Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2009, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2009, Blaðsíða 37
á M I Ð V I K U - Miðborgin á MörguM tunguMáluM Menningarstofnanir Reykjavíkurborgar standa fyrir svokölluðu Reykjavík Safari á fimmtudagskvöld klukkan 20.00. Gengið verður úr Kvosinni þar sem menningarlífið í miðborginni verður kynnt á taílensku, ensku, pólsku og spænsku. Hóparnir fjórir munu svo hittast í lok göngu í Hafnarhúsinu þar sem boðið verður upp á hressingu og stutt skemmtiatriði þar sem Sigríður Thorl- acius syngur fyrir gestina við undirleik Daníels Friðriks Böðvarssonar. barist gegn ofbeldi Karlahópur Femínistafélags Íslands stendur fyrir baráttu- og styrktar- tónleikum gegn kynbundnu ofbeldi fimmtudagskvöld á Sódómu Reykja- vík við Tryggvagötu 22. Á tónleik- unum koma fram Bloodgroup, Retro Stefson, Sometime, Me the slumbering Napoleon, Menn árs- ins, The Esoteric Gender og MAN ásamt Louise og D.G. Pedrera777. Tónleikarnir marka upphafið á átt- unda starfsári átaksins Karlmenn segja NEI við nauðgunum! sem nær hápunkti um komandi verslunar- mannahelgi. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.00 og er tekið við frjáls- um framlögum við innganginn. orgelverk fruMflutt Nýtt orgelverk verður frumflutt á hádegistónleikum Dómkirkj- unnar á fimmtudag. Verkið heitir Reykjavík Saturday night og er eftir ungt bandarískt tónskáld sem heitir Evan Fein. Evan er um þessar mundir að ljúka tón- smiðanámi við Juilliard-skólann í New York en hann var hér á landi í mars og skrifaði þá svítu fyrir orgel undir áhrifum frá landinu. Tónleikagestum gefst tækifæri til þess að hlýða á fyrstu svítu verks- ins en tónleikarnir hefjast klukk- an korter yfir tólf. Organistinn verður Douglas Brotchie, organ- isti Háteigskirkju. Í dag kemur út þriðja tölublaðið af tímaritinu Rafskinnu. Um er að ræða menningartímarit sem er ein- ungis gefið út á dvd-disk og á honum er að finna tvo og hálfan klukkutíma af sjónrænu efni: heimildarmynd- ir, stuttmyndir, myndbandsverk, gjörninga, lifandi tónlistarflutning og tónlistarmyndbönd bæði eftir ís- lenska og erlenda listamenn. Þema tímaritsins að þessu sinni er endurskoðun þar sem eru endur- skoðuð, endursköpuð, endurtekin og endurunnin hin ýmsu listaverk, hugmyndir, nálganir og aðferðir. Kristján Loðmfjörð endurskoðar og endurklippir Börn náttúrunnar, Ret- ro Stefson endurvekur 25 ára gamalt tónlistarmyndband Musical Youth í leikstjórn Árna Sveins, Ragnar Kjart- ansson endurtekur sömu nóturnar dag eftir dag í porti í New York svo eitthvað sé nefnt. Útgáfunni verður fagnað í Hjarta Reykjavíkur, nýuppgerðum Klapp- arstígsreit á milli Hverfisgötu og Laugavegs, í dag klukkan 17.00. Ret- ro Stefson leikur fyrir gesti og DJ Árni Sveins leikur gamla slagara. asgeir@dv.is Börnin endurklippt Myndin snýst í kringum úrvalsdeild sprengjusérfræðinga í Íraksstríði dagsins í dag. Eins og sá skæruhern- aður fer fram hafa þeir nóg að gera, óvinir eru alstaðar og sprengjurnar æði frumlegar. Vegsprengjur eru til dæmis einn af burðarbitum skæru- hernaðarins í Írak og Afganistan og fá söguhetjur okkar að kynnast því á eigin skinni. Þetta er að sjálfsögðu mjög spenn- andi en hinir daglegu „óspennandi“ hlutir hermennskunnar fá líka drjúgt pláss. Samræðurnar eru raunveru- legar milli hinna ólíku persóna. San- born er ábyrgðarfullur en klárlega