Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2009, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2009, Blaðsíða 17
5. ágúst 2009 miðvikudagur 17 Botnslagur í grafarvogi Það verður sannkallaður sex stiga fallslagur á Grafarvogsvelli í kvöld þar sem heimamenn í Fjölni taka á móti Þrótti. Þróttarar verða án þjálfarans, Gunnars Oddssonar, sem var látinn taka pokann sinn fyrir verslunarmannahelgi. Aðstoðarþjálfarinn og fyrrverandi fyrirliðinn, Eysteinn Pétur Lárusson, mun stýra Þrótti út tímabilið. Sigur er gífurlega mikilvægur fyrir Þróttara sem geta verið skildir eftir á botninum takist þeim ekki að vinna sér inn einhver stig. Grindavík, sem er í baráttunni með Fjölni og Þrótti, á nefnilega leik gegn brotnum Valsmönnum og leik til góða gegn Fram þess utan. Íslenska landsliðið í handknattleik skipað leikmönnum 21 árs og yngri hefur nú leik á lokakeppni heimsmeistaramótsins sem fram fer í Egyptalandi. Fyrst eiga þeir opnunarleik mótsins gegn heimamönnum. Þrír silfurdrengir úr nítján ára liðinu eru með. rúnar Kárason eini atvinnumaður- inn en enginn aron Pálmarsson er í hópnum. Silfur er orðið þjóðarlitur Íslendinga hvort sem horft er til handknattleiks, Eurovision eða brasilísks jiu-jitsu. Nú, aðeins tæpri viku eftir að U19 ára landsliðið náði þeim magnaða árangri að ná silfrinu á lokakeppni heimsmeistaramótsins í þeim ald- ursflokki, hefur U21 árs landslið- ið leik í sinni lokakeppni. Leikið er í Kaíró í Egyptalandi en okkar strákar leika opnunarleikinn gegn heima- mönnum. Ásamt Egyptalandi er Ís- land í riðli með Argentínu, Kúveit, Katar og Þýskalandi. Ísland komst í lokakeppnina með því að enda í öðru sæti í sínum und- anriðli. Sá riðill var leikinn í Hollandi í vor þar sem strákarnir gerðu jafn- tefli við Hollendinga og Ungverja en lögðu svo Breta að velli. Íslenska lið- ið er geysisterkt, skipað strákum sem leika stór hlutverk í liðum sínum hér heima eins og hjá nítján ára liðinu og er það til alls líklegt. Kannski að þriðja silfurliðið sé í bígerð. Þjálfari liðsins er reynsluboltinn Heimir Ríkarðs- son, aðstoðar- þjálfari Vals, sem þjálfaði U18 Evr- ópumeistaralið Íslands árið 2003 en þar voru leik- menn á borð við Ásgeir Örn Hall- grímsson og Arn- ór Atlason. Þrír silfurdrengir með Það er ekki mikið fríið sem þrír af silfurdrengjunum úr nítján ára liðinu fá. Stórskyttan úr FH, Ólaf- ur Guðmundsson, hornamaðurinn Guðmundur Árni Ólafsson, sem gekk í raðir Hauka eftir síð- asta tímabil, frá Selfossi, og Akureyringurinn Oddur Grétarsson eru allir mættir til leiks í Kaíró en þeir mættu liðinu frá Túnis þar sem þeir höfðu náð í silfurverðlaun með U19 ára liðinu síðast- liðinn föstudag. Aðeins einn at- vinnumaður er í hópn- um, Framarinn Rúnar Kárason sem hefur skrifað undir samning við þýska liðið Fuche Berlín og hefur leik með því eftir keppnina. Allir aðrir leikmenn liðsins leika hér heima og skipa stórt hlutverk í liðum sínum í efstu og fyrstu deild. Enginn Aron Pálmarsson er þó í hópnum en hann lék með liðinu í undanriðlin- um fyrr á árinu. Hann heldur nú til Alfreðs Gíslasonar í Kiel og hefur æf- ingar þar með sínu nýja liði. Íslenska liðið leikur opn- unarleikinn miðviku- daginn 5. ágúst gegn Egyptalandi og er riðillinn spilaður fram á þriðjudag en eftir það taka milliriðlarnir við. HÓPuriNN Hm-hópur u21 árs landsliðsins n Markverðir: Aron Rafn Eðvarðsson, Haukum, Ingvar Kristinn Guðmundsson, Val, og Sveinbjörn Pétursson, HK. n aðrir leikmenn: Andri Heimir Friðriksson, ÍR, Anton Rúnarsson, Val, Ásbjörn Friðriksson, FH, Bjarki Már Gunnarsson, HK, Bjarni Aron Þórðarson, Aftureldingu, Guðmundur Árni Ólafsson, Haukum, Hjálmar Þór Arnarson, Víkingi, Oddur Grétarsson, Akureyri, Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK, Ólafur Gústafsson, FH, Orri Freyr Gíslason, Val, Rúnar Kárason, Fuchse Berlin og Þröstur Þráinsson, Víkingi. tÓMas ÞÓr ÞÓrÐarson blaðamaður skrifar: tomas@dv.is rúnar Kárason Er eini atvinnumaðurinn í liðinu. Heimir ríkarðsson Stýrir U21 árs landsliði Íslands. Ólafur Jóhannesson, landsliðs- þjálfari Íslands í knattspyrnu, valdi í gær átján manna hóp sem mæt- ir Slóvakíu í æfingalandsleik eftir slétta viku, á Laugardalsvellinum. FH-ingurinn Atli Viðar Björnsson er eini nýliðinn í hópnum en Atli er markahæsti leikmaður Pepsi- deildarinnar. Ísland mætti Slóvakíu í mars á síðasta ári og var eftir það ákveðið að liðin myndu mætast aftur hér heima í ár. Ytra hafði Ísland góðan sigur, 2-1, þar sem Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði stórglæsilegt mark og Eiður Smári hitt markið. Hópurinn hjá Ólafi er eftirfar- andi: Markverðir: Árni Gautur Ara- son og Gunnleifur Gunnleifsson. Aðrir leikmenn: Hermann Hreið- arsson, Indriði Sigurðsson, Krist- ján Örn Sigurðsson, Grétar Rafn Steinsson, Ragnar Sigurðsson, Sölvi Geir Ottesen, Brynjar Björn Gunnarsson, Stefán Gíslason, Emil Hallfreðsson, Aron Einar Gunnarsson, Ól- afur Ingi Skúlason, Atli Við- ar Björnsson, Eiður Smári, Heiðar Helguson, Arnór Smárason og Garðar Jó- hannsson. tomas@dv.is Landsliðshópurinn gegn Slóvakíu: atli viðar eiNi NýliðiNN Ólafur Jóhannsson Valdi einn nýliða. 2 dálkar = 9,9 *10          Fyrir bústaðinn og heimilið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.