Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2010, Qupperneq 21
ÆTTFRÆÐI 3. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR 21
Hannes Sigurðsson
FORSTÖÐUMAÐUR LISTASAFNSINS Á AKUREYRI
Hannes fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann stundaði nám á
blokkflautu, píanó og síðan þver-
flautu um margra ára skeið við Tón-
listarskóla Sigursveins D. Kristins-
sonar, lauk stúdentsprófi frá MH
1979, stundaði nám við Tónlistar-
skólann í Reykjavík frá 1979 og lauk
þaðan lokaprófi í flautuleik, ásamt
prófum í hljómfræði, tónheyrn og
tónlistarsögu 1984, stundaði nám
við Myndlista- og handíðaskóla Ís-
lands frá 1980 og lauk þaðan prófi
úr málaradeild 1984, lauk BA-prófi í
listasögu frá listfræðideild Lundúna-
háskóla 1988, og MA-prófi frá list-
fræðideild Kaliforníuháskóla í Berkl-
ey 1990.
Á unglingsárunum var Hannes
sendill og stundaði netavinnu hjá
Hampiðjunni, var við afgreiðslu-
störf hjá Nesti, var rafgreinir hjá Ál-
verinu og vann við garðyrkju. Hann
var blaðamaður við dagblaðið Vísi
1984-85, var gestakennari við Mynd-
listaskólann á Akureyri 1985 og
kenndi flautuleik við Tónmennta-
skóla Reykjavíkur og Tónlistarskóla
Njarðvíkur 1984-85. Að námi loknu
stundaði Hannes sýningastjórnun
og skriftir um myndlist í New York
1990-95. Eftir heimkomuna starf-
rækti hann eigin sýningarsal, Sjónar-
hól, og var menningarfulltrúi Menn-
ingarmiðstöðvarinnar í Gerðubergi
1995-97. Hann stofnaði Íslensku
menningarsamsteypuna art.is í árs-
lok 1997, hefur verið framkvæmda-
stjóri hennar síðan og er nú for-
stöðumaður Listasafnsins á Akureyri
frá 1999.
Hannes spilaði með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands 1984 og lék oft-
sinnis einleik á flautu bæði í út-
varpi og sjónvarpi. Hann söng með
kór Menntaskólans við Hamrahlíð
og með Pólýfónkórnum. Hannes
skrifaði reglulega í Lesbók Morgun-
blaðsins 1990-94, flutti pistla i Rik-
isútvarpið um myndlist i New York
1993-94, var leiðsögumaður fyr-
ir Samvinnuferðir-Landsýn 1993 og
1996, og hafði umsjón með mynd-
listarumfjöllun í menningarþætti
rikissjónvarpsins, Mósaík, 1998-99.
Meðal rita eftir Hannes má nefna
Eitt sinn skal hver deyja; Flögð og
fögur skinn; Lífæðar; Heimur kvik-
myndanna; Hláturgas; The Mount-
ain Georg Guðna; Facing China; Líf-
staktur, um Andrew Rogers; Ekki orð
– um Jón Laxdal; Þjóð í mótun: Ís-
land og Íslendingar fyrri alda; Inn og
út um gluggann; Ísland Grænland og
Færeyjar skoða hvert annað; Rembr-
andt og samtíðarmenn hans; Milli
goðsagnar og veruleika: Nútíma-
list frá arabaheiminum; Akureyri í
myndlist I og II; Stríðsmenn hjart-
ans: eitt hundrað milljónir í reiðufé;
Hvítir skuggar – um Margréti Jóns-
dóttur leirlistakonu; Bæ bæ Ísland:
Uppgjör við gamalt konsept; Búdda
er á Akureyri; Kreppumálararnir;
Orð Guðs; Aðkomumaður – um Jor-
is Jardemaker, bækur um Íslensku
sjónlistaverðlaunin 2006-2008 og
Augu gula skuggans – um Jón Ósk-
ar. Hannes hefur skrifað fjölda bæk-
linga og greina fyrir blöð og tímarit,
þýddi bókina Harún og sagnarhafið,
eftir Salman Rushdie, útg. 1993 og
1995, og hefur auk þess þýtt á annan
tug fræðilegra greina um myndlist,
flestar þeirra óbirtar.
