Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2009, Side 2
2 miðvikudagur 5. ágúst 2009 fréttir
Í byrjun apríl 2007 tóku að berast frétt-
ir af því að fram undan væru breyting-
ar á eignarhaldi Glitnis, sem þá var í
meirihlutaeigu Fl-Group og Miles-
tone. 4. apríl sagði Ríkisútvarpið frá
því að Hannes Smárason hefði í félagi
við Jón Ásgeir Jóhannesson tryggt sér
stuðning margra hluthafa og að þeir
ætluðu sér aukin áhrif í bankanum.
Viðskiptin urðu svo að veruleika strax
nokkrum dögum síðar, en ljóst var að
fleira var í aðsigi.
Sögusagnir fóru á kreik um að
Bjarna Ármannssyni, þáverandi for-
stjóra bankans, yrði bolað út af nýj-
um meirihlutaeigendum. Bjarni var
spurður út í þennan orðróm í frétt-
um Stöðvar 2 og svaraði svona: ,,Ja,
það á auðvitað bara eftir að koma í
ljós hvaða áhrif og áherslur hluthaf-
ar hafa.... en ég hef áhuga á að vera
áfram forstjóri bankans.“ Aðeins 20
dögum síðar var þetta allt breytt.
Bjarni hættur sem forstjóri og við tók
Lárus Welding. Viðhorf Bjarna virtist
hafa breyst á örskömmum tíma og
nú sagði hann í fréttum: ,,Ég hef nú
verið í þessu starfi í tæpan áratug og
kannski nú lengur heldur en ég ætlaði
í upphafi en ég held að það sé hægt
að segja það þannig að, að svona að
undanförnu verða miklar breytingar í
manns nánasta umhverfi þá fer mað-
ur nú svona að velta fyrir sér hvort,
eða hugleiða það hvort það séu kom-
in kaflaskil, hvort það sé kominn nýr
þáttur og eftir svona, leggjast aðeins
yfir þetta, komst ég að þeirri niður-
stöðu að líklega væri best fyrir mig að,
að segja þessum kafla lokið.“
Bjarna var vikið úr starfi
Út á við var því harðneitað að Bjarni
hefði verið rekinn og opinbera skýr-
ingin var að hann hefði viljað breyta
um kúrs í lífinu. Samkvæmt afar
traustum heimildum DV er
þetta rangt. Hátt sett-
ir heimildarmenn
innan úr röð-
um Glitnis sem
þekkja mál-
ið út og inn
fullyrða að
Bjarni hafi
verið rekinn
af nýju eig-
endunum og
þar hafi Jón
Ásgeir ráðið
mestu. Ástæð-
an var fyrst
og fremst sú að
Bjarni þótti
of varkár og var ekki tilbúinn að fara
í þá vegferð sem nú átti að fara í með
bankann. Við ætlum að rekja þá sögu
hér á eftir. Máltækið segir ,,sá hlær
best sem síðast hlær“ og það á líklega
við í þessu tilviki. Bjarni seldi alla hluti
sína í Glitni á 7 milljarða um leið og
hann hætti. Hann harmar þá ákvörð-
un líklega ekki í dag. Þarna flæddi allt
í peningum og nýi forstjórinn, Lárus
Welding, fékk 300 milljónir fyrir það
eitt að skrifa undir, ákvörðun sem
var töluvert gagnrýnd á sínum tíma,
enda fáheyrt í íslensku viðskiptalífi
að menn fengju slíkar upphæðir fyrir
það eitt að hefja störf.
,,Back on track“
Þegar Jón Ásgeir og félagar náðu yfir-
höndinni í Glitni var strax ljóst hvert
átti að fara. Stækka bankann og það
verulega. Heimildarmenn DV segja
að Jón Ásgeir hafi viljað að efnahags-
reikningurinn yrði fimmfaldaður á 5
árum. Þegar þarna var komið hafði
Glitnir þegar bólgnað verulega út árin
á undan. Um aldamótin var efna-
hagsreikningur Glitnis í kringum 400
milljarðar, en var orðinn 3.800 millj-
arðar haustið 2008 þegar bankinn
hrundi. Jón Ásgeir og aðrir sem stýrðu
bankanum voru harðákveðnir að fara
af stað í hraða stækkun og Bjarna var
því sparkað. Hann hafði þegar stað-
ist nokkur áhlaup áður og virtist eiga
9 líf í bankanum, en nú var ljóst að
ekki yrði aftur snúið. Heimildarmenn
DV úr innsta kjarna Glitnis segja að
strax og Lárus tók við hafi allt breyst.
