Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2010, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2010, Blaðsíða 19
ÆTLAR ÞÚ AÐ TAKA ÞÁTT Í ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLUNNI EF AF HENNI VERÐUR? „Já.“ BIRGIR INGI 53 ÁRA GRAFÍSKUR HÖNNUÐUR „Já.“ VALDIMAR HALLDÓRSSON 42 ÁRA „Já, ég ætla að gera það.“ HALLDÓR MÁR FREYSSON 26 ÁRA ÍÞRÓTTAKENNARI „Já.“ ELVAR ÞÓR FRIÐRIKSSON 23 ÁRA STARFSMAÐUR Í ÁLVERINU Í STRAUMSVÍK JÓN PÁLSSON er verkefnisstjórinn á bak við hugmyndina um heilsuklasa í Mosfellsbæ en hugmyndin verður kynnt á morgun fimmtudag í Listasafni Mosfellsbæjar. Draumurinn er að Mosfellsbær verði miðstöð heilsuefl- ingar og endurhæfingar á Íslandi. VILL NÝTA FRÁBÆRT UMHVERFI „Já, ég hafði hugsað mér að gera það.“ ARNAR JÓNASSON 34 ÁRA SKRIFSTOFUMAÐUR Skærasta villuljósið í samtíma ís- lenskra stjórnmála er Icesave-málið. Miðað við gengi íslensku krónunnar gagnvart helstu gjaldmiðlum í byrj- un vikunnar var höfuðstóll upphæð- arinnar, sem í raun þarf að ábyrgjast, aðeins um 70 milljarðar króna í byrj- un vikunnar miðað við 90 prósenta heimtur úr þrotabúi Landsbankans. Málið hefur verið notað af stjórnar- andstæðingum, forsetanum og villta vinstrinu í VG til þess að veita reiði og vonbrigðum íslenskrar þjóðar í þjóð- ernisfarveginn. Tilgangur þessa sundurleita hóps er margvíslegur en sameiginlega hefur hann espað hér upp hættulega þjóð- rembu. „Því miður verð ég að segja“ Tökum fyrst Framsóknarflokkinn. Formaður hans, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, hefur frá því hann varð formaður flokksins í janúar í fyrra lagt allt að veði fyrir þetta eina mál. Hann er einn af arkitektum herskárrar stefnu gegn öllum bollaleggingum um að rík- ið beri nokkra ábyrgð á innstæðum íslenskra einkabanka erlendis. „Hirð- ið þrotabú Landsbankans og talið við okkur eftir 6 ár ef eitthvað stendur út af. Annars sjáumst við bara í réttarsal.“ Allir vita að ekki er hægt að draga Icesave-málið inn í réttarsali gegn vilja einstakra málsaðila. Þeir sem fylgja Sigmundi að málum innan þing- flokksins hafa berum orðum sagt, að í góðu lagi sé að bíða út allt þetta ár og jafnvel hið næsta eftir niðurstöðu sem passar geðþótta formannsins. Sigmundur Davíð taldi í útvarps- viðtali í byrjun vikunnar að ríkisstjórn- in færi varla frá þótt úreltur Icesave- samningur frá áramótum yrði felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu. „Því miður verð ég að segja,“ bætti hann við og kom þar með upp um þann tilgang sinn að fella ríkisstjórnina. Svo lagði hann fram frumvarp með Hreyfingunni um að slíta samvinn- unni við AGS um endurreisnina. Þá klofnar Sjálfstæðisflokkurinn Lítum næst til Sjálfstæðisflokksins. Hann er í þeirri stöðu að hafa verið nánast einráður um fjármálastefnuna í landinu síðustu 17 árin fyrir banka- hrun og er grunaður um að vera vald- ur að því. En valdakerfi Flokksins er ekki hrunið. Hann hefur ítök í bönkun- um, atvinnulífinu, hagsmunasamtök- unum og þrír af hverjum fjórum lög- fræðingum, sem ráða nú landinu, eru í flokknum. Sjálfstæðisflokkurinn hef- ur auk þess sterk ítök í öllum stærstu fjölmiðlunum sem ræktað hafa þjóð- rembinginn. Undirliggjandi markmið Sjálfstæð- isflokksins er hið sama og Sigmundar Davíðs, að koma ríkisstjórninni frá. En daginn sem flokknum býðst að taka við valdataumunum samþykkir hann Icesave tafarlaust. Hann mun líka skrifa undir að leiða ESB-aðildarferl- ið til enda gegn því að fá að stýra því með einhverjum hætti. Þetta gæti ver- ið góður kostur fyrir íslensk stjórnmál því þá klofnar Sjálfstæðisflokkurinn nær örugglega. Pólitískur vanþroski Hver eru markmið Ögmundar Jón- assonar og „villta vinstrisins“ í VG? Þau eru margvísleg og byggjast meðal ann- ars á andúð á ESB, AGS, Hollending- um og Bretum og meintri kúgun og valdbeitingu erlendra afla. Ásmundur Einar Daðason, formaður Heimssýn- ar, sagði til að mynda í Silfri Egils um síðustu helgi, að nýfengin meðmæli ESB með aðildarumsókn væru váleg vegna þess að nú væri ESB að þvinga þjóðina inn í aðlögunarferli. ESB hafði þó ekki sagt neitt annað en það sem Ásmundur átti að