Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2010, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2010, Blaðsíða 6
Með þrjár millj- ónir á mánuði Þór Sigfússon, fyrrverandi for- stjóri Sjóvár, var með tæpar 36 milljónir króna í árslaun árið 2006 eða sem samsvar- ar þremur milljónum á mánuði. Þetta kemur fram í árs- reikningi fé- lagsins fyr- ir árið 2008. Árið áður var Þór með tæpar 33 milljónir í árslaun. Líkt og kemur fram í helgar- blaði DV, þar sem fjallað er um yfirheyrslurnar yfir Þór hjá sér- stökum saksóknara, vissi Þór oft á tíðum ekkert undir hvaða samninga hann var að skrifa hjá tryggingafélaginu. Hann átti að- spurður í erfiðleikum með að lýsa viðskiptum félagsins og kom fram að hann hefði yfirleitt ekki lesið samningana sem hann skrifaði undir. Þór kvaðst hafa treyst starfsmönnum Milestone og þeim sem báðu hann um að skrifa undir samningana og að hann hefði gert það í góðri trú. Ármann hefur ekki efni á húsinu Ármann Þorvaldsson, fyrrver- andi forstjóri Kaupþingsbankans Singer og Friedlander í London, sagði í sam- tali við Ei- rík Jónsson á útvarps- stöðinni Kananum á mánudag að hann þurfi að flytja út úr húsinu sínu í London í vor. Hann sagðist þurfa að minnka við sig því hann hefði ekki efni á að búa í húsinu sem hann leigir. Hann sagðist ekki ætla að flytja heim og myndi leita sér að minna húsnæði í London. Ármann hefur búið í lúxusíbúð á Kew Riverside- svæðinu í London, sem er afgirt og vaktað af öryggisvörðum allan sólarhringinn. 6 MÁNUDAGUR 25. janúar 2010 FRÉTTIR Borga skuldir og njóta lífsins Hjón á miðjum aldri frá Akra- nesi sem duttu í lukkupottinn á miðvikudaginn og unnu 44,6 milljónir króna í Víkingalottó- inu gáfu sig fram við Íslenska getspá á föstudag. Þau segjast ætla að nota peningana til að greiða skuldir og njóta lífsins. Það var eiginkonan sem keypti miðann á laugardag- inn síðasta í Skeljungi á Akra- nesi en eiginmaðurinn sem uppgötvaði vinninginn. Hann hafði verið að vafra um frétta- síður og séð að vinningsmið- inn hafði verið seldur á Akra- nesi. Innbrot og árekstrar Lögreglan á höfuðborgar- svæðinu hafði í nógu að snú- ast aðfaranótt sunnudags. Frá því um kvöldmatarleyti á laug- ardag og fram á sunnudags- morgun bárust lögreglunni sex tilkynningar um umferð- arárekstra og þrjár minnihátt- ar líkamsárásir. Þá var tilkynnt um átta þjófnaði sem skiptust í þrjú innbrot og þjófnaði úr bílum, tvo þjófnaði úr verslun- um, tvo þjófnaði úr heimahús- um og eitt innbrot í skóla þar sem skjávarpa var stolið. Ólína Þorvarðardóttir, þingmað- ur Samfylkingarinnar, hefur gert athugasemd við handrit af sögu Menntaskólans á Ísafirði sem tilbúið er til prentunar. Hún er að sögn ekki alls kostar sátt við hvernig fjallað er um hennar stjórnartíð í skólanum. Ólína gegndi stöðu skólameistara Menntaskólans á Ísafirði á árunum 2001-2006. Fyrirrennari Ólínu, Björn Teits- son, hafði stýrt skólanum í tuttugu og tvö ár áður en hann lét af störfum vorið 2001. Björn tók að sér það verk- efni að rita sögu skólans árið 2007 og hefur lokið því verki. Heimildir DV herma að Ólína hefði ekki verið sátt við kafla bókar- innar sem snýr að hennar stjórnar- tíð og að henni finnist fremur hallað á sig í bókinni. „Ég hef gert