Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2009, Qupperneq 4
2 þriðjudagur 25. ágúst 2009 fréttir
GenGisfall í ÁGÚsT
Allar pizzur á matseðli
1.500 kr
miðað við sóttar pizzur
568-6868
Launin hækka
lítið og hægt
Laun hækkuðu um 0,4 prósent í
júlí frá fyrri mánuði samkvæmt
launavísitölu Hagstofunnar sem
birt var í morgun. Á sama tíma
fyrir ári hækkuðu laun um 0,7
prósent milli mánaða á sama
tíma. Undanfarna tólf mánuði
hafa laun hækkað um 2,6 pró-
sent en í júlí árið 2008 höfðu
laun hækkað um 9,1 prósent á
jafnlöngu tímabili.
Þetta kemur fram á vef Grein-
ingar Íslandsbanka. Launa-
hækkanir síðustu mánaða hafa
verið litlar miðað við það sem
áður var enda hefur vinnumark-
aðurinn einkennst af auknu at-
vinnuleysi, hópuppsögnum og
jafnvel beinum nafnlaunalækk-
unum.
Landabrugg
stöðvað á Sel-
fossi
Lögreglan á Selfossi fór í
húsleitir á tveimur stöðum
samkvæmt úrskurði dómara.
Á báðum stöðum fannst til-
búinn landi í flöskum en tæki
til framleiðslu hans fannst á
öðrum staðnum.
Að því er fram kemur í
dagbók lögreglunnar á Sel-
fossi lagði lögregla hald á
þrjátíu lítra af tilbúnum landa
og grunar lögreglu að hann
hafi verið ætlaður til sölu.
Mótmælt í
Helguvík
Álversframkvæmdir Norðuráls í
Helguvík töfðust í gær þegar tólf
einstaklingar hlekkjuðu sig við
vinnuvélar og byggingarkrana.
Þær hófust þó aftur eftir að lög-
reglan á Suðurnesjum handtók
sex þeirra.
Að sögn lögreglu var fólkið
fært til skýrslutöku og sleppt að
þeim loknum. Mótmælin hófust
klukkan sjö í gærmorgun en í
hópnum voru tólf manns. Sex
manns hlekkjuðu sig við tæki og
tókst lögreglu að losa fólkið en
hinum sex var vísað af svæðinu.
Lítið er eftir af söfnunarfé Borghildar Guðmundsdóttur:
Jákvæð en dauðhrædd
„Söfnunin gekk vel fyrst en svo hefur
hún þurft að borga lögfræðingnum
úti svo mikið þannig að það er lítið
eftir af peningnum,“ segir Elínborg
Björnsdóttir. Hún er systir Borghild-
ar Guðmundsdóttur sem stendur í
forræðisdeilu við barnsföður sinn,
Richard Colby Busching.
Borghildur og Colby eiga tvo syni,
fjögurra og níu ára. Þau bjuggu sam-
an í Bandaríkjunum og voru skilin
að borði og sæng þegar hún í janúar
2008 fór með drengina til Íslands án
leyfis Colbys. Hæstiréttur komst að
þeirri niðurstöðu að hún skyldi fara
aftur til Bandaríkjanna með dreng-
ina.
Í síðustu viku mætti Borghildur
fyrir rétt í Kentucky-ríki í Bandaríkj-
unum þar sem kröfu Colbys um for-
ræði til bráðabirgða yfir drengjunum
var hafnað. Borghildur hefur for-
sjá drengjanna þar til réttað verður
í hinu eiginlega forsjármáli 15. októ-
ber.
Elínborg segir systur sína jákvæð-
ari núna þar sem hún sé afar ánægð
með lögfræðing sinn úti. Hún sé samt
sem áður dauðhrædd um hvernig
málið muni fara þegar það verður
tekið fyrir.
Borghildur skrifar á Facebook-
síðu sér til stuðnings að eldri strák-
urinn, Brian, vilji helst koma aftur til
Íslands. Elínborg tekur í sama streng
og segir hann ekki vilja vera hjá föður
sínum. Borghildur skrifar einnig að
heimþráin sé gríðarleg og þakkar öll-
um veittan stuðning.
