Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2009, Blaðsíða 38
Blaðamaðurinn Marta María
Jónasdóttir fæddi í fyrradag sitt
annað barn og í heiminn kom
fallegur og heilbrigður drengur.
Heillaróskirnar hellast inn á Face-
book-síðu Mörtu þar sem hún
hefur meðal annars skrifað: „Takk
fyrir fallegu kveðjurnar. Drengur-
inn er yndislegur, 15 merkur og
52 cm, með skásett augu og svart
hár.“ Marta María starfar sem
blaðamaður á pressan.is þar sem
hún sér um Heim Mörtu Maríu
og nýtur mikilla vinsælda. Óhætt
er að kalla Mörtu fagurkera mik-
inn en hún lumar á margs kyns
skemmtilegum mataruppskrift-
um og tískuráðum sem hún deilir
með lesendum sínum. Marta á
fyrir soninn Helga með eigin-
manni sínum Jóhannesi Ingi-
mundarsyni.
„Þetta byrjaði all þegar félagi minn Helgi Hrafn
sýnd mér erlendan þátt sem heitir Diggnation
sem snýst í kringum tvo gaura sem sitja heima
hjá sér og tala um allt og ekkert,“ segir Helgi
Steinar Halldórsson, ljósamaður og starfsmaður
á vefsíðunni Akureyri.is. sem frumsýndi á dög-
unum nýjan sjónvarpsþátt á Helgin.net ásamt
besta vini sínum Helga Hrafni Halldórssyni.
Strákarnir tóku erlendu ímyndina og aðlög-
uðu sinni hugmynd. Í þættinum má sjá strákana
sitja á sófa með tölvur fyrir framan sig að fara
yfir fréttir vikunnar af norðlenska fréttavefn-
um Akureyri.net og sýna síðan videó og annað
skemmtiefni sem þeir finna á Youtube. „Fyrsti
þátturinn var sýndur í síðustu viku og var fjörutíu
mínútna langur,“ segir Helgi Steinar sem áætlar
þó að þættirnir verði ekki meira en 25 mínútur
héðan í frá. Aðspurður segir Helgi það ekki erfitt
að spjalla svona lengi um allt og ekkert.
„Tíminn er alveg ótrúlega fljótur að líða og
það hefur reynst okkur mjög auðvelt að finna
misgáfulegt efni á netinu til þess að sýna í þætt-
inum,“ segir hann og glottir. Draumurinn er að
stækka þáttinn, bæta við viðtölum og gera þátt-
inn að almennilegum spjallþætti. „Fólk hefur
tekið vel í þáttinn okkar og virðist hafa gaman
af þessu, “ segir Helgi en fyrsti þátturinn fékk
tvö þúsund og tvö hundruð skoðanir. „Vonandi
stækkar þátturinn en draumurinn er náttúrlega
að komast í sjónvarpið í framtíðinni.“
Með sjónvarpsþátt í sófanuM
Félagarnir Helgi HraFn og Helgi Steinar ætla að Slá í gegn:
BuBBi Morthens:
Tónlistargagnrýnandi hjá San
Francisco Chronicle fór heldur
betur fögrum orðum um eina af
nýjustu Idol-stjörnum Banda-
ríkjamanna á dögunum er hann
dæmdi tónleika Idol-krakk-
anna í San Francisco. Í dómun-
um skrifar gagnrýnandinn að
áhorfendur hafi beðið spennt-
ir eftir Adam Lambert, sem
hreppti annað sætið í keppninni
þetta árið. Blaðamaðurinn segir
Lambert ekki hafa valdið von-
brigðum: „Hinn kvenlegi Lamb-
ert söng af miklum krafti eins og
Björk og olli engum vonbrigð-
um.“ Ekki slæmt það.