ákveðn- ar athugasemdir við ritun þessarar sögu sem ég hef komið á framfæri við ritnefndina og ég ræði það ekkert við aðra að svo stöddu,“ segir Ólína þeg- ar hún er spurð út í meinta óánægju hennar með söguna. Björn Teitsson vill heldur ekki ræða það hvort Ólína væri óánægð með þann kafla bókarinnar sem fjalli um hennar stjórnartíð. Hann segist aðspurður hafa lokið ritun sögunnar og að verið sé að leggja lokahönd á útgáfuna. Jón Reynir Sigurvinsson, núver- andi skólameistari Menntaskólans á Ísafirði, segir ritnefndina hafa tek- ið athugasemdir Ólínu fyrir á fundi. Niðurstöðurnar af þeim fundi séu trúnaðarmál. Jón Reynir segir að ver- ið sé að ganga frá lokatexta og öflun mynda fyrir bókina sem fari vænt- anlega í prentun í apríl, gangi allar áætlanir eftir. Ólína lét af störfum líkt og fyrr segir árið 2006, eftir mikla ólgutíð í starfi Menntaskólans á Ísafirði. Ólína lýsti því sjálf, í tilkynningu til fjöl- miðla er hún lét af störfum, að ár- angurinn sem hefði náðst í rekstri skólans á hennar starfstíð hefði ver- ið yfirskyggður af innanhúsdeilum og niðurrifsumræðu. Þá sagði hún andstæðinga sína innan skólans hafa haldið honum í herkví undir lok stjórnartíðar hennar sem skóla- meistari Menntaskólans á Ísafirði. birgir@dv.is Þingmaður gerir athugasemdir við sögu Menntaskólans á Ísafirði: Ósátt við söguritun forvera síns Ósátt Ólína Ólína Þorvarðardóttir var skólameistari um skeið. Þá voru miklar deilur innan skólans. Nærri 560 milljóna króna hagnaður Nesvers ehf. árið 2007 snerist í meira en 570 milljóna króna tap árið 2008. Mismunurinn nemur meira en 1,1 milljarði króna. Nesver er í eigu Ásbjörns Óttars- sonar, þingmanns Sjálfstæðisflokks- ins frá Snæfellsbæ, og fjölskyldu hans. Ásbjörn var fyrst kjörinn á þing í þingkosningunum í lok apr- íl á síðasta ári. Ásbjörn hafði áður velt Einari K. Guðfinnssyni úr efsta sæti framboðslista flokksins í Norð- vesturkjördæmi, en Einar átti eins og margir aðrir fyrrverandi ráðherr- ar flokksins á brattan að sækja vegna bankahrunsins. Gengi íslensku krónunnar féll gríðarlega árið 2008, bæði fyrir, en þó einkum eftir bankahrunið í október það ár og tvöfölduðust margir gjald- miðlar í verði gagnvart krónunni. Niðurstaðan varð sú að gengistap Nesvers ehf. varð hartnær 700 millj- ónir króna. Eins og DV greindi frá í síðustu viku var eigið fé Nesvers neikvætt um 156 milljónir króna í árslok 2008. Það sama ár greiddi Ásbjörn og fjölskylda hans sér 65 milljónir króna í arð. Ás- björn sagði að arðurinn væri reglum samkvæmt ákvarðaður af tekjum og stöðu fyrirtækisins árinu áður, en þá var eigið fé þess jákvætt um liðlega 480 milljónir króna. Samkvæmt þessu var 20 milljóna króna arðgreiðsla miðuð við afkomu Nesvers árið 2006. Það ár var félag- ið rekið með tapi og var eigið fé nei- kvætt um rúmar 213 milljónir króna að því er fram kom í Fréttablaðinu og á visi.is um helgina. „Um þetta seg- ist Ásbjörn ekki geta rætt af því að hann sé ekki með ársreikningana hjá sér,“ sagði í fréttum Fréttablaðsins og visis.is. Löglegt Í lögum um einkahlutafélög segir meðal annars í 74. grein: „Einungis er heimilt að úthluta sem arði hagn- aði samkvæmt samþykktum árs- reikningi síðasta reikningsárs, yfir- færðum hagnaði frá fyrri árum og frjálsum sjóðum eftir að dregið hef- ur verið frá tap sem ekki hefur verið jafnað og það fé sem samkvæmt lög- um eða félagssamþykktum skal lagt í varasjóð eða til annarra þarfa.