Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2010, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2010, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 25. janúar 2010 FRÉTTIR Um helmingur af rúmlega 30 millj- arða tapi tryggingafélagsins Sjóvár á árinu 2008 var tilkominn vegna lánanna sem veitt voru til Vafnings og Racon Holding 29. febrúar 2008. Lánin voru afskrifuð í ársreikningi Sjóvár fyrir árið 2008. Þetta er meðal þess sem Guð- mundur Ólason, fyrrverandi for- stjóri Milestone, mun hafa sagt í fimm klukkustunda langri yfir- heyrslu hjá sérstökum saksóknara í ágúst í fyrra. Yfirheyrslan yfir Guð- mundi mun hafa verið sú langmest upplýsandi af þeim yfirheyrslum sem haldnar voru yfir stjórnendum og eigendum Sjóvár í fyrra hjá sér- stökum saksóknara í tengslum við rannsókn á mögulegum brotum á lögum um hluta- og tryggingafélög. Lánin og afskriftirnar á þeim eiga þátt í að skýra mikið tap Sjóvár á ár- inu og útskýra af hverju vantaði að minnsta kosti 10 milljarða í eigna- safn Sjóvár til að félagið gæti staðið við vátryggingaskuldbindingar sín- ar gagnvart viðskiptavinum sínum þegar skilanefnd Glitnis tók félagið yfir í fyrra. Íslenska ríkið þurfti svo að leggja félaginu til 12 milljarða króna til að félagið gæti staðið við þessar lögbundnu skuldbindingar sínar. Guðmundur var lykilmaður á bak við fjárfestingastefnu Milestone og Sjóvár, ásamt aðaleigandanum Karli Wernerssyni og Jóhannesi Sigurðs- syni, aðstoðarforstjóra Milestone. Áhrif Guðmundar í Milestone-sam- stæðunni voru líkast til það mikil að Steingrímur Wernersson, sem átti 40 prósenta hlut í Milestone á móti Karli bróður sínum, mun hafa haldið því fram í yfirheyrslu hjá saksóknara að fjárfestingum úr bótasjóði Sjóvár muni hafa verið stjórnað frá skrif- stofu Guðmundar á Suðurlands- brautinni. Gat ekki svarað um afgang tapsins Í yfirheyrslunum mun Guðmundur hafa átt í erfiðleikum með að svara því hver skýringin var fyrir afgang- inum af tapinu hjá Sjóvá árið 2008, um 15 milljörðum króna. Þess skal auðvitað getið að Guðmundur var forstjóri Milestone, sem átti Sjóvá, í árslok 2008 sem og stjórnarmaður í Sjóvá. Þrátt fyrir þetta er mögulegt að rekja megi meirihlutann af tapi Sjó- vár til fjárfestingaverkefna Miles- tone þó svo að Guðmundur hafi ekki getað staðfest það í yfirheyrslunum. Líkt og áður hefur verið greint frá lánaði Sjóvá eignarhaldsfélögunum Vafningi og Racon tæpa 16 milljarða 29. febrúar 2008. Félögin þurftu að endurgreiða fjárfestingabankanum Morgan Stanley vegna lána sem tek- in höfðu verið til að kaupa hlutabréf í Glitni annars vegar og sænka fjár- mála- og tryggingafélaginu Invik hins vegar. Guðmundur mun hafa greint frá því í yfirheyrslunum að Milestone hafi lagt Racon til 50 milljarða eigin- fjárframlag þegar félagið keypti Invik árið 2007. Heildarkaupverðið var 70 milljarðar og voru hinir 20 teknir að láni frá Morgan Stanley sem bank- inn vildi fá endurgreidda í ársbyrjun 2008. Guðmundur mun hafa upplýst að milljarðarnir fimm sem Racon fékk að láni hafi verið fyrir Morgan Stanley. Guðmundur var hins veg- ar ekki með það á hraðbergi í yfir- heyrslunum hvernig hinir milljarð- arnir 15 af láninu frá Morgan Stanley til Racon voru endurfjármagnaðir. Tvær ástæður fyrir tapi Sjóvár Þrátt fyrir að Guðmundur hafi sagt að hann gæti ekki munað hvernig 15 milljarðar af 20 milljarða láninu frá Morgan Stanley voru endurfjár- magnaðir mun hann hafa sagt að tvær ástæður væru fyrir því af hverju Sjóvá hefði tapað svona miklu árið 2008. Annars vegar mætti rekja tap- ið til Racon Holding, sem fjárfest hafði í Invik, og hins vegar til taps- ins á verði hlutabréfa Þáttar