Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2009, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2009, Page 5
fréttir 2. desember 2009 miðvikudagur 5 Guðmundur Birgisson, frændi auðkonunnar Sonju Zorrilla, veitti Landakotsskóla myndarlegan styrk úr minningarsjóði frænku sinnar. Á sama tíma gegndi sambýlis- kona hans stöðu gjaldkera foreldrafélags skólans og þar ganga börn þeirra í skóla. STYRKTI SKÓLA BARNA SINNA Minningarsjóður auðkonunnar Sonju Zorilla, Sonja Foundation, veitti nokkurra milljóna króna styrk til Landakotsskóla. Styrkurinn gildir fyrir ákveðið tímabil og enn á loka- greiðsla eftir að berast frá sjóðnum. Þegar styrkurinn var veittur var sam- býliskona annars sjóðsstjórans starf- andi gjaldkeri foreldrafélags skólans og börn hans sóttu þar nám. Erfiðlega gengur að fá upplýsing- ar um styrkveitingar úr minningar- sjóði Sonju sem lét eftir sig mikil auð- ævi og áttu þau að mestu að renna í sjóðinn til að styrkja börn til náms og heilsu. Hvorugur sjóðsstjórinn, Guð- mundur Birgisson frændi Sonju eða bandaríski lögfræðingurinn John Ferguson lögmaður Sonju til margra ára, gefur svör og bera báðir því við að sjóðurinn sé einkasjóður. Nokkr- ar úthlutanir hafa farið fram hér á landi og sú síðasta sem DV gróf upp er styrkur til Landakotsskóla upp á nokkrar milljónir króna. Vel þeginn styrkur DV hefur heimildir fyrir því að Sonja Foundation hafi einnig veitt mynd- arlegan styrk í símasöfnun til styrkt- ar endurhæfingardeild Grensáss. Sigríður Hjálmarsdóttir, skólastjóri Landakotsskóla, staðfestir að skól- inn hafi hlotið myndarlegan styrk úr minningarsjóði Sonju. Aðspurð segir hún styrkinn upp á nokkrar milljón- ir sem hafi komið sér vel fyrir starf- semi skólans. „Já, við fengum styrk frá þeim, ég get staðfest það og hann var vel þeginn og hefur komið sér vel. Styrkurinn var ágætlega stór og gildir fyrir ákveðið tímabil. Síðasta greiðsla hefur ekki enn farið fram en við höf- um fengið stærstan hluta hans,“ segir Sigríður. „Við sóttum um og fengum styrk sem var ágætlega hár. Ég held að sjóðsstjórarnir vilji almennt ekki ræða sjóðinn en það hafa ýmsir feng- ið styrki. Fólkið sjálft vill ekki auglýsa sig og umræðan um að verið sé að veita út sjóðnum er ekki rétt.“ Skóli barnanna Sjóðsstjórarnir segja hins vegar enga aura að fá úr sjóðnum. Í svör- um sjóðsstjóranna kemur fram að sjóðurinn, Sonja Foundation, sé yf- irskuldbundinn í ár og allt næsta ár. Umsækjendum er óskað velfarnaðar í öðrum styrkjaumleitunum sínum. Þetta kemur fram í svarbréfi banda- ríska lögfræðingsins Johns Ferguson, annars af tveimur sjóðsstjórum, til umsækjanda um miðjan nóvember- mánuð. Það vekur athygli að Unnur Jó- hannsdóttir, sambýliskona Guð- mundar, gegndi embætti gjaldkera foreldrafélags Landakotsskóla þegar styrkurinn úr minningarsjóðnum var veittur. Á sama tíma sóttu börn þeirra nám við skólann og því veitti Sonja Foundation myndarlegan styrk til skólans sem börn annars sjóðsstjór- ans ganga í. Við vinnslu fréttarinnar voru gerðar ítrekaðar tilraunir til að ræða málefni minningarsjóðsins við Guð- mund en án árangurs. TrauSTi hafSTeinSSon blaðamaður skrifar: trausti@dv.is „Ég held að sjóðsstjór- arnir vilji almennt ekki ræða sjóðinn en það hafa ýmsir fengið styrki. Fólkið sjálft vill ekki auglýsa sig og um- ræðan um að verið sé að veita úr sjóðnum er ekki rétt.