mynd er af ísbirni í blóði
sínu. Ég borðaði þennan ísbjörn.“
Hún heldur áfram að segja frá því
þegar hún var í Kulusuk á Grænlandi.
Einn morgun var ísbjörn í þorpinu.
„Hann var skotinn um morguninn
og hafður í hádegismat sama dag.
Hann var soðinn vel, aldrei kryddað-
ur og svo var kjötstykki sett á borðið á
stálbakka. Af þessu skar fólk sér flís-
ar og át úr lófa. Ísbjörninn bragðað-
ist ágætlega en myndin af honum er
kannski svolítið ógeðsleg.“
Þegar blaðamaður kvaddi voru
þrír dagar þar til hin írska karlmanns-
útgáfa af Bjargeyju Ólafsdóttur átti að
flytja pistilinn. Hann hefur núna ver-
ið fluttur og kveðst listakonan vera
sátt við afraksturinn.
sigtryggur@dv.is
Miðvikudagur 15. júlí 200916 austurland
H
ér
að
sp
re
n
t
Dalskógar 9 - 700 Egilsstaðir
Sími 471 2555
Verið
velkomin
JOE BOXER BARN
AN
ÁTT
FÖT
UM
NÝ SENDING AF
Í litlu húsi á bakka Fjarðarár í Seyð-
isfirði situr Bjargey Ólafsdóttir og
vinnur. Húsið nefnist Hóll og var í
eigu Birgis Andréssonar myndlistar-
manns sem lést í hitteðfyrra. Þarna
dvaldi Birgir hluta af árinu í flestum
tilvikum og vann myndir í stofunni.
Byrjað var að nota húsið sem gesta-
vinnustofu fyrir listafólk nú á árinu.
Það er Skaftfell, miðstöð myndlistar
á Austurlandi, sem sér um úhlutun
og rekstur.
„Ég kom hér í síðustu viku og hef
verið að vinna að svokölluðum pecha
kucha-flutningi sem mér var boðið
að vera þátttakandi í á dögunum,“
segir Bjargey þegar hún hefur sett
kaffivélina af stað. Hún er nýkomin
úr tveggja mánaða vinnustofudvöl í
alþjóðlegu vinnustofusetri í Brook-
lyn í New York.
ekkert orðagjálfur
„Þegar ég var þarna úti var alltaf verið
að kynna okkur fyrir alls kyns sýning-
arstjórum og öðru fólki sem starfar í
myndlistarheiminum og þarna komu
tvær konur, önnur frá París og hin
frá Búdapest, sem, buðu mér að taka
þátt í þessum pecha kucha-flutningi,“
heldur Bjargey áfram. Hún útskýrir að
pecha kucha-formið þannig að um sé
að ræða nokkurs konar fyrirlestur þar
sem nota á tuttugu skýringarmyndir
og aðeins má tala um hverja mynd í
tuttugu sekúndur.
„Þetta gerir að verkum að hver
flutningur verður aldrei lengri en sex
seyðisfjörður,
Kulusuk,
new York
n Í húsi Birgis Andréssonar heitins við Fjarðarána á Seyðisfirði
situr Bjargey Ólafsdóttir myndlistarkona og vinnur. Húsið er nú
leigt út sem gestavinnustofa undir umsjón Skaftfells, miðstöðvar
myndlistar á Austurlandi. Úr þessu litla húsi fjarstýrði Bjargey
svokölluðum pecha kucha-flutningi sem írskur leikari flutti í
hennar nafni í New York síðastliðinn föstudag.
„Það voru arkitektar
sem þróuðu þetta form
í viðleitni sinni til þess
að draga úr orðagjálfr-
inu.“
Vinnur með ljósmyndir Þótt Bjargey notist við iPhone-ljósmyndir þessa dagana
eru hinar myndavélarnar ekki langt undan.
Í vinnustofu Birgis Birgir dvaldi oftast hluta úr ári í húsinu við Vesturveg. Nú geta
fleiri fengið að njóta þess sama.
Hádegismaturinn Bjössi kom í þorpið, var skotinn og etinn samdægurs.
Heim að Hóli Bjargey
fór út að sækja egg í
pönnukökurnar.