Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2010, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2010, Blaðsíða 9
Áætlaður kostnaður Júlíusar Víf- ils Ingvarssonar við að ná öðru sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykja- vík um helgina gæti numið hátt í 10 milljónum króna. Mikill meirihluti kostnaðarins liggur í kaupum á út- hringingum til allra kosningabærra sjálfstæðismanna í borginni, hátt í 20 þúsund manns. Samkvæmt heimildum DV barst nokkrum frambjóðendum Sjálf- stæðisflokksins tilboð frá vönu fólki í úthringiveri um að hringja í all- ar kosningabæra sjálfstæðismenn í prófkjörinu. Tilboðið nam 8 milljón- um króna. Úthringiverið var þó tilbú- ið til að veita 10 prósenta afslátt, jafn- vel meira, þannig að kostnaðurinn gat farið niður í um 7 milljónir króna. Lausleg athugun DV í gær bendir til þess að enginn þeirra sem sóttist eftir efstu sætunum í prófkjörinu hafi lagt í þennan mikla hringikostnað utan Júlí- us Vífill. „Þetta á eftir að taka saman og ég veit eftir nokkra daga hver kostnað- urinn varð. Ég fór þá leið að leggja áherslu á úthringingar en lagði minni áherslu á dreifibréf eða auglýsing- ar í hverfablöðum,“ sagði Júlíus Vífill í samtali við DV í gær. Ólíkar leiðir frambjóðenda Stjórn fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélag- anna í í Reykjavík hafði mælst til þess að frambjóðendur stilltu prófkjör- skostnaði í hóf að þessu sinni og héldu honum undir 1,5 milljónum króna. Margir frambjóðendanna litu svo á að um þetta ríkti heiðursmanna- samkomulag. Ljóst er þó að kostnað- ur fór fram úr þessu hjá að minnsta kosti þeim sem kepptu um annað sæti listans. Auk Júlíusar Vífils eru það Kjartan Magnússon, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Geir Sveinsson og Gísli Marteinn Baldursson. „Mín barátta miðaðist við að fara eftir tilmælunum frá fulltrúaráðinu. En síðustu dagana auglýsti ég meira en ætlunin var. Það var eins konar svar við auglýsingum annarra frambjóð- enda,“ segir Kjartan Magnússon, sem er ánægður með þriðja sætið á list- anum. Hann segir að stuðningsmenn sínir hafi borið út bæklinga í hús en þannig hafi sparast mikill dreifingar- kostnaður. Litlu munaði að röðin yrði önnur Hanna Birna Kristjánsdóttir hlaut yfir- burða kosningu í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík um helgina. Hún fékk um 84 prósent gildra atkvæða í efsta sæti listans. Júlíus Vífill Ingvars- son hreppti annað sætið eins og áður segir. Samanlagt haut hann 1.816 at- kvæði í fyrsta til annað sæti af 6.847 gildum atkvæðum í prófkjörinu. Í raun ógnaði enginn Júlíusi Vífli; Kjartan Magnússon, sem næstur honum kom, skorti um 500 atkvæði til þess að eiga möguleika gegn honum í annað sætið. Skráðir sjálfstæðismenn í borginni með atkvæðisrétt eru 19.715. Þannig hreppti Júlíus Vífill annað sætið með stuðningi liðlega 9 prósenta sjálfstæð- ismanna í borginni. Hanna Birna naut stuðnings nærri 30 prósenta af heild- inni en 84 prósenta af gildum atkvæð- um eins og áður segir. Allir þeir sem sóttust eftir öðru sæt- inu röðuðu sér í efstu fjögur sæti list- ans á eftir Hönnu Birnu og Júlíusi Vífli. Það eru Kjartan Magnússon, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Gísli Marteinn Baldursson og Geir Sveinsson. Athyglisvert er að Gísla Martein skorti aðeins 19 atkvæði til þess að ná þriðja sætinu af Kjartani. Það varð hins vegar hlutskipti hans og Geirs Sveinssonar að keppa um sætin þar fyrir neðan eins og DV leiddi líkum að fyrir helgina. Gísli Marteinn hafnaði í fimmta sæti og Geir í því sjötta. Áslaug María Friðriksdóttir skaust upp fyrir Jórunni Frímannsdóttur, nú- verandi borgarfulltrúa, og hafnaði í sjöunda sæti listans. Aðeins 42 atkvæði skildu þær að þegar upp var staðið. Sjöunda sæti lista Sjálfstæðis- flokksins gæti hæglega orðið barátt- usæti flokksins í borgarstjórnarkosn- ingunum í vor. Því má halda fram að kosningabaráttan í vor snúist um að koma að öðrum eða báðum nýju full- trúunum á listanum, Geir og Áslaugu. Sterk staða Hönnu Birnu Hanna Birna þykir enn hafa styrkt stöðu sína innan Sjálfstæðisflokks- ins. Hún hefur siglt lygnan sjó eftir að hún tók við borgarstjóraembættinu í ágúst 2008, aðeins fáeinum vikum fyrir bankahrunið. Þá sleit Sjálfstæð- isflokkurinn samstarfinu við Ólaf F. Magnússon sem verið hafði borgar- stjóri með stuðningi flokksins. Á þessum tíma taldi Hanna Birna að mörg borgarmál væru sett í of mikinn áta- kafarveg af hans hálfu og myndaði nýjan meirihluta með Óskari Bergssyni, borgarfulltrúa Fram- sóknarflokks- ins. Eft- ir banka- hrun- ið hefur þjóðin og borgarbúar haft um annað að hugsa og kastljós fjölmiðlanna hefur tiltölu- lega lítið beinst að málefnum borgar- innar. Ólafur F. gerði hins vegar harða atlögu að Hönnu Birnu dagana fyr- ir prófkjörið og hélt því á lofti að bak- hjarlar hennar hefðu verið Kjartan Gunnarsson og Björgólfsfeðgar, fyrrverandi eigendur Landsbank- ans. FRÉTTIR 25. janúar 2010 MÁNUDAGUR 9 1. Hanna Birna Kristjánsdóttir 5.746 atkvæði í 1. sæti 2. Júlíus Vífill Ingvarsson 1.816 atkvæði í 1.