Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2009, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2009, Blaðsíða 25
Heil umferð Hjá körlunum Það er boðið upp á heila umferð í N1- deild karla á fimmtudagskvöldið en þá hefst önnur umferðin í deildinni. Mikill fallslagur verður á Seltjarnarnesi þar sem Grótta tekur á móti Fram en Framara sárvantar stig þar sem þeir sitja á botni deildarinnar. Topplið Vals heldur til Akur- eyrar og þarf ekkert minna en sigur til að halda sætinu þar sem Haukarnir fá Stjörnuna í heimsókn en þar má búast við afar auðveldum sigri Íslandsmeist- aranna. Síðasti leikurinn er viðureign FH og HK í Kaplakrika en liðin skildu jöfn þegar þau mættust í fyrstu umferð. Allir leikirnir hefjast klukkan 19.30. UMSjóN: TóMAS Þór ÞórðArSoN, tomas@dv.is sport 2. desember 2009 miðvikudagur 25 Njótum aðventunnar saman tvö lið ósigruð n Eftir ellefu leikvikur í NFL-deild- inni eru tvö lið enn þá ósigruð. Það eru Indianapolis Colts og New Or- leans Saints. Það síðarnefnda gekk í gegnum mikla próf- raun á mánu- dagskvöldið þegar það atti kappi gegn New England Patriots í mánudags- leiknum sem jafnan fær gífurlegt áhorf. Saints fóru létt með Tom Brady og félaga, 38-17. Colts fóru létt í gegnum þessa leikvikuna, eins og flestar aðrar, enda Peyton Manning verið í gífurlegu formi. Flestir búast við að sjá þessi tvö lið mætast í Super- bowl og hlakka mikið til. vill endurgreiðslu n Mark Robins, knattspyrnustjóri enska Championship-liðsins Barnsley, sem Emil Hallfreðsson leikur með, vill að dómari leiksins gegn Plymouth um helgina endur- greiði stuðningsmönnum pening- ana sem þeir borguðu inn. Dómari flautaði leikinn af eftir 58 mínútur þegar Barnsley leiddi leikinn, 4-1. „Hann ætti að endurgreiða öllum okkar stuðningsmönnum. Þeir eyddu miklum peningum í að ferðast í átta klukkutíma og gista á hóteli til að horfa á okkur spila og nú þurfa þeir að gera það aftur,“ segir Robins sem var ekki sáttur við ákvörðunina að flauta leikinn af. alfreð skrifar undir n Alfreð Gíslason hefur skrifað undir nýjan samning við þýska meistaralið- ið Kiel. Hann þjálfar því liðið fram á mitt ár 2014 en fyrri samningur- inn gilti fram á árið 2011. Alfreð tók við Kiel síðastliðið sumar eftir að hann hætti sem þjálfari íslenska landsliðsins og stýrði liðinu til sigurs í deild og bikar ásamt því að leika til úrslita í meistaradeild Evrópu. Þá setti Kiel stigamet í þýsku 1. deildinni í vor þegar það fékk 65 stig af 68 mögulegum í 34 leikjum. MOLAR Lionel Messi hlaut á þriðjudags- morguninn Gullbolta Evrópu eða Ballon d’Or. Þau verðlaun hlýtur sá er þykir besti knattspyrnumaður Evrópu á hverju ári en það er tíma- ritið France Football sem stend- ur að verðlaununum í samstarfi við fótboltafjölmiðla um álfuna. Messi hlaut 473 stig í kosningunni og vann með yfirburðum. Svo mikl- um yfirburðum að annað eins hefur ekki sést. Næsti maður í kjörinu var Portúgalinn Cristiano Ronaldo sem hlaut verðlaunin í fyrra. Á eftir Ron- aldo komu tveir liðsfélagar Messi hjá Barcelona, þeir Xavi og Iniesta, en katalónsku risarnir unnu allt það sem í boði var í fyrra, deild, bikar og meistaradeildina. Messi óstöðvandi Enginn hefur dregið í efa val fjöl- miðlamanna þetta árið enda átti Messi ótrúlegu gengi að fagna á síð- asta tímabili. Með hann í rafmögn- uðu formi vann Barcelona þrjá stærstu titla síðasta árs. Það varð spænskur meistari með