Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2009, Qupperneq 12
12 miðvikudagur 5. ágúst 2009 fréttir
Þrír menn frá bænum Ziketan í Kína hafa látið lífið sökum lungnaplágu sem þar er
komin upp. Sama bakterían og olli svartadauða og varð 25 milljónum Evrópubúa
að bana á miðöldum orsakar lungnapláguna. Hinir látnu eru allir nágrannar í Zik-
etan og allir sem veikst hafa ættingjar og vinir þeirra. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
fylgist með gangi mála á meðan bærinn er í sóttkví.
Þrír hafa látið lífið undanfarna daga
sökum lungnaplágu sem komin er
upp í bæ einum í norðvesturhluta
Kína. Yfirvöld hafa lokað bænum
Ziketan í Qinghai-héraði í Kína
vegna plágunnar en þar búa um
tíu þúsund manns. Bakterían sem
veldur lungnaplágunni er sú sama
og orsakaði svartadauða sem varð
25 milljónum Evrópubúa að bana
á miðöldum. Staðfest var í gær að
64 ára karlmaður hefði látið lífið,
þriðja fórnarlamb plágunnar, en
hann var nágranni hinna tveggja
sem látist höfðu í bænum. Tíu íbú-
ar eru sagðir hafa smitast af plág-
unni.
Lögreglan og heilbrigðisyfir-
völd í nágrenni við Ziketan eru
með mikinn viðbúnað vegna plág-
unnar sem komin er þar upp og
er nú unnið að því að sótthreinsa
svæðið og eyða rottum og skordýr-
um sem borið geta pláguna með
sér milli svæða.
Smitast frá mönnum
og dýrum
Lungnaplágan, eins og hún kallast,
ræðst eins og nafnið ber með sér á
lungu fólks og getur smitast milli
manna en líka úr dýrum í menn.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
(WHO) er meðvituð um pláguna
sem komin er upp í Kína og fylgist
með gangi mála. Talsmaður WHO
í Kína segir að faraldur sem þessi
sé alltaf áhyggjuefni en hrósaði
kínverskum yfirvöldum fyrir skjót
viðbrögð og að hafa tekist vel að ná
stjórn á vandanum. Talsmaðurinn,
Vivian Tan, segir í viðtali við Reut-
ers-fréttastofuna að lungnaplágan
sjálf sé ekki ný af nálinni og hún
hafi komið upp nokkrum sinnum
í Kína undanfarin ár. Tan telur að
það aðstoði yfirvöld við að hemja
útbreiðslu plágunnar að hún hafi
komið upp á afskekktu svæði. Kín-
versk yfirvöld tilkynntu um plág-
una á laugardaginn var og síðan
þá hafa þrír látist af hennar völd-
um í bænum sem ekki þykir stór á
kínverskan mælikvarða.
Þrátt fyrir að bærinn sjálfur sé
í sóttkví reyna íbúar Ziketan að
halda áfram með sitt daglega líf.
Yfirvöld segja að skólar og skrif-
stofur séu opin nú sem endranær.
En lögreglan leitar nú allra þeirra
sem kunna að hafa umgengist
hina látnu.
Sjaldgæf en banvæn
Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu
WHO er lungnaplágan afar ban-
væn en jafnframt afar sjaldgæf. Fái
fólk ekki greiningu og lækningu í
tæka tíð er dánartíðnin
afar há. Upp-
hafsein-
kenni
lungna-
plágunn-
ar eru að
menn verða
andstuttir, fá
hita og höfuðverk.
Heilbrigðisyfirvöld
í Kína vara fólk við að
allir þeir sem hafa heim-
sótt bæinn Ziketan síðan um
miðjan júlí og finni fyrir hósta eða
hita leiti sér læknisaðstoðar. Takist
að greina plágur sem þessa í tæka
tíð má lækna þær með sýklalyfj-
um meðal annars og nær fólk þá
fullum bata. Allir hinna látnu eru
nágrannar í Ziketan og allir hinir
veiku eru vinir eða fjölskyldumeð-
limir þeirra. Fyrsta fórnarlambið
var 32 ára smali en annar maður-
inn sem lést var 37 ára. Í gærmorg-
un greindu erlendir fjölmiðlar frá
því að 64 ára karlmaður hefði látist
sökum plágunnar.
Óttaslegnir íbúar
Árið 2004 létust átta þorpsbúar í
Qinghai-héraði af plágunni. Flest-
ir sýktust eftir að hafa
étið villt múrmeldýr
eða önn-
ur lítil
spendýr sem búa í norðvesturhluta
Kína og Mongólíu. Kaupmaður
nokkur í Ziketan segir í samtali við
Associated Press að yfirvöld hefðu
látið þau skilaboð berast að sótt-
hreinsa þyrfti heimili og verslanir á
svæðinu og að íbúar ættu að ganga
með andlitsgrímur þegar þeir ættu
leið út. Kaupmaðurinn sagði að 80
prósent allra verslana væru lok-
uð og verð á sótthreinsivörum og
grænmeti hefði þrefaldast í kjölfar
lungnaplágunnar. „Fólk er gríð-
arlega óttaslegið. Hér er enginn
á götum úti,“ sagði kaupmaður-
inn við fréttastofu Associated
Press.