Hannes átti sæti í starfshópi um
stefnumótun fyrir Reykjavíkurborg
1997 um menningu, skemmtun, um-
hverfi og fræðslu á komandi árum,
sat í Launasjóði myndlistarmanna,
sat i úthlutunarnefnd starfslauna úr
Launasjóði myndlistarmanna 1996,
var fulltrúi SÍM í fulltrúaráði Lista-
hátíðar í Reykjavík 1994-96, var list-
rænn skipuleggjandi fyrir tímarit-
ið Der Stern, og var umboðsmaður
listamannanna Jiri Georg Dokoupil
og Daryush Shokof, stofnanda max-
ímalismans. Hann var útnefndur til
menningarverðlauna DV 1997 og
1998.
Fjölskylda
Hannes kvæntist 5.7. 1986 Sesselju
Guðmundsdóttur, f. 29.9. 1961, sér-
fræðingi í barnahjúkrun og sviðs-
stjóra Ung- og smábarnaverndar á
Þróunarstofu heilsugæslunnar. Þau
hófu sambúð 1980. Hún er dóttir
Guðmundar Baldvinssonar sem er
látinn, og Guðnýjar Guðjónsdótt-
ur en þau starfræktu Mokka-kaffi í
Reykjavík frá upphafi.
Dætur Hannesar og Sesselju eru
Guðný Hannesdóttir, f. 14.9. 1994;
Hugrún Hannesdóttir, f. 26.3 1997.
Systkini Hannesar eru Jón Sig-
urðsson, f. 16.11. 1954, viðskipta-
fræðingur hjá Promens; Albert Páll
Sigurðsson, f. 17.10.1961, taugasér-
fræðingur á Landspítala Háskóla-
sjúkrahúsi; Ólöf Guðrún Sigurð-
ardóttir, f. 17.10.1961, doktor og
sjúkdómameinafræðingur og dýra-
læknir að Keldum.
Foreldrar Hannesar: Sigurð-
ur Jónsson, f. 4.1.1925, d. 3.5. 2005,
lyfjafræðingur í Reykjavík, og Guð-
laug Ágústa Hannesdóttir, f. 4.3.1926,
hjúkrunarfræðingur.
Ætt
Stjúpfaðir Sigurðar Jónssonar lyfja-
fræðings var Albert P. Goodman,
sendiráðsfulltrúi í Bandaríska
sendiráðinu, sonur Lárusar Guð-
mundssonar og Ingibjargar Guð-
mundsdóttur. Sigurður er sonur
Jóns, raffræðings Sigurðssonar, próf-
asts í Flatey á Breiðafirði Jenssonar,
rektors Lærða skólans í Reykjavik
Sigurðssonar, bróður Jóns forseta.
Móðir Sigurðar lyfjafræðings var
Ólöf Guðrún, dóttir Sigurður Bjarna-
sonar, sjómanns í Reykjavík og Odd-
nýjar Sigríðar Jónasdóttur.
Guðlaug Ágústa er dóttir Hann-
esar, skipstjóra á Ingólfi Arnarsyni,
eins af stofnendum og síðar for-
stjóra Hampiðjunnar, sonar Páls,
skipstjóra í Reykjavík Hafliðasonar
og Guðlaugar Ágústu Lúðviksdóttur.
Móður Guðlaugar var Ásdís, dótt-
ir Þorsteins Ólafssonar, b. í Innra-
Akraneshreppi, og Kristínar Eyjólfs-
dóttur.
30 ÁRA
n Gísli Sigurðsson Ljósheimum 4, Reykjavík
n Sigríður Ásta Klörudóttir Hofteigi 10,
Reykjavík
n Hulda Ósk Jónsdóttir Lækjamótum 95,
Sandgerði
n Þórhildur Birgisdóttir Fífuhvammi 35,
Kópavogi
n Ásgrímur Sigurðsson Öldugötu 27, Reykjavík
n Arnþrúður Anna Gísladóttir Stóragerði 25,
Reykjavík
n Rut Sigurmonsdóttir Grenigrund 46, Akranesi
n Friðrika Björk Þorkelsdóttir Skaftahlíð 42,
Reykjavík
40 ÁRA
n Zbigniew Kazimierz Krzeminski Fossahlíð 5,
Grundarfirði
n Helgi Tómasson Sóltúni 7, Reykjavík
n Guðrún Elín Pálsdóttir Útskálum 9, Hellu
n Helga Rut Guðmundsdóttir Stigahlíð 4, Reykjavík
n Helga S Steingrímsdóttir Skipasundi 11, Reykjavík
n Jóhannes Freyr Stefánsson Ánabrekku, Borgarnesi
