Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2010, Qupperneq 30
EFTIRSJÁ
OG ÓVISSA
„John er fyrrverandi „Vice President
of programming“ hjá Warner Broth-
ers Kids Division og Brenda er vel
þekkt fyrir þróun og dreifingu barna-
efnis á alþjóðavettvangi,“ segir Hrefna
Hallgrímsdóttir annar af höfundum
Skoppu og Skrítlu.
Hrefna ásamt meðhöfundi sínum
Lindu Ásgeirsdóttur hefur ráðið John
Hardman sem listrænan stjórnanda
að verkefni sínu í Bandaríkjunum og
Brendu Wooding sem alþjóðlegan
sölustjóra Skoppu og Skrítlu.
Sigurganga Skoppu og Skrítlu held-
ur því áfram, nú í hinni stóru Ameríku.
Þær Hrefna og Linda fóru með Skoppu
og Skrítlu-verkefni sitt í frumskoðun á
markaðssetningu vestan hafs og í kjöl-
farið komu mjög jákvæð viðbrögð.
Nú þegar hafa fjárfestar þar í landi
lýst yfir miklum áhuga á að semja við
þær um verkefnið og vinna að þróun
nýrra tækifæra. „Við höfum sett sam-
an hóp af sérfræðingum úti í Los Ang-
eles til að sjá um þróun á alþjóðaút-
gáfu byggðri á íslenskri útgáfu Skoppu
og Skrítlu,“ segir Hrefna afar stolt af
hópnum sem þær stöllur hafa sett
saman. „Fyrir hópnum, ásamt okkur,
fara Steve Lyons sem er fyrrverandi
„Senior Executive“ hjá Sony Pictures
og Freyr Thor, forstjóri Vanguard Ci-
nema. Svo kom John og Brenda líka.
Hópurinn kemur til Íslands að sjá nýj-
ustu leiksýningu okkar sem frumsýnd
verður í Borgarleikhúsinu 6. febrúar,“
segir Hrefna spennt yfir sýningunni
Skoppa og Skrítla á tímaflakki þar sem
þær stallsystur fá óvænta gjöf frá Lúsí,
sem aðdáendur Skoppu og Skrítlu
kannast við.
benni@dv.is
STARFSFÓLK RÚV:
Nokkrir landsliðsmenn í hand-
bolta skelltu sér á Hard Rock
Café í París eftir glæstan sigur
gegn Spánverjum fyrr um kvöld-
ið. Meðal gesta voru gleðipinn-
arnir Auðunn Blöndal og Logi
Geirsson. Þar fór Auðunn á
kostum og laug því að starfs-
mönnum staðarins að Logi ætti
afmæli. Allt ætlaði gjörsamlega
um koll að keyra og segir Logi
á fésbókarsíðu sinni að honum
hafi liðið eins og sjálfum Zidane
þarna inni.
30 MIÐVIKUDAGUR 20. janúar 2010 FÓLKIÐ
Landsliðsmarkvörðurinn Gunn-
leifur Gunnleifsson var á meðal
áhorfenda þegar Manchester
liðin, United og City, mættust
í enska deildarbikarnum í gær.
Gunnleifur er grjótharður stuðn-
ingsmaður Manchester City - sá
heitasti hér á landi. Sagan segir
meira að segja að þegar Gunn-
leifur var ungur og efnilegur hafi
honum staðið til boða að fara á
reynslu hjá Manchester United
en neitað sökum ástar sinnar á
hinum heiðbláu City-mönnum.
Gunnleifur hefur dvalið hjá Emil
Hallfreðssyni og unnustu hans
og lýst mikilli ánægju með íbúa
Leeds-borgar á fésbókarsíðu
sinni.
GULLI SÁ
SÍNA MENN
AUDDI
HREKKTI
LOGA
SKOPPA OG SKRÍTLA RÁÐA FYRRVERANDI FORSTJÓRA HJÁ WARNER BROTHERS:
SKOPPA OG SKRÍTLA Í ÚTRÁS
Á toppi heims-
ins Skoppa og
Skrítla eru svo
sannarlega að
gera góða hluti.
