Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2009, Síða 8
8 miðvikudagur 5. ágúst 2009 fréttir
Athafnamaðurinn Skúli Þorvalds-
son hefur ekki verið áberandi í ís-
lensku viðskiptalífi undanfarin ár.
Hann er oftast kenndur við Hót-
el Holt sem hann rak á árum áður.
Í lánabók Kaupþing, sem vefsíðan
Wikileak.org birti, kom fram að Skúli
væri stærsti persónulegi lántakandi
Kaupþings í Lúxemborg 25. sept-
ember árið 2008. Námu lán til hans
um 142 milljörðum króna miðað við
núverandi gengi eða 790 milljónum
evra. Fram kemur í skjölunum að
tryggingar hafi verið í sumum tilfell-
um mikið magn hlutabréfa í Kaup-
þingi og Exista sem nú eru verðlaus.
Sonur auðmanns
Skúli er sonur Þorvaldar Guð-
mundssonar sem oftast er kenndur
við Síld og fisk sem hann stofnaði
árið 1944. Þorvaldur var um árabil
einn ríkasti maður landsins en hann
lést árið 1998. Þorvaldur byggði
Hótel Holt árið 1965. Skúli varð hót-
elstjóri á Holtinu árið 1973 og tók
alfarið við rekstrinum af föður sín-
um árið 1979. Umsvif Skúla erlendis
voru smá framan af en jukust eftir að
faðir hans lést. Samkvæmt heimild-
armanni DV var Skúli einn af þeim
fyrstu hérlendis sem komu nálægt
skattaskjólum á aflandseyjum, það
var í gegnum bandaríska fyrirtækið
NTS sem Skúli kom að á síðasta ára-
tug síðustu aldar. Hér heima á hann
eignarhaldsfélagið Holt ásamt systr-
um sínum þeim Katrínu og Geir-
laugu Þorvaldsdætrum. Það félag á
húsnæði Hótel Holts en sér ekki um
rekstur hótelsins.
Kaupþing bjó hann til
Hann er afar náinn Magnúsi Guð-
mundssyni, fyrrverandi bankastjóra
Kaupþings í Lúxemborg og núver-
andi framkvæmdastjóra Banque
Havilland eins og útibúið heitir í dag.
Það sést vel á þeim fjárfestingum
sem Skúli tók þátt í. Félag hans Holt
Investment átti um þriggja prósenta
hlut í Kaupþingi og 0,7 prósent í Ex-
ista. Auk þess átti hann nálægt eins
prósents hlut í finnska tryggingafé-
laginu Sampo. Kom fram að hlut-
ur hans í Sampo væri metinn á 9,4
milljarða króna 25. september 2008.
Í skjalinu sem lak á netið um út-
lán Kaupþings kemur fram að stór
lán séu til félaganna Holly Beach,
Marple Holding og Immo Croiss-
ance Sicav en þessi félög eru skráð í
Lúxemborg. Þar kemur einnig fram
að skuldir umfram eignir 25. sept-
ember 2008 nemi 170 milljónum
evra eða 29 milljörðum íslenskra
króna. Þar af séu 120 milljónir evra
vegna fasteignafélagsins Immo
Croissance Sicav eða um 20 millj-
arðar króna. Auk þessara verkefna
kemur fram að Skúli hafi fengið há
lán vegna skuldsetts vogunarsjóða-
safns í gegnum útibú Kaupþings í
Genf í Sviss.
Þriggja barna faðir
Skúli giftist finnsku flugfreyjunni
Susan Schumacher árið 1966 en
hún var þá flugfreyja hjá Loftleiðum.
Skúli á með henni börnin Þorvald og
Nínu. Nína lést í New York árið 1999.
Þorvaldur á einnig soninn Skúla Isa-
aq með Amal Rún Quase. Amal Rún
er frá Sómalíu og varð þekkt á sínum
tíma þegar hún bauð sig fram í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins til borgar-
stjórnarkostninga árið 1994. Skúli er
í dag giftur Pálu Klein.
