Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2009, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2009, Blaðsíða 29
Hver er maðurinn? „Maðurinn er Steinþór Helgi sem býr ennþá með einstæðri móður sinni í miðbæ Reykjavíkur en er samt algjört úthverfabarn.“ Hvað drífur þig áfram? „Löngun til þess að gera krefjandi hluti.“ Hvar ólst þú upp? „Í Grafarvogin- um og á Bolungarvík.“ Hvaða tónlist ertu með á „repeat“ þessa dagana? „Í ljósi stöðunnar núna verð ég að segja nýja platan með Agli Snæbjörnssyni. Hún er algjört mega. En ég hef líka verið að hlusta á Grizzly Bear.“ Fyrsta platan sem þú keyptir þér? „Heyrðu aftur ´94.“ Af hverju nýtt útgáfufyrirtæki? „Mig langar að reyna fyrir mér á nýju sviði og koma með nýjar og ferskar pælingar inn á annars nokkuð staðnaðan og formfastan markað.“ Er þetta langþráður draumur að rætast? „Nei, þetta er kannski ekki langþráður draumur en ég þurfti ekki að hugsa mig voðalega um áður en ég ákvað að taka þátt í þessu verkefni.“ Hvað tónlistarmenn eru á ykkar snærum? „Eins og staðan er núna verðum við með Baggalút, Megas, Egil Snæbjörnsson og Hjálma.“ Eiga fleiri eftir að bætast við? „Það er enn smá leyndarmál. Við erum ennþá að eltast við nokkra aðila, flestir þeirra hafa gefið grænt ljós og þeir verða kynntir í dag.“ Ef þú mættir velja þér eina tónleika til þess að fara á í kvöld. Hvaða tónleika myndirðu fara á? „Ég væri til í að sjá Neil Young áður en blessaður karlinn fellur frá.“ Saknarðu Michaels Jackson? „Nei, því miður. Maður á kannski eftir að sakna hans þegar allt þetta rugl er búið, en í raun má segja að ég hafi byrjað að sakna Jacksons fyrir tíu árum eða jafnvel meira.“ Finnur veskið Fyrir kreppunni? „Nei, eiginlega ekki, finnst helst matur vera orðinn dýrari.“ HElgA Á. ÓlAFSdÓttir 18 áRA NEMi „Auðvitað, það er allt orðið dýrara og maður finnur að veskið tæmist.“ EditH JÓnSSon 88 áRA FYRRVERANdi HJúkRuNARFRæð- iNGuR „Allir finna fyrir henni, og ég geri það líka.“ AnnA MAríA WitoS-BEkun 29 áRA FLokkSStJóRi „Jú, ég finn alveg fyrir henni.“ ÞÓrdíS H. ÞorgilSdÓttir 50 áRA RæStitækNiR Dómstóll götunnar StEinÞÓr HElgi ArnStEinSSon umboðsmaður hefur ásamt Baldvini Esra Einarssyni og Guðmundi kristni Jónssyni sett á laggirnar nýtt plötufyrirtæki sem hefur hlotið heitið Borgin. Listamenn þessa nýja útgáfufyrirtækis verða kynntir í dag. Nýjar og ferskar pæliNgar iNN á staðNaðaN markað „Já, ég er komin í smá skuldir og allt er orðið mun dýrara en það var í fyrra.“ Sigrún lÁruSdÓttir 19 áRA NEMi maður Dagsins Það var á því herrans ári 1994 þeg- ar stjórnmálamenn leyfðu sér að líkja sér við „heiðursmenn“ og innsigluðu pólitískar meldingar með „heiðurs- manna-handabandi“. Það var einn- ig á því árinu þegar upplýsingar um ódýr brennivínskaup ráðamanna landsins duttu út úr pokahornunum. Þá héldu ráðherrar, úr öllum flokk- um, ókeypis afmælis- og sukkveislur fyrir vini, vandamenn og pólitíska, útvalda áhangendur sem kættust á kostnað skattborgaranna og ríkisins. Þetta var eins og önnur ár siðleysis, spillingar og skattpíningar. Það var árið sem forseti vor Ólafur Ragnar var fjármálaráðherra. Slóttugur skatt- píningarmeistari sem fann m.a. upp „ekknaskattinn“ sem lagðist á ein- staklinga sem misstu maka sína, þ.e. ekkjur og ekkla. Í dag sýnir núverandi fjármálaráðherra Steingrímur J. Sig- fússon sömu skattpíningartilþrifin. Nú skal blóðmjólka almenning með öllum mögulegum ráðum. Þetta var árið þegar Jóhanna Sig- urðardóttir tapaði fyrir Jóni Bald- vini í formannskjöri Alþýðuflokksins og var krýnd „fýlupoki“ flokksins. Í beinni útsend- ingu sjón- varps frá þingflokksfundi krata stóð Jóhanna við hlið Jóns Baldvins