Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2009, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2009, Síða 6
Eignarhaldsfélagið L&H, sem var í eigu fjárfestanna Karls og Steingríms Wernerssona og hélt utan um eign- arhluta þeirra í lyfjaverslunum Lyfja og heilsu, veitti eignarhaldsfélaginu Aurláka tæplega 900 milljóna króna lán þegar síðarnefnda félagið keypti Lyf og heilsu í lok mars í fyrra. Aurláki er einnig í eigu þeirra bræðra. Lyfja- verslanirnar voru seldar út úr Mile- stone-samstæðu bræðranna fyrir rúmlega 3,4 milljarða króna með yf- irtöku skulda, seljendaláni og skulda- jöfnun. Tæplega 2,55 milljarðar af kaupverðinu voru greiddir með yfir- töku skulda en eftirstöðvarnar, tæp- ar 900 milljónir króna, voru greiddar með seljendaláni frá L&H Eignar- haldsfélagi, sem var í eigu Milestone. Athygli vekur að forstjóri Milestone, Guðmundur Ólason, skrifaði undir kaupsamninginn fyrir hönd beggja aðila. Bræðurnir eiga Lyf og heilsu enn þrátt fyrir að eignarhaldsfélag þeirra, Milestone, hafi verið tekið til gjald- þrotaskipta og helstu eignir þess teknar yfir af stærstu kröfuhöfum fé- lagsins. Salan á Lyfjum og heilsu er þó einn af þeim gerningum sem skipta- stjóri þrotabús Milestone, Grímur Sigurðsson, hefur til skoðunar um þessar mundir. Verið er að skoða hvort viðskiptin geti verið riftanlegur gjafagerningur í skilningi gjaldþrota- laga. Hægt er að rifta slíkum viðskipt- um ef útséð þykir að eigendur Mile- stone hafi verið að koma Lyfjum og heilsu undan búi Milestone og því hafi félagið beðið skaða af viðskipt- unum. Skuldajafnaði við L&H Í endurskoðendaskýrslu Ernst & Young um starfsemi Milestone, sem kynnt var kröfuhöfum í september, er rætt um söluna á Lyfjum og heilsu. Þar kemur fram að í samningnum um kaupin á Lyfjum og heilsu segi að hin tæplega 900 milljóna króna skuld Aurláka vegna seljendalánsins skuli færð sem viðskiptaskuld milli kaup- anda og seljenda og greiðast „við fyrsta hentugleika“. Þessi skuld Aurláka var gerð upp í júlí 2008, samkvæmt heimildum DV. Hún var gerð þannig upp að Aurlák- ur og Moderna Finance, sem var í eigu Milestone, skuldajöfn- uðu við- skiptakröf- ur upp á tæplega 1000 millj- ónir króna sem félögin áttu á hendur hvort öðru. Í kjölfarið skuldaði Aurláki, félag þeirra Karls og Steingríms, Moderna ekki neitt og lyfjaverslanirnar Lyf og heilsa voru komnar út úr Milestone og til félags í þeirra eigu: „Þessi skuld var borguð með skuldajöfnunum,“ segir heimildarmaður DV. Keypti kröfur af félagi í skattaskjóli Aurláki var stofnað- ur í ársbyrjun 2008 og hafði ekki verið í neinum fjárfestingum áður en félag- ið keypti Lyf og heilsu og því kann að hljóma einkennilega að félagið hafi átt viðskipta- kröfur á hendur Moderna. Ástæð- an fyrir því er hins vegar sú Aurláki keypti viðskipta- kröfur upp á 970 milljónir á hendur Moderna af félagi þeirra Wernersbræðra, Leiftra-limit- ed, sem skráð var á skattaskjólinu Seychelles-eyjum. Aurláki greiddi hins vegar ekki fyrir þessar viðskipta- kröfur heldur skuldsetti félagið sig fyrir þeim við Leiftra, samkvæmt heimildum DV. Viðskiptakröfurnar voru komnar til Leiftra frá Milestone sem skuldaði félaginu nærri milljarð króna. Ekki er vitað hvernig Mile- stone stofnaði til þessarar skuldar við Leiftra. Samkvæmt þessu, og eftir því sem næst verður komist, skuldar Aur- láki því enn allt kaupverðið fyr- ir Lyfjum og heilsu því félagið keypti félagið í raun einung- is með yfirtöku á skuldum og hefur því væntanlega ekki greitt neitt fyrir það þá. Óvíst er hins vegar hvern- ig Aurláki stendur í dag. Sitt sýnist örugglega hverjum um þessi við- skipti. En einn af heimild- armönnum DV sem blaðið ræddi við um málið segir þó að þessi viðskipti hljómi að minnsta kosti eins og þau séu frekar óeðlileg. „Þetta er frekar óeðlilegur greiðslumáti,“ segir einn þeirra, sem er innanbúðarmað- ur í íslensku fjármálalífi. Eykur líkurnar á riftun Sú staðreynd að skuldin við Moderna var greidd með slíkri skuldajöfnun á milli félaga í eigu Karls og Stein- gríms eykur líkurnar á því að við- skiptunum með Lyf og heilsu verði rift af kröfuhöfum félagsins. „Ef það er verið að skuldajafna á milli aðila á þennan hátt og færa peninga á milli félaga eins og gert var þarna þá ætti að vera hægt að rifta því,“ segir lög- fræðingur úr bankakerfinu sem DV ræddi við. Umsjónarmaður nauðasamninga Milestone, Jóhannes Albert Sævars- son, skrifaði skýrslu um starfsemi Milestone með nauðasamningum Milestone sem hafnað var af kröfu- höfum félagsins í september. Þar komst hann svo að orði þegar hann ræddi um viðskipti Milestone: „Það er því mat umsjónarmanns að eign- ir Milestone hafi verið færðar und- an félaginu án raunverulegs end- urgjalds og að um gjafagerning í skilningi 131 gr. hafi verið að ræða milli nákominna aðila. Slík ráðstöf- un er riftanleg nema leitt sé í ljós að skuldari hafi verið gjaldfærð og það þrátt fyrir afhendingu gjafarinnar.