Í lögfræði með Björgólfi
Skúli lauk lagaprófi frá Háskóla Ís-
lands árið 1968. Samkvæmt heim-
ildum DV voru hann og Björgólfur
Guðmundsson saman í laganámi
og voru þeir afar nánir fyrstu tvö
árin. Er sagt að eftir það hafi sam-
band þeirra slitnað vegna ósættis á
milli þeirra. Skúli og Björgólfur urðu
báðir 68 ára á þessu ári. Staða þess-
ara manna sem báðir eru komn-
ir á ellilífeyrisaldur virðist svipuð í
dag. Björgólfur óskaði sem kunn-
ugt er eftir gjaldþrotaskiptum í síð-
ustu viku. Persónulegar skuldir og
ábyrgðir hans nema um 96 milljörð-
um króna. Heimildarmaður sem
DV ræddi við taldi líklegt að Skúli
Þorvaldsson væri of stoltur til þess
að lýsa sig gjaldþrota líkt og Björg-
ólfur gerði.
Agalausar lánveitingar
Skúli var í viðtali við tímaritið Frjálsa
verslun árið 1991 þar sem hann
gagnrýndi hversu auðsótt væri að fá
lán hjá íslenskum bönkum til rekst-
urs sem ekki væri víst að stæði und-
ir sér. „Það sem er kannski einkenn-
andi fyrir okkur er sú staðreynd að
bankar og aðrar lánastofnanir virð-
ast æ ofan í æ lána mönnum gíf-
urlegar fjárhæðir í þessu skyni án
þess að krefjast nákvæmra áætlana
um það hvernig reksturinn eigi að
skila þessu fé til baka. Þess eru mörg
dæmi og um leið skýr staðfesting að
margir bankastjóranna valda ekki
hlutverki sínu.“ Skúla þótti íslenskt
samfélag hreinlega einkennast af
agaleysi. „Við þurfum að læra nýja
borðsiði. Það vantar aga í samfélag
okkar,“ sagði hann.
Tapaði á Arnarflugi
Skúli hefur komið víða við þegar
fjárfestingar í fyrirtækjum eru ann-
ars vegar. Þannig er Skúli einn þeirra
sem keyptu verulegan hlut í Arnar-
flugi. Hann batt miklar vonir við
flugfélagið og telur að því hefði mátt
forða frá því að verða gjaldþrota árið
1990. Á árdögum Kringlunnar rak
Skúli þar Ali-búðina þar sem seldar
voru kjötvörur. Tap Skúla á Ali-búð-
inni annars vegar og Arnarflugi hins
vegar þótti saga til næsta bæjar en
hann tapaði sex milljónum á hvoru
fyrirtæki. Viðlíka tölur eru hins veg-
ar aðeins smámynt þegar litið er til
fyritækjareksturs á Íslandi í dag.
Auk þessa kom Skúli að rekstri
veitingastaðanna Kvikk og Hard
Rock Café í Kringlunni. Skúli stóð
lengi fyrir markaðssetningu á Íslandi
sem ferðamannalandi og ásamt við-
skiptafélögum sínum stofnaði hann
á sínum tíma Iceland Tours sem
seldi ferðir til Íslands. Skúli og faðir
hans voru lengi meðal skattakónga
landsins og á milli tannanna á fólki
sem slíkir.
HELSTI LÁNTAKANDINN Í
KAUPÞINGI Í LÚXEMBORG
Skúli Þorvaldsson, sem oftast er kenndur við Hótel Holt, fékk 142 milljarða lán hjá Kaupþingi og var
stærsti persónulegi lántakandi Kaupþings í Lúxemborg. Fjárhagsleg staða hans í dag er sögð mjög slæm
en hann er sonur Þorvaldar í Síld og fiski sem var um árabil einn ríkasti maður landsins.
Umsvifamikill Skúli Þorvalds-
son, sem oftast er kenndur við
Hótel Holt, var afar umsvifamikill
fyrir bankahrunið og skuldaði
Kaupþingi í Lúxemborg 142
milljarða króna haustið 2008.
Nánir Skúli Þorvaldsson er sagður
náinn Magnúsi Guðmundssyni,
núverandi framkvæmdastjóra Banque
Havilland.
HóTEL HOLT
ANNAS SigmUNdSSoN
og ErlA HlyNSdóTTir
blaðamenn skrifa
as@dv.is og erla@dv.is