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir segir sig og samstarfsfólk sitt búast við miklum
breytingum á starfsháttum og skipulagi RÚV á næstunni. Hún telur ekki ólíklegt að
þær breytingar hafi haft áhrif á ákvörðun Þórhalls Gunnarssonar um að segja starfi
sínu lausu. Starfsmönnum RÚV þykir mikil eftirsjá að Þórhalli og Sigmar Guðmunds-
son er ekki sáttur þótt hann virði ákvörðunina.
„Það er rosalega mikill missir að
honum og allt starfsfólkið hér er í
raun harmi slegið,“ segir Ragnhildur
Steinunn Jónsdóttir dagskrárgerðar-
kona um starfslok Þórhalls Gunnars-
sonar, fráfarandi innlends dagskrár-
stjóra RÚV og ritstjóra Kastljóss. „Það
er kannski ekki skrítið því að þegar
maður hugsar til hans starfs hérna
þá kemur fyrst upp í hugnn að hann
stóð alltaf 100 prósent með sínu fólki.
Sama hvað gekk á.“
Ragnhildur
segist að vissu
leyti skilja
ákvörð-
un
Þór-
halls.
„Miðað við allt það álag sem hef-
ur verið á honum undanfarin ár og
hversu mikið hann hefur unnið.
Hann er líka þannig maður að hann
gerir ekki neitt af hálfum krafti. Og
ég held að ef hann geti ekki gert inn-
lenda dagskrá eins og hann vildi og
af fullum krafti þá vilji hann frekar
sleppa því.“
Sögusagnir um miklar breyting-
ar á skipulagi og starfsmannahaldi
á RÚV hafa verið háværar
og sjálf segir Ragnhild-
ur framtíðina nokkuð
óljósa. „Við búumst
við miklum breyt-
ingum og þær
koma eflaust í
ljós á næstu vik-
um. Kannski er
það líka ástæð-
an fyrir því
að Þórhallur
ákvað að hætta núna. Því hann gat
ekki hugsað sér að þurfa að segja upp
fólki sem hann hafði starfað lengi og
náið með.“
Uppsögn Þórhalls kom einnig
mjög flatt upp á Sigmar Guðmunds-
son aðstoðarritstjóra. Hann segist
afar ósáttur við brotthvarf Þórhalls
enda hafi hann reynt mikið að fá
hann ofan af því að hætta. „Ég reyndi
mjög mikið að fá hann ofan af þessu
því að þótt ég virði hans ákvörðun er
ég í fyllstu einlægni ósáttur við hana.
Ég vil ekki missa hann úr þættinum
og ekki missa hann úr húsinu,“ seg-
ir Sigmar en hann tekur nú við rit-
stjórahlutverkinu og segir hann þátt-
inn halda áfram með óbreyttu sniði.
Páll Magnússon útvarpsstjóri er
sama sinnis og Ragnhildur og Sig-
mar og segist ekki hafa búist við
uppsögninni. „Ég gat ekki annað
en tekið skýringar hans góðar og
gildar. Við skiljum í fullri vinsemd
og vináttu. Þarna liggur ekki að baki
neinn ágreiningur, hvorki persónu-
legur né faglegur. Ég held að
þetta hafi komið öllum sam-
starfsmönnum hans á óvart
og á öllum hæðum er séð eft-
ir góðum samstarfsmanni,“
segir Páll.
Sjálfur segir Þórhallur all-
ar sögusagnir um að hann sé
á leið til starfa á öðrum miðli
alrangar. „Ég sagði ekki upp
út af öðrum tækifærum. Ég er
ekki að fara í eitthvað annað,
það er ekkert svoleiðis.
Þetta er af persónu-
legum
ástæðum, það er ekki flóknara en
það og ég vil ekki greina frá því nán-
ar. Þessi ákvörðun var tekin í samráði
inni á heimilinu,“ segir Þórhallur.
„Ég er ekki búinn að fá nóg af
fjölmiðlum en ég er ekki heldur á
leiðinni á annan fjölmiðil. Maður
fær aldrei nóg af RÚV því mér þykir
óskaplega vænt um vinnustaðinn og
fólkið sem vinnur þar.“
asgeir@dv.is, trausti@dv.is
Þórhallur Sagði upp og
eftirsjáin er mikil.
Ragnhildur Býst við miklum
breytingum á næstunni.
Sigmar ósáttur En virðir
ákvörðun Þórhalls.