Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2010, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2010, Blaðsíða 29
FÓKUS 20. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 29 PurpleRabbit.is Sýndu þig og sjáðu aðra á heitum og spennandi samskiptavef þar sem allt snýst um þig og þína djörfu, góðu vini. Njóttu lífins á kanínunni, jafnvel með 100% leynd. Góðar stundir. Stefnumót.is Stefnumót.is er vandaður og siðprúður vefur fyrir fólk sem vill kynnast með félagsskap, vinskap eða varanleg kynni í huga. Vefurinn er gjaldfrjáls. Vertu ævinlega velkomin/n. TILKYNNINGAR Takið eftir Ég óska eftir frásögnum, upplifun og persónulegri reynslu karla og kvenna á öllum aldri. Leitað er eftir fant- asíum, kynhvöt, kynlífi eða reynslu. Sendið frásagnirnar bréflega í póst- hólf nr.360. 121. Reykjavík með fyrir fram þökkum til allra sem taka þátt. ath: frásagnir á facebook. »Heila HEILSUVÖRUR Aloe Vera Heilsunnar vegna. Betri lífstíll - meiri orka. Hlíf og Magnús sjálfstæðir dreifingaraðilar S. 822 8244 www.flp1.is NUDD Nudd fyrir heilsuna Ertu aum/ur í hálsi eða höfði ? Áttu erfitt með að komast fram úr á morgnana? þá er þetta rétta stofan fyrir þig. Ég verð í Mjóddinni fimmtud. 21. jan. og föstudaginn 22. jan. Er með 40 ára reynslu í nuddi. Með diploma frá 4 löndum. Gerður Benediktsdóttir nuddari G. Ben Jurtavörur. Tímapant- anir og uppl. í S. 588 2260 / 863 2261 »Kennsla ÖKUKENNSLA www.aksturinn.is S. 694 9515 Öku- og bifhjólakennsla. Tek einnig að mér akstursmat. Uppl í síma 694 9515 Haukur Vigfússon. »Tómstundir GISTING Gista.is Bjóðum upp á gistingu á besta stað í bænum og 2 og 3 herbergja íbúðir, fullbúnar húsgögnum og uppbúnum rúmum. Internet-tenging er til staðar. S. 694 4314. www.gista.is »Húsnæði HÚSNÆÐI Í BOÐI ÞJÓNUSTUAUGLÝSING Á MIÐVIKUDEGI Lífið er frekar dapurlegt hjá ellilífeyr- isþeganum Harry Brown sem á sínum yngri árum var vaskur sérsveitarmaður í breska hernum. Eiginkona hans liggur fyrir dauðanum og eini vinur hans er ofsóttur af rudda- legu unglingagengi sem heldur áður frið- sælu hverfi Harrys í heljargreipum. Skömmu eftir að eiginkonan skilur við tekur glæpagengið sig til og slátrar vini Harrys sem þá er nóg boðið. Hann verð- ur sér úti um byssu og sýnir að hann hef- ur engu gleymt og rifjar upp gamla takta frá því að hann barðist á Norður-Írlandi og víðar og gengur milli bols og höfuðs á skítalöbbunum sem hafa varpað skugga á tilveru hans. Michael Caine var eitursvalur í glæpa- myndinni Get Carter fyrir 39 árum síðan þar sem hann lék harðsnúinn gangster sem lúskraði á óþjóðalýð í leit að morð- ingja bróður síns. Og kallinn er engu minni töffari núna, 76 ára gamall, og þeg- ar Harry sýnir hvað í honum býr er engu líkara en að Carter sjálfur sé upprisinn. Caine ber þetta bráðskemmtilega og ofbeldisfulla hefndardrama á herðum sínum og það er unun að horfa á kallinn sveifla byssum og pynta illa uppdregin ungmenni af þeirri einurð og hörku sem Carter sýndi árið 1971. Samanburður við Gran Tourino með Clint Eastwood er óhjákvæmilegur, enda eiga myndirnar ýmislegt sameiginlegt fyr- ir utan það að í þeim báðum fara gamlir jaxlar á kostum. Harry Brown skortir samt nokkuð á þá mannlegu dýpt sem gerði Gran Tourino svo eftirminnilega en á móti kemur að Harry gerir