“ Málaferli vegna húsaleigu Fasteignafélagið Rauðsvík ætlaði að stefna leikkonunni Ágústu Evu Erlendsdóttur. Sættir náðust hins vegar í málinu og af því kom ekki til málaferla. Björgólfsfeðg- ar komu þó ekki nærri málinu, líkt og sagt var frá, því Rauðsvík tilheyrir eignarhaldsfélaginu Samson sem tekið hefur verið til gjaldþrotaskipta og er stjórnað af skiptastjóra. Ástæðan fyrir málaferlunum var að Ágústa skuldaði húsaleigu. Rauðsvík á fasteignir í miðbæ Reykjavíkur, meðal annars húsið sem Ágústa býr í. Intrum mun hafa sent Ágústu innheimtu- bréf vegna húsaleiguskuldarinn- ar og þegar ekki var gengið frá skuldinni átti að höfða mál gegn henni. Svo tókust sættir í málinu á endanum og því kom ekki til dómsmáls. Stal flatskjám og heimabíói Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann á fimmtugsaldri í tíu mánaða fangelsi fyrir fjársvik og skjalafals. Hann sveik út vörur í nokkrum verslunum og framvís- aði beiðnum um úttektir á vöru, sem hann hafði falsað frá rót- um á almenn úttektareyðublöð. Stimplaði maðurinn eyðublöðin með nöfnum og kennitölum ým- issa fyrirtækja. Hann sveik meðal annars út þrjú sjónvarpstæki að verðmæti 1,2 milljónir úr verslun Heimilis- tækja. Símsendi maðurinn versl- uninni falsaða úttektarbeiðni, stimplaða með nafni Samherja, um afhendingu á LCD-skjám. Þá sveik hann út úr verslun Nýherja þrjú sjónvarpstæki og heimabíó- kerfi í júlí 2006. engin svör Guðmundur veitir engin svör um úthlutanir úr minningarsjóði frænku sinnar. Myndarlegur styrkur Landakotsskóla var úthlutaður myndarlegur styrkur úr minningarsjóðnum Sonja Foundation. Catalina Mikue Ncogo var dæmd í tveggja og hálfs árs fangelsi fyr- ir vændisstarfsemi og fíkniefnabrot í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Hún var aftur á móti sýknuð af ákæru um mansal en þetta var í fyrsta sinn sem ákæra um mansal var gefin út hér á landi. Catalina var ákærð í haust fyrir að hafa blekkt konu til Íslands, haldið henni í kynlífsánauð og selja körlum aðgang að henni. Þá var hún ákærð fyrir að lifa á vændi fjölda kvenna. Catalina var einnig sakfelld fyrir aðild að fíkniefnainnflutningi hingað til lands. Það mál varðaði tvær belg- ískar konur og einn belgískan karl- mann sem tekin voru með kókaín innvortis við komu sína í Leifsstöð í vor. Dómurinn yfir Catalinu er óskil- orðsbundinn. Catalina var ekki viðstödd dóms- uppkvaðninguna en er sögð ætla að áfrýja dómnum. Þá var 43 ára gamall karlmað- ur, Finnur Bergmannsson, dæmd- ur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að aðstoða Catalinu við vændisstarfsemina. Catalina hefur verið mjög áberandi í fjölmiðlum á þessu ári og var í opin- skáu forsíðuviðtali við Vikuna meðal annars. Það sagði hún ekkert laun- ungarmál að hún væri vændiskona og að hún væri mjög eftirsótt sem slík. „Stelpurnar rukka 25 þúsund en ég sjálf rukka 50 þúsund fyrir samfar- ir. [...] Ég er svarta perlan og þeir vilja svona Barbie-stelpu. Ég tek aðeins sérstaka kúnna og geri þetta því ekki oft,“ sagði Catalina í viðtalinu. Þá stað- hæfði hún að háttsettir stjórnmála- menn, meðal annars ráðherrar, væru meðal kúnna hennar. Catalina Mikue ncogo dæmd í tveggja og hálfs árs fangelsi: Sýknuð af mansalsákæru Svarta perlan Í viðtali við Vikuna fyrr á árinu sagðist Catalina vera svarta perlan og því rukka meira fyrir samfarir en hinar vændiskonurnar. Mynd heiða helGadóTTir www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Airfree lofthreinsitækið Byggir á nýrri tækni sem eyðir • Svifryki, myglusveppi og ólykt • Gæludýraflösu og bakteríum • Vírusum og öðrum örverum • Er hljóðlaust og viðhaldsfrítt • Tilvalið á heimilið og skrifstofuna Hæð aðeins 27 cm Betra loft betri líðan Opið laugardaga til jóla kl. 11-16

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.