Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2009, Page 15
Hver er maðurinn? „Miðaldra
almannatengslaráðgjafi og áhuga-
maður um bókmenntir.“
Hver er fyrsta minning þín úr
æsku? „Þegar verið var að leiða
fyllibyttu inn í lögreglubíl fyrir utan
bensínstöð sem staðsett var við
heimili mitt. Ég hef verið svona
tveggja ára.“
Hvað drífur þig áfram? „Ég er bara
að eðlisfari frekar brattur náungi.“
Fórstu til útlanda í sumarfríinu
kreppuárið 2009? „Nei, ég ferðaðist
bara innanlands og sé ekki eftir því.“
Varstu hlynntur eða andvígur
Icesave-frumvarpinu? „Ég er frekar
á því að við höfum orðið að lenda því
einhvern veginn svona.“
Hver er eftirminnilegasta bók
sem þú hefur lesið? „Ilíonskviða.
Ég las hana mörgum sinnum og hún
er á svo góðu máli að ég held að hún
hafi hreinlega haft jákvæð áhrif á mitt
eigið mál og málvitund. Svo er þetta
auðvitað rosalega góð bók.“
Hvernig hefur Bókmenntahátíðin
farið af stað? „Mjög vel. Bæði eru
þetta skemmtilegir höfundar og það
var pakkfullt á fyrsta upplestrinum í
Iðnó í gærkvöldi [fyrrakvöld] sem veit
á gott því aðsóknin eykst alltaf eftir
því sem líður á hátíðina.“
Hefur aldrei komið til tals að
halda hátíðina á hverju ári (er
nú haldin annað hvert ár)? „Nei.
Þetta er talsvert átak að gera þetta
og það er engin stofnun í rauninni á
bak við þetta. Upphaflega eru þetta
áhugamenn sem mynda stjórn og
skrapa síðan saman peninga. Til þess
að gera þetta árlega þyrfti að koma
talsvert meira fé til.“
Ef þú mættir velja hvaða höfund
sem er til að fá á hátíðina, lífs
eða liðinn, hver væri það? „Ætli ég
myndi ekki bara skella mér á Jaroslav
Hasek. Hann hefði líka verið góður í
partíunum eftir upplestur hugsa ég.“
Hvaða stjórnmálamaður Hefur staðið sig best að undanförnu?
„Steingrímur J. Sigfússon. Hann er búinn
að standa sig vel í þessum erfiðu málum.
Icesave hefur reynt sérstaklega á.“
Örn Magnússon
55 ára vÉlfrÆðINgUr
„Jóhanna Sigurðardóttir hefur staðið
sig best að mínu mati.“
BErgljót BragadóttIr
52 ára fÉlagSlIðI
„Enginn. En ef ég ætti að velja einhvern
þá líst mér vel á Tryggva Herbertsson.
Hann er eini maðurinn sem hefur
einhverjar lausnir fram að færa.“
óskar Þór HIlMarsson
32 ára faSTEIgNaSalI
„Enginn.“
BjÖrgVIn gunnarsson
45 ára BílSTJórI
Dómstóll götunnar
Bókmenntahátíð í reykjavík hófst í
níunda sinn síðastliðinn sunnudag.
sIgurður g. ValgEIrsson,
formaður stjórnar hátíðarinnar, segir
Ilíonskviðu vera eftirminnilegustu
bók sem hann hafi lesið. fyrsta
æskuminningin tengist hins vegar
fyllibyttu og bensínstöð.
Myndi vilja fá
jaroslav Hasek
„ásmundur Daði Einarsson. Hann
stendur uppi í hárinu á þessum
vitleysingum á alþingi.“
gíslI krIstján jónsson
45 ára öryrkI
maður Dagsins
Enn ein fréttin um hægagang nú-
verandi ríkisstjórnar birtist á Press-
unni í gær undir fyrirsögninni:
„Lífeyrissjóðir bíða með milljarða:
Ríkisstjórnin fer seint af stað með
verkefni fyrir þá“. Þar kemur fram
að: „Lífeyrissjóðirnir á Íslandi bíða
enn með milljarða tilbúna eftir
verkefnum í samvinnu við stjórn-
völd en hugmyndir um verkefni af
hálfu ríkisstjórnar áttu að vera til-
búnar 1. september. Ríkisstjórn-
in fór seint af stað segja forsvars-
menn sjóðanna.“ Það sem um er að
ræða er að lífeyrissjóðir bíða með
milljarða til að fara í verkefni eins
og byggingu háskólasjúkrahúss og
vegaframkvæmdir.
Ríkisstjórnin vinnur hins vegar
ekki heimavinnuna þannig að mál-
in eru stopp.
