Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2010, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2010, Blaðsíða 3
FRÉTTIR 3. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR 3 fasteignafélag Frumherja á síðustu tveimur árum. Orri Vignir Hlöðversson, fram- kvæmdastjóri Frumherja, segir að allar fasteignir Frumherja hafi ver- ið færðar yfir í sérstakt fasteigna- félag á síðasta ári og að ástæðan sé sú að félagið hafi viljað aðskilja rekstur sinn og fasteignir. „Þetta er rekstrarleg ákvörðun sem tekin var í fyrra.“ Aðspurður hvort þessi ákvörðun hafi eitthvað að gera með þá rekstrarerfiðleika sem fé- lagið hafi staðið frammi fyrir seg- ir Orri svo ekki vera. „Þetta breyt- ir engu fyrir lánardrottna félagsins eða eigendur og þessar breyting- ar voru gerðar í samráði við við- skiptabanka félagsins og endur- skoðendur,“ segir Orri. Finnur heldur Frumherja Aðspurður um þær efasemdir um rekstrarhæfi félagsins sem fram koma í ársreikningi þess segir Orri: „Þetta kemur fram í áliti endur- skoðanda og er ekki óeðlilegt í ljósi skuldastöðu félagsins. Við ætlum okkur hins vegar að berjast við þetta fjall á komandi árum og það hjálpar okkur þar að rekstur félags- ins er góður.“ En þess ber að geta að gengishrun krónunnar hafði mikil áhrif á skuldastöðu Frumherja þar sem skuldir félagsins eru að mestu í erlendum myntum. Þrátt fyrir þessa erfiðu skulda- stöðu Frumherja virðist Finnur Ingólfsson því ætla að halda félag- inu, að minnsta kosti næstu árin, þótt alveg sé ljóst að erfitt verður að grynnka á skuldum félagsins eftir erfiðleikana sem gengu yfir efnahagslífið á hrunárinu mikla. Skuldirnar um 10 milljarðar Þrjú eignarhaldsfélög í eigu Finns Ingólfssonar skulda samtals um tíu milljarða króna. Rekstrarhæfi þessara félaga til framtíðar byggir á ýmsum óvissuþáttum sam- kvæmt ársreikningum þeirra. Oddur Eysteinn Friðriksson, fyrr- verandi starfsmaður Sláturfélags Suðurlands, SS, vísar því alfarið á bug að hann hafi nokkuð með áróðurssíðuna slaturfelagid.com að gera. Hann þarf nú að verjast fyrir rétti því eftir kæru forstjóra fyr- irtækisins, Steinþórs Skúlasonar, og lögreglurannsókn var Oddur Ey- steinn ákærður fyrir meiðyrði. DV greindi fyrst frá vefsvæðinu umdeilda í febrúar árið 2008 en þá þegar lýsti Steinþór því yfir að hann teldi sig vita hver stæði á bak við síðuna og að um væri að ræða fyrrverandi starfsmann fyrirtækis- ins sem vildi koma óorði á hann og fyrirtækið. Á síðunni var forstjórinn sagður vera að slátra fyrirtækinu með harðneskjulegum stjórnun- arstíl sínum og lélegum starfsanda innan þess. Í fyrstu var kastljósinu beint að Steinþóri ein- um og hann niður- lægður með ýms- um hætti. Síðar voru fleiri yfirmenn fyrirtækisins nafn- greindir og birtar myndir af þeim þar sem þeir voru kall- aðir rassasleikjur forstjórans. Stein- þór sagði í samtali við DV að á end- anum hefði hann fengið nóg og því lagt inn kæru. Rangur maður Oddur Eysteinn fullyrðir í mál- svörn sinni fyrir rétti að alveg frá því að áróð- urinn hafi byrjað á vefsvæðinu slat- urfelagid.com hafi Steinþór lagt sig allan fram við að koma á sig höggi og þannig meðal annars beitt sér fyrir því að Oddur missti starf sitt á öðrum vinnustað. Aðspurður hvers vegna lögreglan telji hann standa að síðunni seg- ist hann ekkert skilja í því. „Þetta