Áhættusæknin varð algjör og öllum
sparnaðarprinsippum var hent. Skýr-
asta dæmið um nýja stefnu
Glitnis mátti meðal annars
sjá í 9 mánaða uppgjöri
bankans árið 2007 og
á fleiri stöðum, þar
sem lykilvið-
skiptavinum
voru kynnt
skilaboðin
„back on
track“ til
marks um
það að nú
ætti að hefja
sókn á nýj-
an leik eftir þá
stöðnun
sem hafði ríkt misserið þarna á und-
an. Þá hafði bankinn verið í ákveð-
innni varnarbaráttu og ekkert stækk-
að um nokkuð skeið. Mánuðina
eftir að Bjarni fór úr bankanum tínd-
ust þaðan út allir hans helstu sam-
starfsmenn, sem voru yfir lykilsvið-
um bankans og nýir menn voru settir
inn í staðinn. Með öðrum orðum var
á örskömmum tíma komin algjörlega
ný áhöfn í brúna, sem hafði allt aðrar
áherslur en þeir sem áður höfðu stýrt
bankanum.
Fékk 70% launahækkun
án þess að biðja um hana
Einn heimildarmaður DV sem starf-
aði fyrir Glitni segir svo frá: „Þegar
Lárus tók við voru launin mín hækk-
uð um 70% og ég hafði ekki einu sinni
beðið um launahækkun. Þegar Bjarni
stýrði bankanum var mottóið alltaf að
enginn væri ómissandi. Góðir starfs-
menn fengu vel borgað, en ekki um-
fram ákveðið þak.“ Sami heimildar-
maður segir að þegar Lárus hafi tekið
við hafi launapíramídi bankans verið
flattur algjörlega út og enginn hafi far-
ið frá bankanum, því að allir sem hafi
eitthvað verið farnir að ókyrrast hafi
verið keyptir til að vera um kyrrt.
Verðbréfamiðlari á tugmilljóna
króna bíl á kostnað Glitnis
Fleiri dæmi um breytingar á bank-
anum mátti sjá á bílaflotanum. Í tíð
Bjarna Ármannssonar keyrði hann
sjálfur um á dýrasta bílnum. Flottum
Toyota Landcruiser. Eftir að Lárus tók
við streymdu dýrindis bílar á bílastæð-
in. Allt á kostnað bankans. Svæsnasta
dæmið um þetta var verðbréfamiðlari
sem fékk BMW M5 sportbíl til afnota
á kostnað bankans. Slíkur bíll kostar
yfir 20 milljónir í dag. Þessi lúxusbíla-
kaup bankans voru samþykkt af nýja
forstjóranum, Lárusi Welding.
Fyrirtækjasviðið sprengdi
alla áhættuskala
Heimildarmenn DV, sem þekkja
starfsemi Glitnis út og inn, segja
að mesta og alvarlegasta
breytingin hafi verið
á fyrirtækjasviði
bankans, sem
var sérstakt
áhugasvið
hins nýja
for-
stjóra.