Þetta er á þeim tíma sem at-
vinnuleysi er mikið og mun auk-
ast í haust ef ekkert er að gert. Ráð-
stöfunartekjur almennings lækka
og greiðsluvandi er mikill og mun
aukast gríðarlega í haust að öllu
óbreyttu. Fréttir berast af því að
atvinnuleysissjóður er að verða
gjaldþrota innan skamms tíma og
vegna minnkandi tekna þarf ríkis-
sjóður að skera niður í velferðar-
kerfinu. Við þessar aðstæður leyfir
ríkisstjórnin sér að vinna ekki vinn-
una sína. Það að láta lífeyrissjóðina
bíða með milljarðana sína þýðir;
aukið atvinnuleysi, aukin gjaldþrot
heimila og fyrirtækja og aukinn
niðurskurð í velferðarkerfinu.
Hvar er verkstjórnin?
Núverandi ríkisstjórn Samfylkingar
og Vinstri grænna tók við völdum í
febrúar á þessu ári. Helsta upplegg
ríkisstjórnarinnar var að fara í bráð-
aðgerðir fyrir fyrirtæki og heimilin í
landinu. Allir voru sammála um að
það væri nauðsynlegt og var fyrri
ríkisstjórn í það minnsta ráðherrar
Sjálfstæðisflokksins að vinna að því
hörðum höndum þegar að fréttir
bárust af því að þáverandi ríkisstjórn
væri ekki lengur til. Það er liðin tíð
og ekki ætlunin að ræða það frekar
hér. Við þurfum að sameinast um að
vinna okkur út úr vandanum.
Ríkisstjórnir samanstanda af
mörgum ráðherrum af ástæðu.
Það kemur til vegna þess að verk-
efnin eru mörg. Brýnustu verkefn-
in eru efnahagsmálin.
Ríkisstjórnarflokkarnir lofuðu
í febrúar að fara að vinna í þeim
málum strax. Stjórnarandstað-
an lýsti sig reiðubúna að koma að
þeim verkefnum þá þegar. Þjóðin
bíður enn.
Hvenær fer ríkisstjórnin í bráðaaðgerðirnar?
kjallari
mynDin
1 kúlulánsprins reisir 450
fermetra glæsivillu
Ingvar vilhjálmsson, einn af aðalmönnum
gamla kaupþings, leggur lokahönd á
tæplega 450 fermetra glæsivillu við
Skildinganes 44.
2 greip dreng sem féll tuttugu metra
Sex ára sænskur drengur er heppinn að vera
á lífi eftir að hann féll út um glugga á íbúð
foreldra sinna í gautaborg á dögunum.
3 guðjón reiður: augljóst að
boltinn var inni
guðjón Þórðarson knattspyrnustjóri enska
liðsins Crewe er ósáttur eftir að mark var
ekki gefið í leik Crewe gegn Macclesfield
um helgina.
4 stór morgunverður stuðlar að
þyngdartapi
að borða stóran og tiltölulega
hitaeiningaríkan morgunverð getur
stuðlað að verulegu þyngdartapi hjá fólki
sem þjáist af offitu.
5 ástfangin kynbomba - Myndir
leikkonan Megan fox var í Toronto um
helgina með kærasta sínum, leikaranum
Brian austin green, og virtist ástin blómstra.
6 risarottur og froskar með
vígtennur á ósnortnu landsvæði
vísindamenn í eyríkinu Papúa Nýju-gíneu
í kyrrahafi hafa fundið fjölmargar óþekktar
dýrategundir á nánast algjörlega ósnortnu
landsvæði.
7 Barn lést eftir leik með byssu
Sex ára drengur lést á heimili sínu í
Pennsylvaníu-ríki í Bandaríkjunum eftir
voðaskot úr skammbyssu.
mest lesið á Dv.is
umræða 8. september 2009 Þriðjudagur 15
guðlaugur Þór
Þórðarson
„Ríkisstjórnin
vinnur hins vegar
ekki heimavinnuna
þannig að málin
eru stopp.“
alþingismaður Reykvíkinga skrifar
ákafur í Öskju Nóbelsverðlaunahafinn og hagfræðiprófessorinn Joseph Stiglitz hélt fyrirlestur í öskju í gær um ísland og al-
þjóðagjaldeyrissjóðinn. Stiglitz hefur mikið gagnrýnt störf agS en telur sjóðinn þó veita íslendingum meira svigrúm en mörgum
öðrum. Stiglitz fundaði með íslenskum ráðamönnum eftir fyrirlesturinn. Mynd rakEl ósk sIgurðardóttIr