Inter- national í Glitni. Wernersbræður áttu Þátt International með Einari og Benedikt Sveinssonum og áttu hinir fyrrnefndu 5 prósent af 7 prósenta hlut félagsins í Glitni á meðan þeir Sveinsbræður áttu 2 prósenta hlut. Verið var að endurfjármagna bæði þessi félög með lánunum frá Sjóvá og Glitni 29. febrúar og í báð- um tilfellum var verið að gera það vegna þess að erlendur fjárfestinga- banki, Morgan Stanley, vildi ekki endurfjármagna lán félagsins vegna þess að strax í ársbyrjun 2008 voru blikur á lofti um að íslenska fjár- málakerfið væri að fara á hliðina. Erlendir bankar einfaldlega lokuðu á íslensk fyrirtæki og eignarhaldsfé- lög og mun Guðmundur hafa orðað það svo að hlutabréf í íslenskum fjár- málafyrirtækjum hafi alls ekki verið vinsæl vara á þessum tíma. Glitnir greiddi lánið frá Morgan Stanley Lendingin var því sú að lokum, sam- kvæmt því sem Guðmundur mun hafa haldið fram í yfirheyrslun- um, að lánið sem Vafningur fékk frá Glitni gegn veði í eignum Vafnings var notað til að endurgreiða Morg- an Stanley lánið sem Þætti Inter- national hafði verið veitt um ári áður þegar félagið keypti bréfin í Glitni. Guðmundur mun hafa sagt að fjár- festing Þáttar í Glitni hafi verið upp á 30 milljarða króna og að 15 millj- arðar króna hafi verið teknir að láni frá Morgan Stanley gegn veði í Glitn- isbréfunum. Eftir að þessi viðskipti voru um garð gengin átti Glitnir hins vegar veð í eignum Vafnings, sem var í eigu Wernersbræðra og þeirra Sveins- sona, en líkt og DV hefur greint frá var það Bjarni Benediktsson, son- ur Benedikts og stjórnarformaður BNT á þessum tíma, sem veðsetti hlutabréfin í félaginu hjá bankan- um. Hlutabréf Þáttar í Glitni stóðu hins vegar eftir veðbandalaus enda gat Glitnir ekki tekið veð í hluta- bréfum í bankanum sjálfum. Veðið vegna Glitnisbréfanna var því fært frá Þætti yfir í Vafning þegar Morg- an Stanley vildi ekki fjármagna Þátt áfram og Glitnir tók við fjármögnun- inni. Glitnir átti fyrsta veðrétt í eign- um Vafnings. Sjóvá fékk hins vegar greitt frá Vafningi fyrir eignirnir sem lagðar voru inn í félagið - lúxusturninn í Makaó og fjárfestingasjóðinn KCAJ - með skuldabréfi á tryggingafélagið. Sjóvá átti hins vegar einungis ann- an veðrétt, á eftir Glitni, í þessum eignum Vafnings. Ansi mikið var því gert úr þessum eignum sem seldar voru inn í Vafning til að búa til veð- hæfi til endurfjármagna Þátt Inter- national og Vafning. Vafningur hefur því bæði skuldað móðurfélagi sínu Sjóvá fyrir eignirnar sjálfar auk þess sem þessar sömu eignir voru tvíveð- settar Glitni og tryggingafélaginu. Með þessu móti náðu eigendur Þátt- ar International og Racon hins vegar að halda í hlutabréf sín í Glitni og In- vik í nokkra mánuði í viðbót. Fór ekki fyrir stjórn Þessi mikli órói sem greip um sig hjá íslenskum fyrirtækjum og félögum í kjölfar þess að erlend fjármálafyrir- tæki byrjuðu að loka á þau í ársbyrj- un varð til þess, samkvæmt því sem Guðmundur sagði í yfirheyrslunum, að menn hafi verið að vinna að því að dag og nótt að endurfjármagna lán sín til að varna því að íslenska fjármálakerfið færi á hliðina. Ef Morgan Stanley hefði leyst til sín bréf Milestone í Invik, sem og bréf Þáttar International í Glitni, hefði það getað haft gríðarleg keðju- verkandi áhrif á fjármálakerfið í heild sinni, að sögn Guðmundar, auk þess sem Milestone hefði þurft að taka á sig 5-7 milljarða króna högg á erfiðum tímum. Önnur erlend fjármálafyrirtæki hefðu einnig getað gripið til þess ráðs að endurfjármagna ekki lán til annarra félaga og eignarhaldsfélaga og trúverðugleiki íslenska fjármála- kerfisins hefði beðið enn frekari hnekki. Enn fremur hefði Morgan