Tíu þúsund í sóTTkví
Sigurður Mikael jÓnSSon
blaðamaður skrifar: mikael@dv.is
„Fólk er gríðarlega
óttaslegið. Hér er
enginn á götum úti.“
MYnD aFP
Óttasleginn almenn-
ingur Tíu þúsund manna
bær í Kína hefur verið
settur í sóttkví þar sem
þrír menn hafa látið lífið
sökum lungnaplágu
sem þar er komin
upp.
MYnD PhotoS.coM
BanvænuStu
SMitSjúkDÓMar
Sögunnar:
1. Bólusótt
2. Spænska veikin
3. Svarti dauði
4. Berklar
5. Malaría
6. Ebóla
7. Kólera
*Heimild: QualityHealth.com
Fannst látin
eftir eftirför
Sautján ára stúlka frá Wal-
es sem lýst hafði verið eftir á
sunnudaginn fannst látin í bif-
reið sem lögreglan veitti eftirför
og þvingaði loks út af veginum
síðar sama dag.
Stúlkan hvarf af heimili sínu
síðdegis á sunnudaginn var og
tilkynnti fjölskylda hennar um
hvarfið.
Eftir tugkílómetra eftirför
kom lögreglan fyrir göddum á
veginum til að sprengja dekk
bíls sem sést hafði þegar stúlk-
an hvarf. Þegar ökumaðurinn
ók yfir gaddana um klukkan 22
á sunnudagskvöldið sprungu
dekkin og maðurinn sem er á
fertugsaldri missti stjórn á bif-
reiðinni og lenti á húsbíl.
Ekki er ljóst hvernig stúlkan
lést en málið er rannsakað sem
morðmál.
Clinton í óvæntri
heimsókn
Bill Clinton, fyrrverandi forseti
Bandaríkjanna, kom í óvænta
heimsókn til Norður-Kóreu til að
ræða kjarnorkuáætlun Norður-
Kóreustjórnar og örlög tveggja
bandarískra blaðakvenna,
Laura Ling og Euna Lee, við Kim
Jong-il, leiðtoga Norður-Kóreu.
Blaðakonurnar voru handteknar
og ásakaðar og dæmdar fyrir
njósnir.
Heimsóknir áberandi banda-
rískra stjórnmálamanna til
Norður-Kóreu eru sjaldgæfar.
Síðasta merka heimsóknin átti
sér stað árið 2000 þegar Madel-
eine Albright, þáverandi utan-
ríkisráðherra, kom til landsins.
Áður hafði Jimmy Carter, fyrr-
verandi forseti, heimsótt Norð-
ur-Kóreu og er talinn hafa átt
þátt í að bæta samskipti ríkjanna
um skeið.
Flugvél endaði
á flugturni
Flugmaður taílenska flugfé-
lagsins Bangkok Airways lét
lífið þegar farþegaþota sem
hann stýrði rann út af flug-
brautinni við lendingu og
endaði á flugturni á taílensku
eyjunni Ko Samui. Tíu manns
slösuðust í slysinu.
Mikil rigning var þegar
slysið átti sér stað en í þot-
unni voru 68 farþegar, tveir
flugmenn og tveir í áhöfn.
Flugturninn var ómannaður
þegar þotan skall stjórnlaus
inn í hann.
Jim Nicholson, gjaldkeri í Key Bank
í Seattle, komst að því af eigin raun í
síðustu viku að glæpir borga sig ekki,
né heldur borgar sig að stöðva þá.
Hann spillti fyrir bankaræningja en
var síðan rekinn tveim dögum síðar
fyrir að fara ekki að reglum fyrirtæk-
isins.
Það var á þriðjudaginn var sem
grímuklæddur maður gekk inn í Key
Bank í Seattle þar sem Nicholson vann
og heimtaði peninga. En í stað þess
að fylgja reglum við slíkar aðstæður
ákvað hann að grípa í taumana.
„Þeir segja að maður eigi að vera
samvinnuþýður og gera eins og þeir
segja en eðlisávísun mín bar mig of-
urliði. Ef ég léti hann sleppa gæti
hann bara rænt fleiri banka,“ segir
Nicholson í samtali við dagblaðið The
Seattle Times.
Í stað þess að rétta ræningjanum
peninga henti Nicholsons pokanum
á gólfið og stökk á ræningjann, hafði
hann undir og heimtaði að fá að sjá
vopnið sem hann kvaðst vera með.
Hann segist hafa ætlað að ná sólgler-
augunum af honum. Ræninginn lagði
á flótta og Nicholson elti hann dágóð-
an spöl áður en hann náði að fella
manninn með aðstoð gangandi veg-
farenda. Gjaldkerinn hugrakki hélt
síðan manninum þangað til lögreglan
kom á vettvang.
Á fimmtudaginn í síðustu viku var
honum síðan sagt upp.
Bankanum þótti Nicholson hafa
verið fullglæfralegur og stofnað
mannslífum í hættu með því að fara
ekki að viðteknum starfsvenjum við
aðstæður sem þessar.
Nicholson sagðist hreinlega vera
adrenalínfíkill sem elskaði góðan
eltingarleik. Hann var þó ósáttur við
brottreksturinn. mikael@dv.is
Gjaldkeri rekinn fyrir að hindra bankarán:
Hetjustælar bannaðir
Brotamaður leiddur á brott
Ræninginn fór í fangelsi og gjaldkerinn á
atvinnuleysisbætur.