“ Þessi dómur gæti átt við um söluna á Lyfjum og heilsu. Fyrsti skiptafundur kröfuhafa Milestone verður líkast til haldinn þann 21. desember og má búast við að slíkar mögulegar riftanir muni koma til tals þar, meðal annars hvað gera eigi varðandi söluna á Lyfj- um og heilsu út úr Milestone. Ætla má að umræða um söluna á Lyfjum og heilsu út úr Milestone verði þar mörgum ofarlega í huga. 6 miðvikudagur 2. desember 2009 fréttir Félag Karls og Steingríms Wernerssona, Aurláki, eignaðist Lyf og heilsu í fyrra með yf- irtöku skulda, seljendaláni frá Moderna og skuldajöfnun. Heimildarmaður DV segir að skuldajöfnunin sem notuð var til að greiða skuld Aurláka kunni að auka líkurnar á að þrotabú Milestone rifti sölunni á Lyfjum og heilsu. Aurláki keypti viðskiptakröfuna sem var skuldajöfnuð af félagi í eigu Wernersbræðra sem er í skattaskjóli á Seychelles-eyjum. KEYPTU KRÖFURNAR Í SKATTASKJÓLI „Ef það er verið að skuldajafna á milli að- ila á þennan hátt og færa peninga á milli félaga eins og gert var þarna þá ætti að vera hægt að rifta því.” IngI F. VILHjáLmSSon blaðamaður skrifar ingi@dv.is Skuldajöfnuðu upp í Lyf og heilsu Félag í eigu Karls og Steingríms Wernerssona gekk frá útistandandi skuld við Milestone upp á nærri 900 milljónir króna með skuldajöfnun. Skuldin var tilkomin vegna kaupa félags þeirra á Lyfjum og heilsu í lok mars í fyrra. Báðum megin við borðið Guðmundur Ólason, forstjóri Milestone, skrifaði undir lánasamninginn fyrir hönd L&H Eignarhaldsfélags og Aurláka. StærStu kröfuhafar mileStone Samkvæmt SkýrSlunni um nauðaSamninga mileStone: glitnir Rúmir 43,9 milljarðar Straumur Tæpir 5,8 milljarðar moderna Finance AB Tæpir 5,3 milljarðar Sjóvá Tæpir 4,3 milljarðar Sj2 ehf. Rúmur 4,1 milljarður Keyptu af sjálfum sér Bræðurnir Karl og Steingrímur Wernerssynir keyptu Lyf og heilsu af sjálfum sér í fyrra. Fjármögnun kaupanna var sérstök: yfirtaka skulda, seljendalán og skuldajöfnun. Nefbraut mann á Tunglinu Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í 30 daga skil- orðsbundið fangelsi fyrir að nef- brjóta mann á skemmtistaðnum Tunglinu á síðasta ári. Þá var honum gert að greiða fórnar- lambi árásarinnar 200 þúsund krónur í skaðabætur. Maðurinn játaði brot sitt fyrir dómi en fullnusta refsingarinnar fellur niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði skilorð. Tólf greindust með HIV sýkingu Það sem af er þessu ári hafa tólf manns greinst með HIV sýkingu á Íslandi. Af þeim eru fjórir karlmenn og átta konur. Fjórar íslenskar konur eru í þessum hópi en hin átta sem greinst hafa eru af erlendu bergi brotin. Þetta kemur fram á vef Landlæknisembættisins. Íslensku konurnar sem greinst hafa eru á aldrinum 17 til 48 ára og hafa þær allar sögu um fíkniefnaneyslu með sprautunotkun í æð. Hinir átta teljast hafa smitast með kynmökum. Enginn samkyn- hneigður hefur greinst með smit á árinu og enginn hefur greinst með alnæmi, lokastig sjúkdómsins. Engin uppbót fyrir atvinnulausa Desemberuppbót er ekki greidd úr atvinnuleysistrygg- ingasjóði og verða greiðslur því með hefðbundnu sniði þessi mánaðamótin. Þetta kemur fram á vef Vinnumála- stofnunar og kemur þar fram að vegna fjölda fyrirspurna vilji stofnunin koma þessu á framfæri. Vinnumálastofnun greiddi á þriðjudag rúmlega 1,84 milljarða króna í atvinnuleys- isbætur fyrir nóvember til um 14.100 einstaklinga. Neyðarkall frá Fjöl- skylduhjálpinni Matarkistur og skápar Fjöl- skylduhjálpar Íslands eru tóm og því biðlar Fjölskylduhjálpin til þjóðarinnar um aðstoð fyrir jólin. Í tilkynningu frá Fjölskyldu- hjálpinni kemur fram að hátt í 16.000 einstaklingar séu nú án atvinnu auk þeirra þúsunda, sem minna mega sín í þjóðfélag- inu. Stór hópur þessa fólks reiðir sig á aðstoð Fjölskylduhjálpar- innar nú um hátíðirnar. Tekið er á móti fatnaði og matföngum að Eskihlíð 2-4 í Reykjavík þriðjudaga kl. 9-13, miðvikudaga kl. 9-18 og fimmtu- daga kl. 9-13. Símar Fjölskyldu- hjálparinnar eru 551 3360 og 892 9603. Einnig er tekið á móti framlögum á reikning Fjöl- skylduhjálpar Íslands bnr. 101- 26-66090, kt. 660903-2590.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.