Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2009, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2009, Page 4
4 þriðjudagur 8. september 2009 fréttir „Þetta er „chickenshit“. Þetta er ekki neitt neitt. Þetta er algjörlega á ábyrgð Leikfélags Akureyrar. Það er verið að setja okkur í mjög erfiða aðstöðu og svo bara fáum við allan skítinn fyrir,“ segir Bjarni Haukur Þórsson, leikhús- stjóri Loftkastalans. Hann vísar alfar- ið frá sér ábyrgð á því að fjöldi leik- húsgesta kom að lokuðum dyrum hjá Loftkastalanum á laugardagskvöldið þar sem sýningin Fúlar á móti átti að fara fram. Fúlir leikhúsgestir Leikhúsunnandi sem hafði keypt miða á sýninguna hafði samband við DV.is um helgina og sagði farir sínar ekki sléttar. „Þetta er mjög svekkjandi. Við vinkonurnar fórum út að borða í kvöld fyrir sýninguna, en komum síð- an að luktum dyrum. Engin tilkynn- ing var á hurðinni um að sýningin félli niður eða neitt gert til að láta leikhús- gesti vita,“ sagði Kristín Stefánsdóttir athafnakona í samtali við DV.is en hún ætlaði á sýninguna ásamt sex vinkon- um. Bjarni Haukur segir að Leikfélag Akureyrar leigi sal undir sýninguna Fúlar á móti af Loftkastalanum. Um sólarhring fyrir umrædda sýningu hafi komið boð frá Leikfélaginu um að sýningin félli niður og óskað eftir því að miðaeigendur yrðu látnir vita. „Það náðist í alla nema einn aðila sem átti þrjá eða fimm miða,“ segir Bjarni Haukur. Hann segir málið vissulega leiðinlegt fyrir hlutaðeigandi leik- húsgesti en vísar ábyrgðinni alfarið á Leikfélag Akureyrar. Hættir að auglýsa Bjarni Haukur ítrekaði að honum fyndist ekki fréttnæmt að leikhús- gestir hefðu komið að lokuðum dyr- um hjá Loftkastalanum og því engin ástæða til að fjalla um málið. „Þetta er bara lágkúrublaðamennska finnst mér,“ segir hann. „Ef þið ætlið að fara að keyra þetta þá erum við bara ekk- ert að „sörvisa“ Dagblaðið eða þessa samsteypu sem gefur þetta blað út og erum bara ekkert að auglýsa þar og sleppum því bara algjörlega, alfarið. Ef þið ætlið að gera þetta þá bara aug- lýsi ég ekkert hjá ykkur. Það er bara þannig, skilurðu? Bara mjög einfalt. Og þá bara verðið þið af þeim tekjum. Það kemur bara niður á ykkur,“ segir Bjarni Haukur. Fengu boðsmiða í bætur María Sigurðardóttir, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar og leikstjóri sýn- ingarinnar, hafði samband við DV í gær eftir að blaðamaður ræddi við Bjarna Hauk og sagði að tekist hefði að ná í allt það fólk sem kom að lokuðum dyrum á laugardagskvöldið. Beðist hafi verið af- sökunar og boðnir boðsmiðar í staðinn á aðrar sýningar á Fúlum á móti. „Eng- in reiði eða kergja er í þessu fólki lengur gagnvart okkur,“ segir hún. „Það voru hræðileg mistök að enginn var í Loftkastalanum á laug- ardagskvöldið til að hitta það fólk sem ekki hafði náðst í og upplýsa það um staðreyndir. Þetta er að sjálf- sögðu ákaflega slæmt og eftir við- ræður milli LA og Loftkastalans hef- ur málið verið leyst þannig að þetta mun að sjálfsögðu aldrei gerast aftur. Þetta eru mannleg mistök, sem því miður bitnuðu á saklausum gestum,“ segir María. María sagðist í samtali við DV.is um helgina harma atvikið mjög og stefndi þá að því að biðja hlutaðeigandi af- sökunar, eins og hún hefur nú gert. Bjarni Haukur Þórsson gerir lítið úr því að leikhúsgestir hafi komið að luktum dyrum hjá Loftkastalanum um helgina. Þar átti að vera sýning á Fúlum á móti en hún féll óvænt niður og ekki náðist í alla gesti. María Sigurðardóttir leikstjóri harmar atvikið mjög og hefur beðið viðkomandi leikhúsgesti afsökunar. Bjarni Haukur hótar því hins vegar að hætta að auglýsa hjá útgáfufélagi DV ef fjallað er um málið. leikhúsgestir gripu í tómt Erla HlynSdóttir blaðamaður skrifar: erla@dv.is „Þetta er að sjálf- sögðu ákaflega slæmt.