Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2009, Side 8
8 þriðjudagur 8. september 2009 fréttir
Fyrirtækið Gjafaver sem var í eigu
Grétu Sigurðardóttur, móður Hreið-
ars Más Sigurðssonar forstjóra Kaup-
þings, var á samningi hjá Kaupþingi
um að selja bankanum ýmsar gjafir
sem bankinn gaf síðan starfsmönn-
um sínum og helstu viðskiptavin-
um. Meðal annars var um að ræða
fína gjafavöru frá Rosenthal, Eva
Solo og eins Tivoli-útvörpin þekktu
sem einnig voru gefin starfsmönn-
um í öðrum bönkum. Einnig var um
að ræða gjafakörfur með ýmiss kon-
ar matvöru en starfsmenn Kaup-
þings hafa fengið slíkar körfur að
gjöf frá bankanum á liðnum árum
samkvæmt heimildum DV.
Gjafaver seldi Kaupþingi einn-
ig ýmiss konar auglýsingavöru eins
og penna, vasabækur og dagatöl
sem merkt voru bankanum. Við-
skipti íslensku viðskiptabankanna
þriggja með slíka vöru gátu numið
tugum og jafnvel hundruðum millj-
óna króna á ári og skipti það þá
miklu máli hversu mikil uppsveifla
var í viðskiptalífinu á Íslandi á þess-
um tíma. Þörfin eftir slíkum auglýs-
ingavarningi jókst eftir því sem vel-
gengni bankanna varð meiri.
Selt til útlanda og Símans
Samkvæmt heimildum DV seldi
Gjafaver einnig jólagjafir og auglýs-
ingavörur til útibúa Kaupþings í öðr-
um löndum. Starfsemi Gjafavers var
því alþjóðleg á meðan Gréta átti fé-
lagið og átti það tryggð viðskipti við
öll útibú Kaupþingssamstæðunnar.
Gjafaver átti einnig í miklum
viðskiptum við Símann en stærstu
hluthafar Kaupþings, Lýður og Ág-
úst Guðmundssynir, eiga Símann í
gegnum Exista. Bræðurnir voru jafn-
framt einir stærstu lántakendurnir í
Kaupþingi. Kaupþing og Exista voru
því stærstu einstöku viðskiptavinir
Gjafavers samkvæmt heimildum DV.
Kaupþing rosalega stór kúnni
Gjafaver var stofnað árið 2003, en
fyrsti ársreikningur félagsins er frá
því ári. Gréta er skráður stofnandi og
framkvæmdastjóri félagsins. Á því ári
sameinaðist Kaupþing einnig Bún-
aðarbankanum. Með því var fyrsta
skrefið tekið í áttina að því að koma
á laggirnar stærsta banka og fyrirtæki
á Íslandi.
Kaupþing varð síðar langstærsti
viðskiptavinur Gjafavers, samkvæmt
heimildarmanni DV sem þekkir vel
til fyrirtækisins. „Þetta var rosalega
stór hluti af heildarveltunni hjá fé-
laginu,“ segir heimildarmaðurinn en
með því á hann við hlutdeild Kaup-
þings í veltu Gjafavers sem mun hafa
verið töluvert meira en helmingur
allra viðskipta félagsins.
Heimildarmaður DV segir að það
sé tilhneiging í þessum bransa, aug-
lýsinga- og gjafavörubransanum, að
stjórnendur fyrirtækja leiti til þeirra
sem þeir þekki og eigi í viðskiptum
við þá. „Þessi bransi er rosalega erf-
iður þannig að tilhneigingin er sú að
menn versli þar sem eru tengsl. Það
er ekkert endilega verið að leita eftir
verðsamanburði eða tilboðum,“ segir
heimildarmaðurinn og bætir því við
að samkeppnisaðilar Gjafavers hafi
einfaldlega ekki átt séns í að komast í
viðskipti við Kaupþing og því hafi fé-
lagið verið nánast eitt um hituna frá
þessu stærsta fyrirtæki landsins.
Viðskipti Kaupþings við Gjafaver
munu hafa verið á vitorði margra
starfsmanna Kaupþings og undruð-
ust þeir margir hverjir hversu mikil
viðskiptin voru, samkvæmt heimild-
um DV, og létu þá undrun sína jafn-
framt í ljós við aðila utan bankans.