eru einhverjar ranghugmynd- ir hjá Steinþóri. Ég tengist þessari síðu ekkert. Ég stóð ekki að baki henni, skrifaði ekki þar inn og þeir eru að taka rang- an mann,“ segir Oddur Eysteinn. Í yfirlýs- ingu sem Odd- ur sendi frá sér þegar ákæran kom fram lýsti hann strax yfir sakleysi sínu þrátt fyrir að hann segðist deila skoðunum með þeim sem skrifaði inn á vefsvæðið um- deilda. „Sama virðist gilda um lögfræðing Steinþórs sem gerir ekki kröfu um að ummælin verði dæmd dauð og ómerk,“ bend- ir Oddur Eysteinn á. Vill frávísun Oddur Eysteinn hefur ákveðið að kæra framgöngu forstjóra Sláturfé- lagsins til Persónuverndar en hann vill meina að Steinþór hafi kom- ist yfir persónuleg gögn sín í leyf- isleysi. Hann segir engar sannan- ir liggja fyrir því að hann eigi aðild að vefsvæðinu. „Ég ber enga ábyrgð á þeim skrifum sem koma fram á þessari síðu. Þeir hafa ekki neitt á mig. Fyrir liggur einhver vitnis- burður sem tengir mig við þetta en meira er það ekki. Það eru eng- ar sannanir fyrir því að ég sé þessu tengdur,“ segir Oddur Eysteinn. „Ég mun kæra aðgang forstjór- ans að tölvu sem hann fékk þar sem ég vann einu sinni. Þetta mun ég kæra til Persónuverndar. Heima hjá mér og í tölvunni minni hefur lög- reglan ekkert fundið. Ég vonast til þess að málinu verði bara vísað frá.“ Fyrrverandi starfsmaður Sláturfélags Suðurlands, Oddur Eysteinn Friðriksson, vísar því á bug að tengjast áróðursvefsvæði gegn forstjóra fyrirtækisins. Hann skilur ekki hvers vegna lögregla tengir hann við síðuna og vonast eftir frávísun hjá dómstólum. „ÉG TENGIST ÞESS- ARI SÍÐU EKKERT“ DV Fréttir miðvikudagur 20. febrúar 2008 7Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands, SS, er sagður vera að slátra fyrirtækinu með harð-neskjulegum stjórnunarstíl sínum. Því er haldið fram á sérstöku vefsvæði, slaturfelagid.com, sem stofnað var til höfuðs forstjóranum. Særandi lygavefur þar sem ráðist er að mannorði mínu, segir Steinþór forstjóri. SS kom næstverst út í könnun VR á starfsánægju. Innanhússrannsókn Sláturfélags Suðurlands, SS, stendur yfir vegna ásakana á hendur forstjóra fyrirtæk- isins, Steinþóri Skúlasyni. Hann er sakaður um forneskjulega stjórn- unarhætti sem jafnt og þétt séu að eyðileggja allan starfsanda innan félagsins. Þá hefur einnig verið leit- að til bæði lögreglu og lögmanna vegna málsins. Óánægðir og ónafngreindir starfsmenn hafa komið á sérstöku vefsvæði, slaturfelagid.com, þar sem stjórnunarháttum forstjóra SS er mótmælt harðlega og honum kennt um hina miklu óánægju sem mælist meðal starfsmanna. Yfirskrift vef- síðunnar er: Látum ekki slátra félag- inu! Fljótlega eftir að vefsíðan komst í umræðuna kom fram tilkynning frá söludeild fyrirtækisins þar sem öll- um tengslum við síðuna var algjör- lega vísað á bug. Skömmu síðar var sett inn færsla á síðuna þar sem til- kynningin er sögð hafa verið knúin fram af stjórnendum og starfsmenn píndir til að skrifa undir. Talsmenn SS hafa hins vegar svarað þessum ásökunum fullum hálsi og sagt fyrrverandi starfsmenn reyna að koma höggi á fyrirtækið og um leið forstjórann. Vegið úr launsátri „Að sjálfsögðu særir þetta mig því hér er ekkert annað en lygavefur á ferðinni og ráðist á mannorð mitt. Að mínu mati er þetta vel á mörk- unum að kallast níð og óhróður sem beinist að mér persónulega. Þetta lítur