breyskur um leið. Hann lendir upp á kant við hinn þaulreynda og kald- hæðna William James sem nær mikl- um árangri þrátt fyrir ónærgætni sína. Hann virðist hafa það sem þarf til, því stríðið er ekki hluti af lífi hans heldur er stríðið í raun og veru hans eina líf. Við sjáum innbyrðis hatur innan herdeildarinnar sem við vit- um að oft hefur leitt til staðfestra „bræðravíga“. Það er ekki annað að sjá en að hinn íslenski Karl Júlíusson hafi skil- að sínu starfi sem útlitshönnuður (production designer) óaðfinnan- lega. Áferðin er verulega flott, allt út- lit og grafík um leið. Brellur og hljóð sömuleiðis og góð tilbreyting að sjá sprengingar raunverulegri en þessar endalausu hljóðsettu bensínspreng- ingar sem Hollywood notast vana- lega við. Rannsóknarvinna er góð út í minnstu smáatriði. Hvernig fjar- lægð frá ökutækjum hernámsliðsins er dauðasök, hvernig hátæknibyss- ur standa á sér og ótrúlegt en satt þarf að hlaða byssur þegar skotin klárast. Menn hitta ekki í hverju skoti og flugur, sól og sandur erfiða vinn- una. Hvernig bandarískir hermenn tala ensku við araba og halda að þeir skilji frekar ef þeir öskra. Dramatísk- ar biðstöður og hvernig upptökur á svokölluðum „Jíhad-myndböndum“ fara fram. Eina sem pirrar mann er líklega þegar einn í herflokknum særist og hinir stumra yfir honum óvarðir fyr- ir frekari árásum. Hin klisjukennda lexía stríðsmynda að skjóta hugsun- arlaust af miskunnarleysi er síðan því miður hér til staðar þegar það hlýst skaði af að skjóta ekki Íraka með gsm-síma í óbreyttum fatnaði. Það er einnig í klisjulegri kantinum hvern- ig fjendur innan herflokks ná svo að „bonda“ á vígvelli og verða góðir vin- ir upp frá því. Í heild eru tæknilegar útfærslur hér mjög góðar. Það er einmitt að- all margra nýlegra stríðsmynda, í hernaði sem ekki er hægt að tækla með hinum hefðbundna Hollywood stríðsmyndaformi, góðir gegn vond- um. Það er fólki eðlislægara að hafa samúð með þeim sem verja land sitt frekar en árásaraðilum úr öðrum heimsálfum eða málaliðum örygg- isfyrirtækja sem drepa fyrir peninga. Svo okkar kynslóð af stríðsmyndum er gjarnan hugmyndafræðilaus og snýst frekar um persónulegt sam- band hermanna sín á milli. Þar sem skylda þín er mun fremur að passa félagana í herflokknum gegn sameig- inlegum óvini frekar en að berjast fyr- ir loftkenndum hugtökum á borð við „frelsi og lýðræði“. Þessi mynd skilar sínu á þessum nótum og gengur út á að stríð sé í raun eiturlyf. Maður fær vissulega þá tilfinningu að stríð sé eiturlyf. Já, kekkjótt læknaspítt, illa köttað með eyðimerkursandi. Erpur Eyvindarson stríð er sandblandað sPítt fókus 15. júlí 2009 Miðvikudagur 37 30 days Apótekin & Heilsubúðirnar www.leit.is · Smellið á ristilvandamál Á gamla gamla verðinu. 30 days Losnið við hættulega kviðfitu og komið maganum í lag með því að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman. Útgáfu Rafskinnu verður fagnað í „Hjarta Reykjavíkur“: Retro Stefson Leikur á útgáfuhátíð Rafskinnu í dag. Oxy tarm Apótekin & Heilsubúðirnar www.leit.is · Smellið á ristilvandamál Á gamla gamla genginu. Oxy tarm Endurnærir og hreinsar ristilinn Allir dásama oxy tarmið the hurt locker Leikstjóri: Kathryn Bigelow Aðalhlutverk: Jeremy Renner, Anthony Mackie, Brian Geraghty. kvikmyndir The Hurt Locker Hefur fengið frábærar móttökur um allan heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.