geta tek- ið undir eins og nauðsyn þess að af- nema spillingu á Íslandi við veitingu dómaraembætta. Formenn stjórnarandstöðuflokk- anna, hafa haft þingmeirihlutann og ríkisstjórnina í herkví að undanförnu með liðsinni stjórnarliða í VG. Í byrj- un vikunnar tók Ögmundur afstöðu með stjórnarandstöðunni um fávís- lega þjóðaratkvæðagreiðslu með ein- um raunhæfum valkosti á kjörseðli, x við NEI. Ekki er þorandi að nefna persónu- lega misklíð innan VG. Enginn kjós- andi í landinu trúir því að á erfiðum tímum fái sálarástand einstakra þing- manna að ráða einhverju um örlög þjóðarinnar. En ef sú er engu að síður raunin verða kjósendur að fá að lifa í þeirri von að hvatvísin sé eins og hjá óstýrilátum unglingum sem dæmd- ir eru til þess að vaxa upp úr sínum bernskubrekum. Um forsetann og ritstjórann í Há- degismóum er fátt annað að segja en að þeir glíma báðir við yfirbótar- og til- vistarvanda. Þjóðremban er dragbítur þjóðarinnar JÓHANN HAUKSSON blaðamaður skrifar „Um forsetann og ritstjórann í Hádegis- móum er fátt annað að segja en að þeir glíma báðir við yfirbótar- og tilvistarvanda.“ UMRÆÐA 3. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR 19 1 JÓNÍNA BEN OG GUNNAR ÓAÐSKILJANLEG Gunnar í Krossinum og Jónína Ben skilgreina samband sitt sem vinasamband. 2 ÞRÁINN: FIMM PRÓSENT ÞJÓÐAR-INNAR ERU FÁBJÁNAR! Þráinn Bertelsson segir fimm prósent þjóðarinnar vera bjána fyrir að vera á móti listamannalaunum. 3 SVANIR SPRON VERÐA SELDIR Svanir eftir Arne Jacobsen í eigu Spron verða seldir. 4 FÆREYINGUM STENDUR UGGUR AF SJALDÆFUM SJÚKDÓMI Færeyingar eru uggandi yfir erfðasjúkdómnum CTD. 5 SNÝTTI SÉR Í KYRRSTÆÐRI BIFREIÐ OG FÉKK SEKT Breski kaupsýslumaðurinn Michael Mancini fékk sekt fyrir að snýta sér í bíl. 6 ÞAÐ RIGNDI FISKUM Í ÁSTRALÍU Íbúar í Lajamanu í Ástralíu eru enn að jafna sig eftir að fiskum tók að rigna yfir bæinn. 7 FYRSTA MYNDIN AF VARÐSKIPINU Í CHILE CNN í Chile birti mynd af varðskipinu Þór í fréttaflutningi af skemmdum í hafnarborginni Talcahuano. MEST LESIÐ á dv.is MYNDIN Hver er maðurinn? „Jón Pálsson.“ Hvað drífur þig áfram? „Áhugi á uppbyggingu samfélagsins og mannlífi.“ Hvar ólstu upp? „Í Neðra-Breiðholtinu í Reykjavík.“ Hverju ertu stoltastur af? „Af börn- unum mínum þremur. Svo á ég tveggja ára gamalt barnabarn sem er augasteinn afa síns.“ Hvað er heilsuklasi í Mosfellsbæ? „Í áratugi er búin að vera starfandi mikil heilsutengd starfsemi og Reykjalundur hefur verið ein helsta miðstöð endur- hæfingar á Íslandi. Heilsuklasi á að vera starfsemi sem byggð er upp í framhaldi af því sem fyrir er og á að tengjast heilsu- eflingu þar sem hið frábæra umhverfi og náttúra í kringum bæinn er nýtt. Ásamt því að skapa fleiri störf í heilsugeiranum. Þannig að heilsutengd starfsemi verði í raun helsta verkefni Mosfellsbæjar.“ Hvenær er stefnt að því að heilsu- klasinn verði opnaður? „Þar sem þetta er enn á kynningarstigi myndi það kannski verða á næsta ári.“ Myndast ný störf? „Það eru um 400 til 500 störf í greininni nú þegar og við stefnum að því að tvöfalda fjöldann með ýmissi starfsemi. “ Hver eru viðbrögðin við þessari hugmynd? „Við höfum fengið mjög góð viðbrögð fyrst og fremst frá bæjaryfirvöldum og svo Reykjalundi sérstaklega. Nú er svo komið að því að tengja fleiri aðila við. Við erum mjög ánægð með hversu fljótt var tekið við þessari hugmynd.“ Á Mosfellsbær að vera heilsubær? „Já, við viljum það. Við höfum þessa frábæru náttúru í nálægð við borgina og viljum því festa Mosfellsbæ í sessi sem miðstöð heilsueflingar og endurhæf- ingar.“ Hvaða bók er á náttborðinu? „Ég er að lesa bókina eftir Alan Greenspan, fyrrverandi bankastjóra Seðlabanka Bandaríkjanna. Hún heitir The Age of Turbulence.“ MAÐUR DAGSINS DÓMSTÓLL GÖTUNNAR KJALLARI Synt í kuldanum Þeir láta sér fátt um finnast þótt jörð sé snævi þakin og kalt í veðri, sjósundkapparnir í Nauthólsvíkinni. Það skiptir sennilega ekki öllu þegar ofan i er komið. Sjósund nýtur sífellt meiri vinsælda og þessi misserin má sjá straum fólks skella sér í sjóinn að loknum vinnudegi. MYND SIGTRYGGUR ARI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.