út eins og haturssíður sem finnast víða erlendis. Ég vorkenni eiginlega þeim sem stendur þarna að baki. Lygavefurinn er greinilega skáldaður af mjög bitrum einstakl- ingi sem hefur ekkert betra að gera við líf sitt,“ segir Steinþór í samtali við DV. Aðspurður telur Steinþór sig vita hvaða starfsmaður stendur fyrir síðunni og segist vorkenna honum sárlega. Hann undrast nafnlausar árásirnar. „Það er leiðinlegt að þurfa að eyða tíma í svona sora því þetta er ekkert annað. Mér þykir nafn- leyndin sorgleg þar sem vegið er úr launsátri. Það er eðlilega þreytandi að þurfa að standa í þessu og það er auðvitað ömurlegt að fá svona utan- aðkomandi árás á sig. Ég veit hins vegar að að baki árásunum eru svo afbrigðilegar hvatir að ég get ekki látið þetta trufla mig mikið. Ég er ekki á barmi þess að brotna undan þessu en að mér er mjög ómaklega vegið. Vissu- lega er þarna verið að reyna að eyðileggja mitt mannorð og það særir að sjálfsögðu, mikil ósköp,“ segir Steinþór. Slæmt and- rúmsloft Í könnun VR um starfsánægju starfsmanna að- ildarfélaga fyr- ir árið 2007 kom SS illa út. Fyrirtækið er í næstneðsta sæti af þeim 117 fyrirtækjum sem tóku þátt í könnuninni. Trúverðug- leiki stjórnenda fyrirtækisins bíður einnig hnekki þar sem hann mæld- ist aðeins 8 af 100 mögulegum. Steinþór er ekki ánægður með þessa útkomu hjá fyrirtækinu. Hann telur óánægjuna ekki síst hafa birst hjá söludeild fyrirtækisins og and- rúmsloftið í kringum fyrrverandi markaðs- og sölustjóra, Friðrik Ey- steinsson. „Andrúmsloftið í sölu- deildinni var ekki gott og það tengd- ist auðvitað stjórnun deildarinnar. Við höfum verið að vinna í því að laga andrúmsloftið í deildinni und- anfarið,“ segir Steinþór. „Ég get ekki verið með neinar getgátur um það hvort þessi fyrrver- andi yfirmaður standi að baki síð- unni. Ég tel mig vita nákvæmlega hver þetta er og nú þarf að sanna það eftir tiltækum leiðum. Auðvitað erum við að rekja þessa slóð, bæði með skoðun innanhúss og með ut- anaðkomandi aðstoð.“ Líkur á kæru Steinþór segist ekki ætla að láta þessa skringilegu herferð trufla sig of mikið. Aðspurður útilokar hann að stuðningsyfirlýsingar hafi ver- ið píndar fram. „Skaðinn er í raun skeður og það er virki- lega neikvætt að reynt sé að láta þetta líta út sem verknaður núver- andi starfsfólks. Ég er sannfærður um að svo sé ekki,“ segir Steinþór. „Ég á ekki í neinum vandræðum með að standa við mín verk. Í atvinnugreininni hafa verið miklir erfið- leikar en Sláturfélagið stendur gríðarlega vel.“ Steinþór staðfestir að lögregla aðstoði við rann- sókn málsins og vonast hann til þess að því ljúki sem fyrst. Hann útilokar ekki að höfðað verði meiðyrðamál vegna skrifanna á vefsvæðinu. „Við viljum bara að þetta hætti. Að sjálfsögðu höfum við leitað til lögfræðings vegna máls- ins og erum við að kanna lagalega stöðu. Það þarf að meta vandlega hvaða hlutir hafa komið þarna fram og við hvaða lög það varðar. Mér er að sjálfsögðu annt um mitt mann- orð. Það liggur ekkert fyrir um mála- rekstur og óvíst hvort maður hafi áhuga á slíku gagnvart einhverjum sem á svona bágt,“ segir Steinþór. Við vinnslu fréttarinnar var ítrekað reynt að ná í Friðrik Ey- steinsson, fyrrverandi markaðs- og sölustjóra SS, en án árangurs. TrauSTi hafSTeinSSon blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Nýi