Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2010, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2010, Page 18
Svarthöfði dáist að þrotlausri vinnu bankanna við að lagfæra ímynd sína án þess að laga neitt raunverulegt. Hæfileiki þeirra til að fegra efnahagsreikninginn nýtist þeim ekkert síður í ímyndarvandan- um í dag en lausafjárskortinum fyrir hrun. Einstaka sinnum kemur hins vegar fyrir að það sést á bak við tjöldin hvernig í pottinn er búið. Yfirmaður ákveðinnar deildar í Arion banka, sem er sami banki og Kaupþing nema með annað nafn og jóla- skraut í stað lógós, fékk falleinkunn í könnun meðal starfsmanna bank- ans. Yfirmenn yfirmannsins ákváðu að leysa málið. Niðurstaðan var að allir starfsmennirnir á gólfinu væru veikir fyrst þeir voru svona ósáttir við yfirmann sinn. Því voru óánægðu starfsmennirnir sendir til sálfræðings, eins og segir frá í frétt DV í dag. Ef Svarthöfði réði einhverju hefði hann sent yfirmann-inn til sálfræðings. Eða gert hann að undirmanni. Miðað við aðgerðirnar myndi hann reyndar líka breyta yfirmönnum yfirmannsins í undirmenn, vegna auðsýndrar van- hæfni þeirra í málinu. Yfirmenn eru þrisvar sinn-um líklegri en venjulegt fólk til þess að vera haldnir sið-blindu, samkvæmt rannsókn- um. Aðrar rannsóknir hafa leitt í ljós að slæmur yfirmaður getur hrein- lega drepið þig. Og það löglega. Þetta hefur hins vegar ekki far- ið hátt. Þeir sem vilja kynna sér hvernig yfirmenn drepa geta lesið um rannsóknir Roberts Sapolsky, taugalíffræðings hjá einum besta háskóla heims, Stanford í Kaliforníu. Þær lýsa því hvernig yfirgangssamir bavíanar auka stress meðal annarra, með umfangs- miklum af- leiðingum fyrir venju- lega bav- íana. Þeir sem starfa undir stjórn slæmra og yfir- gangs- samra yfir- manna eru líklegir til að þróa með sér krónískt stress. Þeir þurfa til dæmis að lifa við skert minni, raskaða heilastarf- semi, aukna magafitu, svefnleysi, tíðari veikindi og á endanum deyja þeir fyrr en aðrir. Það mætti kalla þetta höfðingja- siðferði, eftir hugmyndum Friedrichs Nietzsche. En Nietzsche gerði ráð fyrir því að menn með höfðingjasiðferði væru sterkari og æðri en aðrir. Yfirmenn eru hins vegar engin „übermensch“. Þeir bara halda það. Á smundur Stefáns- son, fyrr- verandi ríkissátta- semjari, var skipaður for- maður bankaráðs Landsbankans eftir hrun. Þegar kom að því að ráða bankastjóra datt honum enginn betri maður í hug en hann sjálf- ur. Svo hann réð sjálfan sig sem bankastjóra. Næst frestaði hann því að auglýsa eftir banka- stjóra. Oft er talað um að frænd- hygli og kunningjaveldi séu helstu vandamál Íslendinga. Ekki hjá Ás- mundi. Hann er sjálfsveldi. Árni Tómasson var skipaður formaður skilanefndar Glitn-is af Fjármálaeftirlitinu. Hann er bráðnauðsynlegur maður, að eigin mati. Ef bankinn væri maður væri Árni súrefni. Þegar skilanefndin ákvað að skipa mann í bankaráð hins endurreista Íslandsbanka gat Árni ekki annað en tilnefnt sjálfan sig. Um leið tilnefndi hann Jón Sig- urðsson sem formann banka- ráðsins. Jón var stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins þegar „það“ skipaði Árna í skilanefnd- ina á sínum tíma. Árni og Jón eru ein lítil, sjálfbær at- vinnumiðlun. E ngum finnst yf- irmenn jafnmik- ilvægir og yfirmönn- um. Og yfirmenn stjórna heiminum, í sjálfbæru kunningja- veldi, með sið- blindu í þriðja veldi. SLÆMIR YFIRMENN SPURNINGIN „Það er þyngra en tárum taki,“ segir Guðjón Guðmundsson, faðir Snorra Steins landsliðsmanns, en íslenska landsliðið gerði grátlegt jafntefli við Serba 29-29 á Evrópumótinu í handbolta. GRÆTUR ÞÚ JAFNTEFLIÐ? „Þetta er enginn ágreiningur, þetta er bara mín ákvörðun.“ n Þórhallur Gunnarsson um að hann hafi ákveðið að hætta af persónulegum ástæðum en ekki vegna ágreinings. - Vísir „Blekið er varla þornað.“ n Gísli Örn Garðarsson um samning þess efnis að uppfærsla Borgarleikhússins og Vesturports hafi verið seld til sýninga í Þýskalandi. - DV „Þetta er einhvers konar ameríkanisering.“ n Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir um fjölgun fyrirtækja sem sérhæfa sig í innheimtu slysa- og skaðabóta fyrir fólk. Hann telur þess þróun neikvæða. - DV „Kveð ykkur öll með söknuði.“ n Þórhallur Gunnarsson, fráfarandi dagskrárstjóri RÚV, sem sagði óvænt upp starfi sínu. - DV.is „Gírug í ferðir, gráðug í fé.