Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2010, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2010, Síða 3
FRÉTTIR 20. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 3 TÓK SÉR 65 MILLJÓNIR Í ARÐ Í MIÐRI KREPPU n Ásbjörn er framtaksmaður í Snæfellsbæ og var forseti bæjarstjórnar fyrir Sjálfstæðisflokk- inn þar til hann settist á þing. Snæfellsbær gerði langtímasamning við Iceland Glacier Products vegna fyrirhugaðrar vatnsverksmiðju á Rifi meðan Ásbjörn var forseti bæjarstjórnar og var hann einn þeirra sem samþykktu samninginn. Hann færði Iceland Glacier Products einkarétt á vatni, sem kemur úr lindum undir Snæfellsjökli, nætu 95 árin. DV sagði frá því snemma árs í fyrra að umrætt fyrirtæki væri miðpunkturinn í fjármálamisferli sem yfirvöld í Kanada höfðu til rannsóknar. DV gekk illa að fá upplýsingar um innihald samningsins. Síðustu orð Ásbjörns á þingi fyrir nýliðin áramót flutti hann þingheimi er hann gerði grein fyrir atkvæði sínu gegn Icesave-frumvarpinu 30. desember. „Þessir samningar vega að efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar. Þeir stefna tækifærum ungra Íslendinga í voða. Alþingi Íslendinga hefur ekki leyfi til að binda hendur ófæddra Íslendinga á jafnveikum grunni og hér er gert.“ Hann sagði það eina rétta í stöðunni að þingmenn sameinuðust um að verja hagsmuni og sjálfstæði íslensku þjóðarinnar og höfnuðu Icesave-samningunum. „Ég segi nei og vísa allri ábyrgð á þessa ömurlegu Icesave- kommúnistastjórn,“ sagði Ásbjörn og uppskar hlátrasköll úr þingsal. Samdi um einkarétt á vatni dv.is F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð þriðjUdagUr 24. mars 2009 dagblaðið vísir 50. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347 Ísland eyðilagði ekki hjónabandið n albönsk kona ber til bakafrásögn eiginmannsins brUce Willis genginn út sviðsljós fótboltamönnUm boðið Í fiskvinnslU framsækið sprotafyrirtæki í uppnámi: allt vonlaUst sjö mánUðUm fyrir hrUnið n flúðu kreppuna til færeyja – fóru úr öskunni í eldinnfréttir íslenska vatnið í svika- myllu n otto spork vildi selja vatn úr snæfellsjöklin kanadÍsk yfirvöld frysta vatnssjóð n átta milljarðar króna gUfUðU Upp fólkhelgi sem ofbeldis- maðUr fréttir sammi æfir afró- dans fólk fréttir sport stríð bjarna og kristjáns hitti fors etann 24. mars 2009 Fjársvik vegna fasteignasölu til Kínverja: Einn var handtekinn „Það er enginn í haldi og það var ekki farið fram á gæsluvarðhald. Það er ekki tilefni til þess. Það á eftir að yfirheyra fleiri vitni og leggja hald á fleiri gögn. Síðan verður aftur tekin skýrsla af þeim sem búið er að yfir- heyra,“ segir Helgi Magnús Gunnars- son, saksóknari efnahagsbrotadeild- ar ríkislögreglustjóra. Ríkislögreglustjóri handtók og yf- irheyrði á þriðjudag Aron Karlsson vegna gruns um meint fjársvik þeg- ar fasteignin að Skúlagötu 51 var seld til kínverska sendiráðsins. Karl Stein- grímsson, oftast kenndur við Pelsinn, veitti sjálfviljugur skýrslu ásamt lög- manninum Gísla Gíslasyni og fast- eignasala frá Fasteignamarkaðinum ehf. Húsleit var gerð á þremur stöð- um og lagt hald á 93 milljónir króna. Segir Helgi Magnús að þeir peningar hafi verið inni á bankareikningi eign- arhaldsfélagsins 2007 sem seldi kín- verska sendiráðinu Skúlagötu 51 fyrir 870 milljónir króna. Fór salan fram á sama tíma og bönkum, sem eiga veð í húseigninni, var kynnt 575 milljóna króna tilboð frá indverska félaginu Auro Investment Partners. Húseign- in er yfirveðsett Íslandsbanka, Arion banka og þrotabúi Glitnis. DV sagði fyrst fjölmiðla frá málinu síðastliðinn föstudag en RÚV sagði frá handtök- unni í gær. Helgi Magnús segir að efnahags- brotadeild hafi fengið kæru vegna málsins á fimmtudaginn í síðustu viku. Daginn eftir hafi verið lagt hald á 93 milljónir króna sem var á reikn- ingi eignarhaldsfélagsins 2007. Karl og Aron færðu fasteignina að Skúla- götu 51 frá félaginu Vindasúlum ehf. til 2007 ehf. sama dag og kaup- tilboðið til indverska félagsins upp á 575 