forstjóriNN verður að: n bjóða góðan daginn! n Njóta trausts og virðingar n vita hvað forstjóri á að gera n vera meðvitaður um hvað er að gerast í fyrirtækinu n Líta á starfsfólk sem auðlind n vera framsækinn n móta stefnu - aðra en þá að hanga á forstjórastöðunni eins og hundur á roði n beita nútímalegum stjórnunaraðferðum n Taka skynsamlegar ákvarðanir n Hafa kímnigáfu n Ná árangri í starfi n Henda kristöllunum! Af slaturfelagid.com „Það liggur ekkert fyrir um málarekstur og óvíst hvort mað- ur hafi áhuga á slíku gagnvart einhverjum sem á svona bágt.“ Sár forstjóri Steinþór vorkennir starfsmanninum sem stendur að baki haturssíðunni í hans garð. Hann telur sig vita hver þetta er og útilokar ekki málaferli. Úttekt að ljúka Ríkisendurskoðun vinnur hörðum höndum að því að ljúka stjórnsýslu- úttekt sinni á vinnubrögðum Þróunarfélags Keflavíkurflug- vallar við sölu á ríkiseign- um á varn- arliðssvæðinu. Áhersla er lögð á að leggja mat á söluaðferðir félagsins við sölu 1.660 íbúða til fyrirtækisins Háskólavalla ehf. og sölu 22 skemma til fyrirtæks- ins Base ehf. Forsvarsmenn Þró- unarfélagsins og bæjarfulltrúar Reykjanesbæjar hafa verið sagð- ir vanhæfir í málinu og bent hef- ur verið á rík tengsl kaupenda við Sjálfstæðisflokkinn. Í úttekt Ríkisendurskoðunar verður tekin afstaða til þessa vanhæfis. Vonast er til þess að henni ljúki í vikunni og niðurstöður verði ljósar fyrir helgi. „Ég get ekki útilokað að þetta hafi gerst og biðst innilega afsökunar ef einhver viðskiptavinur okkar hefur lent í svona uppákomu. Það er alls ekki stefna staðarins að fæla útlend- inga frá eða hamla þeim inngöngu,“ segir Fannar Alexander Arason, vaktstjóri á skemmtistaðnum Vega- mótum. Hluti viðskiptavina Vegamóta hef- ur vaxandi áhyggjur af fordómum í garð útlendinga á staðnum. Einn gestanna hafði samband við DV og lýsti upplifun sinni um nýliðna helgi. Hann hafði ætlað sér að heimsækja Vegamót í slagtogi við þeldökkan félaga sinn. Er viðkom- andi kom að innganginum vísaði dyravörður staðarins honum frá og gaf þá skýringu að hann væri ekki velkominn þar sem hann væri klædd- ur eins og Pólverji. Að þessu sinni var viðkomandi klæddur í gallabuxur og hettupeysu. Ekki tók betra við er gesturinn gerði aðra tilraun til inngöngu, þá svaraði dyravörður því til að hann væri velkominn inn á stað- inn en ekki negrinn vinur hans. Fannar er verulega hissa á því að heyra slíka frásögn viðskiptavinar. Hann segir alla velkomna á Vegamót og ítrekar að stefna staðarins sé alls ekki að fæla ákveðna hópa frá. „Ég kannast ekki við nein svona dæmi enda gefum við okkur ekki út fyrir að vera rasistar. Það eru allir að sjálfsögðu velkomnir til okkar. Gaman væri ef viðkomandi gæti leitað til okkar því við viljum ræða við þann starfsmann okkar, viðkomandi dyravörð, sem kom svona fram því það hefur hann tekið algjörlega upp hjá sjálfum sér,“ segir Fannar. trausti@dv.is Vaktstjóri Vegamóta biðst afsökunar á meintu háttalagi dyravarðar:Eru ekki rasistar Vísað frá? frásagnir viðskiptavina vegamóta gefa til kynna að útlendingum sé markvisst hömluð innganga. ss-stjóri ver sig miðvikudagur 30. apríl 20084 Fréttir DV InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Forstjóri Sláturfélags Suðurlands, Steinþór Skúlason, hefur kært umsjónarmenn vefsvæðisins www.slaturfelagid.com fyrir árás í sinn garð. Það hafa að rir yfirmenn fyrirtækisins einnig gert eftir að hafa verið nafngreindir á svæðinu og birt ar myndir af þeim. Að baki vefsvæðinu eru sagðir óánægðir starfsmenn fyrirtækisins s em vilji ekki horfa upp á forstjórann slátra fyrirtækinu. SS grípur til vopna TrauSTi hafSTeinSSon blaðamaður skrifar: trausti@dv.is „Mér finnst mjög slæmt að menn geti komist upp með svona skrif og trúi því ekki að nokk- ur maður taki mark á þessu.