Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2009, Blaðsíða 6
6 miðvikudagur 15. júlí 2009 fréttir
Skuldum þrjú
þúsund milljarða
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra segir það rangt
sem komið hefur fram í fréttum
að heildarskuldir þjóðarbúsins
erlendis séu 3-4.000 milljarðar
króna. Í yfirlýsingu sem Stein-
grímur sendi frá sér í gær segir
hann að þær tölur sem nefndar
hafa verið séu ekki frá honum
komnar. Nær væri að að skuld-
irnar væru 2.800-3.000 milljarð-
ar króna.
Gassniffari slas-
aðist mikið í
sprengingu
Ungur maður brann illa í andliti
og á höndum þegar sprenging
varð í bifreið mannsins í fyrri-
nótt. Maðurinn hugðist sniffa
gas í bílnum en þegar hann
ákvað að kveikja sér í sígarettu
varð mikil sprenging. Hurð-
in farþegamegin rifnaði af og
þeyttist tvo metra í burtu. Aftur-
rúðan fannst í 25 metra fjarlægð.
Áfengissala
dregst saman
Sala áfengis minnkaði um þret-
tán prósent í júní miðað við
sama mánuð árið áður á föstu
verðlagi en jókst um 20,2 pró-
sent á breytilegu verðlagi. Verð
á áfengi hækkaði um 38,2 pró-
sent í júní síðastliðnum miðað
við sama mánuð í fyrra og um
9,4 prósent frá mánuðinum á
undan samkvæmt verðmælingu
Hagstofunnar. Miklar verðhækk-
anir á áfengi að undanförnu
virðast því hafa dregið úr magni
þess áfengis sem selt er.
Athafnamaðurinn Magnús Ármann og
fyrrverandi bankastjóri Landsbank-
ans, Sigurjón Árnason, hafa verið yf-
irheyrðir af starfsmönnum embætt-
is sérstaks saksóknara vegna kaupa
eignarhaldsfélagsins Imons á hluta-
bréfum í Landsbankanum fyrir rúma
fimm milljarða króna 3. október síð-
astliðinn. Kaupin áttu sér stað þremur
dögum áður en Fjármálaeftirlitið tók
bankann yfir. Þá átti Imon rúmlega 4
prósenta hlut í bankanum. Imon er í
eigu Magnúsar og fjármagnaði félag-
ið hlutabréfakaupin að fullu með láni
frá Landsbankanum. Eina veðið fyrir
láninu var hlutabréfin sjálf sem urðu
verðlaus þegar Landsbankinn var tek-
inn yfir.
Grunur leikur á að um sýndarvið-
skipti hafi verið að ræða og að ætl-
unin með kaupunum hafi verið að
hafa óeðlileg áhrif á gengi hlutabréfa
í bankanum. Ef það var raunin myndi
það flokkast sem markaðsmisnotkun
og þar af leiðandi lögbrot sem varðað
getur allt að sex ára fangelsi.
Nokkrir yfirheyrðir;
húsleit framkvæmd
Ólafur Hauksson, sérstakur saksóknari
efnahagshrunsins, segir að þó nokkrir
hafi verið yfirheyrðir vegna kaupa Im-
ons á hlutabréfunum og að ein húsleit
hafi verið gerð þar sem hald var lagt
á gögn sem tengjast rannsókn máls-
ins. Hann segir að embættið hafi nú
nokkuð greinargóða mynd af helstu
staðreyndum þess og að rannsókninni
miði vel áfram. „Við erum búnir að ná
ágætlega utan um það mál. Það er búið
að framkvæma húsleit þar sem lagt var
hald á gögn og við yfirheyrt þó nokkra
sem tengjast málinu,“ segir Ólafur.
Aðspurður getur hann ekki greint
frá því hvar húsleitin var framkvæmd
né hverjir hafi verið yfirheyrðir vegna
málsins.
