Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2009, Page 10
Tilboð Símans um áskrift að tonlist.is:
Niðurhalið ekki frítt
Þeir sem kaupa sumartilboð Símans
og fá með sumaráskrift að tonlist.is
geta aðeins hlustað á lögin á tonlist.
is. Ef viðkomandi vill eignast þau
verður að greiða fyrir það, að því er
Neytendasamtökin greina frá. Þar
segir að borið hafi á kvörtunum yfir
því að rukkað sé fyrir lögin.
„Sumaráskriftin felst í því að hægt
er að búa til spilunarlista á tonlist.is
sem hægt er að hlusta á í tölvunni
eða í GSM símanum. Lögin munu
því ekki vistast inni í tölvunni eða
símanum heldur er þeim streymt
beint af netinu og því er ekki hægt að
flytja þau yfir á mp3-spilara,“ segir á
heimasíðu Neytendasamtakanna.
Þar er enn fremur bent á að
ókeypis sé að hlusta á íslensk lög
en greiða verði fyrir erlend lög, þar
sem þau teljist sem erlent niðurhal.
Verðið miðist við gjaldskrá áskriftar-
leiðar.
Neytendasamtökin benda á að
ódýrasta netáskriftin í GSM-síma
sé 500 krónur og innifelur 100 MB
gagnmagn. Hvert MB umfram það
kosti 50 krónur en þó aðeins 2,5
krónur ef um ADSL-nettengingu er
að ræða. Bent er á að hvert erlent lag
sé 5 til 6 MB. Það skráist í hvert skipti
sem hlustað er á lag. „Því getur kost-
að allt að 300 krónur að hlusta á er-
lent lag í GSM-símanum þínum ef
þú hefur farið yfir leyfilegt gagna-
magn eða hefur ekki skráð símann
í netáskrift. Minnt er á að sumar-
áskriftin rennur út 20. ágúst næst-
komandi, en þeir sem hafa ekki
sagt upp áskriftinni verða sjálfkrafa
áskrifendur áfram og rukkaðir sam-
kvæmt gjaldskrá.“
baldur@dv.is
VistVæN
brúNegg
Tíu vistvæn brúnegg kosta 488
krónur í Bónus og 489 krónur í
Krónunni, samkvæmt verðkönn-
un Neytendasamtakanna. Mesti
verðmunur reyndist vera 33
prósent. Í Melabúðinni reynd-
ust eggin dýrust; kosta þar 649
krónur. Í Fjarðarkaupum kosta
eggin 646, í Nóatúni 645 og í Hag-
kaupum 598 krónur. Á heimasíðu
Neytendasamtakanna er tekið
fram að ekki eru fyrirhugaðar
verðhækkanir á þessari vöru frá
framleiðanda, líkt og haldið var
fram þegar könnunin var birt.
Ódýrast á
hVolsVelli
Neytendasamtökin gerðu sam-
bærilega könnun á pylsu með
öllu og gosi í sex vegasjoppum
víðs vegar um landið. Ódýrust er
þessi þjóðlega máltíð í Hlíðar-
enda á Hvolsvelli og sem tilboð
í Söluskála KHB á Egilsstöðum.
Þar kostar máltíðin 435 krónur.
Dýrast reyndust pylsa og gos í
Þrastarlundi; 500 krónur. Í Stað-
arskála kostar máltíðin 455 krón-
ur, í Baulu við Vesturlandsveg 460
og í Hyrnunni í Borgarnesi 479
krónur.
n Óánægður viðskipta-
vinur Hagkaupa í
Grímsbæ segist í fjögur
skipti í röð hafa orðið
fyrir því að auglýstur
afsláttur skili sér ekki
þegar á kassann er
komið. Þegar hann
geri athugasemdir taki
við heljarinnar ferli þar sem
starfsmaðurinn þurfi að sækja
yfirmann sem setji inn
afsláttinn. Viðskiptavinurinn
segist
hættur
að versla þar í
bili.
n Lofið fær Lyfja í Lágmúla.
Viðskiptavinur segir að þar sé
þjónustan frábær og hann fái
leiðsögn í hvert skipti sem
hann komi í apótekið.
Viðmótið sé til fyrirmyndar á
þessum síðustu og
verstu.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Dísilolía
algengt verð verð á lítra 184,8 kr. verð á lítra 187,8kr.
skeifunni verð á lítra 186,3 kr. verð á lítra 178,2 kr.
algengt verð verð á lítra 187,8 kr. verð á lítra 179,6 kr.
bensín
dalvegi verð á lítra 186,1 kr. verð á lítra 177,9 kr.
fjarðarkaupum verð á lítra 186,2 kr. verð á lítra 178,1 kr.
skógarseli verð á lítra 187,8 kr. verð á lítra 179,6 kr.
UmSjóN: BALDUR GUÐmUNDSSON, baldur@dv.is / neytendur@dv.is
el
d
sn
ey
t
i
10 miðVikudagur 5. ágúst 2009 NeyteNdur
Dýrt að fara fram úr Hvert lag umfram
100 mB gagnamagn í GSm-áskrift getur
kostað 300 krónur.
