Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2009, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2009, Blaðsíða 11
fréttir 15. júlí 2009 Miðvikudagur 11 Frábær veitingastaður og skemmtilegur skemmtistaður! Egilsbúð | Egilsbraut 1 | 740 Neskaupstað | Sími 477-1313 & 861-1894 H ild ur H lín Jó ns dó tt ir / h ild ur @ dv .is Flottur a la carte matseðill ásamt glæsilegum fiskseðlum matreiddum af frábærum matreiðslumönnum. Frábær þjónusta allt árið um kring! Veitingastaðurinn er opin til 22:00 en skemmtisaðurinn til 03:00 um helgar. Sjáumst í Egilsbúð! Andri Sveinsson, fjármálastjóri Novator og einn helsti samverkamaður Björgólfsfeðga, stendur í stórfelld- um breytingum á húsi sínu við Sunnuveg. Eiginkona Andra er í kampavínsklúbbi útrásareiginkvenna sem fór í frægðarför til Óman fyrr á árinu. Framkvæmdunum á að ljúka síðar í sumar. SKÓSVEINN BJÖGGANNA BÝR SÉR TIL LÚXUSVILLU Einn nánasti samverkamaður Björg- ólfsfeðga, Andri Sveinsson, fjármála- stjóri fjárfestingafélagsins Novator, stendur í stórtækum byggingarfram- kvæmdum við hús sitt á Sunnuvegi við Laugardalinn þessa dagana. Á annan tug iðnaðarmanna vinnur nú að endurbótum á húsinu. Eitt af því sem verið er að gera við húsið, sem er tæpir 380 fermetrar að stærð, er að breyta því úr tvíbýlis- húsi í einbýlishús. Stór hluti hússins mun hafa verið rifinn niður og end- urbyggður. Einnig er verið að byggja rúmlega 50 fermetra viðbyggingu við húsið. Auk þess er verið að reisa vegg umhverfis það sem nokkrar eft- irlitsmyndavélar verða greyptar inn í. Samkvæmt heimildum DV var auk þess nær allt hreinsað út úr húsinu að innan og nýtt sett í staðinn. Andri þessi er einn þeirra sem næst standa Björgólfsfeðgum, þeim Björgólfi Guðmundssyni og syni hans Björgólfi Thor, og heldur hann utan um persónuleg fjármál þeirra. Meðal annars hefur Andri komið að samningaviðræðunum við Nýja Kaupþing um að fella niður helm- inginn af sex milljarða króna skuld þeirra feðga við bankann, samkvæmt heimildum DV. Frá London inn á Sunnuveg Andri og eiginkona hans Dóra Björg Marinósdóttir, sem er meðlimur í kampavínsklúbbi íslenskra útrásar- eiginkvenna sem fór í lúxusferð til Óman fyrr á árinu líkt og greint var frá í DV fyrir nokkru, hafa verið bú- sett í London á síðustu árum og er lögheimili þeirra skráð þar í landi samkvæmt þjóðskrá. Þau keyptu húsið á Sunnuvegin- um í febrúar 2007 og sóttu um leyfi til byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar um að fá að breyta því. Breytingarnar á húsinu benda til þess að þau hygg- ist hins vegar verja meiri tíma hér á Íslandi í náinni framtíð. Brunabóta- mat hússins er rúmar 57 milljónir króna en ekki er vitað hversu miklu þau hjónin hafa varið í endurbæturn- ar á því. Reikna má þó með að kostn- aðurinn við framkvæmdirnar hlaupi á tugum milljóna króna vegna þess hversu umfangsmiklar þær eru. Því má áætla að verðgildi hússins verði töluvert meira eftir breytingarnar. Áætlað er að ljúka framkvæmd- unum við húsið síðar á árinu. Bankaráðsmaður frá byrjun Andri Sveinsson hefur um langt skeið verið náinn Björgólfsfeðgum. Hann vann í Búnaðarbankanum á sínum tíma og byrjaði að vinna fyr- ir Björgólfsfeðga áður en þeir keyptu Landsbankann og aðstoðaði þá við kaupin á honum. Andri sat meðal annars í bankaráði Landsbankans frá einkavæðingu hans 2003 og fram til ársins 2007 þegar hann gerðist vara- maður Björgólfs Guðmundssonar í stjórninni. Hann sat einnig á sínum tíma í stjórn lyfjafyrirtæksins Acta- vis, sem er í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, og starfaði hjá fyrirtækinu í Bandaríkjunum. Hvorki náðist í Andra né Dóru Björgu við vinnslu fréttarinnar. IngI F. VILhjáLmSSon blaðamaður skrifar ingi@dv.is Allt rifið út Andri Sveinsson, einn nánasti samverkamaður Björgólfsfeðga, stendur í miklum framkvæmdum við einbýlishús sitt á Sunnuvegi. Verið er að breyta húsinu úr tvíbýli í einbýli og byggja við það. Í innsta kjarna Andri er í innsta kjarna Björgólfsfeðga. BæJARSTJÓRASTAðA SKILAðI TUGmILLJÓNUm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.