Grunur leikur á um
markaðsmisnotkun
Ólafur segir að kaup Imons á bréf-
um í Landsbankanum líkist kaupum
katarska sjeiksins al-Thanis á hluta-
bréfum í Kaupþingi fyrir 26 milljarða
króna í lok september síðastliðinn. Í
báðum tilfellum er talið að um mark-
aðsmisnotkun hafi verið að ræða.
„Þetta eru mjög sambærileg tilfelli. Þú
ert með risasölu og í báðum tilfellum
voru hlutabréfakaupin fjármögnuð af
bankanum sjálfum,“ segir Ólafur en
viðurlög við slíkri markaðsmisnotkun
geta verið allt að sex ára fangelsi, eins
og áður segir.
Tilgangur slíkra óeðlilegra viðskipta
getur verið að hækka verð hlutabréfa í
fyrirtæki og að gefa til kynna að meiri
eftirspurn sé eftir þeim en efni standa
til, slíkt gæti gefið markaðnum þau
fölsku skilaboð að staða fyrirtækisins
sé betri en hún í rauninni er.
Sigurjón Árnason
tók ákvörðunina
Samkvæmt heimildum DV kom
ákvörðunin um að lána Imon fyrir
hlutabréfum í bankanum aldrei inn á
borð til stjórnar bankans, en það átti
almennt séð við um öll útlán bankans.
Heldur var það svo að Sigurjón Árna-
son, þáverandi bankastjóri Lands-
bankans, tók ákvörðunina nánast
einhliða þó svo að hún hafi farið fyr-
ir lánanefnd bankans þar sem banka-
stjórinn sat einnig og réð miklu í krafti
stöðu sinnar. Sigurjóni mun hafa verið
mikið í mun að Magnús keypti bréfin
og sótt það hart að lánið yrði veitt.
Halldór Kristjánsson, hinn banka-
stjóri Landsbankans, vissi hins veg-
ar ekki af lánveitingunni, samkvæmt
heimildum DV.
Ekki liggur hins vegar ljóst fyrir af
hverju Magnús ákvað að kaupa bréf
í bankanum eftir að ríkið hafði keypt
75 prósent í Glitni og nokkuð útséð
var um að Landsbankinn var að falli
kominn líka. DV hefur ekki náð tali af
Magnúsi Ármann til að spyrja hann
um málið en lögheimili hans er skráð í
Bretlandi þar sem hann er búsettur.
Sömuleiðis hefur DV ekki náð tali af
Sigurjóni til að spyrja hann um málið.
Óvíst hver seldi bréfin
Ekki liggur ljóst fyrir af hverjum Lands-
bankinn keypti hlutabréfin sem seld
voru til Imons. Ólafur Hauksson vill
aðspurður ekki tjá sig um það en seg-
ir að embættið hafi nokkuð góða hug-
mynd um hverjir það voru: „Við höfum
nokkuð góðar upplýsingar um það. En
við eigum eftir að ganga almennilega
úr skugga um það og getum því ekki
rætt um það.“
Ein saga sem hefur verið lífseig er
að nokkrir lykilstarfsmenn í Lands-
bankanum hafi losað sig við hlutabréf
sín í bankanum skömmu fyrir hrunið
sem síðan hafi verið seld Magnúsi Ár-
mann. Steinþór Gunnarsson, forstöðu-
maður verðbréfamiðlunar bankans,
hefur verið nefndur í því samhengi en
Steinþór var í umræðunni fyrr á árinu
þegar greint var frá því að hann hefði
haft milligöngu um að bankinn veitti
Sjálfstæðisflokknum fjárstyrk upp á 25
milljónir króna í desember 2006.
Steinþór segir hins vegar aðspurð-
ur að hann hafi aldrei keypt hlutabréf
í Landsbankanum þó að hann hafi
einu sinni nýtt sér kauprétt sem hann
átti. Steinþór segir að það sé því ekki
satt að hann hafi selt bréf í bankanum
skömmu fyrir hrun bankans. „Þetta er
bara ljót saga um okkur starfsmenn-
ina sem einhver hefur komið á kreik,“
segir Steinþór og bætir því við að sal-
an á bréfunum hafi vissulega farið í
gegnum verðbréfamiðlunina þó svo
að ákvörðunin um söluna á bréfunum
hafi komið annars staðar frá.