“ Endurskoðandi, sem DV bar mál- ið undir, bendir á að hagnaður næst- liðins reikningsárs og yfirfærður hagnaður frá fyrri árum myndi það sem kallist í ársreikningi óráðstafað eigið fé Nesvers ehf. Þetta óráðstaf- aða eigið fé hafi verið nær 480 millj- ónir króna 1. janúar árið 2008 og heimilt sé að greiða af því arð sam- kvæmt ofansögðu. Þótt umskiptin hafi orðið á ár- inu 2008, einkum vegna falls krón- unnar og skuldir umfram eignir hafi numið 156 millj- ónum króna, hafi það því ekkert með 65 milljóna króna arðgreiðsluna að gera. Það skýr- ir hins vegar ekki hvers vegna árinu áður var greiddur 20 millljóna króna arður af nei- kvæðri stöðu sem nam 213 milljón- um króna. Bara þingmaður Ásbjörn þiggur ekki lengur nein laun fyrir stjórnarsetu í einkareknum eða opinberum félögum í hagsmuna- skráningu á vef Alþingis. Ekki held- ur vinnur hann önnur störf samhliða starfi þingmanns sem gefur honum tekjur fremur en að hann hafi tekj- ur af félagi sem hann á sjálfur í. Tek- ið er fram að hann hafi enga eftirgjöf fengið eða ívilnandi breytingar á skil- málum samninga við lánardrottna. Í skránni kemur fram að hann eigi nú 50 prósenta hlut í Nesveri ehf. á Rifi og jafnstóran hlut í Hlíðarfossi ehf. á sama stað. Jafnframt er hann sagður eigandi Fiskmarkaðar Íslands hf. Ásbjörn Óttarsson var í ársbyrjun valinn til að sitja í nefnd sem fjallar um viðbrögð við skýrslu rannsóknar- nefndar Alþingis um aðdragandann að falli bankanna haustið 2008. Ætlun- in er að birta skýrsluna eftir eina viku. Í nefndinni sitja auk hans Eygló Harð- ardóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson fyrir hönd Framsóknarflokks, Magnús Orri Schram og Oddný G. Harðardótt- ir fyrir hönd Samfylkingar, Unnur Brá Konráðsdóttir fyrir hönd Sjálfstæð- isflokks, Atli Gíslason og Lilja Rafney Magnúsdóttir fyrir hönd VG og Birgitta Jónsdóttir fyrir hönd Hreyfingarinnar. 2 miðvikudagur 20. janúar 2010 fréttir fréttir 20. janúar 2010 miðvikudagur 3 Ásbjörn Óttarsson, þigmaður Sjálf- stæðisflokksins úr Snæfellsbæ, greiddi árið 2008 sér og Margréti Scheving, eiginkonu sinni, 65 millj- óna króna arð úr útgerðar- og fisk- vinnslufélaginu Nesveri ehf. á Rifi. Þetta var gert þrátt fyrir að félag- ið hefði tapað 574 milljónum króna þetta sama ár og bókfært eigið fé hafi í árslok verið neikvætt um 157 milljón- ir króna. Núverandi stjórnarmenn í Nes- veri eru Friðbjörn Ásbjörnsson, son- ur Ásbjörns, og móðir hans. Margrét. Þar sem Ásbjörn og Margrét voru einu eigendur Nesvers ehf. árið 2008 voru þau ein bær til þess að taka ákvarð- anir um arðgreiðsluna, en hún nem- ur 3.200 prósentum af hlutafé sam- kvæmt ársreikningi félagsins 2008. Sama ár og ákvörðun um að greiða 65 milljóna króna arð var tekin nam bókfært tap Nesvers 574 milljónum króna. Ári áður greiddu Ásbjörn og Margét sér aðeins 20 milljónir króna í arð eða sem nemur 1.000 prósentum af tveggja milljóna króna hlutafé. Það árið hagnaðist félagið hins vegar um 558 milljónir króna. Löglegt? Lögfræðingar, sem DV hefur leitað til, telja vafa leika á því