Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2010, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2010, Blaðsíða 15
NEYTENDUR 3. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR 15 VILTU FRÍAN BÍL? Ef þú veist um ferðamenn sem eru að leita sér að hagstæðum bíl til að leigja, geturðu hagnast. Farðu á bílasölu og kauptu bíl í ódýrari kantin- um, á til dæmis hálfa milljón. Ef þér tekst að leigja hann í fjórar vikur geturðu farið langt með að borga bílinn upp. Þegar ferðamennirnir eru farnir siturðu eftir með ágætan bíl sem þú borgaðir lítið sem ekkert fyrir. Ef þú þarft ekki að nota hann geturðu selt hann aftur. HJÁLPAÐU NEMENDUM Ef þú ert nýlega út- skrifaður úr háskóla, eða jafnvel framhaldsskóla, og námið er þér í fersku minni geturðu auðveldlega eignast aur. Námsmenn í próflestri eru margir til í að borga fyrir aðstoð við erfiða námsáfanga. Með smá upprifjun ertu klár í slaginn auk þess sem þú verður fyrir vikið enn færari í faginu. Auglýstu að- stoð þína á er.is eða sambærilegum vefjum. Á KAFI Í MYNTKÖRFUNNI Eyjólfur Jónsson fór til Noregs til að geta borgað skuldir: TÓK LÁNIÐ MÁNUÐI FYRIR HRUN kosti en ég mat það svo að hagstæð- ast væri að halda áfram að borga af erlenda láninu, ég ákvað að skuld- breyta því ekki. Ég borga vextina plús 33 prósent af fullri greiðslu. Það gerir um 42 til 46 þúsund á mánuði,“ útskýrir hann. Eyjólfur var svo heppinn að tak- ast að leigja bílinn sinn. „Sá sem leigir borgar mér 55 þúsund á mán- uði en inni í því eru tryggingar, bif- reiðagjöld og allt slíkt. Hann borgar smurningu og minni háttar viðhald,“ segir hann. Norðmenn lokaðir Eins og áður sagði ákvað Eyjólfur að flytja til Noregs, til að freista þess að létta á skuldabyrðinni. „Þetta ástand var mjög stór hluti af ákvörðuninni. Það hækkar allt heima, sama hvort það er maturinn eða skuldirnar. Mig langaði líka að læra nýtt tungumál,“ segir Eyjólfur sem er mjög ánægð- ur með dvölina í Noregi þó að níst- ingskuldi hafi verið þar undanfar- ið. Hann er ánægður með launin en segir aðspurður að Norðmenn séu ekki eins opnir og Íslendingar. „Þeir eru hrikalega lokaðir en þetta kem- ur. Maður þarf bara að gefa þessu smá tíma. Ég er farinn að skilja flest sem þeir segja en mér gengur ekki eins vel að tala norskuna. Grunn- skóladanskan hjálpar manni þó aðeins,“ segir Eyjólfur að lokum en hann reiknar með að koma heim í lok árs. Líður vel í Noregi Eyjólfur Jónsson tók lán sem hefur hækkað úr 2,4 í 4,6 milljónir króna. MYND BALDUR GUÐMUNDSSON Aðalsteinn Tryggvason sjómaður missti bílinn í desember: BÍLLAUS EN SKULDAR ENN ÞÁ JAFNMIKIÐ „Staðan í dag er sú að þeir komu og tóku af mér bílinn í desember. Ég skulda þeim enn þá 2,7 millj- ónir og er bíllaus,“ segir Aðalsteinn Tryggvason, 29 ára sjómaður. Hann tók við myntkörfuláni upp á 1,4 milljónir króna í júlí 2007, þegar hann keypti Honda Accord á um 1,8 milljónir. Mismuninn greiddi hann út. Aðalsteinn segir aðspurður að hann hafi vel getað ráðið við greiðslubyrðina, sem var 22 þús- und. Það hafi verið forsenda þess að hann tók við láninu. Spurður hvort hann hafi leitt hugann að þeirri gengisáhættu sem fylgt gæti geng- istryggðum lánum segir Aðalsteinn að bílasalinn hafi vart haldið vatni yfir þessum lánum og að hann hafi sannfært hann um ágæti þeirra. „Auðvitað leit þetta út fyrir að vera sniðugt á sínum tíma. Það voru all- ir að gera þetta og manni var bara ráðlagt að hafa þetta svona. Það var bara fyrir trassaskap