Stanley staðið eftir með 7 prósenta hlut í Glitni í höndunum sem hann hefði þurft að selja á brunaútsöu á markaði sem aftur hefði valdið verð- Vitnisburður Guðmundar Ólasonar, fyrrverandi forstjóra Milestone, mun vera sá mest upplýsandi í Mile stone-málinu. Hann gaf greinargóða mynd af viðskiptum Sjóvár og Vafnings. Guðmundur sagði viðskiptin gerð til að koma í veg fyrir mikla kerfisáhættu. Hrunið var í augsýn í ársbyrjun 2008 að sögn Guðmundar. MILESTONE YFIRHEYRSLURNAR 3. HLUTI INGI F. VILHJÁLMSSON blaðamaður skrifar ingi@dv.is Glitnir var því hafður með í ráðum, samkvæmt Guðmundi, um hvern- ig hægt væri að leysa úr þessari endurfjár- mögnun til þess að koma í fyrir þessa eignarýrnun og kerfis- áhættu. n Steingrímur Wernersson segir að fjárfestingum Sjóvár hafi verið stjórnað frá skrifstofu Guðmundar Ólasonar, forstjóra Milestone, á Suðurlandsbrautinni. Ástæðan fyrir því að umfjöllunin um veðsetn- inguna á bótasjóði Sjóvár hefur vakið svo mikla athygli er sú að það kann að varða við lög hvernig eigendur Milestone ráðstöfuðu sjóðnum, eða vátryggingaskuld félagsins. Vátrygginga- skuldin er þeir fjármunir sem reiknað hefur verið út að tryggingafélagið þurfi vegna skuldbindinga sinna, meðal annars gerðra vátryggingasamninga við viðskiptavini félagsins sem eiga að geta fengið greitt úr sjóðnum ef þeir lenda í óhöppum. Þetta kemur fram í 34. laga um vátryggingastarfsemi. Í lok árs 2007 var þessi vátryggingaskuld Sjóvár rúmir 23 milljarðar króna en um mitt ár 2009 vantaði 10 milljarða í eignasafn Sjóvár til að félagið ætti fyrir skuldinni. Sjóvá átti því ekki nægilegar eignir upp í skuldina, meðal annars tryggingar almennings. Íslenska ríkið þurfti að lána Sjóvá 12 milljarða til að eiga fyrir vátryggingaskuldinni. Í tilfelli Sjóvár mun málið snúast um hvort nægar eignir hafi verið inni í félaginu og eins hvort þær eignir sem félagið átti að eiga hafi í raun verið eign félagsins eða hvort búið hafi verið að ráðstafa þeim annað eða veðsetja þær. Ef tryggingafélag fylgir ekki 34. greininni skal Fjármálaeftirlitið gera athuga- semd, samkvæmt 90. grein laganna, og veita félaginu frest í tiltekinn tíma til að ráða bót á málinu. Ef ekki er brugðist við athugasemd félagsins er hægt að dæma stjórnendur, og/eða eigendur félagsins, til fjársekta og eða refsingar samkvæmt 99. grein laganna. Veðsetning bótasjóðsins n Eitt af því sem Guðmundi Ólasyni mun hafa verið tilkynnt er að rannsóknin á þætti hans í rekstri Milestone snúist um möguleg brot á 104. grein hlutafé- lagalaga. Sú grein snýst um ólögmætar lánveitingar frá hlutafélögum. Meðal annars snýst greinin um lánveitingar frá hlutafélögum til hluthafa, stjórnar- manna og framkvæmdastjóra. Yfirheyrslurnar og hlutafélagalög n Eitt af því sem Guðmundur Ólason mun hafa greint frá í yfirheyrslunum er af hverju nafninu var breytt á eignarhaldsfélaginu Vafningi. Hann mun hafa haldið því fram að Vafningsnafnið hafi ekki fallið í neitt sérstaklega góðan jarðveg hjá mönnum. Þess vegna var nafni félagsins breytt í Földung skömmu eftir að febrúarviðskiptin áttu sér stað. Vafningur féll ekki í góðan jarðveg RISATAP VEGNA VAFNINGS Áttu 2 prósent Guðmundur mun hafa upplýst í yfirheyrslunum að af 7 prósenta hlut Þáttar International í Glitni hafi Engeyingarnir Benedikt og Einar Sveinssynir áttu 2 prósent. Það var vegna hættunnar á að tapa þessum 2 prósenta hlut sem Bjarni Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, veðsetti bréfin í Vafningi í febrúar 2008. Lykilmenn Guðmundur Ólason og Karl Wernersson voru lykilmennirnir í fjárfestingum Milestone á árunum fyrir hrunið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.