“ lok, lok og læs Prúðbúnir leikhúsgestir komu að luktum dyrum hjá Loftkastal- anum á laugardagskvöldið. Myndin er tekin af vonsviknum gesti um það leyti sem sýningin átti að hefjast. Ber enga ábyrgð Bjarni Hauk- ur Þórsson vísar allri ábyrgð frá sér og Loftkastalanum. Hann segir Leikfélag Akureyrar ábyrgt fyrir mistökunum. Mynd Gunnar GunnarSSon Vilja minnisvarða um helga Um sjö þúsund manns vilja reisa minnisvarða um Helga Hóseas- son, sem lést í fyrradag, 89 ára að aldri. Stofnaður hefur verið hóp- ur á Facebook sem vill láta reisa minnisvarða um Helga á horni Langholtsvegar og Holtavegar þar sem hann stóð langtímum saman með mótmælaskilti sín. „Helgi mætti þarna á hornið dag eftir dag og spjallaði við hvern þann sem vildi við hann ræða. Helgi Hóseasson varð að ómiss- andi parti af þessu horni og því ætti að reisa þar einhvers konar minnisvarða til heiðurs honum,“ segir á Facebook-síðu hópsins. sér fyrir endann á kreppunni Már Guðmundsson seðlabanka- stjóri segir að hagvöxtur muni væntanlega hefjast á Íslandi að nýju á fyrri hluta næsta árs. Þetta hefur fréttastofa Reuters eftir Má. Býst hann við að verðbólga muni fara minnkandi sem gæti veitt Seðlabankanum svigrúm til að lækka stýrivexti. Reuters náði tali af Má í svissnesku borginni Basel. Sagði Már að endurskoð- un Alþjóðagjaldeyrissjóðsins vegna Íslands yrði tekin fyrir í seinni hluta mánaðarins eða í byrjun október. Ákært fyrir lögguárás Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur átta mönnum fyrir fólskulega árás á tvo lög- regluþjóna. Árásin átti sér stað í og fyrir utan stigahús fjöleign- arhúss í Hraunbænum aðfara- nótt sunnudagsins 19. október á síðasta ári. Lögreglan hafði verið kölluð á vettvang vegna hávaða úr íbúðinni en mennirnir tóku tilmælum lögregluþjónanna illa og réðust á þá með höggum og spörkum. Yfirvofandi sektir Eigendur rúmlega sex þúsund ökutækja og ferðavagna eiga von á vanrækslugjaldi fari þeir ekki með tækin til skoðunar fyrir 1. október næstkomandi. Í tilkynn- ingu frá Umferðarstofu kemur fram að frá 4. september séu 5.095 ferðavagnar, 1.331 bifhjól og 253 húsbílar enn óskoðaðir af þeim ökutækjum sem færa þarf til skoðunar á þessu ári. Þessi mikli fjöldi óskoðaðra bifhjóla vekur athygli en þetta eru um það bil 13 prósent allra skráðra bifhjóla í landinu. Hjálmar Árnason hefur unun af starfi sínu hjá Keili og segir starfsemina örugga: Fjármálastjóri Keilis hættir „Hún gengur en við þurfum að vanda okkur eins og aðrir. Við finnum auð- vitað fyrir því eins og aðrir að það er kreppa í samfélaginu en við erum ekki í neinni hættu,“ segir Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis, spurður um fjárhagsstöðu skólans. Gengið var frá ráðningu Hjálmars nú um mánaðamótin en hann hafði áður starfað sem framkvæmdastjóri ákveð- inna deilda skólans. Hann segist mjög ánægður hjá Keili. „Þetta er starf sem ég er búinn að vera í í tvö ár og hef yndi af. Þetta er skemmtilegasta starf sem ég hef komið í,“ segir hann. DV spurði Hjálmar sömuleiðis um fregnir þess efnis að Stefanía Katrín Karlsdóttir, fjármálastjóri Keilis, væri að hætta. „Hún er hér enn en hún er á förum, það er rétt. Hún er að fara í verkefni sem hefur verið í undirbún- ingi í langan tíma. Það er allt í góðu og ekkert óeðlilegt þar,“ segir Hjálmar. Áður en þetta fékkst staðfest hafði blaðamaður hins vegar samband við Stefaníu sjálfa sem brást illa við spurningu um hvort hún hefði sagt starfi sínu lausu. „Veistu það, hvort sem það pass- ar eða passar ekki, ég bara tel enga ástæðu til að tjá mig neitt um það við þig og mér finnst það bara ekki koma nokkrum manni við hvort að svo sé eða svo sé ekki. Ég ætla bara ekkert að svara þessu neitt öðruvísi. Mér finnst bara dónaskapur að hringja í mig og spyrja mig um svona hluti. Þú spyrð- ir mig ekki hvenær ég vaknaði í morg- un,“ sagði Stefanía. Þegar blaðamaður útskýrði að hann hefði fengið ábend- ingu um starfslok Stefaníu og hefði því hringt til að fá úr því skorið, ítrek- aði hún: „Þér kemur það ekki við. Ég ætla ekki að svara þessu öðruvísi.“ Stefanía hefur meðal annars starf- að sem rektor Tækniháskóla Íslands og var um tíma bæjarstjóri Árborgar. erla@dv.is „Þér kemur það ekki við“ Stefanía Katrín Karlsdóttir segir það engum koma við hvort hún er að hætta eða ekki, og líkir því við að vera spurð hvenær hún vaknaði í morgun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.