að heimilt sé að úthluta arði úr einkahlutafélögum þegar skuldir eru langt umfram eign- ir, enda geti það gengið á hlut lánar- drottna. Strangt til tekið er fyrirtæki gjaldþrota sem á ekki lengur eignir fyrir skludum. Í lögum um einkahlutafélög seg- ir meðal annars í 74 grein: „Einungis er heimilt að úthluta sem arði hagn- aði samkvæmt samþykktum ársreikn- ingi síðasta reikningsárs, yfirfærðum hagnaði frá fyrri árum og frjálsum sjóðum eftir að dregið hefur verið frá tap sem ekki hefur verið jafnað og það fé sem samkvæmt lögum eða félags- samþykktum skal lagt í varasjóð eða til annarra þarfa.“ Ársskýrslan var undirrituð af endurskoðanda fyrir réttu ári, eða skömmu áður en Ásbjörn fór í fram- boð. „Þetta er arðgreiðsla af hagnaði ársins á undan. Það er nauðsynlegt að það komi fram. Ákvörðunin var tek- in í febrúar árið 2008,“ segir Ásbjörn í samtali við DV. Skortur á gögnum Ásbjörn Óttarsson var kjörinn á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Norðvest- urkjördæmi í þingkosningum í apríl á síðasta ári. Ljóst er á þessum tíma- punkti að Nesver ehf., sem hann átti 75 prósenta hlut árið 2008, er stór- skuldugt og rís varla undir skuldum. Í áritun óháðs endurskoðanda Deloitte segir meðal annars að mjög óvenju- legar og sérstakar aðstæður hafi skap- ast á fjármálamarkaði með setningu neyðarlaganna árið 2008. „Þar af leið- andi gátum við ekki aflað allra þeirra gagna sem við töldum nauðsynlegt til að staðfesta virði eigna og skulda félagsins auk þess sem óvissa er um hæfi félagsins til að geta staðið við skuldbindingar sínar í náinni framtíð við þessar sérstöku aðstæður á fjár- málamarkaði.“ Í lok árs 2008 skuldaði Nesver ehf. nærri 1,3 milljarða króna, þar af voru langtímaskuldir við bankana á ann- an milljarð króna. „Þetta eru miklar skuldir, en við eigum fyrir afborgun- um af lánum næstu 18 mánuði,“ seg- ir Ásbjörn. Þess má geta að samkvæmt árs- reikningi þurfti Nesver að óbreyttu að greiða 74 milljónir króna af lang- stímaskuldum í fyrra og upp undir annað eins af skammtímaskuldum. Afborganir Nesvers af langtímaskuld- um árið 2008 námu hins vegar um 250 milljónum króna og voru upp undir tífalt meiri en árið áður. Engar tekjur annars staðar Í skrá Alþingis um hagsmunatengsl þingmanna segir að Ásbjörn þiggi engin laun fyrir stjórnarsetu í einka- reknum eða opinberum félögum. Ekki er að sjá að hann vinni önnur störf samhliða starfi þingmanns sem gefur honum tekjur eða félagi sem hann á sjálfur í. Tekið er fram að hann hafi enga eftirgjöf fengið eða ívilnandi breytingar á skilmálum samninga við lánardrottna. Í skránni kemur fram að hann eigi nú 50 prósenta hlut í Nes- veri ehf. á Rifi og jafnstóran hlut í Hlíðarfossi ehf. á sama stað. Jafnframt er hann sagður eigandi Fiskmarkaðar Íslands hf. Hlíðarfoss gerði út Herdísi SH 174, sex tonna plastbát, sem brann og sökk úti fyrir Bjargtöngum seint í maí í fyrra. Tveir menn voru á bátnum og fóru þeir í gúmmíbjörgunarbát og var bjargað. Eftir því sem næst verður komist er Hlíðarfoss óvirkt félag og hafa eignir, þar á meðal aflaheimildir verið flutt- ar til Nesvers, en það gerir út Tryggva Edvalds, tólf tonna fiskiskip. „Þetta er í höndum sonar míns og útgerðin gengur ágætlega,“ segir