Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2009, Side 22
Forseti Ísland greindi frá því á þriðjudagsmorgun að út-rásarvíkingar hefðu misnot-að traust hans. Svarthöfði vill
þakka forsetanum fyrir hugdirfskuna,
því það er ekki auðvelt að stíga svona
fram. Um leið má forsetinn vita að
hann er ekki einn. Svarthöfði var líka
misnotaður af útrásarvíkingum.
Þeir létu mig fljúga með einka-flugvélum um allan heim. Svo létu þeir mig bjóða sér á einkafundi og þröngvuðu
upp á mig styrkjum í þágu góðra
málefna. Þeir létu mig djamma í há-
sölum menningarinnar með
frægasta fólki í heimi. Þeir létu
mig drekka kampavín og tróðu
ofan í mig kavíar í tíu þúsund
fetum. Og ég drekk ekki einu
sinni kampavín!
Ég var píndur tvisvar til Pétursborgar til að styðja Björgólfs-feðgana. Svo var ég
dreginn til Danmerkur með
einkaþotu 2007 og notaður
sem leikmun-
ur í leikriti FL
Group. Ég var
brottnuminn
til Búlgaríu
með Novator-
þotunni og
látinn básúna
um ágæti ís-
lenskra fyrir-
tækja, meðan
Björgólfur
Thor tók sér
stöðu í spilltu
viðskiptalíf-
inu. Ég var
dreginn á
asnaeyrunum
til Leeds til
að leggja blessun yfir starfsemi Eim-
skipafélagsins. Mér var komið til Katar
á sama tíma og Sigurður Einarsson
plottaði einhvern leik með sjeik. Svo
var ég sjanghæjaður til Sjanghæ 2007
og ég hlutgerður sem tákn þjóðarinn-
ar í útrás Glitnis í Kína. Fluttur var ég
nauðugur til New York og mér haldið í
hálfgerðri gíslingu í glæsiveislu Glitnis
2007. Þar létu þeir mig mæra sig!
Þá létu þeir mig halda ræður um eðlislæga snilld þeirra, sem væri öðrum þjóð-
um meiri. Þeir gerðu mig að
rasista. Ég var látinn segja:
„Útrásin er byggð á hæfni og
getu, þjálfun og þroska sem
einstaklingar hafa hlotið og
samtakamætti sem löngum
hefur verið styrkur okkar Ís-
lendinga.“ Og: „Lykillinn að
árangrinum sem útrásin hefur
skilað er fólginn í menning-
unni, arfleifðinni sem nýjar kynslóðir
hlutu í vöggugjöf!“ Og svo: „Raunar
má leika sér með þá hugsun að land-
námsöldin sé á vissan hátt upphafið
að þessu öllu saman!!“
Eftir að hafa verið ferjaður um allan heim og misnotaður sem strengjabrúða útrásar-víkinga var ég loks dreginn til
ábyrgðar. En þetta var ekki mér að
kenna. Þeir létu mig gera þetta!
Ég, sem var kommúnisti, er kallaður útrásargrúppía. Eins og nunna sem gerist gleði-kona. En enginn þekkir bet-
ur en ég kvalir hins kampavínsfyllta
maga sem tekur á loft í einkaþotu og
lendir á víxl. Enginn veit eins og ég
hversu útsmognir útrásarvíkingar geta
verið þegar þeir draga mann á tálar
og nema mann á brott í hildarleik
hórdómsins. Á daginn mærði ég út-
rásarvíkingana út um allan heim, en á
kvöldin lá ég í fósturstellingu á sturtu-
botni úr marmara á mestu lúxushótel-
um veraldar.
Ólafur, þú ert ekki einn!
Útrásarvíkingar
misnotuðu mig
Spurningin
„Það segir
mamma og hún
lýgur ekki,“ segir
Andri Snær
Magnason sem
hlaut tilnefningar
bæði í flokki
fagur- og
fræðibókmennta
í netkosningu
sem var haldin í
tilefni tuttugu ára afmælis Íslensku
bókmenntaverðlaunanna.
telur þÚ þig bæði
fagran og fróðan?
„Í dag eru nú
einfaldlega of
margir á Alþingi
sem eiga ekkert
erindi þangað inn og gera
meiri skaða en gagn.“
n Halldór Halldórsson, bæjarstjóri í
Ísafjarðarbæ, er ekki sáttur við alla þingmenn.