allt það sem við vildum að Eastwood gerði í Gran Tourino. Hér er nefnilega ekkert verið að fara fínt í hlutina og Harry slær hvergi af í ofbeldi og fanta- skap þannig að Harry Brown er alveg sér- deilis prýðilegt og fullnægjandi hefndar- drama þótt hún sitji ekki jafnlengi í manni og Gran Tourino. Þórarinn Þórarinsson Carter á eftirlaunum The Road er mynd sem fellur klárlega ekki í hóp með svokölluðum „Holly- wood-myndum“ þó svo að stórstjörnurn- ar Viggo Morthensen og Charliez Theron fari með aðalhlutverkin. Það er lítið um öfgafullar hasarsenur en í staðinn er við- fangsefnið mannlegar tilfinningar og við- brögð í gjörsamlega ömurlegum aðstæð- um. The Road er byggð á samnefndri bók og gerist eftir að heimurinn eins og við þekkjum hann hefur verið lagður í rúst. Heimurinn er að deyja og enginn virðist vita út af hverju. Trén eru að deyja, dýr- in eru löngu dáin og hægt og bítandi er mannfólkið einnig að deyja út. Við þess- ar ömurlegu aðstæður er helsta hættan ekki að svelta til dauða heldur að verða fyrir barðinu á siðblindu mannfólki sem hefur snúið sér að mannáti og veiðir sér til matar. Í myndinni fylgjumst við með ferða- lagi feðga sem eru leiknir af Viggo og Kodi Smit-McPhee. Þeir stefna suður á bóg- inn í von um betra líf en óvissan er þrátt fyrir það algjör. Faðirinn á sér aðeins eitt markmið eftir í lífinu og það er að vernda son sinn sama hvað það kostar. Ekki síst vegna þess að hann er einn af fáum börn- um sem eftir eru í heiminum. Hann getur þó ekki verndað hann frá þeim viðbjóði sem er í gangi allt í kringum þá og það er erfið senan þar sem hann er að kenna syni sínum hvernig hann eigi að skjóta sjálfan sig í höfuðið ef mannæturnar ná í skottið í þeim. The Road er ekki mynd með stórkost- legum fléttum og miklum látum, eins og áður sagði, heldur eru flétturnar tilfinn- ingalegs eðlis því maður á í erfiðleikum með sjálfan sig næstum því alla myndina. Eymdin, vonleysið, illskan og óvissan er svo mikil að hún er nánast óbærileg. En um leið verða litlir hlutir sem við álítum svo sjálfsagða að heimsins mestu gleði- gjöfum. Hún fjallar á mjög raunsæjan hátt um hvernig örvænting og hungur myndi fara með mennina ef allt sem við þekkjum yrði tekið frá okkur og óreglan væri algjör. Allt sem við viljum ekki hugsa eða segja hefur orðið að veruleika. En þótt The Road takist vel á við þessa hluti þá er hún alltof einsleit og langdreg- in á köflum. Sagan er vel sögð og þegar spennustigið rís í myndinni fær mað- ur gæsahúð. En þær senur hefði mátt taka lengra og flétturnar hefðu mátt rísa hærra. Nánast engum spurningum er svarað þótt ýmsar vísbendingar séu gefn- ar í lok myndarinnar. Það er áhorfandans að geta í eyðurnar. Ásgeir Jónsson Viggo Morthensen Er frábær í myndinni. THE ROAD Leikstjóri: John Hillcoat Aðalhlutverk: Viggo Mortensen, Kodi Smit-McPhee, Charlize Theron, Robert Duvall, Guy Pearce. KVIKMYNDIR ÞVÍLÍK EYMD HARRY BROWN Leikstjóri: Daniel Barber Aðalhlutverk: Michael Caine, Emily Mortimer, Iain Glen, Jack O’Connell, Liam Cunningham, Amy Steel. KVIKMYNDIR Harry Brown Er grjótharður og gamall. GEIMFARAR ERRÓS Nú stendur yfir sýningin Erró- Geimfarar í Hafnar- húsinu, þar eru sýnd- ar myndir frá árun- um 1974 til 1981.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.