Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2009, Blaðsíða 4
4 miðvikudagur 2. desember 2009 fréttir
Davíð Smári Helenarson sakaður um tvær líkamsárásir:
Fórnarlamb vill hálfa milljón
Davíð Smári Helenarson, betur
þekktur sem Dabbi Grensás, er
ákærður fyrir þrjú hegningarlaga-
brot en mál gegn honum var þing-
fest í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gærmorgun. Er hann sakaður um
tvær líkamsárásir, eina á síðasta ári
og eina í febrúar á þessu ári. Auk
þess er honum gefið að sök að hafa
valdið eignaspjöllum með því að
brjóta rúðu í eldhúsglugga í mars
á þessu ári.
Fyrri líkamsárásin átti sér stað að
morgni sunnudagsins 5. október í
fyrra fyrir utan veitingastaðinn Hress-
ingarskálann í Austurstræti. Á hann
að hafa kýlt einstakling í höfuðið með
þeim afleiðingum að hann hlaut togn-
un og ofreynslu á hálshrygg. Fer fórn-
arlambið fram á skaða- og miskabæt-
ur upp á tæplega hálfa milljón.
Seinni líkamsárásin átti sér stað
að morgni laugardagsins 7. febrúar
í ár á kampavínsklúbbnum Straw-
berries í Lækjargötu. Þá á hann að
hafa kýlt Viðar Má Friðfinnsson,
eiganda klúbbsins, í vinstra gagna-
uga með þeim afleiðingum að and-
litsbein brotnaði.
Í viðtali við DV í lok febrúar
sagðist Davíð Smári vera saklaus af
árásinni á Viðar.
„Ég sló þennan mann aldrei.“
Davíð Smári mætti ekki þegar
málið var þingfest í gær.
Davíð Smári hefur áður verið
dæmdur fyrir líkamsárásir. Hann
fékk sjö mánaða óskilorðsbundinn
dóm fyrir tvær líkamsárásir í fyrra.
Önnur átti sér stað í ágúst 2007
þegar Davíð veittist að Val Stein-
grímssyni knattspyrnudómara eft-
ir leik í utandeildinni með þeim
afleiðingum að í honum brotnuðu
þrjú rifbein og hann hlaut mar á
hægri upphandlegg. Hin árásin
átti sér stað aðfaranótt laugardags-
ins 22. desember sama ár. Þá réðst
Davíð Smári á knattspyrnumann-
inn Hannes Þ. Sigurðsson á Hverf-
isbarnum með þeim afleiðingum
að hann hlaut meðal annars heila-
hristing, brot í kinnbeinsboga og
sprungu í ennisbein hægra megin.
liljakatrin@dv.is
Tvær líkamsárásir í viðbót Davíð
Smári var dæmdur í sjö mánaða
óskilorðsbundið fangelsi í fyrra fyrir tvær
líkamsárásir.
Rangur Hannes
Í umfjöllun DV um meint
flugrit Hannesar Hólmsteins
Gissurarsonar, prófessors í
stjórnmálafræði við Háskóla
Íslands, birtist röng mynd.
Í stað myndar af Hannesi
sjálfum birtist mynd af röng-
um Hannesi, sem tengd-
ist fréttinni ekki að nokkru
leyti. Beðist er velvirðingar á
rangri myndbirtingu. Í frétt-
inni sakar Jóhannes Jónsson,
kaupmaður í Bónus, Hannes
Hólmstein um að dreifa flug-
ritum um son sinn á göngum
Háskólans. Hannes vísar því
alfarið á bug.
„Það eru á að giska 25 norðlensk skref
úr þingsal í matsal Alþingis. Þar er alltaf
matur. Alltaf mikill. Alltaf góður. Sjálfur
hef ég þyngst um kíló á mánuði frá því
ég hóf þingstörfin,“ segir Sigmundur
Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylk-
ingarinnar, á vefsíðu sinni.
Næring þingmanna hefur verið til
umræðu síðustu daga og fékk DV því
sendan matseðil úr mötuneyti Alþing-
is.
Hólmfríði Þorgeirsdóttir, næring-
arfræðingi hjá Lýðheilsustöð, líst vel á
matseðilinn heilt yfir. „Mér líst ágæt-
lega á þennan matseðil út frá nöfnum
réttanna. Nöfnin segja hins vegar ekki
alltaf alla söguna.“ Hún segir matseð-
ilinn þó gefa vísbendingu um hvern-
ig málum sé háttað í mötuneytinu en
matreiðsluaðferð og hráefnaval hafi oft
úrslitaáhrif á hollustuna þegar upp sé
staðið.
„Pólitískt garnagaul“
Margrét Tryggvadóttir, þingmaður
Hreyfingarinnar, vakti athygli á nær-
ingarþörf þingmanna í vikunni þar
sem hún krafðist þess að hlé yrði gert
á þingstörfum til að þingmenn gætu
nærst. „Ég er svöng,“ sagði Margrét á
þingfundi á laugardag og taldi sig illa
geta sinnt starfi sínu án þess að fá líka
að borða.