Ás- björn. Árið sem bankakerfið hrundi var bókfært verð aflaheimilda Nesvers tæpar 950 milljónir króna og því ljóst að kvótinn er helsta en um leið óefnis- leg eign félagins. Athyglisvert er að 26 prósent aflaheimildanna eru skráðar sem ósundurliðaðar aflaheimildir, en hlutdeild útgerða í heildarkvóta verð- ur ávallt að tilgreina í tegundum við úthlutun. Útgerðarfélagið Nesver ehf. í eigu Ás-björns Óttarssonar alþingismanns var illa statt í árslok 2008. Það skuldaði bönk-unum á annan milljarð króna og tapaði það árið hátt í 600 milljónum króna með þeim afleiðingum að skuldir urðu rúmlega 150 milljónum krónum meiri en eignir. Engu að síður greiddi Ásbjörn sér 65 milljóna króna arð út úr félaginu. Tók sér 65 milljónir í arð í miðri kreppu Þar sem Ásbjörn og Margrét voru einu eigendur Nesvers ehf árið 2008 voru þau ein bær til þess að taka ákvarðanir um arð- greiðsluna, en hún nem- ur 3.200 prósentum af hlutafé félagsins. n Ásbjörn er framtaksmaður í Snæfellsbæ og var forseti bæjarstjórnar fyrir Sjálfstæðisflokk-inn þar til hann settist á þing. Snæfellsbær gerði langtímasamning við Iceland Glacier Products vegna fyrirhugaðrar vatnsverksmiðju á Rifi meðan Ásbjörn var forseti bæjarstjórnar og var hann einn þeirra sem samþykktu samninginn. Hann færði Iceland Glacier Products einkarétt á vatni, sem kemur úr lindum undir Snæfellsjökli, nætu 95 árin. DV sagði frá því snemma árs í fyrra að umrætt fyrirtæki væri miðpunkturinn í fjármálamisferli sem yfirvöld í Kanada höfðu til rannsóknar. DV gekk illa að fá upplýsingar um innihald samningsins.Síðustu orð Ásbjörns á þingi fyrir nýliðin áramót flutti hann þingheimi er hann gerði grein fyrir atkvæði sínu gegn Icesave-frumvarpinu 30. desember. „Þessir samningar vega að efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar. Þeir stefna tækifærum ungra Íslendinga í voða. Alþingi Íslendinga hefur ekki leyfi til að binda hendur ófæddra Íslendinga á jafnveikum grunni og hér er gert.“ Hann sagði það eina rétta í stöðunni að þingmenn sameinuðust um að verja hagsmuni og sjálfstæði íslensku þjóðarinnar og höfnuðu Icesave-samningunum. „Ég segi nei og vísa allri ábyrgð á þessa ömurlegu Icesave-kommúnistastjórn,“ sagði Ásbjörn og uppskar hlátrasköll úr þingsal. Samdi um einkarétt á vatni dv.is F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð þriðjUdagUr 24. mars 2009 dagblaðið vísir 50. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347 Ísland eyðilagðiekki hjónabandið n albönsk kona ber til bakafrásögn eiginmannsins brUce Willisgenginn út sviðsljós fótboltamönnUmboðið Í fiskvinnslU framsækið sprotafyrirtæki í uppnámi: allt vonlaUstsjö mánUðUmfyrir hrUnið n flúðu kreppuna til færeyja – fóru úr öskunni í eldinn fréttir íslenska vatnið í svika- myllu n otto spork vildi selja vatn úr snæfellsjöklin kanadÍsk yfirvöld frysta vatnssjóðn átta milljarðar króna gUfUðU Upp fólkhelgi semofbeldis-maðUr fréttir sammi æfir afró- dans fólk fréttir sport stríð bjarna og kristjáns hitti forsetan n JÓhann haukSSon blaðamaður skrifar: johannh@dv.is 24. mars 2009 Ólafsvík Ásbjörn sigraði í prófkjöri sjálf-stæðismanna í Norðvesturkjördæmi í fyrra og skipaði efsta sæti listans í kjördæminu fyrir þingkosningarnar í lok apríl í