Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2009, Blaðsíða 22
Mugison mun koma fram á tón-
leikunum Five Boroughs In One
Day sem Amnesty Internation-
al stendur fyrir í New York-borg
18. ágúst. Eins og nafnið gefur
til kynna mun Mugison halda
fimm tónleika sama dag í frægu
hverfunum fimm í New York.
Það er að segja Bronx, Brooklyn,
Manhattan, Queens og Staten
Island. Allur ágóði tónleikanna
rennur til samtakanna en tón-
leikarnir hefjast um miðjan dag
og lýkur rétt fyrir miðnætti.
Byggð á Blautum
Blaðamönnum
Samkvæmt heimildum DV á Einar
Bárðarson nú í viðræðum við nokkra
reynda útvarpsmenn og -konur um að
koma til starfa á Kanaútvarpinu sem
hann setti á laggirnar fyrir skömmu.
Einar er ekki þekktur fyrir að tvínóna
við hlutina og er sagður á eftir ein-
hverjum af stærstu útvarpsstjörnum
fjölmiðlafyrirtækisins 365.
Þar á bæ eru menn lítt ánægðir
með samkeppnina frá Einari. Sjálf-
ur vildi Einar ekkert tjá sig um mál-
ið að svo stöddu þegar blaðamaður
DV hafði samband við hann en hinn
landsþekkti útvarpsmaður Gunn-
laugur Helgason, eða Gulli Helga,
hefur meðal annars verið nefndur
til sögunnar og að líklegt sé að hann
muni segja skilið við Bylgjuna og
byrja með morgunþátt í Kanaútvarp-
inu.
Gulla Helga þarf vart að kynna
fyrir landsmönnum en hann hefur
unnið á fjölmiðlum í mörg ár. Hann
er sannkallaður þúsundþjalasmið-
ur ef svo má að orði komast en hann
er einnig húsasmíðameistari. Gulli
sameinaði einmitt þessa tvo
hæfileika sína í þættinum
Hæðinni í fyrra þar sem
þeir Beggi og Pacas slógu
eftirminnilega í gegn.
Það yrði því mikill
fengur fyrir Kanaút-
varpið að fá Gulla til
liðs við sig en aftur á
móti blóðtaka fyrir
365. asgeir@dv.is
Barist um útvarpsfólkið
Börkur Gunnarsson kvikmyndaleikstjóri:
Eins og vanalega var það Árni
Johnsen sem stjórnaði brekku-
söngnum á Þjóðhátíð eins og
honum einum er lagið. Aldrei
hafa fleiri hlýtt á þingmanninn
en nú. Árni sjálfur hefur þó oft
verið betra formi en það kom
nokkuð oft fyrir að hann gleymdi
textanum við lögin sem hann
söng. Árni lét það þó lítið á sig
fá og trallaði bara þess á milli ef
réttu línurnar komu ekki upp í
kollinn. Brekkugestir létu það
enn minna á sig fá og trölluðu
allir í kór með brekkusöngs-
meistaranum mikla.
22 miðvikudagur 5. ágúst 2009 fólkið
„Þetta hefur gengið vonum framar. Sólin til dæmis
komið einmitt þegar átti að taka sólarsenur. Veð-
urguðirnir hafa því verið alveg jafn þjónustulund-
aðir við mig og leikararnir,“ segir Börkur Gunnars-
son, rithöfundur og kvikmyndaleikstjóri, sem nú
vinnur að gerð myndarinnar Þetta reddast! Tökur
hafa staðið yfir á þriðju viku og hafa meðal annars
farið fram við Búrfell og á Hótel Borg. Á dögunum
mætti tökuliðið svo á ritstjórn DV þar sem nokkur
skot voru tekin upp en aðalpersóna myndarinnar
er einmitt blaðamaður.
„Blaðið sem hann vinnur á er eiginlega DV en
það er ekki að spila neina rullu. Hann gæti þess
vegna verið blaðamaður á hvaða blaði sem er,“
segir Börkur. Blaðamaðurinn, sem leikinn er af
Birni Thors, var einu sinni efnilegur en er farinn
að drekka of mikið og farinn að slá slöku við bæði í
vinnunni og við kærustuna sína. Á báðum vígstöðv-
um er hann kominn á síðasta séns og ákveður að
reyna að redda sambandinu með því að bjóða kær-
ustunni í rómantík og ró á Hótel Búðum. „En hann
fær þá „ultimeitum“ frá ritstjóranum að gera úttekt
á Búrfellsvirkjun. Hann ákveður að slá tvær flugur í
einu höggi og býður kærustunni í rómantíska ferð
upp að Búrfelli,“ segir Börkur. „Það var ekki það sem
sambandið hans þurfti, að fara á háspennusvæði og
fá 280 megawatta innspýtingu í sambandið.“
Börkur er höfundur handritsins sem hann seg-
ist hafa skrifað frekar nýlega. „Ég hef unnið á ýms-
um blöðum og öll blöð hafa sína alkóhólista, virka
og óvirka. Handritið er svona púslað saman úr
þeim reynsluheimi.“
Í aðalhlutverkum auk Björns Thors
eru Guðrún Bjarnadóttir, Maríanna Clara
Lúthersdóttir og Jón Páll Eyjólfsson. Þá
eru reynslumiklir leikarar á borð við Ingv-
ar E. Sigurðsson, Halldór Gylfason og
Eddu Björgvinsdóttur í aukahlutverkum í
myndinni. Aðspurður segir Börkur algjör-
an draum að leikstýra stórleikara eins og
Ingvari. „Svona séní detta bara inn í þetta,
koma með frábærar hugmyndir og verða við
öllum beiðnum. Þetta er bara algjör draum-
ur. Maður vildi helst leikstýra svona leikur-
um alla daga.“
Stefnt er að frumsýningu á Þetta redd-
ast! næsta sumar.
kristjanh@dv.is
Tökur standa yfir á kvikmyndinni „Þetta reddast“ í
leikstjórn Barkar Gunnarssonar, rithöfundar og
leikstjóra. Handritið skrifar hann upp úr reynslu-
heimi sínum, starfandi á blöðum sem hafa öll haft
sína alkhólista innanborðs, virka eða óvirka.
Börkur Gunnarsson Hefur áður gert
myndina Sterkt kaffi en er líklega þekktastur fyrir
að hafa starfað fyrir NATO í Írak og skrifað bókina
Hvernig ég hertók höll Saddams.
stórlax í aukahlutverki
Ingvar E. Sigurðsson við tökurnar á
ritstjórn DV. Börkur vildi helst leikstýra
mönnum eins og Ingvari alla daga.
DiskúterinGar oG íhyGli
Börkur í diskúteringum á milli takna.
Ingvar stendur íhugull álengdar.
fimm á
einum degi
trallað í
Brekkunni
einar Bárðarson æTlar sér sTóra HluTi með KanaúTvarpið:
Gulli helGa Er hann að ganga til liðs
við Einar og Kanaútvarpið?
einar Bárðarson
Ræðst aldrei á garðinn
þar sem hann er lægstur.