- DV
„Svo er umslagið hálfpart-
inn eins og merkimiði í
laginu og það má alveg
nota plötuna sem merki-
miða.“
n Sigurður Guðmundsson og Memfismafían
að gefa út nýja plötu. - Fréttablaðið
„Það yrði ekkert leiðinlegt
að hefja ferilinn með
Reading í þeim leik.“
n Gunnar Heiðar Þorvaldsson gæti samið við
Reading og spilað fyrsta leik í bikarnum gegn
Liverpool. - Fréttablaðið
„Við slátruðum þeim
bara.“
n Magnús Gunnarsson, fyrirliði Njarðvíkur í
körfubolta, var ánægður með sigurinn á
erkifjendunum í Keflavík. - Fréttablaðið
„Svo virðist
sem margir
útrásarvík-
ingar hafi
misnotað
það traust
sem ég, stjórnvöld og
meirihluti þjóðarinnar
sýndi þeim.“
n Ólafur Ragnar sendi útrásarvíkingum sneið í
Morgunútvarpinu. - Rás 2
Fjöldagröf hugtakanna
Leiðari
Undanfarna mánuði hafa stjórn-málamenn náð að eyðileggja hvert hugtakið á fætur öðru í tilraun-um sínum til að tala upp ímynd-
aðar lausnir á kreppunni. Strax í upphafi
kreppunnar varð ljóst að tengsl raunveru-
leikans og yfirlýsinga stjórnmálamanna væru
takmörkuð. Hugtakinu „skjaldborg“ var
hleypt af stokkunum í þeim tilgangi að sefa
réttmætar áhyggjur fjölskyldnanna í land-
inu. Hugmyndin var að slík skjaldborg myndi
tryggja að heimilin nytu verndar gegn ásókn
bankanna og niðursveiflu í efnahagslífinu.
Í stað verndarinnar kom árásin. Réttur
banka til að hækka lán var tryggður og ríkis-
stjórnin bættist í árásarhópinn með stórfelld-
um skattahækkunum á neysluvörur og tekj-
ur, sem síðan leiddu til enn frekari hækkunar
á lánunum. Margir hafa leitað skjaldborgar-
innar, en hvergi fundið hana. Enda liggur hún
grafin í fjöldagröf merkingarlausra hugtaka
stjórnmálamanna.
Orðið „gegnsæi“ var eitt af slagorðum nýju
ríkisstjórnarinnar. Það öðlaðist nýja vídd þeg-
ar Steingrímur J. lýsti því yfir á dögunum að
„… sumar ástæður þess að Icesave-málið verð-
ur að klára sem fyrst í þinginu eru ekki þess
eðlis að hægt sé að greina frá þeim í ræðustól
Alþingis.“ Það er vont fyrir gegnsæi að breytast
í þagnarmúr. Það er hins vegar farið að sjást í
gegnum orð Steingríms í þessum efnum.
Þegar Ögmundur Jónasson vildi segja skil-
ið við ríkisstjórnina voru stjórnarliðar sam-
mála um eitt; að Icesave-málið væri ekki eins
mikilvægt og að viðhalda velferðarstjórn að
norrænni fyrirmynd á Íslandi. Nú stendur
fyrirmyndin ein eftir, líkt og hilling. Þrátt fyr-
ir ákvæði í stjórnarsáttmálanum og ítrekaðar
yfirlýsingar stjórnarformanna um norræna
velferðarstjórn kom sá dagur í síðustu viku að
Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra kynnti
niðurskurð á stysta fæðingarorlofi Norður-
landa í annað skipti á einu ári.
Niðurskurðurinn vinnur gegn jöfnuði, fé-
lagslegu réttlæti, samhjálp og kvenfrelsi. Þessi
fjögur hugtök voru einmitt nefnd í samstarfs-
yfirlýsingu stjórnarflokkanna í maí, ekki sem
víti til að varast, heldur sem ný gildi sem ríkis-
stjórnin myndi „leiða til öndvegis“ í alþingis-
kosningunum. Meira að segja „öndvegi“ er að
verða óskiljanlegt.