Sigmundur Ernir skrifaði í kjölfarið
pistil þar sem hann gerði lítið úr þess-
ari kröfu Margrétar. „Fólkið, sem krefst
þess að tala um Icesave, finnur sér allar
leiðir til að tala ekki um það. Og nú síð-
ast er það óskin um matarhlé. Pólitískt
garnagaul!“ skrifaði hann.
Þess ber að geta að sjónvarp er í
matsal Alþingis og því geta þingmenn
fylgst með þingræðum meðan þeir
matast.
Stendur undir hráefniskostnaði
DV hafði samband við skrifstofu Al-
þingis og fékk þær upplýsingar að þing-
menn, sem og aðrir starfsmenn þings-
ins, þyrftu að greiða 500 krónur fyrir
matinn í mötuneytinu. Gjaldið hækk-
aði í gær, 1. desember, úr 450 krónum
eða um 11 prósent. Verðið hafði þá ver-
ið óbreytt frá því í janúar. Miðað er við
að verðlagning á matnum standi að
fullu undir hráefniskostnaði.
Hólmfríður segir matseðilinn eins
og hann birtist á prenti lofa góðu. „Það
er mjög jákvætt að það er fiskur á borð-
um tvisvar í viku og alltaf salatbar. Það
er einnig jákvætt að hafa grænmetis-
rétti í boði sem valkost. Með ávaxta-
grautnum ætti einnig að bjóða létt-
mjólk fyrir þá sem það vilja og æskilegt
væri að sýrði rjóminn með mexíkósku
súpunni væri ekki nema 5 til 10 prósent
feitur og nachos í hófi,“ segir hún.
Erla HlynSDóTTir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Alþingismenn fá fisk tvisvar í viku og alltaf er salatbar í boði í mötuneyti Alþingis.
Hólmfríður Þorgeirsdóttir næringarfræðingur segir matseðilinn þar lofa góðu heilt
yfir. Starfsmenn Alþingis greiða nú 500 krónur fyrir matinn en hann hækkaði um
mánaðamótin um 50 krónur.
„Ég er svöng“ Margrét
Tryggvadóttir sagðist vera
svöng á þingfundi.
Þyngist á þingi Sigmundur Ernir
Rúnarsson hefur þyngst um kíló á
mánuði frá því hann hóf þingstörf.
ÞINGMENN VEL NÆRÐIR
Matseðill alþingis
Vikuna 30.11. – 06.12.2009
Súpa fylgir aðalrétti og salatbar
Mánudagur 30.11.
Fiskibollur m/hrísgrjónum og karrísósu
Tómatsúpa
Þriðjudagur 01.12.
Folaldagúllas m/kartöflustöppu
Pakistanskur grænmetispottréttur
Ávaxtagrautur m/rjóma
Miðvikudagur 02.12.
Hakk og spagettí
Risotto m/grænmeti
Spergilsúpa
Fimmtudagur 03.12.
Soðinn lax m/kartöflum og káli
Löggusúpa
Föstudagur 04.12.
Salatbarinn – nýtt brauð.
Stal kynlífseggi
og nautalundum
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt konu í þriggja mánaða
fangelsi fyrir að stela tveim-
ur pökkum af nautalundum úr
verslun Hagkaups í Kringlunni
nú í sumar. Einnig stal konan
kynlífseggi úr versluninni Adam
og Evu sem kostaði tæpar 5000
krónur.
Konan játaði brot sín ský-
laust. Hún hefur áður verið
dæmd fyrir umferðarlagabrot,
fíkniefnabrot og þjófnað og rauf
með brotunum nú skilorð eldra
dóms, sem var því tekinn upp.
Ólafur skotinn
í kaf
Tillaga Ólafs F. Magnússon-
ar, borgarfulltrúa F-lista, um
að hafin verði vinna við nýtt
skipulag Vatnsmýrarinnar, var
felld á fundi borgarstjórnar
Reykjavíkur í gær með 14 at-
kvæðum gegn 1.
Ólafur vill að nýtt skipu-
lag geri ráð fyrir að flugvöllur
verði áfram í Vatnsmýri, að
ný flugstöð verði reist á svæði
fyrri flugstöðvar, að Umferðar-
miðstöð Íslands verði áfram á
sínum stað og að fallið verði frá
byggingu samgöngumiðstöðv-
ar austan flugvallarins. Allir
viðstaddir borgarfulltrúar lögð-
ust gegn þessari tillögu hans.
Styrkir blind börn
Úra- og skartgripaverslunin
Leonard styrkir tómstundastarf
blindra og sjónskertra barna
fyrir þessi jólin með sölu á háls-
meninu Blálilja sem hannað er
af Eggerti Péturssyni listmál-
ara og Sif Jakobs gullsmið. Um
hundrað íslensk börn eru blind
eða sjónskert. Ágóði af sölu Blá-
liljunnar rennur til styrktarsjóðs-
ins Blind börn á Íslandi sem
stofnaður var árið 1992. Vigdís
Finnbogadóttir afhendir blindri
stúlku fyrsta gripinn á fimmtu-
dag.
Þetta eru önnur jólin sem
Leonard lætur hanna skart-
grip til styrktar góðu málefni en
fyrir síðustu jól seldi verslunin
hálsmenið Hjartaarfa til styrktar
hjartveikum börnum.