“ Til höfuðs forstjóranum að baki slaturfelagid.com eru sagðir óánægðir starfsmenn SS sem vilji forstjórann burt. ekki sáttur Steinþór hefur fengið nóg af skít og ógeði á vefsvæðinu og treystir á lögreglu til að leysa málið. Hjálparsveit saknar kerru Hjálparsveit skáta í Kópavogi auglýsir eftir sleðakerru sem stolið var fyrir utan húsnæði sveitarinnar við Kópavogshöfn. Um er að ræða hvíta, tveggja sleða kerru frá Vögnum og þjón- ustu en númerið á henni er LY- 300. Grindin er galvaníseruð með sérstyrktu beisli og er kerran með sturtu og yfirbyggingin úr hvítu trefjaplasti. Stór merki HSSK eru aftan á kerrunni en engar merkingar á hliðinni. Ef einhver hefur upplýsingar um kerruna er sá hinn sami beðinn um að hafa samband við lögregluna á höfuð- borgarsvæðinu. Borgin styrkir kaffistofu Heiðar Guðnason, for- stöðumaður Samhjálpar, og Jórunn Frímannsdóttir, for- maður velferðarráðs Reykja- víkurborgar, undirrituðu í gær samning um rekstur félags- miðstöðvar og kaffistofu Sam- hjálpar. Samningurinn kveður á um að kaffistofan og félags- miðstöð verði rekin í alla vega þrjú ár. Þeim er ætlað að aðstoða þá sem farið hafa halloka í lífinu vegna sjúk- dóma, fátæktar eða annarra samfélagslegra vandamála. Samkomur verða í félagsmið- stöðinni einu sinni í viku og kaffistofan verður opin frá tíu til fjögur daglega. Maturinn hækkar Matvælaverð hækkaði milli vikna í öllum verslunum nema einni, samkvæmt nýrri verð- lagskönnun Alþýðusambands Íslands. Eina verslunin þar sem verðið lækkaði var verslun Sam- kaupa-Strax. ASÍ kannaði verðbreyting- ar milli fimmtándu og sextándu viku og komst að raun um að verð hefði hækkað í níu versl- unum af tíu. Mest hækkaði verðið í Kaskó, um 5,7 prósent milli vikna, og næstmest varð hækkunin í Nettó, 3,3 prósent. Verðið lækkaði hins vegar um 1,3 prósent í Samkaupum-Strax. Minnsta hækkunin var 0,7 pró- sent í Krónunni. Leiðrétting Vinningslíkurnar í lottó- inu sem voru gefnar upp í frétt blaðsins í gær eru rangar. Líkurnar á að fá þann stóra eftir breytingu verða einn á móti 658.008. Villan fólst í að reiknaðar voru líkur á að fá hverja tölu fyrir sig rétta sem gaf líkur upp á einn á móti 79 milljón (einn á móti 40 sinnum einn á móti 39 og svo framvegis). Rétt er hins vegar að reikna líkur á að ein af tölunum sem eru valdar verði næst fyrir valinu og þá eru líkurnar mun betri (5 á móti fjörutíu sinnum fjórir á móti 39 og svo framvegis). Atvinnuleysisbótasjóðir myndu duga til að greiða rúmlega 7.100 manns í e itt ár: Digrir bótasjóðir fyrir atvinnulausa Í atvinnuleysisbótasjóðum eru nú rúmlega 13 milljarðar króna. Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun hafa sjóðirnir vaxið jafnt og þétt undanfarin ár, þar sem atvinnuleysi hefur verið með minnsta móti. Atvinnuleysi í mars 2008 var 1 prósent líkt og í febrúar og voru að meðaltali 1.674 einstaklingar á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þetta er lítils háttar fjölgun frá febrúarmánuði, eða 43 einstaklingar, þó atvinnuleys- ið mælist óbreytt. Fyrir ári, eða í mars 2007, var atvinnuleysið 1,3 prósent. Atvinnuleysi eykst á höfuðborg- arsvæðinu um 10 prósent og fer í 0,8 prósent en var 0,7 prósent í febrúar. Á landsbyggðinni minnkar hins vegar atvinnuleysi um 3,5 prósent milli mánaða, fer úr 1,6 prósentum í febrúar í 1,5 prósent í mars. Þeir þrettán milljarðar króna sem nú eru til í atvinnuleysisbótasjóði myndu duga til að greiða ríflega 7.100 manns fullar bætur í heilt ár, að því gefnu að ekkert kæmi inn. Atvinnuleysisbætur hækkuðu frá og með 1. febrúar. Við breytinguna munu fullar grunnatvinnuleysisbætur á mánuði hækka úr rúmum 118 þúsund krónum í rúmar 136 þúsund. Greiðslur á atvinnuleysisdag hjá þeim sem eru með fullar bætur hækkuðu þannig úr 5.446 í 6.277 krónur. Á vef Vinnumálastofnunar kemur fram að atvinnulausir á landinu eru nú 1.900. baldur@dv.is Vinnumálastofnun 1900 íslendingar eru nú atvinnulausir. Steinþór Skúlason, forstjóri Slát- urfélags Suðurlands, SS, og undir- menn hans hafa kært skrif á vefs- væðinu www.slaturfelagid.com og með kærunni treysta þeir á liðsinni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við rannsókn málsins. Vefsvæðið var stofnað til höfuðs forstjóranum sjálf- um sem sagður er vera að slátra fyr- irtækinu. Steinþór er sagður vera að slátra fyrirtækinu með harðneskju- legum stjórnunarstíl sínum og léleg- um starfsanda innan þess. Vefsvæðið er til komið vegna mikillar óánægju margra starfsmanna Sláturfélags Suð- urlands með forstjórann og þar er full- yrt að starfsmenn úr öllum deildum fyrirtækisins standi að baki síðunni í þeirri von að Sláturfélaginu verði ekki slátrað með slæmri stjórnun. Í fyrstu var kastljósinu beint að Steinþór ein- um og hann niðurlægður með ýms- um hætti. Síðar hafa fleiri yfirmenn fyrirtækisins verið nafngreindir, og birtar myndir af þeim, og þeir kallað- ir rassasleikjur forstjórans. Steinþór segist hafa fengið nóg og hefur lagt inn kæru. Það hafa hinir nafngreindu yfirmenn einnig gert. ekki birtingarhæft Talsmenn SS hafa hins vegar svar- að þessum ásökunum fullum hálsi og sagt fyrrverandi starfsmenn reyna að koma höggi á fyrirtækið og um leið forstjórann. Í fyrstu fór fram innan- hússrannsókn vegna ásakana á hend- ur Steinþóri. Sú rannsókn hefur ekki leitt til beinna sannana gegn for- sprökkum vefsvæðisins og því treysta yfirmennirnir á hjálp lögreglunnar við að leysa málið og uppræta hina um- deildu vefsíðu. Síðustu færslur sem þar er að finna, frá ónafngreindum umsjónarmönnum síðunnar, ganga langt í því að niðurlægja jafnt for- stjórann og hina yfirmennina. Margt sem þar kemur fram er ekki hæft til birtingar á prenti. „Við erum búin að senda inn allnokkrar kærur og þær eru frá þeim einstaklingum sem hafa verið settir á skotskífuna á þessari vef- síðu. Búið er að birta myndir af fjölda starfsmanna með allskonar skítkasti. Mér finnst mjög slæmt að menn geti komist upp með svona skrif og trúi því ekki að nokkur maður taki mark á þessu. Þetta er orðið algjört ógeð og viðbjóður fram og tilbaka,“ segir Steinþór. Málið skoðað „Nú er búið að kæra þetta til lög- reglu og þurfum við atbeina lögreglu við að afla sannana þannig