Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2009, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2009, Side 22
Kvikmyndaleikstjórinn frægi Mi- los Forman verður með master- klass á Alþjóðlegu kvikmynda- hátíðinni í Reykjavík, RIFF, sem hefst í næstu viku. Eins og áður hefur komið fram verður For- man sæmdur heiðursverðlaun- um hátíðarinnar í ár og er því væntanlegur til Íslands í fyrsta sinn. Baltasar Kormákur verð- ur Forman til halds og trausts í masterklassinum sem fer fram í hátíðarsal Háskóla Íslands 22. september og er öllum opinn meðan húsrúm leyfir. Þá hef- ur verið gert opinbert að þær myndir Formans sem sýndar verða á RIFF eru Amadeus, One Flew Over the Cuckoo’s Nest og Fireman’s Ball. Leikstjórinn situr fyrir svörum eftir eina sýningu á hverri þeirra. FÓR Í HJARTA- ÞRÆÐINGU Rokksafn Rúnars Júlíussonar var opnað á Ljósanæturhátíðinni í Reykjanesbæ á föstudaginn. Það er í viðbyggingu við heimili söngv- arans að Skólavegi sem fjölskylda Rúnars hefur breytt í safn þar sem hans er minnst í myndum, mun- um og tónlist. Af mörgu er að taka frá löngum og farsælum ferli eins helsta listamanns bæjarins. Við opnunina flutti Júlíus, son- ur Rúnars, frumsamið lag við texta föður síns sem hann samdi skömmu fyrir andlát sitt. Gestum var jafnframt boðið að skoða hið svokallaða upptökuheimili Geim- steins, elstu hljómplötuútgáfu landsins, sem Rúnar hafði jafn- an opið fyrir gesti og gangandi á Ljósanótt. Rokksafn RúnaRs JúlíussonaR vaR opnað á Ljósanótt: Beggi í ólgusjó: Ragnar Kjartansson, listmálari og rokkari, hefur slegið í gegn með verkum sínum og slær stór- blaðið New York Times í mikla umfjöllun um hann og eru birtar átta myndir af Ragnari að vinna. Ragnar er þar að mála vin sinn Pál Hauk Björnsson umkringd- an bjórflöskum í Palazzo Michiel dal Brusa í Feneyjum. Ragnar segir í viðtalinu að hann sé bú- inn að hafa hugmyndina í koll- inum lengi og þetta sé óður til íslenskrar alþýðu. „Ég hugsa um hann sem eins konar mann án hlutskiptis, sem er í raun eins og við Íslendingar erum að ganga í gegnum – nokkurn veginn,“ segir Ragnar í samtali við stórblaðið. RAGNAR Í NY TIMES 22 ÞRIÐJUdAGUR 8. september 2009 FÓlkIÐ SöNG lAG vIÐ TExTA pAbbA synirnir Júlíus og Baldur, synir Rún- ars, við opnun safnsins á föstudaginn. Ekkjan og bæjarstjórinn Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, og María Baldursdóttir, ekkja Rúnars Júl. Barnabörnin Brynja og Rúnar Júlíusbörn, barnabörn Rúnars Júl. Takið eftir myndinni af afa gamla á bol Brynju. bAlTASAR AÐSToÐAR MIloS „Heilsan er bara allt í lagi. Ég næ mér alveg, það tekur bara smá tíma,“ segir Guðbergur Garðarsson, betur þekkt- ur sem Beggi, sem þurfti að fara í hjartaþræðingu. Hjartaþræðing er rannsókn sem gerð er til að athuga ástand krans- æða. Röntgenmyndir eru teknar til að kanna hvort þrengsli eða stífl- ur séu í kransæðum. Niðurstöður rannsóknarinnar eru notaðar til að ákveða hvort og hvaða meðferð er nauðsynleg. „Ég má mig hvergi hræra. Ligg inni á spítalanum í góðu yfirlæti,“ seg- ir sjónvarpsstjarnan með ástmann sinn Pacas sér við hlið. Pacas hefur verið Begga sínum stoð og stytta og staðið sig eins og hetja. Þeir félag- ar hafa verið stórstjörnur í íslensku samfélagi frá því þeir slógu í gegn í Hæðinni sem sýndur var við miklar vinsældir á Stöð 2. Hæðin var þáttur þar sem nokkur pör kepptu um að hanna íbúð á sem smekklegast- an hátt. Þar hrósuðu þeir sigri eftir harða keppni. Guðbergur er fæddur á Ísafirði en fluttist suður á unglingsaldri. Hann og Pacas eru trúlofaðir og mynda glæsilegt par. Beggi hefur einnig slegið í gegn sem kokkur en hann þykir einn af betri kokkum lands- ins, enda ástríðu- fullur í öllu sem hann tek- ur sér fyrir hendur. Þá hefur hann ferðast um land- ið og kennt fólki elda- mennsku og jákvætt hugarfar. benni@ birtingur.is Guðbergur Garðarsson, betur þekktur sem Beggi, lagðist inn á sjúkrahús og lét kíkja á hjartað í sér. Hann hefur það fínt, enda í góðu yfirlæti með pacas sér við hlið. úPs Elliði Vignis- son bæjarstjóri í Vestmanna- eyjum var óvart settur í hjarta- þræðingu þegar blóðsýnum hans og annars sjúklings var ruglað saman. FloTTIR FolaR Beggi og Pacas á góðri stundu. Saman vekja þeir athygli hvar sem þeir koma. Enda glæsilegir. FoRsETaMEÐFERÐ Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson fór í hjartaþræðingu og lét víkka í sér kransæðarnar. lÉT laGa í sÉR PíPuRnaR Hemmi Gunn fór einnig í hjartaþræðingu og hefur aldrei verið flottari. Garðar Cortes Garðar eldri hefur aldrei verið í betra formi en eftir hjartaþræðingu. sunDGaRPuRInn Örn Arnarsson sundkappi og íþróttamaður Íslands þurfti að fara í hjartaþræðingu þrátt fyrir íþróttaiðkun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.