fyrra. arður úr taprekstri Ásbjörn Óttarsson ákvað að greiða sér og eiginkonu sinni 65 milljóna króna arð úr Nesveri þótt skuldir félagsins væru langt umfram eignir. Fjársvik vegna fasteignasölu til Kínverja: Einn var handtekinn„Það er enginn í haldi og það var ekki farið fram á gæsluvarðhald. Það er ekki tilefni til þess. Það á eftir að yfirheyra fleiri vitni og leggja hald á fleiri gögn. Síðan verður aftur tekin skýrsla af þeim sem búið er að yfir- heyra,“ segir Helgi Magnús Gunnars- son, saksóknari efnahagsbrotadeild- ar ríkislögreglustjóra. Ríkislögreglustjóri handtók og yf- irheyrði á þriðjudag Aron Karlsson vegna gruns um meint fjársvik þeg- ar fasteignin að Skúlagötu 51 var seld til kínverska sendiráðsins. Karl Stein- grímsson, oftast kenndur við Pelsinn, veitti sjálfviljugur skýrslu ásamt lög- manninum Gísla Gíslasyni og fast- eignasala frá Fasteignamarkaðinum ehf. Húsleit var gerð á þremur stöð- um og lagt hald á 93 milljónir króna. Segir Helgi Magnús að þeir peningar hafi verið inni á bankareikningi eign- arhaldsfélagsins 2007 sem seldi kín- verska sendiráðinu Skúlagötu 51 fyrir 870 milljónir króna. Fór salan fram á sama tíma og bönkum, sem eiga veð í húseigninni, var kynnt 575 milljóna króna tilboð frá indverska félaginu Auro Investment Partners. Húseign- in er yfirveðsett Íslandsbanka, Arion banka og þrotabúi Glitnis. DV sagði fyrst fjölmiðla frá málinu síðastliðinn föstudag en RÚV sagði frá handtök- unni í gær. Helgi Magnús segir að efnahags- brotadeild hafi fengið kæru vegna málsins á fimmtudaginn í síðustu viku. Daginn eftir hafi verið lagt hald á 93 milljónir króna sem var á reikn- ingi eignarhaldsfélagsins 2007. Karl og Aron færðu fasteignina að Skúla- götu 51 frá félaginu Vindasúlum ehf. til 2007 ehf. sama dag og kaup- tilboðið til indverska félagsins upp á 575 milljónir króna var samþykkt með vitund veðhafanna. Samkvæmt heimildum DV hefur lögmaðurinn Gísli Gíslason aðstoðað feðgana Karl og Aron við söluna á fasteigninni að Skúlagötu 51. Gísli hefur sjálfur orð- ið gjaldþrota en hann hefur verið þekktur fyrir það í seinni tíð að vilja rafbílavæða Ísland. Í samtali við DV segir Brynjar Ní- elsson, lögmaður þriggja banka sem áttu veð í húseigninni að Skúlagötu 51, að bankarnir hafi kært þá sem komu að sölunni á fasteigninni þar sem þeir töldu að um refsiverðan verknað hefði verið að ræða. Nú sé Yfirheyrður Karl Steingrímsson var yfirheyrður af efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra í gær vegna gruns um fjársvik. mYnd kriStinn magnúSSon Forsvarsmenn Ríkisútvarpsins bönnuðu Kananum í gær, þriðju- dag, að spila lögin sem taka þátt í undankeppni Söngvakeppni evr- ópskra sjónvarpsstöðva, Eurov- ision. Forsvarsmenn Kanans eru afskaplega ósáttir við þetta en ætla þó ekki að hætta umfjöllun um keppnina. Sláandi lík lög Ásgeir Páll Ágústsson, þáttar- stjórnandi síðdegisútvarps Kan- ans, spilaði lag Örlygs Smára, sem Hera Björk söng í undan- keppninni á laugardag, í þætti sínum á þriðjudag. Ásgeir bar lagið saman við lagið „Who do you love“ sem Kate Ryan syng- ur og þótti hlustendum Kanans þau vera sláandi lík. En Eurov- ision-gleði þeirra á Kananum stóð ekki lengi því Einar Bárð- arson, útvarpsstjóri Kanans, færði