Mikil viðskipti með
bréf í bankanum
Mikil viðskipti voru með bréf í Lands-
bankanum dagana áður en Lands-
bankinn var tekinn yfir af ríkinu. 2.
og 3. október, um það leyti sem Imon
keypti bréfin í bankanum, námu við-
skiptin til dæmis um 16 milljörðum
króna. Viðskipti Imons námu því rúm-
um þriðjungi af heildarviðskiptun-
um með bréf í bankanum þessa daga.
Samkvæmt heimildum DV voru þessi
miklu viðskipti með bréf í bankanum
fyrir bankahrunið langt frá því að geta
talist eðlileg og vöktu undrun á mark-
aðnum.
Þessi miklu viðskipti með
hlutabréf í Landsbankanum
geta meðal annars skýrst af því
að ýmsir sem áttu hlutabréf í
Landsbankanum hafi losað sig
við bréfin í aðdraganda hruns-
ins vegna þess að þeir hafi vitað
hvert stefndi. Þó ekkert sé hægt
að fullyrða um þetta má geta
þess að Landsbankinn sjálfur og
Lífeyrissjóður verslunarmanna
losuðu sig við bréf í bankanum
sama dag og Imon keypti hlut-
inn. Hlutabréfaeign bankans í
sjálfum sér fór úr 5,9 prósent-
um niður í 4,8 prósent 3. okt-
óber og eign lífeyrissjóðsins minnk-
aði úr 1,9 prósentum og niður í 1,3.
Að svo stöddu er hins vegar ekki hægt
að slá neinu föstu um hvaðan bréfin
sem Imon keypti komu en rannsókn
sérstaks saksóknara mun væntanlega
leiða það í ljós á endanum sem og
hvort eitthvað hafi verið athugavert við
sölu bréfanna til bankans.
Að sögn Ólafs Haukssonar mun
rannsóknin á hlutabréfakaupum Im-
ons halda áfram á næstunni: „Það er
ekki hægt að fastnegla hvenær við lok-
um því vegna þess að það geta alltaf
komið upp nýir vinklar við næstu yfir-
heyrslu,“ segir Ólafur.
Magnús Ármann og Sigurjón Árnason hafa verið yfirheyrðir af embætti sérstaks
saksóknara efnahagshrunsins. Yfirheyrslurnar tengjast rannsókn embættisins á
hlutabréfakaupum Imons, félags í eigu Magnúsar, á 4 prósenta hlut í Landsbankanum.
Grunur leikur á að um sýndarviðskipti hafi verið að ræða.
MAGNÚS ÁRMANN OG
SIGURJÓN YFIRHEYRÐIR
INGI F. VIlhjÁlMSSoN
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Ákvörðunin Sigurjóns
Samkvæmt heimildum DV
sótti Sigurjón Árnason það
stíft að Imon, félag Magn-
úsar Ármanns, fengi fimm
milljarða lán til að kaupa
hlutabréf í Landsbankanum.
Lánveitingin fór einnig fyrir
lánanefnd bankans en kom
ekki fyrir bankaráð.
„Við erum búnir að ná
ágætlega utan um það
mál. Það er búið að
framkvæma húsleit þar
sem lagt var hald á gögn
og við yfirheyrt nokkra
sem tengjast málinu.“
Yfirheyrður Athafnamaðurinn Magnús
Ármann hefur verið yfirheyrður vegna kaupa
eignarhaldsfélagsins Imons á 4 prósenta hlut
í Landsbankanum í október síðastliðinn. Þó
nokkrir hafa verið yfirheyrðir vegna málsins
og ein húsleit hefur verið gerð.