að ég var ekki búinn að fara niður í banka og fá láninu á íbúðinni minni skuld- breytt yfir í erlenda mynt. Það stóð til,“ segir Aðalsteinn sem er feginn að hafa ekki látið verða af því. Hætti að geta borgað Síðasta sumar var lánið komið úr 1,4 milljónum í 2,7. Greiðslubyrðin hafði hækkað úr 22 þúsund krón- um upp í liðlega 70 þúsund, að sögn Aðalsteins. Þá segist hann hafa ver- ið hættur að ráða við greiðslurn- ar. „Ég hætti að geta borgað í maí í fyrra og bað Lýsingu um að fá að sjá allar leiðir sem stóðu til boða. Þeir buðu mér að borga vextina og fjórðung afborgunarinnar. Það gerði tæplega 50 þúsund krónur á mánuði,“ segir Aðalsteinn. Hann freistaði þess að fara þá leið en það gekk ekki þar sem afborgunin var enn allt of há. Hann hætti því að borga og beið þess að Lýsing tæki af honum bílinn. Það gerðu þeir í desember. „Þeir tvídraga frá“ Þrátt fyrir að hafa bílinn ekki leng- ur segist Aðalsteinn enn skulda þeim jafnmikið, eða um 2,7 millj- ónir. „Bíllinn er metinn á 1,3 millj- ónir en það varð að engu. Þeir tvídraga allar smæstu skemmd- ir frá, grjótbarning og eðlilegt slit. Í sviptingarbréfinu segja þeir að matið á bílnum miðist við lista- verð á nýjum bíl en frá dragist eðli- legt slit á lakki og öðru slíku. Eftir að búið er að draga það frá kost- ar bíllinn 1,3 milljónir að þeirra mati. Eftir það draga þeir aftur frá og láta mig borga nýja hurð, nýtt bretti, nýtt húdd og 35 þúsund krónur fyrir aukalykla,“ segir Að- alsteinn sem fullyrðir að bíllinn hafi verið í fínu ásigkomulagi, eins og vænta megi af fimm ára göml- um bíl. Hann er afar ósáttur við að þeir rukki hann bæði fyrir „eðlilegt slit“ og svo skipti þeir um allt sem eitthvað á sjáist. „Þetta er bara sví- virðilegt. Það er eina rétta orðið,“ segir Aðalsteinn sem fékk að lok- um ekki nema 580 þúsund krónur fyrir bílinn. Aðalsteinn segir að bíllinn verði boðinn upp en hann fái ekki að njóta þess ef Lýsing fær meira en 580 þúsund fyrir bílinn. Það komi ekki til frádráttar. Óttast að missa íbúðina Spurður um nýfallinn héraðsdóm segist Aðalsteinn binda miklar vonir við að Hæstiréttur staðfesti dóminn. Að öðrum kosti sjái hann jafnvel fram á gjaldþrot. „Auðvit- að óttast maður að missa íbúð- ina. Maður er alveg háður þess- um dómstólum með framtíðina en ég reyni að hugsa sem minnst um það,“ segir Aðalsteinn og bæt- ir við að hann geti lítið annað gert en vonað. Spurður hvað hann vilji að gerist ef Hæstiréttur staðfesti dóminn segist hann vilja að lán- in yrðu leiðrétt niður á gengi sem væri ekki mikið hærra en þeg- ar lánin voru tekin. „Ef þetta fell- ur réttum megin ætla ég að gera eitthvað í þessum frádráttarlið- um líka. Það er verið að tvídraga af mér allt slit á bílnum,“ segir hann að lokum. Missti Honduna Aðalsteinn skuldar tvöfalt það sem hann gerði þegar hann tók við láninu, þrátt fyrir að hafa misst bílinn. MYND BJARNI EIRÍKSSON Hlöðver Ingi Gunnarsson tók tveggja milljóna króna myntkörfulán: „MAÐUR ASNAÐIST MEГ „Það er voðalega erfitt að tala um sig sem fórnarlamb, maður asnaðist með í þessu fáránlega ástandi. Ég geri mér grein fyr- ir því að þetta er að mestu leyti mér sjálfum að kenna. Ég ætlaði að reyna að komast á auðveldan hátt upp með að kaupa bíl,“ segir Hlöðver Ingi Gunnarsson, 24 ára nemi í Evrópu- og kennslufræð- um við Bifröst og HR. Reiknaði með gengislækkun Hlöðver keypti sér nýjan Ford Focus á myntkörfuláni í febrúar 2008. Hann segist hafa greitt 300 til 400 þúsund