að hægt sé að beina kærum að ákveðnum að- ilum sem þarna eru að verki. Síðan verður bara að koma í ljós hverju það skilar og hvað lögreglan gerir,“ bætir Steinþór við. Sjálfur hef- ur Steinþór vísað öllum ásökunum á bug og fullyrð- ir að sátt ríki inn- an fyrirtæksins. Hann segir ljóst að truflaður fyrr- verandi starfsmaður standi fyrir vefsíðunni og hefur nú leitað lið- sinnis lögreglu við rann- sókn málsins. Friðrik Smári Björgvins- son, yfirmaður rannsóknar- deildar lögreglunnar á höf- uðborgarsvæðinu, segir að almennt séu allar slíkar kærur teknar til skoðunar. „Það eru allar kærur teknar til athugunar og framhaldið metið. Við þurfum að skoða hvort þetta snúi að ærumeiðingum og hvort þarna séu hótanir eða ógnanir. Síðan þarf að skoða hvort vefsvæðið sé vistað hérlendis og reyna að finna út hverjir standa þarna að baki,“ segir Friðrik Smári. TRAUSTI HAFSTEINSSON blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Heima hjá mér og í tölvunni minni hef- ur lögreglan ekkert fundið. Ég vonast til þess að mál- inu verði bara vísað frá. 20.2.2008 30.4.2008 Segist saklaus Oddur Eysteinn segir meiðyrðamálið byggja á ranghugmyndum fyrrverandi yfirmanns síns, forstjóra SS, og treystir því að málinu verði vísað frá. Menningarverðlaun DV afhent í 31. skipti: Menningarverðlaunin eftir viku Menningarverðlaun DV verða afhent í 31. sinn í Iðnó miðvikudaginn 10. mars. Athöfnin hefst klukkan 17.00 en að þessu sinni eru 40 listamenn og menningartengdir viðburðir til- nefndir í átta flokkum. Þeir eru bók- menntir, byggingarlist, fræði, hönn- un, kvikmyndalist, leiklist, myndlist og tónlist. Einnig fer fram netkosning á næstu dögum þar sem hægt verð- ur að kjósa eina af tilnefningunum 40. Sigurvegari kosningarinnar hlýt- ur verðlaun sem kallast Val lesenda. Þá eru heiðursverðlaunin afhent í áttunda sinn og mun Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenda þau líkt og undanfarin ár. Stofnað var til menningarverð- launanna árið 1978 þegar svoköll- uð gagnrýnendaverðlaun lögðust af, Silfurlampinn og Silfurhesturinn. Í nokkur ár fram að fyrstu afhendingu lágu öll listaverðlaun niðri hér á landi en það var fyrst og fremst fyrir áhuga og atbeina Ólafs Jónssonar gagnrýn- anda sem Menningarverðlaun DV urðu að veruleika. Upphaflega voru verðlaunin veitt fyrir leiklist og bók- menntir en flokkunum fjölgaði hratt. Að þessu sinni voru það 23 nefnd- armenn sem sáu um að velja tilnefn- ingarnar 40. Þrír í hverri nefnd nema nefnd byggingarlistar þar sem einn nefndarmeðlimur forfallaðist á síð- ustu stundu. asgeir@dv.is n Bókmenntir Gauti Kristmannsson (formaður) Þröstur Helgason Auður Aðalsteinsdóttir n Byggingarlist Margrét Harðardóttir (formaður) Ásmundur Hrafn Sturluson n Fræði Illugi Jökulsson (formaður) Ragnheiður Gyða Jónsdóttir Viðar Hreinsson n Hönnun Tinni Sveinsson (formaður) Ástþór Helgason Linda Loeskow n Kvikmyndalist Ásgrímur Sverrisson (formaður) Halldór Halldórsson Bjargey Ólafsdóttir n Leiklist Jón Viðar Jónsson (formaður) Signý Pálsdóttir María Kristjánsdóttir. n Myndlist Jón Proppé Hanna Styrmisdóttir Margrét Elísabet Ólafsdóttir n Tónlist Ásgeir Jónsson (formaður) Eldar Ástþórsson Helgi Jónsson Nefndaskipan Menningarverðlaun DV Sigurvegar- arnir í fyrra saman komnir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.