Gjafaver selt á 80 til 100
milljónir
Gréta seldi Gjafaver í ársbyrjun 2007
til fyrirtækisins Bros fyrir 80 til 100
milljónir króna, samkvæmt heimild-
um DV. Félagið heitir í Bros-Gjafa-
ver í dag. Framkvæmdastjóri Bross-
Gjafavers, Jóhannes Larsen, vill ekki
segja blaðamanni hvað Bros greiddi
fyrir Gjafaver. „Við kaupum bara fé-
lagið. Hitt eiginlega bara kemur þér
ekki við. Það er bara á milli mín og
seljandans,“ segir Jóhannes og bætir
því við aðspurður að Kaupþing hafi
ekkert komið að viðskiptunum með
Gjafaver og sé hvorki né hafi verið
viðskiptabanki félagsins.
Gréta starfaði hjá hinu samein-
aða félagi þar til í árslok 2008 og var
gerður samningur um það þegar hún
seldi félagið til Bross. Viðskipti Kaup-
þings og Bross-Gjafavers jukust svo á
árinu 2007 þegar uppgangurinn var
sem mestur í íslensku viðskiptalífi.
Mamma Hreiðars græddi vel
DV hefur ekki náð að verða sér úti um
upplýsingar um hvort Nýja Kaupþing
kaupi ennþá auglýsingavöru og gjaf-
ir af Brosi-Gjafaveri en samkvæmt
heimildum DV fengu einhverjir
starfsmanna Kaupþings gjafakörfur
frá bankanum um síðustu jól. Hvort
gjafakörfurnar komu frá Brosi-Gjafa-
veri er ekki vitað en fyrirtækið er með
gríðarlega sterka stöðu á þessum
markaði og því er það ekki ólíklegt.
Móðir Hreiðars virðist hins vegar
hafa auðgast nokkuð vel á viðskiptun-
um með Gjafaver, frá því hún stofnaði
það og seldi félagið í ársbyrjun 2007.
Þar virðast viðskiptin við Kaupþing
hafa spilað stórt hlutverk enda stór
hluti veltu Gjafavers kominn frá þess-
um viðskiptum. Gréta rekur í dag gisti-
heimili í Stykkishólmi sem hún kall-
ar Bænir og brauð en hún mun hafa
orðið mjög trúuð eftir að hafa ver-
ið dæmd fyrir fjárdrátt frá Sjóklæða-
gerðinni Max þar sem hún starfaði
sem gjaldkeri á sínum tíma.
MAMMA HREIÐARS SELDI
GJAFIR TIL KAUPÞINGS
Kaupþing banki var langstærsti viðskiptavinur Gjafavers,
fyrirtækis sem var í eigu móður Hreiðars Más Sigurðs-
sonar, forstjóra samstæðunnar. Gréta Sigurðardótt-
ir, móðir Hreiðars, seldi fyrirtæki sitt fyrir 80 til 100
milljónir í ársbyrjun 2007 en starfaði hjá því áfram.
Gjafaver seldi Kaupþingi jólagjafir til starfsmanna
bankans og ýmiss konar auglýsingavöru, eins og til
dæmis penna merkta Kaupþingi. Gjafaver sá erlend-
um útibúum Kaupþings einnig fyrir slíkri vöru.
„Þetta var rosalega stór
hluti af heildarveltunni
hjá félaginu.“
InGI F. VIlHjálMSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Mamma Hreiðars græddi á Kaupþingi Mamma
Hreiðars Más Sigurðssonar, forstjóra Kaupþingssam-
stæðunnar, græddi vel á viðskiptum sem fyrirtæki henn-
ar átti við Kaupþing á þeim tíma sem Hreiðar stjórnaði
bankanum. Félag móður Hreiðars, Grétu Sigurðardóttur,
var síðan selt fyrir 80 til 100 milljónir í ársbyrjun 2007.
nánast allt keypt frá móður Hreiðars Nánast öll sú auglýsingavara sem
Kaupþing keypti fyrir bankann á árunum fyrir efnahagshrunið var fengin í gegnum
fyrirtæki Grétu Sigurðardóttur, móður Hreiðars Más Sigurðssonar, forstjóra bankans.