-2. sæti 3. Kjartan Magnússon 2.092 atkvæði í 1.-3. sæti 4. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir 2.519 atkvæði í 1.-4. sæti 5. Gísli Marteinn Baldursson 2.725 atkvæði í 1.-5. sæti 6. Geir Sveinsson 3.049 atkvæði í 1.-6. sæti 7. Áslaug María Friðriksdóttir 3.353 atkvæði í 1.-7. sæti 8. Jórunn Frímannsdóttir 3.749 atkvæði í 1.-8. sæti 9. Hildur Sverrisdóttir 3.892 atkvæði í 1.-9. sæti 10. Marta Guðjónsdóttir 3.503 atkvæði í 1.-9. sæti Listi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík JÓHANN HAUKSSON blaðamaður skrifar: johannh@dv.is ANNAÐ SÆTIÐ KOSTAR TÍU MILLJÓNIR KRÓNA Stuðningsmenn nokkurra frambjóðenda í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík telja að Júlíus Vífill Ingvarsson hafi brotið samkomulag um að halda prófkjörskostnaði í skefjum. Stjórn fulltrúaráðs flokksfé- laganna hafði mælst til þess að hver frambjóðandi héldi kostnaði undir 1,5 milljónum króna. Hreppti annað sætið Júlíus Vífill keypti úthringingar hjá vönu fólki. Kostnaður við að hringja í 19 þúsund manns hleypur á milljónum króna. Borgarstjórinn Staða Hönnu Birnu Kristjánsdóttur var sterk og hefur enn styrkst eftir prófkjörið. Prófkjör Aðeins um 36 prósent sjálfstæðismanna í Reykjavík svöruðu kalli og kusu í prófkjörinu á laugar- dag. Það er langt um minna en fyrir fjórum árum. Þetta á eftir að taka saman og ég veit eftir nokkra daga hver kostnaðurinn varð. „Ég er afskaplega ánægður en fyrst og fremst er ég þakklátur fyrir þenn- an mikla stuðning,“ segir Guðmund- ur Baldvin Guðmundsson sem sigraði með yfirburðum í prófkjöri framsókn- armanna á Akureyri á laugardaginn og er því nýr leiðtogi flokksins fyrir norð- an. Guðmundur hefur verið virkur í flokksstarfi í um tvö ár en bauð sig fram í fyrsta sinn. Þegar Jóhannes Bjarna- son bæjarfulltrúi tilkynnti að hann myndi ekki gefa kost á sér áfram ákvað Guðmundur að láta slag standa. „Það kom mér ánægjulega á óvart hvað ég náði miklu fylgi en ég var búinn að finna fyrir góðum stuðningi og fann að ég átti hljómgrunn hjá fólki. Ég var farinn að gæla við hugmyndina að ég myndi ná þessu en bjóst ekki við jafn- afgerandi niðurstöðu og kom í ljós,“ segir Guðmundur sem hlaut 66 pró- sent gildra atkvæða í fyrsta sætið. Petr- ea Ósk Sigurðardóttir varð í öðru sæti og Sigfús Arnar Karlsson í því þriðja en alls greiddu 1.106 einstaklingar at- kvæði í prófkjörinu sem var opið. Guðmundur Baldvin er 47 ára, í sambúð með Soffíu Gísladóttur, for- stöðumanni Vinnumálastofnunar á Akureyri. Þau eiga samtals sjö börn á aldrinum níu til 25 ára. Aðspurð- ur hver helstu stefnumál framsókn- armanna á Akureyri séu nefnir Guð- mundur atvinnumálin. „Hér eru 750 manns atvinnulausir sem er mikið áhyggjuefni. Annars eigum við eftir að setjast niður og gefa okkur góðan tíma til að koma með stefnuskrá fyrir kosn- ingarnar. Ég er stoltur að fá að leiða þennan lista með þessu góða og hæfi- leikaríka fólki.“ indiana@dv.is Mikið fylgi í prófkjöri Framsóknar kom Guðmundi B. Guðmundssyni á óvart: Sigraði með yfirburðum Nýr leiðtogi Guðmundur fékk 66% gildra atkvæða í fyrsta sætið Þór er með kvíðahnút Þór Sigfússon, fyrrverandi for- stjóri Sjóvár, viðurkenndi í kvöld- fréttum Stöðvar 2 á sunnudag að hann væri með kvíðahnút í mag- anum vegna rannsóknar sérstaks saksóknara á honum. Þór sagðist sjá mikið eftir ýmsu í tíð sinni sem forstjóri Sjóvár. Eins og DV greindi frá um helgina virðist Þór hafa vitað lítið um fjárfestingar tryggingafélags- ins og vissi oft á tíðum ekkert undir hvaða samninga hann var að skrifa hjá tryggingafélaginu. Þór vildi ekki gangast við því aðspurður að það hefði verið hans starf sem forstjóra að vita nákvæmlega undir hvað hann var að skrifa. Hans starf hafi verið að umkringja sig fólki sem hann gæti treyst til að ráðleggja honum í þeim efnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.