Elín G. Jóhannsdóttir bauð þriggja ára dóttursyni sínum í heimsókn til Íslands frá
Noregi. Hún þurfti að greiða jafnmikið fyrir að breyta öðru fluginu og hún greiddi í
fargjald báðar leiðir. Guðjón Arngrímsson hjá Icelandair segir kostnaðinn oft liggja
í því að ekki séu til jafnódýr sæti á breyttum brottfarardegi. Við þann mun bætist
brottfarargjald.
RándýRt að
bReyta flugi
„Þegar ég keypti fargjaldið kostaði
það rúmar 43 þúsund krónur fyrir
strákinn fram og til baka. Í morgun
borgaði ég svo rúmlega 40 þúsund
fyrir breytinguna á flugfarinu,“ seg-
ir Elín G. Jóhannsdóttir. Hún bauð
þriggja ára dóttursyni sínum í heim-
sókn til Íslands eftir að dóttir hennar
flutti til Noregs í vor. Hún er óánægð
með hversu dýrt það reyndist að
breyta fargjaldinu, enda tvöfaldað-
ist fargjaldið við það eitt að breyta
heimferðinni.
Ferðin hófst í Noregi
Elín segir að Oliver, sem verður fjög-
urra ára 27. ágúst, hafi komið í heim-
sókn til sín fyrir ellefu dögum og hafi
verið bókaður út aftur 9. ágúst. Hann
hafi haft fylgd til Íslands með kunn-
ingjahjónum en ekki hafi legið ljóst
fyrir með hverjum hann færi aftur
heim til sín til Noregs. „Ég var ekki
alveg viss með þennan sunnudag
og tók fram, þegar ég var að panta,
að ég gæti þurft að breyta deginum.
Hugmyndin var að senda son minn
út með honum til Noregs en það var
ekki ódýrara. Í gær var svo hringt í
mig vegna þess að kunningi minn er
að fara út. Ég ákvað því að láta færa
miðann hans í morgun [þriðjudag],“
útskýrir Elín og bætir við: „Það kost-
aði 40.500 krónur.“
Elín segist hafa fengið þau svör
að breytinguna við kostnaðinn þyrfti
að reikna í norskum krónum. Þegar
hún hafi spurt hverju það sætti hafi
henni verið sagt að ástæðan sé sú að
ferðin hjá barninu hafi byrjað í Nor-
egi. Þess vegna þurfi hún að borga
fyrir breytinguna í norskum krón-
um.
Sætin eru misdýr
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Icelandair, segir margvís-
leg ákvæði um kostnað við breyt-
ingu á flugfari. Kostnaðurinn ráðist
af því hvers konar farseðla viðkom-
andi kaupi. „Það er erfitt að alhæfa
um þetta. Almenna reglan er sú að
ef þú kaupir þér fargjald með leyfi-
legri breytingu borgar þú breytinga-
gjald sem er tíu þúsund krónur. Þá
er miðinn opinn fyrir breytingum,“
útskýrir hann og heldur áfram. „Það
sem þessi hefur lent í er að hún hef-
ur keypt ákveðið fargjald á ákveðn-
um skilmálum. Svo þarf hún að fá
sæti í því flugi sem hún ætlar sér að
breyta yfir í. Það er ekki endilega víst
að þar sé til sæti á sama verði og hún
keypti upphaflega. Í því liggur oft
munurinn,“ segir Guðjón.
Hann tekur sem dæmi að ef sá
sem kaupir flugfar fyrir 40 þúsund
ætli að breyta því yfir á annan dag,
geti flugfarið þann daginn kostað til
dæmis 50 þúsund krónur. „Þá þarftu
að borga þann mun plús breytinga-
gjaldið. Þá getur þar munað sam-
tals 20 þúsund krónum,“ segir hann
en bætir við að þetta sé mismunandi
eftir aðstæðum. „Verðið í flugin er
mismunandi eftir því hvernig eftir-
spurnin er, en þetta er almenna regl-
an,“ segir hann.
Einokun á markaði
Elín segir að hún eigi þessar 40 þús-
und krónur til, en henni finnist þetta
bara svo óréttlátt. „Sú sem ég talaði
við hjá Icelandair sagði við mig að
þetta væri vegna þess að vélin væri
svo fullbókuð. Ég sagði á móti að ann-
aðhvort ætti hún laust far eða ekki. Ef
hún ætti far væri vélin ekki yfirbókuð,“
segir hún en bætir því við að hún hafi
alveg verið tilbúin að greiða breyt-
ingargjaldið. „Það versta er að það
er einokun á þessum markaði og það
er ekki eins og ég geti farið einhverja
aðra leið með hann. Þetta er ömur-
legt,“ segir hún og vill biðla til fólks að
vera á varðbergi gagnvart þessu.
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
„Það versta er að það
er einokun á þessum
markaði og það er ekki
eins og ég geti farið
einhverja aðra leið með
hann. Þetta er ömur-
legt.“
Elín og Oliver í Leifsstöð Elín G. jóhannsdóttir greiddi 40 þúsund krónur fyrir að
breyta flugfari barnabarns síns. Breytingin reyndist jafndýr og flugfarið fram og til
baka. MyND ÚR EiNkASAFNi