milljónir króna var samþykkt með vitund veðhafanna. Samkvæmt heimildum DV hefur lögmaðurinn Gísli Gíslason aðstoðað feðgana Karl og Aron við söluna á fasteigninni að Skúlagötu 51. Gísli hefur sjálfur orð- ið gjaldþrota en hann hefur verið þekktur fyrir það í seinni tíð að vilja rafbílavæða Ísland. Í samtali við DV segir Brynjar Ní- elsson, lögmaður þriggja banka sem áttu veð í húseigninni að Skúlagötu 51, að bankarnir hafi kært þá sem komu að sölunni á fasteigninni þar sem þeir töldu að um refsiverðan verknað hefði verið að ræða. Nú sé Yfirheyrður Karl Steingrímsson var yfirheyrður af efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra í gær vegna gruns um fjársvik. MYND KRISTINN MAGNÚSSON Forsvarsmenn Ríkisútvarpsins bönnuðu Kananum í gær, þriðju- dag, að spila lögin sem taka þátt í undankeppni Söngvakeppni evr- ópskra sjónvarpsstöðva, Eurov- ision. Forsvarsmenn Kanans eru afskaplega ósáttir við þetta en ætla þó ekki að hætta umfjöllun um keppnina. Sláandi lík lög Ásgeir Páll Ágústsson, þáttar- stjórnandi síðdegisútvarps Kan- ans, spilaði lag Örlygs Smára, sem Hera Björk söng í undan- keppninni á laugardag, í þætti sínum á þriðjudag. Ásgeir bar lagið saman við lagið „Who do you love“ sem Kate Ryan syng- ur og þótti hlustendum Kanans þau vera sláandi lík. En Eurov- ision-gleði þeirra á Kananum stóð ekki lengi því Einar Bárð- arson, útvarpsstjóri Kanans, færði Ásgeiri Páli þær fréttir inn í hljóðver að starfsmenn Ríkis- útvarpsins hefðu haft samband við hann og bannað Kananum að spila lögin sem taka þátt í for- keppninni í ár. Ásgeiri Páli mun hafa verið nokkuð brugðið við það enda búið að birta lögin op- inberlega á vefnum og spila þau hjá Ríkisútvarpinu. Ósáttur útvarpsstjóri Einari Bárðarsyni var sömuleiðis ekki skemmt yfir þessari ákvörð- un. Hann sagði Lindu Þórðar- dóttur, fulltrúa dagskrárstjóra innlendrar dagskrárgerðar Ríkis- útvarpsins, hafa bannað Kanan- um að spila lögin. Einar sagðist ekki skilja þessa ákvörðun því lög- in eru til kynningar á vef Ríkisút- varpsins og Kaninn væri svo sann- arlega að kynna þau. „Við erum með litlu minni hlustun er Rás 2 í dag þannig að ég hélt að menn myndu fagna þessu. Fyrir utan það að ég taldi mig vera með góð- fúslegt leyfi Þórhalls Gunnarsson- ar fyrir þessu en ég átti óformlegt samtal við hann í síðustu viku um málið en það kann auðvitað að hafa breyst í kjölfar frétta dagsins (gærdagsins þegar Þórhallur hætti hjá RÚV, innsk. blaðamanns),“ segir Einar. Hann er þó hvergi nærri af baki dottinn og segir Kan- ann ætla að halda umfjölluninni um forkeppni Eurovision áfram á Kananum. „Nú munum við hins vegar taka til hljóðfærin okkar og reyna að flytja bara lögin sjálfir, hlustendum okkar til glöggvunar. Þjóðin á rétt á því að fylgjast með þessu án þess að vera skikkuð til að hlusta á Rás 1 eða Rás 2,“ sagði Einar. Jöfn umfjöllun Linda Þórðardóttir segir Kanann ekki hafa heimild til að spila lög- in, sem eru á vef Ríkisútvarpsins, á Kananum því þau séu ekki mark- aðshljóðrit. Ríkisútvarpið hyggur á útgáfu laganna um næstu mán- aðamót, eftir að fyrstu umferð for- keppninnar er lokið, til að tryggja að lögunum sé öllum gert jafn- hátt undir höfði. „Við viljum halda spilun laganna á okkar miðlum til að hafa umfjöllunina jafna,“ sagði Linda í samtali við DV. Hún seg- ir þá ákvörðun Ríkisútvarpsins að banna Kananum að leika lög- in ekki vera tengda því að Kaninn hafi borið saman líkindi lags Ör- lygs Smára og annars lags í gær. Málið snúist einfaldlega um að Ríkisútvarpið vilji tryggja að lögin fái jafna umfjöllun. Nú munum við hins vegar taka til hljóðfærin okkar og reyna að flytja bara lögin sjálfir, hlustend- um okkar til glöggvun- ar. BIRGIR OLGEIRSSON blaðamaður skrifar: birgir@dv.is Ríkisútvarpið bannar útvarpsstöðinni Kananum að leika lögin sem taka þátt í undankeppni Eur- ovision. Einari Bárðar, útvarpsstjóra Kanans, er alls ekki skemmt. KANINN FÆR EKKI AÐ SPILA LÖGIN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.