“ n Svona hefst níðvísa Ólafs F. Magnússonar borgarfulltrúa um Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra sem hann flutti á fundi borgarstjórnar. - DV.is Ísland og Haítí LEIÐARI Íslenska þjóðin hefur undanfarið hálft annað ár verið á barmi þunglyndis vegna örlaga sinna. Hæst ber í umræðunni vænt-anlegar skuldir vegna Icesave. Dag eftir dag er þrefað um það mál á alla vegu. Minna fer fyrir umræðu um risavaxið kúlulán sem tekið var eftir að Davíð Oddsson sigldi Seðlabankan- um í þrot. Fæstir tala um það hversu heppin ís- lenska þjóðin er þrátt fyrir allt. Íslendingar eru nefnilega ein heppnasta þjóð á jarðríki ef litið er til innviða samfélagsins og þess mannauðs sem er að finna á meðal eyjarskeggja. Í bland við umfjöllun á heimsvísu um hrun íslenska fjármálageirans hefur undanfar- ið heyrst af rústabjörgunarsveit örríkis sem á mettíma var komin til Haítí til að bjarga mannslífum og leggja heimamönnum lið. Ut- anríkisráðuneytið íslenska brá skjótt við þeg- ar jarðskjálftinn stóri reið yfir. Á innan við 12 klukkustundum var lagt upp í ferð um hálfan hnöttinn til að koma til hjálpar í einu fátæk- asta ríki veraldar. Þar er mannfallið gríðarlegt og stór hluti húsnæðis höfuðborgarinnar er hruninn. Snögg viðbrögð Íslands fengu góða athygli í heimspressunni. Jafnframt eru þau grimmu örlög sem steðja að landsmönnum Haítí áminning til Íslendinga um það hversu gott þjóðin hefur það í samanburði við þá ógn. Öll vandræði Íslands eru hjóm eitt þegar litið er til þeirra ógnaratburða. Saga íslenskrar þjóðar geymir fjölda mannskæðra atburða og nátt- úruhamfara. Jafnharðan reis þjóðin upp aft- ur og hélt sínu striki. Auðvitað er það alvarleg staða þegar hamfarir af mannavöldum ganga yfir þjóðina eins og nú gerist. En það er þó eng- in ástæða til að bugast. Þvert á móti verður fólk að berjast. Gerum upp hrunið, refsum hinum seku og höldum síðan áfram að vera sú kjark- mikla þjóð sem haldið hefur Íslandi í byggð. Endurreisnin er fram undan. Það verkefni verður að hafa forgang. Í því felst jafnframt að þjóðin lágmarki þá spillingu sem hefur grafið um sig í þjóðarlíkamanum frá því að lýðveldið var stofnað. REYNIR TRAUSTASON RITSTJÓRI SKRIFAR. En það er þó engin ástæða til að bugast. BÓKSTAFLEGA 18 MIÐVIKUDAGUR 20. janúar 2010 UMRÆÐA SANDKORN n Óperusöngvarinn Jóhann Frið- geir Valdimarsson er einstak- lega vel akandi á silfurgráum Range Rover. Það er þó ekki tekið út með sældinni. Jóhann mun hafa lýst því að ekki sé óalgengt að reiðir þjóð- félagsþegnar í umferðinni sýni honum fingurinn. Einhverju sinni þegar fokkmerki birtist var söngvar- inn stopp á rauðu ljósi. Hann skrúfaði niður rúðuna og kallaði til þess sem sýndi fingurinn og spurði hvort hann myndi vilja borga af myntkörfuláninu. n Katrín Jakobsdóttir mennta- málaráðherra þarf á næstunni að finna sér aðstoðarmann. Skáldið Sigtryggur Magnason hefur gegnt starfinu undanfarið en hyggst nú snúa sér að listinni, heill og óskipt- ur. Þann 22. janúar verð- ur frum- sýnt leikritið Bráðum hata ég þig eftir Sigtrygg. Þá eru fram undan ótal verkefni kappans á ritvellinum. n Einar Bárðarson, eigandi Kan- ans, á í stríði við Kastljós eftir að Þóra Tómasdóttir lýsti því yfir að hann væri einn af oddvitum eineltis á hendur 16 ára stúlku sem sprakk á limminu um þar- síðustu helgi. Einar mun ætla að kæra Kastljósfólkið til siðanefnd- ar Blaða- mannafélags Íslands. En það er eng- inn bilbugur á Einari þrátt fyrir áburð um einelti. Í auglýsingu Kanans er fullyrt að haldið verði áfram um- fjöllun um Eurovision og ekkert dregið undan. n Það hefur verið á brattann að sækja hjá Gísla Marteini Bald- urssyni borgarfulltrúa ef marka má Capacent. En það er þó ljós við enda ganganna því fyrirlestr- ar hans um borgarskipulag hafa vakið lukku. Í tvígang hefur verið húsfyllir í Þjóðminjasafninu þar sem Gísli hefur fjallað um fram- tíð Reykjavíkur. Hann nam þessi fræði í Edin- borg eins og frægt er þar sem hann var hluta námstímans á launum. Sagt var í Sandkorni að hann hefði þegið laun sem formaður borg- arstjórnarflokksins, 100 þúsund á mánuði, allt námstímabilið. Þar var byggt á röngum upplýsingum og leiðréttist það hér með. Gísli var launalaus frá janúar og fram í september á síðastliðnu ári. LYNGHÁLS 5, 110 REYKJAVÍK ÚTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagið Birtíngur ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson FRAMKVÆMDASTJÓRI: Sverrir Arngrímsson RITSTJÓRAR: Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is FRÉTTASTJÓRAR: Brynjólfur Þór Guðmundsson, brynjolfur@dv.is og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is AUGLÝSINGASTJÓRI: Elísabet Austmann, elisabet@birtingur.is DV Á NETINU: DV.IS AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010, ÁSKRIFTARSÍMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 7050. SMÁAUGLÝSINGAR: 515 5550. Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.