38 Miðvikudagur 15. júlí 2009 fólkið
drengur
fæddur
kraftMikill
eins og Björk
„Ég þarf að fara að heimta prósentur af þessum
mönnum. Fyrst þeir eru farnir að hafa það að
atvinnu að vera einhverjir Bubbar,“ segir Bubbi
Morthens um þá fjölmörgu aðila sem hafa það
að áhugamáli og jafnvel atvinnu að herma eftir
honum. Í nýja útvarpsþættinum Útvarpi Mið-
Íslandi sem er í stjórn Bergs Ebba Benedikts-
sonar, lögfræðings og söngvara Sprengjuhall-
arinnar, á Rás 2 hermdi hinn ungi og efnilegi
uppistandari Ari Eldjárn nánast óaðfinnanlega
eftir kónginum.
„Ég hef nú ekki heyrt þetta, nei,“ segir Bubbi
sem er þó löngu orðinn vanur því að hermt
sé eftir honum á ýmsum vettvangi. Hjálmar
Hjálmarsson, Pálmi Gestsson og Jón Gnarr eru
meðal þeirra sem hafa leikið Bubba í gegnum
tíðina og allir þótt gera það með prýði en Ari
þykir ná rödd Bubba og persónuleika hans með
eindæmum vel.
Sjálfur vildi hinn hógværi Ari lítið ræða inn-
skotið sitt í þáttinn en Bergur Ebbi segist taka
fulla ábyrgð á uppátækinu ef það hafi farið fyr-
ir brjóstið á einhverjum. „Ég á nú samt engan
veginn von á því. Þvert á móti hefur þetta vakið
mikla lukku og Ari er besta Bubbaeftirherman
á landinu. Hann nær persónuleika hans alveg
ótrúlega vel.“ Í upphafi þáttarins Útvarps Mið-
Íslands og í lok hans sagðist Bergur þurfa að
hætta snemma vegna þess að hann
hefði lofað yfirmönnum sínum að
endurflytja part úr þætti Bubba
Færibandinu. Ari lék því ekki
hina ýktu kómísku útgáfu af
Bubba sem forverar hans
eru þekktir fyrir heldur lék
hann Bubba eins raun-
verulega og hann gat.
Bergur skipar uppi-
standshópinn Mið-Ísland
ásamt þeim Ara, Dóra
DNA, Jóhanni Al-
freð og Árna Vil.
Uppistand
þeirra hefur
vakið mikla
lukku í
miðbæ
Reykjavík-
ur sem og á
Akureyri en
Bergur seg-
ir Bubba oftar
en ekki bregða
fyrir á þeim kvöldum. „Það
er möguleiki á að fá að heyra
meira af þessu á þeim kvöld-
um og jafnvel í þættinum Út-
varpi Mið-Íslandi sem er á Rás 2 á
sunnudögum klukkan 15.00.“
Bubbi segist hafa lítinn tíma til að
hlusta á útvarp þessa dagana þar sem hann
sé sjálfur upptekinn við að taka upp heim-
ildarmynd um laxasvæðið í Aðaldal. „Ég hef
líka skrifað bók um þetta svæði en í mynd-
inni er verið að segja sögu þess allt frá
því að fyrstu mennirnir komu frá Bret-
landi árið 1877 til þess að veiða þar.“
Bubbi segist vera með gríðarlega
spennandi efni í höndunum
og það er auðheyrt að hann
nýtur þess að vinna að
myndinni. „Ég er með
efni sem menn hafa
aðeins heyrt talað
um í þröngum
hópum.“
asgeir@dv.is
Ari Eldjárn plataði marga hlustendur Útvarps
Mið-íslands á rás 2 á sunnudaginn þegar
hann lék eftir brot úr þætti Bubba Morthens
Færibandinu. Bubbi segist þurfa að fara að
taka prósentu af öllum þessum mönnum
sem herma eftir honum en hann vinnur nú
hörðum höndum að gerð heimildarmyndar
um laxasvæðið í aðaldal.
vill prósentur
frá eftirherMuM
Ari Eldjárn Þykir einn allra fær-
asta Bubbaeftirherma á landinu.
Hjálmar, Jón og Pálmi Hafa allir
leikið Bubba í gegnum tíðina.
Helgi Hrafn og Helgi Steinar Halldórssynir Eru ekki bræður en deila sama föðurnafni. Þeir kynntust
fyrir sjö árum og vinna nú saman að sjónvarpsþætti sem sýndur er á helgin.net.