Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2009, Side 26
Miðvikudagur 15. júlí 200926 austurland
Opnunartímar Mánud. til Laugard. 10 - 18 Sunnudaga 12 - 17
FAXAFEN 8 OUTLET CENTER
KOMDU, SJÁÐU OG SPÁÐU Í VERÐIÐ...
Sími: 5684892 klinkid@klinkid.is
“Chateau”
hvítvínsglös
2 í pakka
Mjög góð gæði
799,-
“Disney”
Hnakkapúði
fyrir litlu elskurnar
flottur í fríið
699,-
Wipe-A-Way
Góð og rakadræg
pappírsrúlla
Flott í fríið
299,-
Kók í dós 0,33 ml. 12 stk. 749,- Speedo sundgleraugu 399,-
Fullt af barnaleikföngum á frábæru verði
Golfkylfur frá 1.999,-
Golfkúlur Tommy Armour/Penn/Diamond Tek verð frá 99,-
Golf”TEE” 100 stk. 199,-
Minnum á hreinlætisvöruna FRÁBÆR VERÐ
“Spalding”
Körfubolti
úti og inn
1.999,-
“Dunlop”
Fótbolti 1.499,-
Strandblak-
og strandfótbolti
999,-
Garðluktir
2 saman
Stór 62 cm
Lítil 42 cm
3499,-
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
Kveiki á útvarpinu, fæ mér kaffi og smojara.
Hver er sérgrein þín í eldhúsinu?
Fiskur, fiskur.
Hvaða kvikmyndahetju lítur þú upp til?
Roy Rogers.
Hvar ólst þú upp?
Á Fáskrúðsfirði og í Vestmannaeyjum.
Ef þú hefðir ekki orðið tónlistarmaður, hvað hefðirðu viljað vera?
Prestur í afskekktu prestakalli þar sem ekkert er að gera nema sinna
æðarvarpinu.
Hvað drífur þig áfram?
Nýjar hugmyndir.
Hvaða lag kemur þér alltaf í gott skap?
Betri bílar, yngri konur, eldra viskí, meiri pening með Rúna Júl.
Hver er uppáhaldsborgin þín?
Get ekki gert upp á milli Reykjavíkur og Kaupmannahafnar.
Hvað hefur Austurland fram yfir aðra landshluta?
Þessa einstöku veðurblíðu.
Hver er þín helsta fyrirmynd?
Ég er alltaf að reyna að verða eins og faðir minn sálugi – toppmaður.
Hverju sérðu mest eftir?
Ég veit það ekki.
Ef þú mættir gefa íslensku þjóðinni gjöf, hvað myndirðu gefa
henni?
Nýja kennitölu.
Hvar líður þér best?
Heima.
Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi?
Borgarfjörður eystri.
Hver er fremsti stjórnmálamaður heims fyrr og síðar?
John F. Kennedy, menn eru ennþá að reyna að vera og gera eins og hann.
Hvenær felldir þú síðast tár?
Ég felli tár í hverjum fréttatíma.
Hvernig er heimilisverkunum skipt?
Allt of viðkvæm spurning.
Stundar þú líkamsrækt?
Ekkert umfram eðlileg mörk.
Hvert er takmark þitt í lífinu?
Að vera virkur þátttakandi.
Hvaða bók getur þú lesið aftur og aftur?
Brennu-Njáls sögu.
Hver voru áhugamál þín sem unglingur?
Semja ljóð, teikna, mála og rokka.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór?
Skrýtið skáld.
Hvernig er fullkomið laugardagskvöld?
Spila fyrir fólk í góðum gír.
Hver er þinn helsti kostur?
Hvað ég er að verða sáttur við galla mína.
Hvern hefur þig alltaf dreymt um að hitta?
Roy Rogers.
Átt þú gæludýr?
Hundinn Ringó og kettina Möndul, Simba og Pétur.
Finnst þér gaman í vinnunni?
Já, að sjálfsögðu.
Hvaða skref væri mest til heilla íslenskri þjóð?
Að hún temji sér rökræna hugsun.
Hvaða mynd sást þú síðast í bíó?
Roy Rogers.
Síðasta orðið?
Velkomin á bísann, ástin mín.
Bjartmar Guðlaugsson á síðasta
orðið að þessu sinni. Hann byrjar
daginn á kaffi og „smojara“ og segir
einstaka veðurblíðu helst einkenna
Austurland. Bjartmar vildi helst
gefa þjóðinni nýja kennitölu og
segir það takmark sitt í lífinu að
vera virkur þátttakandi.
Grætur yfir
hverjum
fréttatíma
síðasta orðið