æf af bræði og hrópaði „minn tími mun koma“. Þá komst Jóhanna að því að það er engin rós án þyrna – ekki einu sinni kratarós. Skömmu síðar yfir- gaf Jóhanna ráðherrasæti félagsmála en lét sig þó hafa það að taka 6 mán- aða ráðherralaun, sem biðlaun sér til handa. Jafnaðar á fundi flokka foringjans að neyta valds. Jóka nærri beit á barka Baldvins Jóni Hannibalds. Jóhanna reyndist sannspá. Henn- ar tími kom, hennar tími er. Ráðalaus ráðherra í forsæti Alþingis á mesta niðurlægingartíma landsins okkar. Félagsmála-fötluð er fölnuð kratarósin ber. Daufum augum drósin sér drottnar viti skertu hér. Rúin visku ráðdeildar ræður heldur vangefnar. Jarmar máli jafnaðar Jóka dóttir Sigurðar. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardótt- ur forsætisráðherra og Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra virðist ætla að takast að steypa þjóðinni í enn meiri glötun með greiðslu Icesa- ve-skulda. Núlifandi og komandi kyn- slóðir á að hlekkja næstu áratugina í skuldaklafa og drekkja í skuldafeni, það er, ef einhverjir verða eftir á land- inu okkar. Hver ber ábyrgðina?... Hvar eru allir þeir einstaklingar sem áttu að verja okkur fyrir þessari smán? Hvar eru allir þessir gráðugu, óheiðarlegu óþverrar sem voru eins og blóðsugur? Tæmdu alla innviði banka, fyrirtækja og sjóða hérlendis og erlendis til síð- asta blóðdropa eins og vampýrur? Þjóðin situr hjá bágstödd, niðurlægð og hjálparvana, hnípin og svikin. Bankastjórar bíræfnir á gandi, bryðja fugls af hræi á Saga klass. Með „heiðursmanna“ svíðings handabandi, til hels með Icesave fara þeir í rass. P.s. Ég þakka Vilhjálmi Bjarnasyni lektor fyrir að vera til. Ég þakka pistla- höfundunum Sigrúnu Davíðsdóttur, Þorvaldi Gylfasyni og Agli Helgasyni fyrir að vera til. Ég þakka einnig fjöl- miðlunum Útvarpi Sögu og Dagblað- inu fyrir að vera til. „Guð blessi Ísland“ kjallari mYnDin 1 ofsóttir auðmenn útrásarvíkingar sem áður voru dáðustu synir þjóðarinnar eru nú skotspónn skemmdar- verkamanna. klósettpappír var hent að heimili Björgólfs Guðmundssonar um helgina. 2 Skrifaði Þórhalli bréf út af kastljósi Skjár einn sýndi þáttinn Málefnið þar sem davíð oddsson var meðal gesta. á sama tíma sýndi Sjónvarpið kastljósþátt en þátturinn hefur verið í sumarfríi undanfarna daga. 3 „Ég er komin aftur á markaðinn, strákar“ „Ég er komin aftur á markaðinn, strákar,“ sagði fyrirsætan katie Price meðal annars í viðtali við breska fjölmiðlamanninn Piers Morgan. 4 tveggja ára kraftaverk tveggja ára kínversk stelpa er heppin að vera á lífi eftir að hafa fallið niður af tuttugustu og fyrstu hæð fjölbýlishúss í borginni Jianyang í Sichuan-héraði. 5 Strætóbílstjóri kýldur í andlitið Strætóbílstjórinn Jón Guðvarðarson varð fyrir árás á fimmtudaginn. tveir farþegar voru með skæting og réðust síðan á bílstjórann. 6 lét unglingsstúlku fróa sér tuttugu og þrigga ára karlmaður var dæmdur í eins árs skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær fyrir kynferðisbrot gegn fjórtán ára stúlku. 7 Sienna Miller náði bílprófinu Leikkonan Sienna Miller tók loksins bílpróf í London á dögunum og stóðst prófið. Hún ærðist af gleði og faðmaði prófdómarann innilega. mest lesið á dV.is umræða 15. júlí 2009 miðvikudagur 29 guðrún SvErriSdÓttir hjúkrunarkona skrifar „Þá komst Jóhanna að því að það er engin rós án þyrna – ekki einu sinni kratarós.“ Brjálað útsýni Þeir þurfa ekki að kvarta yfir skorti á yfirsýn, verkamennirnir sem vinna að endurbótum á Hallgrímskirkjuturni, en þeir þurfa þó að vera sæmilega klæddir þótt fólkið á jörðu niðri sleiki ísinn og sólina. MYnd kriStinn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.