nokkrum yf- irburðum, vann spænska bikarinn í fyrsta skipti í langan tíma og hamp- aði sigri í meistaradeildinni með 2-0 sigri á Manchester United í úrslita- leik. Messi skoraði alls 38 mörk í öll- um keppnum á síðasta ári. Hann rað- aði inn í deildinni, skoraði sex mörk í átta leikjum í bikarnum og heil níu í meistaradeildinni. „Ég bjóst ekki við að vinna með svona miklum mun,“ sagði Messi hrærður við afhendinguna. „Gull- boltinn er mjög mikilvægur fyrir mig. Allir þeir leikmenn sem hafa unn- ið hann eru frábærir leikmenn og sumir frábærir leikmenn unnu aldrei þessi verðlaun,“ sagði þessi 22 ára gamli Argentínumaður. Í ár hefur Messi átt nokkuð erfitt uppdráttar. Eins magnaður og hann er nú venjulega fyrir framan mark- ið með sína ótrúlegu skottækni vill boltinn oft á tíðum ekki inn hjá þess- um snillingi. Það hefur samt lítið sem ekkert skaðað Barcelona á tímabil- inu sem er efst í deildinni eftir sigur á Real Madrid í El Clásico um síðast- liðna helgi. Enska deildin neðarlega Sjö efstu leikmenn í vali þessa árs spila annað hvort á Spáni eða Ítalíu að undanskildum Ronaldo sem lék með ensku liði síðastliðið ár en er nú á mála hjá Real Madrid. Efsti leik- maðurinn úr ensku úrvalsdeildinni var Wayne Rooney sem hlaut 35 stig í áttunda sætið en á hæla hans komu Didier Drogba hjá Chelsea og Steven Gerrard hjá Liverpool. Einnig kom- ust á lista þeir Fernando Torres, Cesc Fabregas, Ryan Giggs, Nemanja Vi- dic, Frank Lampard og John Terry. Ef eitthvað kom meira á óvart en annað má taka út Bosníu-manninn Edin Dzeko sem varð meistari með Wolfsburg í maí en hann varð í þrett- ánda sæti í valinu. Hann átti vissu- lega góðu gengi að fagna í deildinni en Grafite, samherji hans í framlínu Wolfsburgar sem varð markahæstur í þýsku deildinni, varð ekki á meðal þrjátíu efstu. TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON blaðamaður skrifar: tomas@dv.is TÍU EFSTU Í VALINU 1. Lionel Messi (Barcelona), 473 stig 2. Cristiano Ronaldo (Real Madrid), 233 3. Xavi (Barcelona), 170 4. Andres Iniesta (Barcelona), 149 5. Samuel Eto’o (Inter Milan), 75 6. Kaka (Real Madrid), 58 7. Zlatan Ibrahimovic (Barcelona), 50 8. Wayne Rooney (Man United), 35 9. Didier Drogba (Chelsea), 33 10. Steven Gerrard (Liverpool), 32. ENSKA ÚRVALSDEILDIN Í VALINU 8. Wayne Rooney (Man United), 35 stig 9. Didier Drogba (Chelsea), 33 10. Steven Gerrard (Liverpool), 32. 11. Fernando Torres (Liverpool), 22. 12. Cesc Fabregas (Arsenal), 13 14. Ryan Giggs (Man United), 11 16-18. Nemanja Vidic (Man United), 8 21-23. Frank Lampard (Chelsea), 5 26-27. John Terry (Chelsea), 2 FYRRi SIGURVEGARAR 2008: Cristiano Ronaldo, Man. United 2007: Kaká, AC Milan 2006: Fabio Cannavaro, Real Madrid 2005: Ronaldinho, Barcelona 2004: Andriy Shevchenko, AC Milan 2003: Pavel Nedved, Juventus 2002: Ronaldo, Real Madrid 2001: Michael Owen, Liverpool 2000: Luís Figo, Real Madrid Argentínski knattspyrnumaðurinn Lionel Messi fékk á þriðjudaginn hin virtu verð- laun Ballon d’Or, eða Gullbolta Evrópu, frá franska tímaritinu France Football. Þau hlýtur sá er þykir besti knattspyrnumaður Evrópu á ári hverju. Aldrei áður hefur nokkur unnið gullboltann með jafnmiklum mun. Á fullu Messi var stórkostlegur á síðasta tímabili og vann allt með Barca. MyNd AFP messi manna bestur Lionel Messi Vann Gullboltann með mesta mun sem sést hefur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.