n Guðrún Friðbjörg Eyjólfsdóttir Jörfalind 3,
Kópavogi
n Ýr Vésteinsdóttir Stóragerði 16, Reykjavík
50 ÁRA
n Sigríður Bachmann Framnesvegi 61, Reykjavík
n Jónína Guðrún Jack Hólmgarði 3, Reykjavík
n Steingrímur Ingason Dynskógum 30, Hveragerði
n Ólafur Daðason Silungakvísl 31, Reykjavík
n Pétur Andrésson Ljósabergi 28, Hafnarfirði
n Kristján G Guðmundsson Deildarási 19, Reykjavík
n Gunnhildur Harpa Hauksdóttir Laugateigi 26,
Reykjavík
n Guðný Björk Hauksdóttir Kárastíg 13, Reykjavík
n Valdís Inga Kristinsdóttir Heiðarhrauni 25,
Grindavík
n Elín Guðmundsdóttir Lyngheiði 22, Kópavogi
60 ÁRA
n Birna Sverrisdóttir Vesturbergi 78, Reykjavík
n Ásgeir Magnússon Klettaborg 9, Akureyri
n Oddný Snorradóttir Hjarðarhaga, Akureyri
n Björn Sveinsson Skipalóni 20, Hafnarfirði
n Gunnar Stefánsson Þórðarsveig 4, Reykjavík
70 ÁRA
n Erla Jóhannsdóttir Heiðarbraut 5, Sandgerði
n Sigríður Guðjónsdóttir Breiðuvík 5, Reykjavík
n Sólveig Guðbjartsdóttir Mánasundi 7,
Grindavík
n Guðmundur Jónsson Hjarðarslóð 4e, Dalvík
75 ÁRA
n Emilía Ósk Guðjónsdóttir Árskógum 8, Reykjavík
n Einar Helgason Hrappsstöðum 2, Vopnafirði
n Þráinn Ölversson Álftahólum 4, Reykjavík
n Eysteinn Jónsson Kirkjuvegi 11, Reykjanesbæ
80 ÁRA
n Ólöf Helgadóttir Stafni, Húsavík
n Arnfríður Hermannsdóttir Engjavegi 25, Ísafirði
n Þuríður Erla Erlingsdóttir Lautasmára 1, Kópavogi
n Jón Magnússon Aðalstræti 124, Patreksfirði
85 ÁRA
n Hallfríður Guðmundsdóttir Hlíðarhúsum 3,
Reykjavík
90 ÁRA
n Lilja Halldóra Guðnadóttir Hæðargarði 35,
Reykjavík
95 ÁRA
n Guðlaug Ingvarsdóttir Nesgötu 41, Neskaupstað
50 ÁRA Í DAG
30 ÁRA
n Leilane Benitez Tumarao Stífluseli 9, Reykjavík
n Svandís Ósk Helgadóttir Arnarhrauni 22,
Hafnarfirði
n Harpa Þórsdóttir Stekkjarhvammi 74, Hafnarfirði
n Unnar Þór Bachmann Reynihlíð 6, Reykjavík
n Rakel Grettisdóttir Fossheiði 14, Selfossi
n Ásgrímur Örvar Jónsson Álfhólsvegi 63, Kópavogi
n Guðný Þórsteinsdóttir Bólstaðarhlíð 48, Reykjavík
n Sveinbjörn Kári Haraldsson Reykjavegi 54,
Mosfellsbæ
n Kristín Björg Aradóttir Heiðmörk 20v, Hveragerði
n Heiðdís Dröfn Bjarkadóttir Stekkjartúni 22,
Akureyri
n Árni Geir Bergsson Hverfisgötu 18, Siglufirði
n Guðlín Ósk Bragadóttir Austurbergi 38, Reykjavík
n Óskar Örn Adolfsson Sléttahrauni 15, Hafnarfirði
n Tryggvi Baldursson Seilugranda 9, Reykjavík
n Höskuldur Örn Arnarson Biskupsgötu 1, Reykjavík
n Sverrir Örn Sverrisson Lokastíg 20a, Reykjavík
40 ÁRA
n Margrét Hjartardóttir Skógarbraut 1109,
Reykjanesbæ
n Guðrún Sóley Gunnarsdóttir Langeyrarvegi 13,
Hafnarfirði
n Hjördís Stefánsdóttir Hvammshlíð 9, Akureyri
n Árný Davíðsdóttir Lindarbraut 14, Seltjarnarnesi
n Yngvi Freyr Guðmundsson Miðhúsum 18,
Reykjavík
n Ottó Davíð Tynes Laugavegi 98, Reykjavík
50 ÁRA
n Sigrún Birgisdóttir Leiðhömrum 33, Reykjavík
n Jón Ögmundsson Lómasölum 12, Kópavogi
n Friðrik Magnússon Holtateigi 20, Akureyri
n Þóra Guðmundsdóttir Kambaseli 81, Reykjavík
n Somjai Chotcharee Stigahlíð 24, Reykjavík