Borghildur er með tvo söfnunar-
reikninga, annan á Íslandi og hinn
í Danmörku þar sem systir hennar
býr. Á Íslandi er hægt að styðja Borg-
hildi með því að leggja inn á reikn-
inginn 0323-26-004436, kt. 290976-
4219. Í Danmörku er reikningurinn
í Danske Bank með reg. nr. 3627 og
kontonr. 3617161532.
liljakatrin@dv.is
Borghildur og börnin Borghildur á tvo
syni með bandarískum manni og hefur
forsjá þeirra til 15. október.
Afskriftir á lánum Landsbankans til Magnúsar Kristinssonar og nafna hans Þor-
steinssonar segja meira en mörg orð um eignasafn Landsbankans. Nota á eignir
Landsbankans til að greiða breskum og hollenskum innistæðueigendum þá pen-
inga sem þeir töpuðu á Icesave-reikningunum. Áætla má að væntanlegar afskriftir
lána nafnanna rýri eignasafn Landsbankans um um það bil 60 milljarða króna sem
annars hefði verið hægt að nota til að endurgreiða Icesave.
ICESAVE-EIGNIR GUFA
UPP HJÁ AUÐMÖNNUM
Áætla má að eignir gamla Lands-
bankans, sem nota á til að greiða
niður Icesave-skuldirnar, rýrni um
að minnsta kosti um 60 milljarða
króna í ljósi nýlegra frétta um af-
skriftir á lánum sem skilanefnd
Landsbankans þarf að framkvæma
hjá tveimur viðskiptamönnum
bankans.
Í síðustu viku greindi DV frá
samkomulagi sem langt var kom-
ið á milli skilanefndar Landsbank-
ans og Magnúsar Kristinssonar, út-
gerðarmanns í Vestmannaeyjum,
sem kveður á um að skilanefndin
þurfi að afskrifa á fimmta tug millj-
arða króna af skuldum Magnúsar
og eignarhaldsfélaga hans við bank-
ann. Í dag greinir DV svo frá því að
skuldir Magnúsar Þorsteinssonar
við gamla Landsbankann nemi um
24 milljörðum króna og að afar lík-
legt sé að Magnús eigi litlar eign-
ir upp í kröfurnar - Magnús var úr-
skurðaður gjaldþrota fyrr í sumar.
Gera má ráð fyrir að Magnúsarnir
tveir muni ekki geta greitt meira en
á bilinu 10 til 20 prósent af kröfun-
um við Landsbankann, hugsanlega
minna.
Afskriftir Magnúsanna
slæmur fyrirboði
Fréttirnar af væntanlegum og óhjá-
kvæmilegum afskriftum skulda
Magnúsanna tveggja segja meira en
mörg orð um eignasafn Landsbank-
ans sem nota á til að greiða bresk-
um og hollenskum Icesave-inni-
stæðueigendum þær fjárhæðir sem
þeir töpuðu með hruni bankans í
haust. Eins segja þessi tíðindi mik-
ið um lánastefnu gamla Landsbank-
ans þar sem oft var lánað gegn léleg-
um veðum.
Báðir hafa Magnúsarnir átt í
viðræðum við skilanefnd Lands-
bankans út af stöðu sinni og hafa
þær skilað ólíkum árangri. Magnús
Kristinsson er langt komin í átt að
samkomulagi um að greiða niður
þær skuldir við Landsbankann sem
hann er í persónulegum ábyrgð-
um fyrir á næstu árum - sem er ekki
mjög há upphæð samkvæmt heim-
ildum DV - á meðan eftirstöðvarnar
verða afskrifaðar. Skilanefndin hef-
ur svo hafnað viðræðum við Magn-
ús Þorsteinsson á þeim for-
sendum að hann sé ekki
borgunarmaður skulda
sinna við bankann og
mun nefndin ætla
að láta skipta-
stjóra þrota-
bús Magn-
úsar sjá
um að
há-
InGI F. VIlhjálMsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Icesave-eignirnar rýrna Fréttir af væntanlegum
afskriftum á lánum til tveggja stórra viðskiptamanna
gamla Landsbankans, þeirra Magnúsar Kristinssonar og
nafna hans Þorsteinssonar, sýna fram á hversu lélegt
eignasafn Landsbankans er. Magnúsarnir fengu lánin
hjá bankanum í stjórnartíð Björgólfs Guðmundssonar
og Sigurjóns Árnasonar, sem einnig er höfundur Icesave.