krónur beint út en hluti af því hafi verið lántöku- kostnaður. Greiðslubyrðin hafi verið 26 þúsund krónur í upphafi og það hafi verið vel viðráðanlegt. „Ég gerði ráð fyrir því að þetta gæti í versta falli hækkað upp í svona 35 þúsund krónur og hafði því nokkurt svigrúm,“ segir Hlöð- ver en honum reiknaðist til að myntkörfulánið væri hagstæðara svo fremi sem afborganir færu ekki yfir 35 þúsund á mánuði. „Ég fékk að heyra að þar sem krónan væri búin að falla töluvert gæti hún farið upp aftur,“ segir hann. Hlöðver segir aðspurður að Lýsing hafi ekki haldið myntkörfu láni að honum frekar en öðrum lánum. Honum þótti hins vegar blóðugast að þurfa ábyrgðarmenn fyrir láninu, þar sem flestir aðrir virtust kom- ast hjá því á þessum tíma. „Mað- ur er því með foreldra sína líka í súpunni,“ segir hann. Eins og að leigja bíl Hlöðver segir að lánið hafi hækk- að smátt og smátt en það hafi ekki verið fyrr en undir hrun að greiðslurnar fóru að verða óbæri- legar. „Þetta fór hæst upp í 56 þúsund krónur á mánuði, minn- ir mig,“ segir Hlöðver en hann er búinn að nýta sér úrræði um greiðslujöfnun og lengja þannig lánið um þrjú ár. „Ef staðan breyt- ist ekkert standa 600 þúsund krónur út af eftir þessi þrjú ár,“ segir hann og bætir við að hann sé ekki mjög bjartsýnn á að geng- ið breytist til hins betra. „Ég er farinn að líta á þetta eins og bíla- leigubíl sem ég leigi. Þetta er fyrir löngu hætt að vera einhver eign,“ segir Hlöðver sem segist ekki geta selt bílinn nema greiða eftir- stöðvar lánsins eftir sölu. Það geti hann seint þar sem lánið standi nú í rúmum þremur milljónum króna. Hlöðver segist ánægður með það viðmót sem hann hefur mætt hjá starfsfólki Lýsingar. „Starfs- fólkið hefur verið mjög almenni- legt. Ég þurfti til dæmis einu sinni að sleppa því að borga einn mán- uð og það var í lagi. Þeir hafa ver- ið sveigjanlegir við mig,“ segir hann. Hann segist ekki þora að gera sér miklar væntingar vegna þess dóms sem féll í héraðsdómi á dögunum, þar sem tenging lána við erlenda mynt var sögð ólög- leg. „Mér finnst ólíklegt að það breyti einhverju. Best væri samt ef lánið yrði þannig að maður gæti losað sig við bílinn. Það er ekki valmöguleiki sem ég hef í dag og því sit ég uppi með hann,“ segir Hlöðver sem hefur þó tek- ist að leigja bílinn öðrum fram á sumar. Átti hlutabréf Þegar Hlöðver keypti bílinn í febrúar hugleiddi hann að láta hlutabréf sem hann átti í Kaup- þingi og Exista upp í bílinn. „Ég hefði getað selt þau og nánast borgað upp bílinn en ákvað frek- ar að halda í bréfin og taka lán fyrir bílnum. Það leit betur út á pappírunum þá. Ég væri hér um bil skuldlaus ef ég hefði selt á þeim tíma,“ segir Hlöðver en við bankahrunið urðu hlutabréfin nánast alveg verðlaus, auk þess sem lánið snarhækkaði. Tapið var því tvöfalt. Hlöðver finnst eftir á að hyggja skrítið hversu fúsar lána- stofnanir voru til að lána. „Ég þurfti varla að ræða við bankann um að fá lán. Þetta var allt í hönd- um bílasalans,“ segir hann en ít- rekar að hann viti sjálfur upp á sig sökina. „Mér líður svo sem ekki eins og það hafi verið brot- ið á mér. Það verður hins vegar svo svakalegur forsendubrest- ur að jafnvel þó maður hafi gert plön brustu allar forsendur sem maður hefði getað gefið sér,“ seg- ir hann að lokum. Hafði vaðið fyrir neðan sig Hlöðver gerði ráð fyrir gengisfalli og hækkunum afborgana um 9 þúsund krónur. MYND SIGTRYGGUR ARI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.