Þar
jókst
áhættusæknin til allra muna með
alvarlegum afleiðingum. Glanna-
leg útlán á fyrirtækjasviði eru ein
stærsta ástæða þess að bankinn féll
að lokum. Á sviðinu unnu rúmlega
20 manns árið 2007 og þeir fengu nú
aukið svigrúm til að lána án þess að
bera það undir yfirmenn. Bónusar
þessarra starfsmanna námu oft um
10% af þóknun bankans, sem var oft
3-4% af heildarútláni. Þannig gátu
starfsmenn nú án nokkurs
fyrirvara lánað allt að 200
milljónir til fyrirtækja og
fengið í sinn snúð 5-700
þúsund krónur fyrir einn
slíkan samning. Safnast
þegar saman kemur og
heimildir DV herma að
nokkrir starfsmenn hafi
allt að tífaldað laun sín
með bónusgreiðslum
þegar best lét. Þessi inn-
byggða áhættusækni var
svo eitt af því sem varð bank-
anum að falli. Starfsmenn
græddu á því að lána sem mest,
alveg sama hvort lántakand-
inn gat greitt lánin
eður ei. Um
þessa
inn-
byggðu áhættusækni í bankakerfi alls
heimsins hefur mikið verið rætt og
ritað og eru sérfræðingar sammála
um að hún sé lykilþáttur í þeirri al-
varlegu stöðu sem nú er uppi um all-
an heim. Íslensku bankarnir létu sitt
ekki eftir liggja í þessu, eins og hef-
ur mátt sjá í tekjuuppgjörum síðustu
ára hérlendis, þar sem tugir banka-
manna hafa margfaldað laun sín
með veglegum bónus-
greiðslum.
Ítrekað far-
ið framhjá
lánanefnd-
inni
En aftur að
Glitni. Í
bankan-
um starf-
aði lána-
nefnd, sem
þurfti að
samþykkja öll
stærstu útlán.
Lánanefnd
bank-
FENGU BÓNUSA FYRIR AÐ LÁNA
Bjarni Ármannsson var rekinn úr stöðu bankastjóra skömmu
eftir að nýir eigendur tóku yfir Glitni. Lárus Welding var ráðinn
í hans stað og hóf nýja stórsókn sem fólst í því að stórauka útlán.
Starfsmenn á lánasviði fengu bónusa fyrir útlán til fyrirtækja
og gátu þar með hækkað laun sín til mikilla muna.
„Þegar Lárus tók
við voru launin mín
hækkuð um 70%
og ég hafði ekki
einu sinni beðið um
launahækkun.“
Helstu eigendur glitnis
rétt áður en ríkið yfirtók bankann
1. FL GLB Holding B.V. 13,34%
2. FL Group Holding Netherlands B. 11,13%
3. FL Group hf 5,79%
4. Þáttur International ehf 5,59%
5. GLB Hedge 5,01%
6. Saxbygg Invest ehf 5,00%
7. Glitnir bank hf. 4,52%
8. Landsbanki Luxembourg S.A. 2,37%
9. Salt Investments ehf 2,32%
10. Lífeyrissjóðir Bankastræti 7 2,18%
11. Sund ehf. 2,04%
12. Rákungur ehf. 2,00%
13. IceProperties ehf. 1,75%
14. Kristinn ehf. 1,71%
15. LI-Hedge 1,32%
16. Gildi-lífeyrissjóður 1,30%
17. Icebank hf. 0,96%
18. Langflug ehf. 0,91%
19. Bygg invest ehf. 0,88%
20. Stím ehf. 0,87%
kúlulán í glitni
n Ólafur Þór Hauksson, sérstak-
ur saksóknari, sagði í samtali við
DV í mars að kúlulán
til starfsmanna
bankanna yrðu
„klárlega“ til
skoðunar hjá
embættinu.
184 328 800 994 800 170 800
BI
RN
A
EI
NA
RS
dÓ
tt
IR
HA
Uk
UR
G
UÐ
jÓ
NS
So
N
jÓ
HA
NN
ES
B
AL
dU
RS
So
N
kR
IS
tI
NN
G
EI
RS
So
N
RÓ
SA
Nt
M
ÁR
to
RF
AS
oN
St
EF
ÁN
SI
GU
RÐ
SS
oN
VI
LH
EL
M
M
ÁR
Þ
oR
St
EI
NS
So
N
söLVi tryGGVason
blaðamaður skrifar solvi@dv.is
skipt út Varkárni Bjarna
var illa séð af nýjum
ráðamönnum bankans.
Meira og stærra Þegar Jón Ásgeir
og félagar náðu yfirhöndinni í Glitni
þótti strax ljóst hvert átti að fara.
Stækka bankann og það verulega.
stórtækur Hannes var í
bandalagi við Jón Ásgeir
um að ná völdum í
bankanum vorið 2007.