Ásgeiri Páli þær fréttir inn í hljóðver að starfsmenn Ríkis- útvarpsins hefðu haft samband við hann og bannað Kananum að spila lögin sem taka þátt í for- keppninni í ár. Ásgeiri Páli mun hafa verið nokkuð brugðið við það enda búið að birta lögin op- inberlega á vefnum og spila þau hjá Ríkisútvarpinu. Ósáttur útvarpsstjóri Einari Bárðarsyni var sömuleiðis ekki skemmt yfir þessari ákvörð- un. Hann sagði Lindu Þórðar- dóttur, fulltrúa dagskrárstjóra innlendrar dagskrárgerðar Ríkis- útvarpsins, hafa bannað Kanan- um að spila lögin. Einar sagðist ekki skilja þessa ákvörðun því lög- in eru til kynningar á vef Ríkisút- varpsins og Kaninn væri svo sann- arlega að kynna þau. „Við erum með litlu minni hlustun er Rás 2 í dag þannig að ég hélt að menn myndu fagna þessu. Fyrir utan það að ég taldi mig vera með góð- fúslegt leyfi Þórhalls Gunnarsson- ar fyrir þessu en ég átti óformlegt samtal við hann í síðustu viku um málið en það kann auðvitað að hafa breyst í kjölfar frétta dagsins (gærdagsins þegar Þórhallur hætti hjá RÚV, innsk. blaðamanns),“ segir Einar. Hann er þó hvergi nærri af baki dottinn og segir Kan- ann ætla að halda umfjölluninni um forkeppni Eurovision áfram á Kananum. „Nú munum við hins vegar taka til hljóðfærin okkar og reyna að flytja bara lögin sjálfir, hlustendum okkar til glöggvunar. Þjóðin á rétt á því að fylgjast með þessu án þess að vera skikkuð til að hlusta á Rás 1 eða Rás 2,“ sagði Einar. Jöfn umfjöllun Linda Þórðardóttir segir Kanann ekki hafa heimild til að spila lög- in, sem eru á vef Ríkisútvarpsins, á Kananum því þau séu ekki mark- aðshljóðrit. Ríkisútvarpið hyggur á útgáfu laganna um næstu mán- aðamót, eftir að fyrstu umferð for- keppninnar er lokið, til að tryggja að lögunum sé öllum gert jafn- hátt undir höfði. „Við viljum halda spilun laganna á okkar miðlum til að hafa umfjöllunina jafna,“ sagði Linda í samtali við DV. Hún seg- ir þá ákvörðun Ríkisútvarpsins að banna Kananum að leika lög- in ekki vera tengda því að Kaninn hafi borið saman líkindi lags Ör- lygs Smára og annars lags í gær. Málið snúist einfaldlega um að Ríkisútvarpið vilji tryggja að lögin fái jafna umfjöllun. Nú munum við hins vegar taka til hljóðfærin okkar og reyna að flytja bara lögin sjálfir, hlustend- um okkar til glöggvun- ar. birgir oLgEirSSon blaðamaður skrifar: birgir@dv.is Ríkisútvarpið bannar útvarpsstöðinni Kananum að leika lögin sem taka þátt í undankeppni Eur- ovision. Einari bárðar, útvarpsstjóra Kanans, er alls ekki skemmt. kaninn fær ekki að spila lögin Heilmilt er að taka arð sem miðast við hagnað ársins á undan og uppsafnaðan hagnað frá fyrri árum. Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tók út 65 milljóna króna hagnað árið 2008, sama árið og allt hrundi og skuldir urðu meiri en eignir. 1.100 MILLJÓNA VIÐSNÚNINGUR Á þingi Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á sæti í nýrri þingnefnd sem ætlað er að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. DV 20. janú Fjallað var um arðgreiðslu þingmannsins. JÓHANN HAUKSSON blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Niðurstaðan varð sú að gengistap Nesvers ehf. varð hart- nær 700 milljónir króna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.