n Jaroslaw Tadeusz Suwala Heiðargerði 24,
Akranesi
n Auður Eggertsdóttir Skálatúni Norðurhlíð,
Mosfellsbæ
n Kolbrún Björnsdóttir Undralandi 10, Reykjavík
60 ÁRA
n Birgir J Halldórsson Grensásvegi 60, Reykjavík
n Jóna G Þórðardóttir Víkurtúni 15, Hólmavík
n Gizur Gottskálksson Ægisgrund 20, Garðabæ
n Halldór Sverrisson Skeiðarvogi 79, Reykjavík
n Rúnar Haukur Friðjónsson Kirkjuvegi 32,
Reykjanesbæ
n Haraldur Haraldsson Bólstaðarhlíð 10, Reykjavík
n Arnþór Árni Ström Hraunbæ 96, Reykjavík
n Jóhanna Siggeirsdóttir Brúnastöðum 13,
Reykjavík
n Guðni Baldursson Grandavegi 3, Reykjavík
n Pauline Jean Haftka Fagurhóli 10, Grundarfirði
70 ÁRA
n Bjarney Kristjánsdóttir Miðvangi 157,
Hafnarfirði
n Valgerður Kristjánsdóttir Garðarsbraut 39,
Húsavík
n Egill Jónsson Haukanesi 11, Garðabæ
n Svanberg Einarsson Skálateigi 3, Akureyri
n Guðrún Traustadóttir Norðurbraut 26,
Hafnarfirði
n Jóhanna Jónasdóttir Mánatúni 4, Reykjavík
n Hilmar Hafstein Svavarsson Lækjarseli 4,
Reykjavík
75 ÁRA
n Bergljót Ellertsdóttir Gnoðarvogi 40, Reykjavík
n Ragnar Kristinn Helgason Birkigrund 17,
Selfossi
80 ÁRA
n Elísabet A Möller Naustahlein 20, Garðabæ
n Jón Ísleifsson Stapavöllum 23, Reykjanesbæ
TIL HAMINGJU INGJU
AFMÆLI 3. MARS
TIL HAMINGJU
AFMÆLI 4. MARS
Guðjón Guðjónsson, ráðstefnu-
stjóri á Sögu sem nú heitir víst
Radison Blu – Saga Hótel, Reykja-
vík, er þrítugur í dag. Hann kipp-
ir sér ekki upp við eitt stórafmæli,
enda þaulvanur að láta fjölmenn-
ar, alþjóðlegar ráðstefnur ganga
eins og smurða vél. En hvað ætlar
ráðstefnustjórinn að gera í tilefni
dagsins?
„Ég stend ekki í neinum stórræð-
um á sjálfan afmælisdaginn, svona
í miðri viku. Konan er að vísu búin
að hóta því að fara með mig út að
borða og það má vel vera að við för-
um á einhvern huggulegan stað og
eigum saman rólega kvöldstund.“
Og verður það allt og sumt?
„Nei, nei. Verður maður ekki að
gera eitthvað fyrir stórfjöldskylduna
– vera með kaffi og kökur. Ég geri
ráð fyrir því. En það verður nú samt
ekki á sjálfan afmælisdaginn.“
En vinirnir .Verður ekkert gert
fyrir þá?
„Jú jú. Það verður móttaka fyrir
þá. Móttaka þar sem þeir meðtaka.“
Og hvenær verður sú móttaka og
hvar? Ertu búin að leigja sal á Sögu?
„Nei, nei. Hún verður nú bara
í salnum sem er stofan heima hjá
mér. Þar verðum við með einhvern
pinnamat og léttar veitingar. Og
þessi móttaka fer líklega fram laug-
ardaginn 13. mars.“
Er ekki þrettán óhappatala?
,,Nei, það er happatalan mín.“
En ertu eitthvað búinn að
skipuleggja þetta nánar. Verðurðu
kannski með eitthvað þema – og
ætlarðu að leyfa ræðuhöld?
„Nei, það verður sko ekkert
þema. Fólk má alveg koma í fötum
ef það vill. Og ég ætla ekki að banna
mínum mönnum að tala. Í mínum
málglaða vinahópi yrði slíkt bann
virt að vettugi. Reyndar skipuleggur
maður ekki hvernig sá hópur gerir
sér glaðan dag. Hann fer bara sínu
fram.“
Ráðstefnustjóri á Radison Blu:
AFMÆLI FYRIR FÓLK Í FÖTUM
sm
aa
r@
d
v.
is