Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2009, Side 13
fréttir 25. ágúst 2009 þriðjudagur 13
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Sérverslun með
FÁKAFENI 9 - (við hliðina á ísbúðinni)
Sími: 553 7060
Skór & töskur
www.gabor.is ALLT Í STÍL
snyrtibuddur
töskur
lykla
veski
seðlaveski
2 dálkar = 9,9 *10
Fyrir bústaðinn og heimilið
Bandarísk kona hefur höfðað mál gegn dýragarði í
grennd við Chicago:
Málsókn vegna
skvettu höfrunga
Allecyn nokkur Edwards hefur far-
ið í mál við Brookfield-dýragarðinn
í grennd við Chicago í Bandaríkj-
unum. Ástæða málshöfðunarinnar
er hrösun Allecyn á síðasta ári þar
sem hún var á rölti nálægt höfr-
ungasýningu.
Allecyn fullyrðir að stjórnendur
sýningarinnar hafi hvatt höfrung-
ana til að skvetta vatni á áhorfendur
en látið undir höfuð leggjast að vara
við bleytu á svæðinu. Í ákærunni,
sem var lögð fram í síðustu viku,
segir Allecyn að hún hafi slasast þar
sem hún var á göngu nærri sýningu
í dýragarðinum þar sem höfrungar
sýndu listir sínar.
Starfsmenn „fengu og hvöttu,
viljandi og á ábyrgðarlausan hátt,
höfrungana til að skvetta vatni á
áhorfendur, og með því gera gólfin
blaut og hál, en höfðu ekki fyrir því
að setja upp viðvaranir eða leggja
mottur á gólfin“ segir í ákærunni.
Allecyn Edwards krefst yfir 50.000
Bandaríkjadala, um 6,4 milljóna ís-
lenskra króna, í bætur vegna tap-
aðra tekna, lækniskostnaðar og, að
sjálfsögðu, hins ómissandi andlega
áfalls, af Chicago Zoological Society
og skógverndar Cook-sýslu sem sjá
um rekstur dýragarðsins, en málið
verður rekið fyrir umdæmisdóm-
stóli Illinois í Cook-sýslu.
Ísraelsmenn ævareiðir vegna greinar í Aftonbladet:
Ísraelar sakaðir
um líffærastuld
Slegið hefur í brýnu á milli ísraelskra
og sænskra stjórnvalda vegna grein-
ar í Aftonbladet þar sem því er hald-
ið fram að líffæri hafi verið numin úr
Palestínumönnum sem létust í varð-
haldi og þau nýtt til líffæraflutnings.
Benjamín Netanjahú, forsæt-
isráðherra Ísraels, krafðist þess að
sænsk stjórnvöld fordæmdu dag-
blaðið vegna greinarinnar og sagði
hana draga dám af „blóðrógi“ mið-
alda þegar því var haldið fram að
gyðingar notuðu blóð úr kristnum
börnum við gyðinglegar hátíðir.
„Fullyrðingar sænsku pressunn-
ar voru hneykslanlegar,“ var haft eftir
Netanjahú. „Við væntum ekki afsök-
unarbeiðnar frá sænsku ríkisstjórn-
inni, við væntum fordæmingar,“
sagði ísraelski forsætisráðherrann.
Sænska ríkisstjórnin segist ekki
geta blandað sér í málið og hefur
vísað í frelsi fjölmiðla og hefur sú af-
staða ekki verið til þess fallin að róa
ríkisstjórn Ísraels. Nú er svo kom-
ið að málið getur breyst í allsherjar
diplómatíska deilu.
Innanríkisráðuneyti Ísraels hefur
nú þegar stigið fyrsta skrefið með því
að frysta nýjar vegabréfsáritanir fyrir
sænska blaðamenn, þó að þeir sem
nú þegar séu staddir í landinu geti
haldið áfram störfum sínum.
Svíþjóð er nú með forsæti í Evr-
ópusambandinu og gert er ráð fyr-
ir að Carl Bildt utanríkisráðherra
heimsæki Ísrael í næsta mánuði.
Bildt sagði vegna málsins að þrátt
fyrir að landið legðist gegn gyðinga-
hatri myndu stjórnvöld ekki mýla
fjölmiðla.
Benjamín Netanjahú
Forsætisráherra Ísrael er
harðorður í garð Svía.
MyNd AFP
Skotar í vanda
Ríkisstjórn Skotlands mun hugsan-
lega þurfa að berjast fyrir lífi sínu
vegna ákvörðunar hennar um að
sleppa úr haldi Abdul Baset Ali al-
Megrahi, Lockerbie-sprengjuvarg-
inum. Stjórnarandstöðuflokkar í
Skotlandi íhuguðu í gær að efna til
kosninga með það fyrir augum að
lýsa yfir vantrausti á ríkisstjórnina.
Stjórnvöld á Bretlandi hafa fengið
vægðarlausa gagnrýni frá Banda-
ríkjastjórn vegna ákvörðunar um að
sleppa Lýbíumanninum úr haldi á
samúðarforsendum, en honum var
fagnað sem hetju við heimkomuna.
Víðförull
kortaþjófur
Fjörutíu og þriggja ára dönskum
manni tókst að taka leigubíl 2.173
sinnum, ferðast 70.000 kílómetra og
greiða fyrir það 1.142.341,56 danskar
krónur, sem svarar til rúmlega 28
milljóna íslenskra króna. Þetta væri
ekki í frásögur færandi nema vegna
þess að maðurinn notaði stolin krít-
arkort. Maðurinn komst upp með
afbrotin í fjórtán mánuði, en hann
var handtekinn 16. febrúar. Það tók
20 mínútur að lesa upp ákæruna yfir
manninum.
Ásakanir um kosn-
ingasvindl
Helsti keppinautur Hamids Karz-
ai, forseta Afganistan, hefur sakað
hann um svindl í nýafstöðnum
forsetakosningum. Hafin er rann-
sókn á hundruðum kvartana sem
gætu valdið pólitískri ólgu í landinu
næstu vikur.
Keppinauturinn, Abdullah Ab-
dullah, segist aðeins munu taka á
málinu eftir löglegum leiðum, en
ekki hvetja stuðningsmenn sína til
opinberra mótmæla. Hann sagðist
myndu meðtaka tap ef rannsókn
leiddi það í ljós.