Norræn velferðarsamfélög eru gnægtar-
þjóðfélög. Helsta einkenni Íslands er hins
vegar efnahagslegt hrun. Menn gætu rétt eins
ætlað sér að viðhalda regnskógi á Melrakka-
sléttu, miðað við stöðuna nú.
Fæst bendir til að norrænt velferðarsam-
félag og tilheyrandi hljómfögur hugtök verði
að veruleika næstu 15 árin í það minnsta. En
hvers vegna var okkur talin trú um það? Það
þarf ekki að leita langt í hugardjúp stjórn-
málamannanna til að rekast þar á sjálfan til-
gang starfa þeirra. Þeir vildu halda völdum.
Þeir stjórnmálamenn sem ekki vilja halda
völdum vilja ná völdum. Til þess beita þeir
oft sambærilegum hugtakalygum, ekki til að
fegra, heldur til að sverta. Þannig hafa þing-
menn ítrekað sakað ráðherrana um landráð
vegna Icesave-málsins. Líkt og það séu hrein
landráð að borga skuldir. Þingmennirnir vita
kannski eitthvað sem útrásarvíkingar kunna,
en almenningur ekki.
Jón trausti reynisson ritstJóri skrifar. Margir hafa leitað skjaldborgarinnar, en hvergi fundið hana.
bókStafLega
22 MiðvikudAgur 2. desember 2009 uMræðA
Sandkorn
n Jóhann Páll Valdimarsson,
forstjóri Forlagsins, er fjölhæfur
maður. Hann er á meðal gleggstu
manna þegar kemur að bókum
sem eru góð söluvara en hann
er einnig
magnaður
ljósmynd-
ari og hefur
sú árátta
hans færst
í aukana.
Fréttablaðið
vakti athygli
á því að Jó-
hann Páll tók kápumyndina af
Vigdísi Finnbogadóttur á ævi-
sögu hennar og hefur myndað
fleiri höfunda. Lengi vel var það
helsta áhugamál Jóhanns Páls
að mynda íslenskar kýr af öllum
stærðum og gerðum.
n Það hefur heldur lifnað yfir
Bylgjunni á morgnana eftir að
Gissur Sigurðsson, fréttamað-
ur og gleðigjafi, mætti aftur eftir
langt frí. Gissur fór á kostum í
Bítinu í gærmorgun og þóttist
hafa notað tímann til að skipta
um nafn. Nú héti hann Ari Jón.
Hann leið-
rétti það
síðan en lýsti
því að hann
hefði í fyrstu
ekki fundið
skrifborð-
ið sitt þegar
hann sneri
aftur. Síðar
hefði komið á daginn að búið
væri að færa hann inn í íþrótta-
deild í fyrsta sinn á starfsævinni.
n Halla Tómasdóttir, stjórn-
arformaður og eigandi Auð-
ar Capital, kemst af við flestar
aðstæður. Halla var einkar vin-
sæl hjá útrásarfyrirtækjum og
var meðal annars næststærsta
stjarnan á
Baugsdeg-
inum fræga
í Mónakó.
Aðeins Tina
Turner
skyggði á
hana. Nú
blómstrar
Halla á Nýja-
Íslandi og var meðal annars í
stóru hlutverki á þjóðfundinum
fræga. Nú síðast var hún fund-
arstjóri á upplestri þar sem höf-
undar hrunbóka lásu úr verkum
sínum sem ganga út á ruglið í
útrásinni.
n Margir undrast hversu hljótt
er um Ögmund Jónasson. Hann
fórnaði sér fyrir Icesave og sagði
sig úr ríkisstjórninni. Raunveru-
leikinn er allt í einu sá að póli-
tísk framtíð hans kann að vera
ótrygg. Þeir eru til sem telja að
Ögmundur sé einfaldlega skelf-
ingu lostinn
yfir stöð-
unni eftir að
hafa farið
með himin-
skautum.
Við þær
aðstæður
getur verið
skynsam-
legt að halda sér til hlés, sleikja
sárin og sættast við ráðandi öfl
í VG.
LyngháLs 5, 110 ReykjavÍk
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: sverrir arngrímsson
ritStjórar:
jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
elísabet austmann, elisabet@birtingur.is
dv á netinu: dv.is
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050.
SmáauglýSingar: 515 5550.
umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.